Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ______________________________________FRETTIR_______________________________________ Lög um veiðar utan lögsögu íslands taka meðal annars til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum Umdeilt hvort hægt sé að úthluta kvóta á skip Samkvæmt bókstaf laga um fiskveiðar utan lögsögu íslands sem sett voru milli jóla og nýárs í vetur verður hægt að úthluta afla- heimildum á einstök skip vegna veiða úr norsk-íslenska síldarstofnin- um á næstu vertíð. Það er þó alls ekki óumdeilt. Hjálmar Jónsson ræddi við hagsmunaaðila og fulltrúa stjómar og stjómarandstöðu í sjávarútvegsnefnd Alþingis um viðhorfín í þessum efnum. MIKLAR líkur eru til að það stefni í átök í vetur um fyrirkomulag veiða á hlutdeild íslendinga í norsk-íslenska síldarstofninum næsta sumar. Sjónarmiðin eru mjög mismunandi í þeim efnum. Sumir telja að úthluta eigi aflakvóta á ein- stök skip, aðrir að ef það sé gert þá eigi kvótinn ekki að verða fram- seljanlegur. Þá eru einnig þeir sem telja að fyrirkomulag veiðanna eigi að vera óbreytt, þannig að hver og einn sem leyfí hefur til veiðanna geti aflað að vild að því hámarki sem heildarkvóti íslendinga leyfír. Loks eru þeir sem telja að veiðar úr norsk- íslenska síldveiðistofninum skapi jarðveg til þess að fitja upp á nýjung- um í fískveiðistjómuninni. Hlutdeild íslendinga í norsk- íslenska síldveiðistofninum var 233 þúsund tonn í ár og tókst okkur að veiða um 220 þúsund tonn. Veið- um er lokið og tókst ekki að ná öllum kvótanum í ár frekar en í fyrra. Norsk-íslenska síldin gerði vart við sig á nýjan leik eftir rúm- lega aldarfjórðungshlé árið 1994 og veiddust þá rúmar 20 þúsund lestir. Veiðarnar jukust síðan í 175 þúsund lestir árið eftir og í 165 þúsund lestir í fyrra. Mest allur aflinn hefur farið í bræðslu til þessa. Ekki er ljóst hvaða veiðiheimildir koma í okkar hlut á næsta ári og ósamið um það milli þeirra ríkja sem veitt hafa úr stofninum. Um mikil verðmæti er að ræða, þó menn séu ekki á eitt sáttir um hvernig beri að meta þau. Til samanburðar hefur komið fram að einn síldarkvóti af suðurlandssíld er metinn á 80-100 milljónir króna í skiptum á veiði- heimildum, en slíkur kvóti nemur 1.109 tonnum á nýbyijuðu físk- veiðiári. Alfarið á móti auðlindaskatti Stefán Guðmundsson, alþingis- maður Framsóknarflokksins í Norð- urlandskjördæmi vestra, sagði að á síðasta ári hefði niðurstaðan orðið sú að sjá til með fyrirkomulag á veiðunum. Málið yrði skoðað aftur nú og hann teldi að það yrði eitt af stóru málunum í vetur hvernig farið yrði með skiptingu á þeim aflahlutdeildum sem kæmu til vegna síldarinnar. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að vanda sig í því, en sú umræða og ákvarðana- taka er eftir hvernig verður farið með hann varanlega," sagði Stefán. Aðspurður hvort hann teldi að úthluta ætti þessum aflaheimildum án þess að eitthvert gjald kæmi fyrir, sagðist Stefán vera alfarið á móti auðlindaskatti í sjávarútvegi. „Ég er opinn fyrir öllum umræðum um það hvernig við skiptum þeim veiðirétti sem kemur þarna til og ég held að það sé mjög vandasamt verk að gera það svo all- ir verði sáttir," sagði Stefán ennfremur. Hann sagði að þannig hefði verið gengið frá málum í vor að sú veiði sem nú væri myndaði ekki neinn rétt til framtíðar. Hann liti þannig á að menn hefðu óbundnar hendur til að ganga til þessa verks. Síldina á að kvótasetja Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, sagði að það væri ekkert álitamál að það ætti að kvótasetja norsk-íslensku síldina fyrir næstu vertíð. Allir hafí upplifað hversu vitlaust núgildandi veiðikerfí sé með óheftum veiðum með ákvörðun heildarkvóta. Slík fiskveiðistjórnun sé mjög kostnaðarsöm og vilji menn vera raunsæir varðandi það hvernig eigi að nýta auðlindina þá sé það best gert með því að sérhver fái að vita fyrirfram hversu mikið hann megi veiða. Þá sé hægt að haga veiðunum þannig að verðmætið verði sem mest og tilkostnaðurinn sem minnstur. Engu slíku sé til að dreifa í núgildandi kerfi. „Ef menn fá leyfi til að veiða tiltekinn veiðistofn hafa mönnum ekki verið gefnir neinir milljarðar. Menn fá að sækja og kostnaðurinn við að sækja þetta er þvi miður nærri því eins mikill og tekjurnar, þótt það sé breytilegt frá einum fískveiðistofni til annars og einu veiðarfæri til annars á tilteknum tímabilum. Kostir þess að úthluta þessu miðað við veiðireynslu und- anfarinnar þriggja ára eru ótvíræð- ir í mínum huga,“ sagði Kristján. Hann sagðist ekki sjá annað en að kvótum yrði úthlutað á skip á næstu vertíð því lagafyrirmælin frá Alþingi væru alveg ótvíræð í þeim efnum. „Þegar lögin um úthafsveið- arnar voru sett þá var ráð fyrir þessu gert. Það var bara beðið eft- ir einu ári og nú er það komið. Það getur ekki komið neitt til álita að því verði slegið frekar á frest,“ sagði hann ennfremur. Kristján benti á að fordæmin væru fyrir hendi því búið væri að kvótasetja úthafskarfann og einnig væri búið að úthluta rækjurétti á Flæmingjagrunni á grundvelli þriggja ára veiðireynslu. Þá væri í lögunum ákvæði um að ávinningi norsk-íslensku síldarinnar væri dreift yfir allan flotann með því að skila þyrfti inn 15% í verðmæti annarra heimilda fyrir þær sem úthlutað yrði. Þannig dreifðist ávinningurinn til allrar útgerðar- innar. Hins vegar væru margir útgerðarmenn ósáttir við þetta ákvæði. Allt tal um veiðileyfagjald ætti ekkert frekar við í sambandi við norsk-íslensku síldina en í sam- bandi við veiðar á öðrum tegund- um. Kristján sagði aðspurður að mjög erfitt væri að meta verðmæti veiðiheimilda. Langmest væri um skipti á veiðiheimiidum milli teg- unda að ræða. Einn sæi sér hag i því að veiða frekar síld en þorsk og skipti því á veiðiheimildum þess- ara tegunda. Þorskur hefði eitthvert verðgildi sem myndaðist í jaðar- viðskiptum með örlitlum hluta veiðiheimildanna. Það verð segði ekkert til um heildarverðmæti heimildanna sem menn hefðu haft gaman af að reikna upp í himinhæðir. Þetta væri bara leikur að tölum og segði ekkert til um þau verðmæti sem um væri að ræða. „Allt kerfið er að leitast við að búa til meiri verð- mæti og kosta minnu til. Það er vegvísirinn í þessu kerfi, markaðs- öflin að verki eins og þau geta best virkað," sagði Kristján að lok- um. Kvótinn verði óframseljanlegur Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, sagði að Sjómannasambandið væri ekkert á móti því að hlutdeild okkar í norsk-íslenska síldveiðistofninum yrði kvótasett. Hins vegar væri það ófrávíkjanlegt skilyrði að kvótinn yrði óframseljanlegur. Aðspurður sagðist hann telja það skynsamlegri fískveiðistjómun að úthluta kvóta á hvert skip heldur en að hafa einn heildarkvóta sem allir geti gengið í. Almennt væri hann fylgjandi fiskveiðistjómun, en hins vegar væri það algjört skilyrði að kvótinn væri óframseljanlegur og það sama gilti um veiðar á Reykjaneshrygg og Flæmingja- gmnni. Hann teldi að það sama ætti að gilda um norsk-íslensku síldina og gilti almennt í fískveiði- stjórnunarlögunum nema að það ætti ekki að vera framseljanlegur kvóti. Skipta mætti á jöfnum veiði- heimildum en alls ekki ætti að vera um framsal að ræða. „Menn eiga ekki að hagnast á leigubraski á auðlind sem þeir hafa fengið úthlut- að án endurgjalds,“ sagði Sævar. Hann sagðist hins vegar ekki vilja auðlindagjald, hvorki á þessar veið- ar né aðrar. Ekki söluvara Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Farmanna- og fískimanna- sambandsins, sagði að ekki hefði verið rætt innan hans samtaka hvernig standa ætti að veiðifyrir- komulagi á norsk-íslensku síldinni á næstu vertíð. í vor er leið hefðu hins vegar menn verið þeirrar skoð- unar að kerfið ætti að fela í sér hvatningu til að ná síldinni, því það væri ekki gott fyrir okkur að skilja eftir hluta af veiðiheimildunum ár eftir ár. Hins vegar hefði ekki verið fjallað formlega um það hvernig ætti að standa að úthlutun á síld- inni til framtíðar, en það yrði örugg- lega rætt á þingi samtakanna í haust. Guðjón sagði að samtökin hefðu lagt mikið upp úr því að skapað yrði kerfí þar sem kvótarnir væru ekki söluvara. Ef kvótum yrði út- hlutað, þá væri það skilyrði að kvót- inn væri ekki framseljanlegur. Hins vegar mætti kvótinn vera skiptan- legur þannig að menn gætu látið frá sér síld og fengið einhveija aðra tegund í staðinn. Þarna væri um nýtingarrétt að ræða. Það væri upprunalegt markmið kvótakerfis- ins. „Þetta er veiðiréttur sem út- gerðinni er úthlutað. Það á nátt- úrlega að vera eitthvert atvinnuör- yggi í því þegar menn ráða sig á skip. Ekki sé um að ræða pappírs- fisk í einhveiju hlutabréfafyrirtæki sem er síðan seldur út og suður. Við erum algjörlega andvígir því að slíku kerfi verði komið á á einum stofninum í viðbót," sagði Guðjón. Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð neina framsetningu á veiðileyfagjaldi sem yrði ekki hrein viðbót við það brask sem þegar væri í gangi. Það væri bull þegar menn töluðu um að setja veiðileyfa- gjald inn í núverandi kerfi. Það yrði að stokka kerfíð upp og byggja það öðru vísi ef það ætti að tengj- ast einhveiju slíku. „Út af fyrir sig er ég ekkert að segja að það megi ekki taka einhvers konar gjald, en það má ekki hugsa það inn í það braskkerfi sem nú á sér stað,“ sagði Guðjón. Mjög sérstakar aðstæður Steingrímur J. Sigfússon, al- þingismaður Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra, sagði að menn hefðu haft uppi stór orð um vitleysuna og kapphlaupið sem fijálsar veiðar hefðu í för með sér. Það væri út af fyrir sig alveg rétt, og menn þekktu það frá gam- alii tíð, að það væri ekki hagkvæm- asta aðferðin við að nýta veiði- stofninn að hafa slíkt kapphlaup um aflann. „En það er erfítt að sjá einhveija aðra skárri leið í sjálfu sér heldur en að láta veiðar vera frjálsar innan einhverra marka á meðan það er að myndast aflareynsla. Lögin gera ráð fyrir því sem aðalreglu að grunnur til úthlutunar sé afla- reynsla. Nú er að visu um mjög sérstakar aðstæður að ræða í norsk- íslensku síldinni, þar sem hægt er að líkja því við að nýr stofn sé að uppgötvast," sagði Steingrímur. Hann sagði að þarna væru að skapast miklir viðbótarveiðimögu- leikar á skömmum tíma fyrir flot- ann og hann vildi alls ekkert útiloka það að við slíkar aðstæður færu menn aðrar leiðir heldur en við út- hlutun á hefðbundnum veiðiréttind- um innan lögsögunnar gagnvart stofnum þar sem langtíma veiði- reynsla væri fyrir hendi. Hann sagðist telja að stýra ætti veiðunum með aflamarki. Almennt væru menn sammála um að í veið- um á uppsjávarfiski hentaði það fyrirkomulag betur. Steingrímur sagði að allir út- reikningar á verðmæti veiðiheim- ildanna væru að því leyti hæpnir að þeir sýndu jaðarkostnaðarverð á einhveiju afmörkuðu magni. Þessi jaðarverð sem sæjust í ein- stökum viðskiptum endurspegluðu ekki raunverulega greiðslugetu sjávarútvegsins fyrir allar þessar veiðiheimildir. Raunhæft langtíma- verð væri ekkert annað en það verð sem afraksturinn stæði undir. Það þyrfti enginn að segja honum það að nýtingin á einum íslenskum síldarkvóta leyfði að hann væri keyptur á 80 milljónir. Það sem væri að gerast væri að menn væru að koma sér fyrir í greininni og væru til- búnir til þess að borga bullandi yfirverð fyrir kvótann til þess að vera með. Kvótinn verði seldur Sighvatur Björgvinsson, alþing- ismaður Alþýðuflokksins í Vest- íjarðakjördæmi, sagðist hafa flutt frumvarp á síðasta þingi um það að norsk-íslenski síldveiðikvótinn yrði seldur frá ári til árs á uppboði og ráðherra yrði veitt heimild til þessa. í kjölfar ummæla Einars Odds Kristjánssonar á þingi á fimmtudag við utandagskrárum- ræðu um veiðileyfagjald hefði hann farið rakleiðis til hans með frum- varpið og óskað eftir stuðningi hans við endurflutning. Hann myndi flytja frumvarpið aftur hvort sem Einar yrði við þessum tilmælum eða ekki. Sighvatur sagði að þegar málið hefði verið rætt í sjávarútvegsnefnd í fyrra hefðu menn verið sammála um að samkvæmt fiskveiðistjórnun- arlögunum væri ekki hægt að kvótasetja á einstakt skip fyrr en eftir þriggja til sex ára samfellda aflareynslu. Nú væri bara liðið eitt ár, því tekið hefði verið fram að fyrri tvö árin myndu ekki leggja grundvöll að aflareynslu. „Ég tel að það sé ólöglegt að kvótasetja á einstakt skip núna. Það var sérstak- lega tekið fram um fyrri árin að þau myndu ekki skapa grundvöll fyrir úthlutun," sagði Sighvatur. Hann sagði að hver einasti sjáv- arútvegsnefndarmaður í fyrra hefði verið sammála um það að ekki væri hægt að úthluta kvóta á skip. Sighvatur sagði að aflaheimildir í norsk-íslenska síldveiðistofninum sköpuðust fyrir tilverknað almanna- valdsins með alþjóðasamningum þar um. Aðstæðurnar væru að þessu leytinu til gjörólíkar frá hefð- bundnum veiðum. Það væri fráleitt ef þetta sama almannavald ætlaði að gefa þau verðmæti sem sköpuð- ust fyrir tilverknað þess fáum ein- staklingum. Rangtúlkun Einar Oddur Kristjánsson, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi, sagði að það væri rangtúlkun ef því væri haldið fram að hægt væri að kvótasetja norsk-íslensku síldina á næstu ver- tíð. Það hafí verið ítarlega rætt í sjávarútvegsnefnd að það væri ekki hægt að útdeila kvótum nema á grundvelli frjálsrar sóknar og ekki væri liðið nema eitt ár frá því sú afstaða hefði verið tekin. Það væri fráleitt að úthluta kvótum á skip nú. Næstu 2-5 ár yrði um fijálsar veiðar að ræða að hans mati. Sjáv- arútvegsnefnd hefði ekki verið til- búin að kvótasetja nokkra tegund nema á grundvelli reynslu og lengra þyrfti að líða. Einar Oddur sagði að aðrar regl- ur hefðu gilt um veiðarnar á árun- um 1995 og 1996 og hann myndi ekki samþykkja fyrir sitt leyti að veiðar á þeim árum yrðu lagðar til grundvallar við kvótaúthlutun. Hann sagði að við umræður um veiðileyfagjald á Alþingi á fimmtu- dag hefði hann sagt að ef menn tryðu því að auðlindaskattur gæti verið góður í hagfræðilegu tilliti þá væri kannski rétt að prófa hann í veiðum á norsk-íslenska síldar- stofninum. Við værum ef til vill að ná árangri í auknum fískveiðiarði hvað varðaði veiðar uppsjávarfiska, en um það væri ekki að ræða í þorskveiðum. Með tilliti til þess kæmi ef til vill til greina að gera tilraun með það hvort auðlinda- gjaldskerfi virkaði í tilfelli norsk- íslenska síldarstofnsins. Hann sagð- ist jafnframt hafa tekið það fram að hann hefði enga fullvissu að við værum að gera rétt með þessu, en það væri miklu nær að gera tilraun- ina, þar sem við sæjum að það hefði orðið einhver árangur af fiskveiðistjórnuninni, heldur en standa í þessu eilífa karpi. Hann bætti því við að fiskveiðistjómunarkerfið hefði ekki náð neinum árangri hvað varðar þorskveiðar og jafnvel mætti halda því fram að okkur hefði mið- að aftur á bak. Hins vegar þættist hann sjá þess merki að í uppsjávar- veiðunum væri þetta kerfi að ná árangri og „auðlindagjald byggist á þeirri hagfræðikenningu að sé fískveiðunum stjórnað á réttan hátt þá verði til fiskveiðiarður umfram það sem ella hefði orðið til og þess vegna sé eitthvað til skiptanna. Sem meginregla held ég þó að það komi best út fyrir samfélagið að þessi arður verði eftir hjá viðkomandi útgerðarfélögum. Þannig treystum við efnahagslífið best. Það er alls ekki verið að taka af útgerðinni heldur verður eitthvað til skiptanna og það er grundvöllur fyrir tiltölu- lega hlutlausa skattlagningu. Það er það sem þetta snýst um. Þetta snýst um hagkvæmni en ekki ein- hveijar upphrópanir eins og Morg- unblaðið er með um eitthvert eilífð- arréttlæti," sagði Einar Oddur enn- fremur. Skapast vegna almannavalds Líkt því að nýr stof n sé að uppgötvast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.