Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 55 AUGLVSINGAR ATVINNU- AUGLÝ5INGAR Ö Seiect autaf eensKT Select í Breiðholti Á næstunni verður opnuð ný og glæsileg Select hraðverslun í Breiðholti í Reykjavík, þar sem áhersla verður lögð á gæði vöru og þjónustu. Þangað viljum við ráða starfsfólk til afgreiðslu- og kassastarfa. Við leggjum áherslu á að í þessi störf veljist dugmikið fólk, sem er reiðubúið til að leggja sig fram um að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina okkar. Starfið hentarvel drífandi og brosmildum einstaklingum sem hafa gaman af samskipt- um við fólk og geta unnið vaktavinnu. Eitt af markmiðum Skeljungs er að halda í heiðri jafnrétti milli kynja þarsem hæfni ræð- ur vali. Við viljum því gjarnan fá umsóknir frá fólki af báðum kynjum. Aldurslágmark 20 ára. Umsóknareyðublöð liggja frammi í starfsmannahaldi Skeljungs hf., Suðurlands- braut 4, 5. hæð. Nánari upplýsingar á staðn- um fimmtudaginn 10. og föstudaginn 11. apríl frá kl. 13.00 til 16.30. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Við keppum að því að vera besti kostur viðskiptavina. Menntamálaráðuneytið Laus staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála. Staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála er laus til umsóknar. Forstöðumaður er ráðinn til fimm ára í senn. Hann skal uppfylla þær hæfniskröfur sem gerð: ar eru til prófessora við Háskóla íslands, sbr. 5. gr. laga nr. 76/1993, um Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála. Hann skal hafa stað- góða þekkingu á rannsóknaraðferðum félags- vísinda og hafa sannað hæfni sína m.a. með rannsóknum á sviði uppeldis- og menntamála. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur um stöðu forstöðumanns skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau, sem þeir hafa unnið, ritsmíð- ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1997. Umsóknir skulu sendartil menntamálaráðu- neytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 9. apríl 1997. Pípulagningamaður — vatnsveita Vatnsveita Garðabæjar óskar eftir að ráða pípulagningamann til framtíðarstarfa. Vatns- veitan aflar vatns í Dýjakrókum við Vífilsstaða- vatn og þjónar 9.000 íbúa svæði. Verkefni viðkomandi starfsmanns verða á sviði reksturs og nýlagna. Upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður áhaldahúss Garðabæjar, Gústaf Jónsson, í síma 565 8532. Umsóknarfrestur ertil 25. apríl nk. Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ. Sjávarútvegsráðuneytið Starfsmaður til að annast fjárlagagerð Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir að ráða starfsmann til að annast fjárlagagerð og til að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga fyrir ráðu- neytið og stofnanir, sem starfa á þess vegum. Starfsmanninum er jafnframt ætlað að sinna verkefnum er varða skipulag ráðuneytisins og vinna að skýrslugerð um ýmsa þætti á verk- efnasviði ráðuneytisins. Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi í hag- fræði eða viðskiptafræði. Kjör eru samkvæmt samningi Félags háskólamenntaðra starfs- manna stjórnarráðsins. Um er að ræða fullt starf. Starfið er laust nú þegar. Umsóknir sendist sjávarútvegsráðuneytinu, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 25. apríl nk. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í sjávarútvegsráðuneytinu í síma 560 9670. Sjávarútvegsráðuneytið, 10. apríl 1997. YMISLEGT Dansherra 8 ára dama, sem hefur mikinn áhuga á dansi og hefur unnið til verðlauna í A-riðli, vantar dansherra. Upplýsingar í síma 557 6570. TILK YISINING AR Verkamannafélagið HKf Sumarorlof Umsóknir um orlofsdvöl Þeir félagsmenn Hlífar sem hug hafa á að dveljast í sumarhúsum eða orlofsíbúðum félagsins næsta sumar eru beðnir að sækja um það fyrir 20. apríl nk. Hlíf á eitt sumarhús í Ölfusborgum og þrjú við Húsafell í Borgarfirði. Þá á félagið tvær orlofs- íbúðir á Akureyri. Auk þess er verið að smíða sumarhús fyrir félagið, sem á að staðsetja austur í Skyggnisskógi. Fari alltsamkvæmt áætlun mun bústaðurinn koma í gagnið í júní í sumar. Eins og undanfarin sumur er gert ráð fyrir viku- dvöl. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkurvegi 64. Skrifstofan er opin frá 13.00-16.30. Símar 555 0987 og 555 0944. Stjórn Hlífar. Stolin bifreið! Hefur þú séð bifreiðina E 3404 sem var stolið 29. mars sl. Bifreiðin er Honda Civic Sed- an árg. 1988, rauðbrún að lit. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðin er niður- komin, hafi samband í síma: 588 2214 eða 893 2010. Fundarlaunum heitið. HUSNÆÐI í BOÐI Leiguskipti á sumarhúsi Starfsmannafélag óskar eftir leiguskiptum á sumarhúsi í sumar. Erum með hús í Borgarfirði í skiptum við hús í öðrum landshluta. Upplýsingar í símum 421 1552,421 3445 og 421 3890. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Samtök psoriasis og exemsjúklinga Aðalfundur SPOEX 1997 verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl nk. á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Grímur Sæmundsen, læknir, framkvæmda- stjóri Bláa lónsins hf., segirfrá uppbyggingu við Bláa lónið. Önnur mál. Stjórnin. Fundur með fyrrum starfs- mönnum Útvegsbankans Samband íslenskra bankamanan efnirtil fund- ar með þeim sem störfuðu hjá Útvegsabankan- um í apríl 1987. Dagskrá: Lögfræðiálit á rétti starfsmanna til biðlauna. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Sambands íslenskra bankamanna, Snorrabraut 29, Reykjavík, 4. hæð, þriðjudaginn 15. apríl 1997 og hefst hann kl. 20.30. Samband íslenskra bankamanna. TILBDÐ / UTBOÐ Verzlunarskóli íslands Útboð Fyrir hönd Húsbyggingarsjóðs Verslunarskóla íslands er hér með óskað eftirtilboðum í bygg- ingu verslunarháskóla sem á að rísa við Ofan- leiti 2 í Reykjavík. Húsið er kjallari og fimm hæðir, auk tæknirým- is á 6. hæð. Húsið er 4070 fm og 14.494 rm. Helstu verkþættir eru uppsteypa húss og frá- gangur að utan, þakfrágangur, gluggar, gler, múrverk og lagnir utanhúss. Skila skal uppsteyptu húsi með þaki og gleri 1. desember 1997 en frágangi að utan skal lokið 1. júlí 1998. Sala útboðsgagna hefstfimmtudaginn 10. apríl á skrifstofu Verslunarskóla íslands, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík. Óendurkræft söluverð útboðsgagna er kr. 8.000.-. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Verslunarskóla íslands fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 7. maí 1997. FELAGSSTARF HEIMOALLUR Borgarmálin í brennidepli Borgarmálahópur Heimdallar heldur opinn fund um borgarmál í kvöld í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Gestur fundarir.s verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi. Mun hann ræða vítt og breitt um borgarmál; m.a. um félagsmál og atvinnumál og þróunina í þeim efnum á valdatíma R-listans. Fundurinn hefst kl. 20.30 og er öllu áhugafólki um borgarmál heimill aðgangur. Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.