Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 B 5 Morgunblaðið/RAX dregst augasteinninn saman til að verjast ofbirtu. Hjá fólki sem er óvant skæru sólarljósi minnkar þessi hæfileiki augans og fólk fær „ofbirtu í augun“. Stundum eru sólgleraugu hins vegar nauðsynleg. Þegar endurkast sólarljóssins er mikið, s.s. í snjó og við vötn, og þar sem sólin skín beint á okkur eins og íslensk vetrarsól ráða augu okkar ekki við ljósið. Sól- gleraugun eru smart. Þau eru merki sumarsins og eru einnig stöðutákn. Notum þau, en ofnotum þau ekki. Fætumir Á sumrin öðlast fæturnir nýtt líf. Þeir losna við skó og bomsur, koma út undir bert loft og verða skyndi- lega í aðalhlutverki. Fæturnir verða sjálfsagt frelsinu fegnir, en oft eru þeir illa farnir eftir innilokunina. Áður en farið er í sumarfríið og sandalarnir settir upp er ágætt að fara 1 fótsnyrtingu. Auðvelt er síðan að halda henni við með góðu fótakremi og einfaldri naglasnyrt- ingu. Ekki sakar að lakka tánegl- umar í tilefni sumarsins, þótt ekki Morgunbiaðið/Arnaldur SUNDLAUGARGESTIR á sólardegi. FÆTUR: Best er því að fjarlægja hárin á fótleggjum nokkrum dögum áður en farið er í sól. Húðin þarf aðjafna sig. AUGUN: Sólgleraugnalaus _ því þau eru ekki nauðsynleg augunum í venjulegri sólarbirtu, augun virka nefnilega eins og ljósop ljósmyndavélar. Jim Smart HUÐIN: Barnshúð er viðkvæm. Stúlkan er með sólhatt og drengurinn í sundskýlu með skálmum til varnar sóiinni. ANDLITIÐ: Rakakrem er mikilvægt á suntrin til að næra húðina eftir sólbað. HÁRIÐ: Nauðsynlegt er að skola hárið með fersku vatni eftir sundsprett í sjó eða sundlaug, til að halda gljáanum. sé nema með ljósum lit eða glærum. Hvít naglalökk og lökk með fól- bleikum gljáa eru alltaf í tísku á sumrin. Þótt þær séu ekki endilega eldrauðar eða gylltar eftir nýjustu tísku virka lakkaðar neglur á tánum heilbrigðari og fallegri. Sjórinn og sandurinn geta virkað sem besti nuddari. í stað þess að sofna í sólbaði á ströndinni er tilval- ið að fá sér göngu, berfættur í flæð- armálinu. Sandurinn nuddar þreytt- ar iljar og saltur sjórinn nuddar og frískar fætur og fótleggi. Ekki gleyma að skola saltið af húðinni og bera gott, nærandi krem á húðina. Háreyðing Ef hárin á fótleggjunum eru fín- leg og ljósleit verða þau fljótt nær ósýnileg í sólinni. Líklegra er þó að i konur vilji einfaldlega fjarlægja hár | á fótleggjum og í hinni svokölluðu - bikini-línu, eða náranum, sérstak- lega ef hárin eru dökk og gróf. Vaxmeðferð er óneitanlega besti kosturinn fyrir sumarfríið, hvort sem hún er framkvæmd á snyrti- stofu eða maður gerir það sjálfur. : Eftir að hár hafa verið fjarlægð með heitu vaxi tekur það þau allt upp í 6-8 vikur að koma aftur. Þær , sem aldrei hafa farið í vaxmeðferð geta verið alveg óhræddar, því með- ferðin er ekki mjög sársaukafull, hún margborgar sig og það er mjög þægilegt að þurfa ekki að hugsa of , oft um þetta. Konur þurfa ekld að vera feimnar við að láta fjarlægja . óæskileg hár í náranum á snyrti- ' stofu. Agætt er þá að koma í þeim sundbol eða baðfötum sem ætlunin • er að nota í friinu. Húðin verður að í fá að jafna sig eftir vaxmeðferð því i hún verður viðkvæm, rauð og hár- i sekkirnir opnir. Best er því að fjarlægja hárin nokkrum dögum áður en farið er í sól. Vaxmeðferð virkar eins og nuddmaski virkar á andlitið, þ.e. dauðar húðfrumur eru fjarlægðar ' ásamt hárunum og því verður húðin mjög opin fyrst á eftir. Reyndar er beinlínis bannað að fara í sól í a.m.k. 24 tíma eftir vaxmeðferð. Nýja húð- in undir er alveg opin og varnarlaus og getur brunnið, hreinlega fuðrað upp í sól ef farið er út of fljótt eftir meðferð. Þær sem ekki vilja nota heitt vax ættu þó að varast að raka á sér fótleggina. Frekar ætti að nota háreyðandi ki-em. Þau eyða hárinu alveg við yf- irborð húðarinnar, þau er hægt að nota hvenær sem er og þau erta ekki húðina eins og vaxið. Sú með- ferð dugar hins vegar skemur, þar , sem hárið er fjarlægt aðeins rétt niður fyrir húðina en vaxið rífur hárið upp með rót. Ilmvatn Ilmvötn og sól eiga ekki saman. Margar konur í Suður-Evrópu eru með dökka bletti á húðinni vegna þess að þær hafa verið með ilmvatn f í sól. Þessir dökku blettir hverfa « ekki. Takmarkið ilmvatnsnotkun við ' heitar nætur en sleppið því á dag- j inn. Margir ilmvansframleiðendur : hafa sent á markað „léttar“ útgáfur { af ilmum sínum sem eiga einstak- ( lega vel við andrúmsloft sumarsins. Vatn Eftir dagstund í sólinni, við sund- laugina eða á ströndinni, er ekkert i eins hressandi og kælandi sturta. * Vatn að utan sem innan er svar okk- 1 ar við rakatapi því sem við verðum fyrir í heitu loftslagi. Útgufun er gífurlega mikil í sól og hita og gildir þá einu hvort svitnað er eða ekki. Ef einhvern tíma hefur þótt gott að drekka vatn er það fimmfalt nauð- synlegra í sumarfríi á sólarströnd. Vatnið heldur jafnvægi í frumum líkamans og ef það skortir verðum við vör við slappleika, svima og höf- uðverk. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að drekka ríkulega og neyta meiri salts. Ekki gleyma vatninu - að utan og innan! Að njóta sólarinnar Að lokum: Þótt maðurinn sé eina ! spendýrið sem ekki er háður árstíð- j arsveiflum til mökunar hafa líffræð- t ingar samt sýnt fram á að kyngeta j karlmannsins er í hámarki frá júní fram í september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.