Morgunblaðið - 13.07.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.07.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1997 17 „Að undanförnu hafa átt sér stað kynslóðaskipti hjá þjálfurunum og inn komið fólk sem er betur mennt- að en áður og hefur sjálft verið í fijálsíþróttum. I þessum hópi get ég nefnt Þráin Hafsteinsson, Ragnheiði Ólafsdóttur, írisi Grönfeidt og Vé- stein Hafsteinsson svo örfá dæmi séu tekin. Samt sem áður vantar fleira fólk en nú og ekki hvað síst fleiri til starfa hjá félögunum. Það er ekki nóg að eiga hæfa þjálfara en þeir standa einir að starfi deild- anna. Einnig vantar þeim þjálfurum sem hér eru tækifæri til að endur- mennta sig og fylgjast með því er að jgerast. Þar kemur að hlutverki FRI og ég er með hugmyndir þar að lútandi sem ég get ekki úttalað mig um á þessari stundu. Þar kemur einnig hvernig hagað skuli uppbygg- ingu þjálfunarmenntunar í landinu." Þarf ekki meiri aga í æfingar? Vésteinn Hafsteinsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið í vetur að sér hefði verið það áfail að koma heim eftir að hafa búið og æft erlendis lengi og verða vitni að metnaðar- skorti og agaleysi sem virtist oft ríkja hjá frjálsíþróttamönnum. „Vissulega er það fyrir hendi og ég held að það séu ekki eingöngu íþróttamennirnir heldur hreyfingin í heild sem þarf að vinna af meiri aga og skipulagi. Vésteinn og fleiri eru að koma inn í hreyfinguna með nýj- an hugsunarhátt. Það sjónarmið, „þetta reddast" hefur fengið að stjórna of miklu. Dæmi má nefna að hann kom á fund hjá okkur í vor þar sem við spurðum hann hvort hann gæti tekið að sér eða aðstoðað okkur við afmælismót FRÍ í sumar. Hann sagði það vera of seint farið af stað í undirbúningi. Til þess að haida svona mót eins við höfðum í huga með erlendum keppendum þarf tvennt, mikla vinnu og það þarf að skipuleggja í tíma. Engu verður bjargað við á elleftu stundu. Þess vegna hættum við að hugsa um mótið og ákváðum að hafa hátíðar- útgáfu af Bikarkeppni FRÍ í ágúst. Þetta segir okkur að við verðum að fara vinna á annanhátt en verið hefur. Hugsa fram í tímann og haga okkar vinnu í samræmi við það. Þetta gildir jafnt í fræðslu og út- breiðslumálum svo og í þjálfara- og mótamálum." Staðan sjaldan betrí Ekkert af þessu verður hins vegar gert án þess að peningar séu til. Hugmyndirnar einar sér nægja ekki og staða FRÍ er góð frrekar en margra annarra sérsambanda. Jónas segir það vera rétt. „Það kostar ekki svo mikið að leggja fram hugmyndir." Hann segir að taka verði jafnt á öllum þessum hlutum, peningamálunum sem öðrum. „Við verðum að byrja á upphafsreit og taka á öllum málum af festu og skipu- lagi. Til þess verða að allir að vinna saman að sameiginlegri stefnu sem ég vil að við setjumst niður nú í til- efni afmælisins og mörkum okkur.“ Að mati Jónasar hefur FRÍ ekki starfað af fullum krafti síðastliðið ár og kemur þar margt tii, m.a. annir formanns, framkvæmdastjóra- skipti og breytingar á skrifstofu sambandsins. En nú gerir hann sér vonir um að þessu tímabili sé lokið og hægt verði að setja á fulla ferð. „Það verður bara að gerast. Ég ætla ekki að vera formaður og sitja og bíða eftir því að hlutirnir gerist, það er alveg ljóst. Ég er þegar far- inn að setja af stað undirbúning að endurskoðun mótaáætlunar. Þar þarf að gera breytingar og eins og ég hef reifað hér er margt fleiri sem brennur að verði gert og ég vil koma í framkvæmd." Nú á 50 ára afmælinu og eftir formannaskipti, hvernig er samstað- an innan hreyfingarinnar sem þú segir að þurfi svo margt að laga? „Samstaðan innan hreyfingarinn- ar er góð. Heilbrigður rígur á milli félaga er hins vegar af því góða. Ljóst er hins vegar að rígur hefur oft verið FRÍ til trafala. Ég held hins vegar að í tíð forvera míns Helga Haraldssonar hafi verulega dregið úr honum. Menn hafa meiri samkend hver með öðrum en oft áður. Vonandi helst þessi samstaða því án hennar getum við ekkert gert, sama hver er formaður." ÍÞRÓTTIR Becker hættur við að hætta ÞÝSKI tennisleikarinn Boris Becker er hættur við að hætta og hef- ur tilkynnt að hann verði með á Opna bandaríska meistaramótinu sem hefst í næstu viku. Becker, sem er 29 ára sagði eftir tapið gegn Pete Sampras á Wimbledon í fyrri viku að það hefði verið síðasti leikur sinn á stóru mótunum. „Ég hef ekki lengur það sem þarf til að sigra á stórmóti, og þá er eins gott að hætta,“ sagði Becker á Wimbledon en nú vill hann reyna enn einu sinni og ætlar að freista þess að endurtaka leikinn frá því 1989 er hann sigraði á Opna banda- ríska meistaramótinu. Sjóvd-Almennra ddldin Stjörnuvöllur Stjarnan - KR í dag, sunnudag, kl. 20.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.