Morgunblaðið - 23.05.1998, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
KOSNINGAR ‘98
MORGUNBLAÐIÐ
Rauður eða blár
EIN helsta ástæða
lýðræðisjafnaðar-
fl.anna til samfylkingar
með öðrum félags-
hyggju- og vinstri
mönnum er hin einhliða
og sterka áróðursstaða
Sjálfstæðisflokksins
sem ræður í raun beint
eða óbeint öllum helstu
fjölmiðlum landsins.
Umræðan um Hafn-
arfjörð og síðan Kópa-
vog og Reykjavík hefur
orðið til að sýna mörg-
um enn fram á hversu
Jftaðir fjölmiðlar eru af
því hvar hagsmunir
Sjálfstæðisflokksins
liggja. Sveitarfélög og stjórnendur
þeirra eru fegruð eða svert eftir því
hvort sjálfstæðismenn ráða þeim
eða ekki.
Þegar samtímis veikri
fjölmiðlastöðu jafnaðarmanna verð-
ur sífellt óskýrari annar megin-
klofningsás íslenskra stjómmála
sem eru utanríkismálin og afstaðan
til Sovétríkjanna sálugu, þá er ekki
lengur nein forsenda fyrir jafnaðar-
og félagshyggjumenn að starfa í
mörgum flokkum. Sameiginlegir
hagsmunir þeirra liggja í því að
snúa bökum saman til vamar og
*ýalda í það sem áunnist hefur.
Kópavogur, Hafnarfjörður
Kópavogi er nú lýst sem skattap-
aradís og skínandi leiðarljósi þó
skattar og gjöld á mann séu þar
hæst á höfuðborgarsvæðinu.
Hamrað er á skuldum Hafnfírðinga
þó Kópavogsbúar skuldi mest allra
stærri sveitarfélaga á íbúa.
Kópavogur var eitt sinn fyrir-
mynd og var þá kallaður „félags-
málabærinn" því Kópavogur hafði
^grystu um þjónustu við íbúa sína. f
dag er svo komið að samkvæmt töl-
um bæjarskrifstofanna og skýrslum
sem t.d. fyrirtækið Nýsi hf. hefur
gert fyrir bæjarstjóm stendur
Kópavogur langt að baki t.d. Hafn-
fírðingum um þjónustu við bæjar-
búa. Hafnfírðingar leggja þrefalt
meira til æskulýðs- og tóm-
stundamála en Kópa-
vogsbúar, 50% meira
til íþróttamála og hafa
yfir að ráða tvöfalt
fleiri vistunarrýmum
fyrir aldraða en Kópa-
vogur. Hafnfírðingar
hafa þegar byggt sitt
glæsilega hús undir
tónlistarskóla án þess
mikið væri úr því gert,
engu minna hús en
tónskálinn sem nú rís í
Kópavogi. Að slepptum
byggingarkostnaði
verja síðan Hafn-
firðingar þrefalt hærri
fjárhæð til lista og
menningar en bæjaryf-
irvöld í Kópavogi þó svo það séu
þau blóm sem Sjálfstæðisflokkurinn
í Kópavogi helst vill ski-eyta sig með
þessa dagana.
Svikin loforð
Fyrir tveimur og hálfu ári lét
bæjarstjórinn í Kópavogi leita að
óskráðum íbúum sem hann taldi að
hlytu að vera í bænum þar sem ekki
hafði fjölgað neitt að ráði þrátt fyrir
gríðarlegt lóðaframboð, uppgröft og
jarðvegsflutninga í sex ár. -Hann
fann þá ekki. Þegar þeir svo birtust,
vonum seinna, er látið sem það hafí
komið bæjaryfírvöldum í opna
skjöldu. -Og að það skýri hvers
vegna sjálfstæðismenn hafí brugðist
endurteknum loforðum sínum um
að greiða niður skuldirnar.
Staðreyndin er hins vegar sú að í
málgagni sjálfstæðismanna fyrir
síðustu kosningar, þ.e. í Vogum, 7.
tbl., maí 1994, er ekki aðeins gert
ráð fýrir enn hraðari uppbyggingu
en varð heldur er þar langur lof-
orðalisti yfir dýrar framkvæmdir
sem allar hafa verið sviknar. Má þar
nefna fjölskylduland í Fossvogsdal,
almennt samkomusvæði vestan
Digraneskirkju, lystigarð í Kópa-
vogsdal, unglingafargjöld í AV-
vagna, félagsmiðstöðvar fyrir ung-
linga, gönguleið niður Kópavogsdal,
fyrir Kársnes og upp Fossvogsdal
yrði lokið, Lindaskóli byggður,
skólalóðir frágengnar, og bættar
Sameining jafnaðar-
manna er brýn, segir
Helgi Jóhann Hauks-
son, og hvetur til
stuðnings við sameigin-
leg framboð þeirra.
samgöngur við Vatnsenda svo aðeins
fátt eitt sé nefnt. Allt var það svikið
nema að bjóða lóðir. Þó lofuðu þeir
líka að greiða niður skuldir. Það
sviku þeir þó auðvitað líka og
tvöfólduðu þær í staðinn. - Hversu
mikið hefðu skuldimar þá aukist ef
sjálfstæðismenn hefðu staðið við svo
sem hálfan loforðalistann?
Þrátt fyrir þetta fá þeir að spila
sig upp í fjölmiðlum sem skínandi
leiðarljós og kalla nýja íbúa bæjar-
ins „flóttamenn" úr Reykjavík og
Hafnarfírði sem nú muni greiða nið-
ur skuldir okkar hinna. En er raun-
in sú að þau sveitarfélög sem byggj-
ast hraðast „græði“ mest, og þau
hægvöxnu eins og Seltjarnarnes,
Garðabær og Bessastaðahreppur
séu þyngst í rekstri? - Reyndar
þvert á móti. Kópavogur á tilvist
sína að þakka nálægðinni við höfuð-
borgina, staðsetningin er auðlegð
bæjarins. En landið fer ekkert,
aðeins skipulagsmistök geta
eyðilagt það. Mest hætta er á slík-
um mistökum þegar stórar sveiflur
eru í vexti bæjarins. Nóg er af slík-
um mistökum í Kópavogi í dag.
Nægir að benda aðkomufólki á að
taka eftir nýbyggða háhýsinu gegnt
Elko sem er svo fast við veginn að
hljóðmönin, sem þar er á milli, ligg-
ur utan í veggjum hússins.
Með réttu ættu allar þessar hlið-
ar málsins að hafa verið í um-
ræðunni líka en ekki aðeins Pótem-
kíntjöldin hans Gunnars. Það að svo
er ekki sýnir okkur hversu samein-
ing jafnaðarmanna er brýn, til varn-
ar og sóknar, þrátt fyrir drengilega
frammistöðu Morgunblaðsins t.d.
með birtingu þessarar greinar.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Helgi Jóhann
Hauksson
Fleiri valkostir fyrir
nútímafj ölsky ldu
MARGIR leggja hugmyndir sín-
•ar á vogarskálamar í yfirstandandi
kosningabaráttu, þar á meðal
leikskólastýran Unnur Jónsdóttir
með grein sinni í
Morgunblaðinu 21. maí
sl. undir yfirskriftinni
„Ofurkonan aftur inn á
heimiliö".
í grein Unnar kem-
ur mjög skýrt fram hin
hvimleiða en því miður
vaxandi ofurtrú á sér-
fræðinga í öllu því er
snýr að uppeldismál-
um. Gott og vel, þetta
er hennar skoðun og
sýn á þörf nútímafjöl-
skyldu.
' En það er áreiðan-
lega stór hópur fólks
sem fagnar þessari
nýju og fersku hug-
mynd í uppeldismálum
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
lagt fram.
Ég undrast þá staðhæfingu sem
kemur fram í grein Unnar að
heimastarfandi foreldrar geti lagt
það eitt til uppeldis barna sinna,
eins og hún segir orðrétt: „að setja
þau fyrir framan sjónvarpið til að fá
stundarfrið". Fyrir þá sem hafa alið
tóim sín upp án hjálpar sérfræðinga
nljómar þetta sem algjör van-
virðing.
Af þessum skrifum mætti ætla að
heimavinnandi foreldrar væm van-
hæfir til að sjá um uppeldi bama
sinna og eina svarið sé að setja þau
inn á uppeldisstofnun frá hálfs árs
aldri að skólagöngu. Þykir mér
þetta uggvænleg hugmyndafræði.
Við sem eigum böm vitum að það er
vel hægt að sinna heimilisstörfum
og hlúa að börnunum okkar um leið
bæði í leik og starfí og í
flestum tilvikum engir
betur t:l þess fallnir en
foreldrarnir. Lengi býr
að íyrstu gerð, gleym-
um því ekki! Það er
tvennt ólíkt að stunda
bamauppeldi sem at-
vinnu eða sem foreldri.
Unnur segir þetta
stefnumál D-listans
„börnum landsins
fjandsamlegt“, þar sem
hún kemur inn á
auglýstan sparnað
vegna leikskólagjald-
anna. Unnur sýnir
mikinn hroka og
þröngsýni gagnvart
heimavinnandi foreldr-
um. Auðvitað kostar að ala upp
bam í heimahúsum, en telur Unnur
virkilega að fjölskyldan komist hjá
slíkum útgjöldum jafnvel þó barnið
dveljist á leikskóla allan daginn?
Það er eins og Unnur haldi að upp-
eldi bamsins ljúki eftir að leikskóla-
degi lýkur.
Unnur talar um réttindi foreldra,
en hvað með réttindi bamsins sem
einstaklings? Böm em ekki öll mót-
uð í sama form. Sum börn beinlínis
líða fyrir að vera á leikskóla og
sakna sárt þess öryggis og ástar
sem umhyggjusamir foreldrar geta
einir veitt! Böm em manneskjur,
engir tveir em eins og það ættum
við að hafa í huga þegar umbætur í
Af þessum skrifum
mætti ætla að heima-
vinnandi foreldrar
væru vanhæfír til að
sjá um uppeldi barna
sinna. Ingigerður Jóns-
dóttir gagnrýnir grein
Unnar Jónsdóttur.
málefnum barna þessa þjóðfélags
eru til umræðu!
En fjölskyldan er og verður horn-
steinn samfélagsins, að henni eigum
við að hlúa. Kröfurnar hafa breyst í
tímans rás, konur mennta sig til
jafns við karla og er það vel, en
þarfir barnanna era þær sömu, þess
vegna er það tímanna tákn en ekki
tímaskekkja, að okkur gefist kostur
á að velja það sem við teljum að sé
börnunum okkar fyrir bestu, sem
sagt fleiri möguleika en verið hafa
fram til þessa.
Leikskólar halda áfram að gegna
mikilvægu uppeldishlutverki í ís-
lensku þjóðfélagi. Valkosturinn að
geta sinnt barninu sínu heima á
launum til jafns við þá sem vilja
hafa börnin sín á leikskóla er löngu
tímabær, og fagna ég því að D-list-
inn ætli að koma fjölskyldugreiðsl-
um í framkvæmd, nái hann meiri-
hluta í Reykjavík.
Höfundur er skrifstofumaður og
fjögurra bama móðir.
Ingigerður
Jónsdóttir
Frumkvæði að
öflugu íþrótta-
og æskulýðsstarfi
Á Seltjarnarnesi er
nú rekið kraftmikið
æskulýðs- og íþrótta-
starf. Félagsmiðstöðin
Selið er vinsæll sam-
verustaður unglinga í
grunnskóla og fram-
haldsskóla þar sem
markvisst og gott starf
er haft að leiðarljósi.
Á Seltjarnarnesi er
unnið kröftugt for-
varnastarf. Þessu starfi
er stýrt af þriggja
manna framkvæmda-
nefnd ásamt fjölmörg-
um öðmm sam-
starfsaðilum og síðast
en ekki síst foreldrum
sem meðal annars hafa
tekið þátt í foreldrarölti um helgar.
I íþróttamiðstöð Seltjarnarness fer
fram margs konar íþróttastarf. Má
þar nefna sundæfmgar, sundleik-
fími, frjálsar íþróttir, ballett, yoga,
frúarleikfimi, leikfimi aldraðra, leik-
fími fatlaðra og skokk og göngu-
hópa. Innan íþróttafélagsins Gróttu
era þrjár deildir starfandi. Hand-
knattleiks-, fímleika- og knatt-
spyrnudeild. Gróskumikið barna- og
unglingastarf fer fram
í öllum deildum.
íþróttaskóli fyrir 4-6
ára er mjög vinsæll af
yngstu iðkendunum og
í vetur var starfræktur
íþróttaskóli i fyrsta
skipti fyrir börn 7-10
ára. Markmið skólans
er meðal annars fagleg
kynning á sem flestum
íþróttagreinum. Sam-
eiginleg lið Gróttu-KR
í meistaraflokki karla
og kvenna leika í fyrstu
deild næsta vetur og er
óhætt að fullyrða að
aðstaða til handknatt-
leiksiðkunar á Sel-
tjarnarnesi er með
besta móti. Fimleikadeild á stúlkur
í landsliði íslands og horft er björt-
um augum til framtíðar með glæsi-
legri fimleikaaðstöðu við íþrótta-
miðstöðina sem verður fullbúin á
næsta ári ásamt félagsaðstöðu
Gróttu sem verður mikil lyftistöng
fyrir allt félagsstarf innan félagsins.
I knattspymudeild er barna- og
unglingastarf blómlegt eins og áður
sagði. Þar er einnig starfræktur
Petrea I.
Jónsdóttir
Flokkurinn
tilbeðinn
EINS og öllum ís-
lendingum er kunnugt
þá er mikil spilling í
röðum stjórnmála-
manna. Þetta er ekkert
nýtt og þjóðin veit að
svona hefur þetta alltaf
verið þótt nú síðasta
misserið hafí spillingin
opinberast betur en
nokkm sinni fyrr.
Margir þeir sem beðnir
hafa verið að gefa kost
á sér á framboðslista
stjórnmálaflokka í ár-
anna rás hafa hafnað
því þrátt fyrir vilja og
löngun til að láta gott af
sér leiða á stjórnmála-
sviðinu fyrir land sitt og þjóð. Þeir
óttuðust og það ekki að ástæðulausu
að með því að taka sæti á framboðs-
lista hefðu þeir þurft að setja sig
undir spillingaranda flokksins.
Allir stjórnmálaflokkamir, sem
nú ráða þingsætum Alþingis, eru
einskonar skrímsli sem heimta til-
beiðslu. Oft eru skrímsli þessi nefnd
flokksvélar og flokksmenn óttast
þær bæði og elska og sýna þeim
takmarkalausa hlýðni. Sverrir Her-
Allir stjórnmálaflokk-
arnir, sem nú ráða
þingsætum Alþingis,
eru að mati Guðmund-
ar Arnar Ragnarsson-
ar einskonar skrímsli
sem heimta tilbeiðslu.
mannsson sem fyrrum var einn
„vélstjóra" Sjálfstæðisflokksins hef-
ur að undanfomu, jafnvel dag eftir
dag á síðum Morgunblaðsins, verið
að lýsa vélabrögðum þessara
flokksvéla. Hann var bundinn Sjálf-
stæðisflokksskrímslinu, en er nú
laus og ekki þræll þess lengur. í
stað hinnar óttablöndnu virðingar
og elsku er nú komið hatur sem gef-
ur honum kjark til að snúast gegn
skrímslinu með því að hrópa á þök-
um uppi það sem talað hefur verið
og gert í skúmaskotum. Ekki er það
allt fallegt.
Þarf þetta að vera
svona? Margir svara
þessari spurningu á
þessa leið: „Það er
eins og pólítíkin sé af
hinum illa og allir sem
í hana fara verða spill-
ingunni að bráð.“ Mik-
ið er til í þessu.
Jesús átti samtal við
djöfulinn, í svokallaðri
freistingarsögu, þar
sem satan segir Jesú
að sér séu fengin í
hendur öll ríki verald-
ar (pólítískt) og ef
hann falli fram og til-
biðji sig skuli þetta
allt verða hans. Jesús
mótmælir því ekki að djöfullinn ráði
ríkjum þessa heims (íslenska ríkið
er þá með talið). En svar Jesú var:
„Drottin Guð þinn skalt þú tilbiðja
og þjóna honum einum.“ Hann segir
á öðrum stað: „Höfðingi þessa
heims kemur. í mér á hann ekki
neitt.“
Menn falla sannarlega fram og
tilbiðja djöfulinn þegar þeir gefa sig
á vald ríkjandi stjómmálaflokkum
þessa lands. Og að nokkru leyti
stendur satan við sitt. Hann (í formi
flokksskrímslisins) stendur við fyr-
irheit sín. Menn þurfa að vísu að
fara í biðröðina eftir embættum og
fyrirgreiðslu en vei þeim sem gæta
þess ekki að óttast hann og elska í
hlýðni og undirgefni. Hvernig ætli
framtíð Sverris verði?
Fær hann tækifæri til að gera
iðrun og yfirbót? Ég held að
skrímslið sýni enga vægð úr þessu.
En til er annar Guð sem er náðugur
og miskunnsamur og tekur að sér
hvern þann sem leitar hans af öllu
hjarta.
Ritningin segir okkur að einn
daginn verði Jesús orðinn Konung-
ur konunganna á jörðu (pólitískt).
Þetta sýnir okkur að stjórnmál er
hægt að stunda í tilbeiðslu á Drottin
Jesú Krist. Byggjum þess vegna
upp frá grunni öflugan kristilegan
stjórnmálaflokk. Fullkominn sigur
vinnist ekki fyrr en Jesús kemur
sjálfur til jarðarinnar með mætti og
mikilli dýrð og sest í hásæti sitt.
Höfundur er prestur.
Guðmundur Örn
Ragnarsson