Morgunblaðið - 09.12.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 D 15
„Mér leizt afar vel á þetta bygg-
ingarsvæði strax frá upphafi og var
ekki í vafa um, að það yrði eftirsótt
og auðvelt að selja þar,“ segir Sig-
urður Ragnarsson, byggingameist-
ari og framkvæmdastjóri Kambs.
„Þetta hefur líka gengið eftir.
Svæðið auglýsir sig sjálft. Það er
ekki einungis fallegt frá náttúrunn-
ar hendi og með miklu útsýni til
vesturs og norðurs, heldur liggur
það mjög miðsvæðis á höfuðborgar-
svæðinu og með góðum samgöngum
í flestar áttir.“
Væntingar sem hafa rætzt
„Eg tel, að þær væntingar, sem
bundnar voru við Lindahverfið hafi
rætzt, segir Sigurður ennfremur.
„Hverfið er að byggjast afar hratt
upp og byggingaframkvæmdir þar
það örar og miklar, að gatnafram-
kvæmdir hafa varla haldið í við þær.
Framfarir í gatnagerð hafa þó orðið
miklar á þessu ári og Fífuhvamms-
brautin hefur breytt afar miklu með
tengingunni undir brúna á Reykja-
nesbraut.
Nú er búið að malbika allar götur
í Lindum I, sem byggt hefur verið
við og aðalgöturnar í Lindum II og
III hafa einnig verið malbikaðar.
Gera má ráð fyrir, að húsagötur í
Lindum II verði malbikaðar á
næsta ári. Framkvæmdir eru mið-
aðar við byggingarhraðann í hverri
götu og fara þá svolítið eftir því.
Raðhús þau, sem Kambur er með
í smíðum við Fjallalind eru á tveim-
ur hæðum og um 140 ferm. Húsin
eru steypt og að utan eru þau
pússuð með marmarasalla. Bflskúr-
ar eru innbyggðir á milli húsanna
og skilja þau að. Þök bflskúranna
eru 33 ferm. og slétt og nýtast því
mjög vel sem svalir eða sólpallar
enda í góðu skjóli. Þakform hús-
anna er A laga með portveggjum,
svo að allt rými nýtist afar vel. Uppi
eru fjögur svefnherbergi, gott bað-
herbergi og hol með útgangi út á
svalimar og loftgluggar á holi gefa
skemmtilega birtu.
Steyptur stigi er á milli hæða, en
niðri er rúmgott eldhús, borðstofa
og samliggjandi stofa með útgangi
út á baklóð. Gestasnyrting er inn af
anddyri og þvottahús með inngangi
í bflskúrinn, sem er rúmgóður. Inn
af honum er góð geymsla með út-
gangi út á baklóð.
Húsin eru hönnuð af arkitektun-
um Jakobi Líndal og Kristjáni Ás-
geirssyni. Lóðum er skilað grófjöfn-
uðum með efni af staðnum, en efnis-
skipt í innkeyrslu að bílskúr.
Raðhúsin eru nú þegar tilbúin að
utan með frágenginni lóð en fokheld
að innan og er verð þeirra þannig
9,3 millj. kr. En það er einnig hægt
að fá þau tilbúin undir tréverk og
þannig kosta þau 12.330.000 kr.
Loks er hægt að fá húsin fullbúin en
án lóðarfrágangs og kosta þau
þannig 15.370.000 kr.
„Þar sem húsin eru með marm-
arasalla að utan, ættu þau að vera
nær viðhaldsfrí," segir Sigurður.
„Þá þarf ekki að mála þau að utan,
þar sem áferðin er varanleg.
Reynslan af þessari aðferð annars
staðar er mjög góð, enda hefur
markaðurinn tekið henni mjög vel.
Fólk virðist gera sér mjög vel grein
fyrir þeim kostum, sem hún hefur.“
„Góður frágangur að utan skiptir
afar miklu máli nú,“ heldur Sigurð-
ur áfram. „Það leikur enginn vafi á
því, að fólk er næmara fyrir góðum
frágangi að utan en eitt sinn var.
Kaupendur eru kröfuharðari en áð-
ur. Þeir kynna sér markaðinn betur,
áður en þeir kaupa. Þeir skoða
meira, enda er framboð á nýjum
íbúðum töluvert, enda þótt eftir-
spurnin sé líka talsverð."
Kaupendur fdlk á öllum aldri
Að sögn Sigurðar eru kaupendur
fólk á öllum aldri. „Það er fleira fólk
úti á markaðnum í húsnæðisleit en
áður og það er ákveðnara. Mér
finnst fólk hafa mun meiri peninga
á milli handanna en var og tilbúið til
þess að stíga skrefið til fulls og
kaupa.“
Við Akralind í Lindahverfi er
Kambur að hefja framkvæmdir við
iðnaðarhúsnæði. Þar er um að ræða
tvö hús, sem eru hvort um 1.400
ferm. „Það virðist vera til staðar
HORFT yfir austurhluta Kópavogsdals. Svo hröð er uppbyggingin, bæði í Smárahverfi vestan Reykjanesbrautar og ekki síður í Lindahverfí
fyrir austan hana, að segja má, að bærinn hafi færzt í austur.
■■
M FASTEIGNAMIDSTÖDIM
LJstcZsett 1958 SKIPHOLTI 50B ■ SÍMI 552 6000 ■ FAX 552 6005
ehf
Magnús Leópoldsson
lögg. fasteignasali.
Opið virka daga 9-12
og 13-18.
Einbýlishús
DEILDARAS EINB/TVIB.
Glæsil. einb. á 2 hæðum, 338,4 fm I hús-
inu eru tvær íbúðir en opið og innangengt
á milli, þannig að húsið getur verið einb.
eða tvib. eftir aðstæðum. Vandað hefur
verið til hússins. Lóðin er sérhönnuð og
lokuð með hita i stéttum. örstutt í Árbæj-
arsundlaug og aðra útivist í Elliðaárdaln-
um. Hús með mikla möguieika t.d. fyrir
tvær fjölskyldur. 7738
AKURHOLT
Gott einbýli á einni hæð um 135 fm ásamt
35 fm bílskúr (3ja fasa rafmagn). Fimm
svefnherb. Falleg gróin lóð. Skipti mögul.
á t.d. íbúð í Mosfellsbæ. 7737
EFST í MOSFELLSD.
M/FRÁB. ÚTSÝNI
Um er að ræða einbýlishús, bílskúr, gróður-
hús, hesthús ásamt 3ja ha landi. Tilvalið fyr-
ir hestamenn eða þá sem vilja búa í sveit en
stunda vinnu á höfuðborgarsvaBðinu. 7490
Raðhús - Parhús
m is i'
^ffilffl ■■■
t mjgím 'm ŒlD QDg CD
NOKKVAVOGUR
Vorum að fá (sölu óvenju góða 77 fm hæð
í þríbýlishúsi á þessum vinsæla stað. Ibúð-
in er meira og minna öll endurnýjuð m.a.
eldhús, baðherb. rafmagn og gólfefni. Þrjú
svefnherb. Verð 8,5 m. 5404
DVERGHAMRAR
Áhugaverð neðri sérhæð 124 fm í tvíbýli.
Einnig er u.þ.b. 60 fm óinnréttaö rými sem
gefurýmsa möguleika. Sérinngangur. Góð-
ur suðurgarður með hellulagðri verönd.
Áhv. m.a. 4,9 m. Byggsj. með 4,9% vöxt-
um. Verð 9,6 m. 5403
ÖLDUGATA - HAFNARF.
Efri sérhæð í tvíbýli, stærð 72 fm. Gott
geymslurými yfir Ibúð, fyrirliggjandi teikn-
ingar að stækkun. Allt mikið endumýjað að
innan sem utan. Verð 6,5 m. 5398
GRÆNAHLÍÐ
Mjög falleg og mikið endurnýjuð sérhæð
með sérinngangi. Stærð 121 fm. (búðin er
á 1. hæð (ekki jarðhæð) 4 svefnherb. Fal-
legar hurðir, ' Merbau-parket á gólfum.
Verð 9,7 m. 5366
4ra herb. og stærri
LÆKJASMARI
Skemmtileg nýleg efri sérhæð og ris, 230
fm. Auk þess stæði I bflskýli. Ibúðin er vel
íbúðarhæf en með bráðabirgðainnréttingum
að hluta. Sérinngangur. Áhugaverð eign og
staðsetning í Kópavogsdalnum. 4166
HLIÐARAS - MOSF.- NYTT
Mjög fallegt parhús með glæsilegu útsýni
á tveimur hæðum. Skilast fullbúið að utan
með grófjafn. lóð en fokhelt að innan. Stór
og sólrikur garður. Stærð 194 fm þar af 32
fm bilskúr. Teikn. á skrifst. 6500
"3
JiiT íB'Tm ÍITifa '
Hfflíf ■
KLUKKURIMI
Til sölu 2 parhús við Klukkurima ca 195 Fm
Tilbúið að innan undir tréverk. Að mestu
frágengið að utan, en lóð grófjöfnuð. Verð
10,9 m. 6498
STEKKJARHVAMMUR
Til sölu 148 fm raðhús á tveimur hæðum
ásamt 21 fm bllskúr. Hús byggt 1985. Gott
skipulag. Verð11,0m. 6495
LEIRUTANGI
Til sölu skemmtileg neðri hæð f fjölb.,
stærð 67 Fm auk þess ósamþykkt rými um
25 fm eða samtals 92 fm. Sérinngangur,
sérgaröur. Áhv. hagstæð lán 3,8 m. 2912
KÓNGSBAKKI
Falleg 3ja herb. 79 fm íbúð á 3. hæð. Ný-
viögert hús. Merbau-parket á stofu, holi og
eldhúsi. Flísalagt bað. Þvottahús I íbúð.
Áhv. 3,1 m. húsbr. Verð 6,5 m. 2889
2ja herb. íbúðir
HRAUNBÆR
Góð tveggja herb. (búð á 1. hæð í mjög
góðu húsi sem klætt hefur verið að utan.
Snyrtileg og rúmgóð sameign. Góðar vest-
ursvalir. Ekkert greiðslumat. Áhv. 3,6 m.
veðd. með 4,9% vöxtum. 1666
GAUKSHÓLAR - LYFTA
Rúmgóð 2ja herb. (búð um 55 fm á 2. hæð.
Snyrtilegt fjölbýli og góð sameign. Vel um-
gengin og mjög áhugaverð ibúð. Verð 4,5
m. Ekkert áhvílandi. 1664
LINDASMARI
Rúmgóð og björt 5-6 herb. 153 fm íb. á
tveimur hæðum. Neðri hæð skiptist í 3
herb., baðherb. stofu, eldhús og geymslu.
Efri hæðin er einn geimur, hol og 2 herb.
Vestursvalir. Afh. nú þegar tilb. undir tré-
verk og málningu. Verð 8,0 m. 4159
STELKSHÓLAR
Mjög rúmgóð og björt 3-4ra herb. Ibúð á
1. hæð. fbúðin er 100 fm 2 saml. stofur og
2 svefnherb. Út úr stofu er suöurverönd,
eldhús er með góðri upphaflegri innrétt-
ingu, borðkrókur. Baðherb. flisalagt og lagt
fyrir þvottavél. Verð 6,8 m. 3669
3ja herb. íbúðir
SKJÓLBRAUT - KÓPAV.
Mjög góð og mikið endurnýjuð 3ja herb.
íbúð með bllskúr. Nýleg falleg eldhúsinnr.
Flísalagt baðherb. Húsið nýlega viðgert að
utan. Ahv. 4,8 m. hagstæð lán. 2925
KJARRHÓLMI.
Góð 75 fm 3ja herb. ibúð á 1. hæð I mikið
endurnýjuðu fjölbýli. Góð sameign. Útsýni
yfir Fossvogsdalinn. Skipti á stærri eign vel
möguleg. Verð 6,0 m. 2924
FLYÐRUGRANDI
Góð 2ja herb. íb. i glæsil. fjölb. Góðir skáp-
ar. Góð eldhúsinnr. Þvottahús á hæðinni.
Glæsiieg sameign, gufubað o.fl. 1663
GAUKSHÓLAR
Til sölu 2ja herb. 54 fm ibúð á 1. hæð sem
skiptist I stofu, eldhús, svefnherb. og bað-
herb. Verð 4,9 m. 1661
BREKKUSTÍGUR
Ágæt 2-3 herb. 48 fm íbúð með sérinn-
gangi í gamla vesturbænum. Áhv. 2,3 m.
byggsj. og húsbréf. Áhugaverð íbúð.
Frábær staðsetning. 1640
Atvinnuhúsnæði
HAFNARSTRÆTI
Vönduð skrifstofuhæö á fráb. staö, i hjarta
miöborgarinnar. Hæðin er 272 fm brúttó.
Verð 15,9 m. 9292
Fyrirtæki
VEITINGAHUS
Til sölu þekkt greiðasala á landsbyggðinni.
Mikill uppgangur i ferðaverslun. Uppl. gef-
ur Magnús. 8080
Bújarðir
SANDHAUGAR
Áhugavert kúabú á Norðurlandi með rúm-
lega 100 þús. lítra framleiðslurétti. Góðar
byggingar og vélar. Nánari uppl. á skrif-
stofu. 10503
ÞÚFUR
Til sölu jörðin Þúfur Hofshreppi, Skagafirði.
Á jörðinni er m.a. rekið myndarlegt svína-
bú í nýju húsi með fullkomnum búnaði. I
húsinu er rúm fyrir 50 gyltur. Nánari uppl.
gefur Magnús. 10502
FJÁFESTING
Til sölu stórt verzlunarhúsnæöi i stórum
þéttbýliskjama úti á landi. Góðar eignatekj-
ur, gott verð. Ýmis skipti möguleg. Nánari
uppl. gefur Magnús. 9295
ÓLAFSVÍK
Til sölu rúmgóð tveggja herb. 75 fm (búð á
neðri hæð I tvíbýli. ásamt 28 fm bílskúr.
Ýmis skipti möguleg. Verðhugmynd 2,9
14214
GRÍMSNESHREPPUR
Sumarhúsalóð í landi Hests í Grímsneshr.
Um er að ræða eignarlóð stutt frá Hvítá.
Verð 500 þús. 13380
RANGÁRVALLAHREPPUR
Sumarhús af ódýrari gerðinni á 3,42 ha
leigulóð við Hróaslæk. Verð 1,1 m.
13379
BORGARFJÖRÐUR
Glæsilegt sumarhús í landi Gaitarholts,
Borgarfirði. Óvenju vandað hús. Verð 5,0
m. 13373
BORGARFJÖRÐUR
Áhugavert sumarhús á 2,5 ha eignarlóö.
Ekki í sumarhúsahverfi. Um er að ræða
myndarlegt 48 fm A-laga hús, byggt 1978.
Stór verönd. Ásett verð 3,5 m. 13372
VIÐ HÓLMSÁ
Mjög áhugavert sumarhús rétt við borgar-
mörkin. Búið hefur verið [ húsinu allt árið.
Allt í góðu ástandi. Vatn, rafmagn og allt
sem þarf I heilsárshús. Verð 5,3 m. 13366
SUMARHÚS í VAÐNESI
Glæsilegt sumarhús, byggt 1988. Eignin
skiptist í 3 svefnherb. stofu, eldhús, bað-
herb. með sturtu, einnig geymsla. Spóna-
parket á öllu húsinu, grenipanell á veggj-
um og i lofti. Tveir inngangar. Stór verönd
kringum húsið á tvo vegu. Allur frágangur
til fyrirmyndar. Heitur pottur. 10 fm
geymsluhús byggt 1995. Lóðin er 1,4 ha
gróin eignarlóð. Hitaveita og rafmagn.
Húsið er stutt frá ánni. Fallegt útsýni.
Glæsileg eign I alla staði á góðum stað.
13332
MOSFELLSDALUR
Áhugav. hús I Mosfellsdal. Um er að ræða
einb. úr timbri ásamt bílsk. Stærð samt.
um190fm. Sólpallur um 80 fm. Hús ný-
málað að utan, nýtt gler að hluta, nýlegt
parket. Húsinu fylgir um 1,5 ha eignarland.
Fráb. staösetning. 11100
Mikill fjöldi eigna á skrá
sem ekki eru auglýstar.
Póst- og símsendum
söluskrár um land allt.