Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 45 einnig jólakort og eiginlega öll kort íslenskrar gerðar, þá einnig notuð á íslandi. I þessum áhugamanna- hópi var hann ekki síður hrókur alls fagnaðar en hjá frímerkjasöfn- urum. Hann tók nokkrum sinnum þátt í samsýningum þessara tveggja áhugamannahópa. Vann hann þá ætíð jafnt á báðum deildum og sýndi einnig í þeim báðum. Jón var alla tíð fastur liður í starfinu er byggja þurfti upp frímerkja- eða kortasýn- ingar á Islandi. Líka ef byggja þurfti upp frímerkjaklúbba á Stór-Hafnar- fjarðarsvæðinu. Á fundum var hann að finna allt frá Norræna húsinu suður í Gúttó í Hafnarfirði ef þar voru frímerkjafundir, nema hann væri á spítala. Fyrir allt þetta samstarf vil ég færa honum einstakar þakkir, sem og látinni konu hans. Fyrir hönd Klúbbs Skandinavíusafnara og fyrir ótalinna daga starf fyrir þann klúbb á svo mörgum sviðum skal Jóni og Dísu einnig þakkað. Munu þau raun- ar hafa innt af hendi mikla þjónustu í fleiri frímerkjaklúbbum. Hann Nonni var alltaf glaður og reifur í þeirri minningu sem ég á um hann. Hversu sjúkur sem hann var, stillti hann sig ekki um að brosa, jafnvel skella uppúr ef honum fannst eitthvað skemmtilegt, og á það var hann naskur. Ættu vinir hans í erfiðleikum var óvíða jafng- ott að koma og á Njálsgötuna. Þyrfti allt í einu að Iíma frímerki á nokkur þúsund bréf kom hann bara með alla fjölskylduna á vettvang og málið var leyst. Við hjónin og öll okkar íjölskylda kveðjum, við þetta tækifæri, þig og Dísu með þökk fyrir vináttu og tryggð. Klúbbamir sem við stofnuð- um saman kveðja ykkur að loknum árangursríkum vinnudegi með trú- mennsku. Friður Drottins blessi ykkur. Nonni minn, „hvíldu í eilífum friði“. Sigurður H. Þorsteinsson. Jón Halldórsson húsgagnabólstr- ari er látinn. Andlátsfregnin þurfti ekki að koma á óvart. Jón hafði strítt alllengi við sjúkdóm sinn og ætíð af æðruleysi. Hann var mjög hagur maður, ekki síður við þau handverk, sem fremur eru talin vera á verksviði kvenna en karla, en þau, sem körlum hafa einkum verið eignuð. Það er því næsta táknrænt, að hann sofnaði í hinsta sinn í hæg- indastól sínum og var við perlusaum. Jón var kvæntur móðursystur eiginkonu minnar. Þau hjón og tengdaforeldrar mínir bjuggu bæði á Njálsgötunni hér á árum áður. Samgangur var mikill á milli þess- ara fjölskyldna, oft Ieið ekki svo dagur, að þær hittust ekki. Minning- ar streyma að, en eftirminnilegustu samverustundirnar eru aðfanga- dagskvöldin heima hjá tengdafor- eldrum mínum, en þá kom Jón og fjölskylda í heimsókn eftir að kvöld- verði lauk, og jóladagsboð og þorra- blót hjá Jóni og konu hans. Á þess- um árum fórum við tveir stundum í göngutúra og gengum á þau fjöll, sem við töldum vera slíkrar heim- sóknar virði. Eftirminnileg er gang- an á Reiphólsfjöll í Gufudalssveit og smáferð á Helgafell við Hafnar- íjjörð. Jón var smákíminn. Ég gleymdi í síðari ferðinni einhvetju uppi á fellinu og kleif það aftur til að ná þessum hlut. Þegar niður kom var Jón að spjalla við tvær ungar stúlkur, sem horfðu á mig eins og naut á nývirki, en hann brosti út í annað munnvikið. Síðar sagði Jón mér frá því, að hann hefði sagt stúlkunum, að ég væri vanur að ganga tvisvar á fjöll ef ég gengi á þau á annað borð. Munu þær hafa trúað þessu og talið mig vera sér- kennilegan sérvitring. Síðar áttum við margar stundir við að skoða frí- merki og kortasafn Jóns, en það er hið besta safn af kortum, sem snerta ísland, sem nú er til, söfn eru ekki undanskilin. Jón var fyrr á árum dyravörður í Hafnarbíói. Oft fékk maður að skjótast inn á sjöbíó og sá þannig margar myndir gerðar eftir sögum Edgars Allans Poes svo að dæmi séu nefnd. Jón var skemmtilegur maður og drengur góður í hinni fornu merk- ingu þeirra orða. Stórfjölskyldan í Safamýri 31 þakkar honum ára- tuga samvistir og flytur sonum hans og mökum þeirra, uppeldis- dóttur hans, barnabörnum, systkin- um hans og mökum þeirra og öðr- um aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Lýður Björnsson. Elsku besti langafi. Þú varst ekta afí sem varst okkur öllum góður. Við viljum kveðja þig með bæninni sem mamma þín kenndi þér og þú saumaðir út og settir í ramma fyrir okkur alla langafa- strákana þína. Illa dreymi drenginn minn, Drottinn sendu engil þinn vöggu hans að vaka hjá, vondum draumum bægðu frá. Lát hann dreyma um líf og yl, ljós og allt sem gott er til, ást og von og traust og trú tak hann strax í fóstur nú. Verði hann besta bamið þitt. Bænheyrðu nú kvakið mitt svo ég geti sætt og rótt sofið dauðans löngu nótt. (Ókunn.höf.) Megi Drottinn blessa þig og varð- veita. Þínir langafastrákar, Agnar Smári, Sindri Snær og Elías Nökkvi. STEFANIA SVEINSDÓTTIR + Stefanía Sveins- dóttir fæddist i Arnarbæli í Gríms- nesi 22. nóvember 1914. Hún lést á V íf ilsstaðaspítala 27. mars síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ 8. apríl. Þótt fullorðna fólkið í hverfinu kallaði hana Stebbu mína Stefaníu, var Stebba alltaf Stebba fyrir mér. Oft var farið mörgum stuttum skrefum á ská yfír götuna til þess að heimsækja Stebbu. Þar var und- antekningarlaust vel tekið á móti litlum stuttum snáða, sem lengi fram eftir aldri trúði þvf að Stebba væri jafn eðlilegur hluti af fjöl- skyldumynstrinu og mamma, pabbi og systkinin. Mörgum stundum eyddum við strákarnir í hverfínu í rökræður um hver okk- ar væri í mestu uppá- haldi hjá Stebbu, þar stóð ég ætíð fastur á minni skoðun því til finningar mínar til Stebbu voru sterkar enda byggðar á ódvín- andi velvild og hlýju í minn garð, jafnt fvrri sem seinni ár. Þessi velvild og hlýja Stefaníu reynd ist gott veganesti og er mér nú, sem full- orðnum manni, ógleymanleg fyrirmynd þess hvernig komið er fram við ungar og viðkvæmar sálir á traustan og upgbyggjandi hátt. Ég kveð Stefaníu með eftirsjá, virðingu og kærri þökk fyrir öll góðu árin á Markarflötinni. Ég votta þér, Kristján minn, mína dýpstu samúð. Gunnar Ellert Geirsson, Kaupmannahöfn. ELINROS MARGRET HERMANNSDÓTTIR + EIínrós Her- mannsdóttir var fædd á Kol- grímastöðum í Eyjafirði 28. apríl 1922. Hún lést hinn 31. mars síðastlið- inn. Elínrós var þriðja í röðinni af fimm systkinum og sá yngsti, Bjarni, einn eftirlifandi. Elínrós giftist Aðalsteini Sæ- mundssyni vél- stjóra árið 1947. Hann lést 14.10. 1995. Þau eignuðust átta börn. 1) Hermann, f. 14.10. 1945, lát- inn 1. júlí 1988. Eftirlifandi kona hans er Hrönn Helgadótt- ir og eiga þau tvo syni. 2) Ás- laug Guðrún, f. 26.9. 1950. Hennar maður er Hörður Erl- ingur Tómasson og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. 3) Gunnar Kristinn, f. 26.9. 1950, látinn 28.9. 1950. 4) Benedikt, f. 12.4. 1953, fráskilinn og á Þegar ég heimsótti ömmu mína síðast vissi ég að ég myndi ekki sjá hana aftur. Ég fór til að kveðja hana. Þegar fréttin barst um að Ella amma væri dáin þá létti mér. Loks var bundinn endi á þrautir hennar. Hún er dáin en eftir standa minningarnar um yndislega mann- eskju. Þessar minningar munu ylja mér alla mína ævi. Eg mun aldrei gleyma heimsóknunum á Holtsgöt- una. Amma þreyttist aldrei á að hafa ofan af fyrir okkur krökkunum og þau voru ófá skiptin sem við fengum að gista. Þá var spilað, farið í leiki og skoðaðar slides- myndir. Það brást líka sjaldan að fullt fat af glænýjum pönnukökum beið á borðinu þegar við gengum inn um dymar en amma var alltaf frábær bakari og kokkur. Ekki að undra að alltaf væri gestkvæmt hjá hann þrjú börn. 5) Heimir, f. 19.8. 1954, hans kona er Herdís Snorradótt- ir og eiga þau tvö börn. 6) Sæmundur, f. 7.8. 1957, hans kona er Halldóra S. Valgarðsdóttir og eiga þau þrjá syni. 7) Margrét, f. 3.8. 1961,_ hennar maður er Orn Hilm- arsson og eiga þau tvö börn. 8) Gyða Kristín, f. 5.10. 1963, hennar maður er Ragnar Bjarnason og eiga þau tvo syni. Elínrós ólst upp frá 8 ára aldri í Leyningi í Eyjafirði og fluttist til Reykjavíkur árið 1947. Hún vann heimilisstörf þar til börnin voru komin á legg og vann þá við fiskvinnslu og verslunarstörf. Útför Elínrósar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. þeim ömmu og afa og hjá þeim voru alltaf allir velkomnir. Ég trúi því að nú sé amma komin til afa og Hemma frænda og þar líði henni vel, laus við veikindi og þjáningar. Elsku amma, hvíl í friði. Þín, Harpa. Nú er elsku móðir okkar búin að kveðja þennan heim. Hún átti við alzheimersjúkdómin að stríða síðustu ár ævi sinnar og langar okkur að minnast hennar eins og hún var áður en sjúkdómurinn fór að heija á hana. Mamma var mjög geðgóð kona og alltaf hugsaði hún mest um aðra og minnst um sjálfan sig. Þegar við vorum krakkar vaknaði hún allt- af langfyrst á morgnana til að hita KRISTÍN MARKÚSDÓTTIR + Kristín Markús- dóttir var fædd á Sæbóli í Aðalvík 10. desember 1912. Hún lést á St. Jó- sefsspítala í Hafnar- firði 31. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Markús Finnbjörns- son, útvegsbóndi, f. 3.3. 1885, d. 11.3. 1972, og Herborg Árnadóttir, húsmóð- ir, f. 30.4. 1885, d. 15.1. 1934. Markús og Herborg eignuð- ust átta böm. Þau eru: Martha Baldey, f. 1.1. 1909; Sesselja Kristín sem hér er minnst; Jón Tómas, f. 20.11. 1915; Ingileif Guðbjörg, f. 25.4. 1918; Áslaug Sigríður, f. 16.8. 1919, d. 5.6. 1920; Áslaug Sigrfð- ur, f. 1.8. 1921; Jósef Einar, f. 12.11.1923; Sigurður Breiðfjörð, f. 1.11. 1927. A lífi eru Martha, Jósef og Sigurður. Kristin ólst upp á Sæbóli en fór ung að vinna á Isafirði, m.a. á sjúkrahúsinu þar. Árið 1934 fór hún til Dan- merkur og hóf nám í hjúkrun á Sarefta-sjúkrahúsinu í Kaup- mannahöfn. Hinn 10. desember 1936 gekk Kristín að eiga Svend Andersen. Þau eignuðust son 11. ágúst Ég hitti Kristínu og Harald fyrst fyrir u.þ.b. 20 árum, þegar við Har- aldur Árni sonur þeirra vorum ný- byrjuð saman. Þau tóku mér hlýlega eins og þeirra var von og vísa. Við vorum bara krakkar, ég nýorðin 16 1936, Erling Mark- ús, maki hans er Erla Gunnarsdóttir. Saman eiga þau fjögur börn, en Erl- ing eignaðist dóttur fyrir hjónaband. Kristín og Svend fluttu til íslands árið 1937 og settust að í Vestmannaeyjum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1945. Kristín og Svend slitu samvist- ir. Hinn 17. júni 1949 giftist Kristín Har- aldi Gíslasyni, f. 27.2. 1923. Þeirra börn em: 1) Gísli Gunnlaugur, f. 27.1. 1948, maki Fanney Eva Vilbergsdóttir. Þau eiga þrjár dætur. 2) Her- borg, f. 20.1. 1953, maki Bjarni Ingimarsson, þau eiga tvö böm. 3) Haraldur Arai, f. 18.7. 1959, maki Geirþrúður Fanney Boga- dóttir, þau eiga þijú böm. Barnabarnabörn Kristínar em ellefu. Kristín og Haraldur hófu bú- skap í Reykjavík en fluttu til Hafnarfjarðar árið 1953 og hafa búið þar síðan. Útför Kristínar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ára og Halli á 18. árinu og bjuggum fyrstu mánuðina á fallega heimilinu þeirra á Mosabarði 4. Óneitanlega fylgdi því heilmikið ónæði, þar sem nú voru tveir að æfa sig á hljóðfæri daginn út og inn. Mest reyndi það á kaffí og smyija brauð handa okkur og oftar en ekki færði hún okkur kaffi í rúmið til að fá okkur á fæt- ur. Hún dekraði við börnin sín og síðar tengdaböm og barnabörn^, eins og hún mögulga gat. Ekki leið sá sunnudagur að ekki kæmi ein- hver í heimsókn á Holtsgötuna og þá var mamma byijuð að baka pönnukökur eða elda gijónagraut handa barnabörnunum. Mamma var mjög dugleg að sauma, þar á meðal saumaði hún út í marga púða sem fylltu sófana í stofunni, þannig að þriggja sæta sófi tók bara tvo. Hún var líka dug- lega að pijóna og var ekki lengi að draga fram vettlinga eða sokka ef einhvern vantaði. Við systurnar eigum henni mikið að þakka, að^ hafa átt svo yndislega og góða móður sem vildi alltaf vera að sýna okkur hvað henni þótti vænt um okkur. Mömmu þótti gott að láta faðma sig, en nú verða faðmlögin ekki fleiri hérna megin, en pabbi og Hemmi bróðir bíða eftir henni með opinn faðminn. Blessuð sé minning móður okkar. Margrét og Gyða Kristín. Elsku amma, nú ertu farin til Alla afa en við munum alltaf eftir þér. Við þökkum þér hvað þú varst alltaf góð við okkur. Hér kemur ljóð eftir Evu Hjálm-^, arsdóttur: í faðmi hennar ömmu þar bestan fékk ég blund, sem blóm und skógarrunni um hljóða næturstund. Við hennar söng ég undi, sem ljúfrar lindar klið, er liður hægt um grundu, og blómin sofna við. Og söknuður mig sækir og sorgarblandin þrá. Hvort á ég ættarlandið ♦ aftur fá að sjá? Því þar er elsku amma í aftanroðans glóð, og þar er mér hver minning svo mæt og hlý og góð. Við munum sakna þín. Ema Margrét og Kristinn Orn. Kristínu þar sem hún var heima á daginn og heyrði hvern tón en aldrei varð ég vör við að það þreytti hana á nokkum hátt. Þvert á móti. Hún hvatti okkur á svo marga vegu. Kristín og Haraldur áttu gott hljóm- plötusafn og Kristín hlustaði með okkur á perlur tónbókmenntanna^, -• sagði okkur frá bókum sem hún hafði lesið, tónleikum og óperum sem hún hafði farið á. Gladdist með okk- ur þegar vel gekk og hughreysti þegar á móti blés. Við fórum svo að búa og seinna þegar við höfðum lokið námi, fluttum við hingað til Njarðvíkur. Kristín og Haraldur komu oft í heimsókn og hjálpuðu okkur í orði og verki. Krist- ín var vel lesin og ágætlega hag- mælt. Hún var greind kona og ótrú- lega minnug. Hún hafði fallega söng- rödd og kunni mikið af lögum og ljóð- um. Það var ósjaldan sem ég hringdi í hana til að spyija um ljóð, lagboða eða biðja hana um að raula fyrir mig byijunina á laginu sem mig vantjj* aði og við ræddum oft saman um alla heima og geima. Síðastliðið ár, í veikindum foreldra minna og við fráfall föður mfns, þótti mér sérstaklega vænt um að fínna umhyggju tengdafólks míns. Þrátt fyrir veikindi Kristínar hringdi hún daglega til mín, sagði að þau væru með hugann hjá okkur og hún bæði þess í bænum sínum að vel færi. Ég fann þá svo vel hversu gott er að eiga góða að, í blíðu og stríðu. En nú ski(jast leiðir um stund. Margs er að sakna en minningarnar góðu verða aldrei frá okkur teknafl*' Börnin okkar litlu, Bogi, Haraldur og Hildur, sem hafa misst svo mikið núna á stuttum tíma, sakna ömmu Stínu sinnar. En þau vita eins og við, að nú líður henni vel. Élsku Haraldur, Halli, Erling, Gísli, Hebba og aðrir ástvinir, Guð gefi okkur styrk í missi okkar. Blessuð sé minning Kristínar Markúsdóttur* ^ Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.