Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Alexander Lebed kjörinn héraðsstjóri í Krasnojarsk W „UTLAGINN" SNÝR AFTUR Alexander Lebed vann um liðna helgi söguleg- an sigur í kosningum í Kranojarsk, risastóru héraði í Síberíu. Asgeir Sverrisson segir frá pólitískri endurkomu Lebeds og veltir fyrir sér möguleikum hans með tilliti til forseta- kosninganna árið 2000. ÍSLAND NORÐUR-ÍSHAF NOíiÐUR- ATLANTS- HAF\ /mobbSsc5'-? Barentshaí Okhotskaimi □ Moskva .rasnoyarsk "X? V f_v*« KASAKSTAN TYWtL _________ MONGÓLÍA Reuters ALEXANDER Lebed, héraðsstjóri Krasnojarsk, íbygginn á svip með sígarettu í munnstykkinu góða. MAÐURINN með „mal- ar-röddina“ hefur snúið aftur og vera kann að hans bíði á ný að hafa mótandi áhrif á gang rússneskra stjórnmála. Með sigri sínum í héraðsstjórakosningunum í Krasnojarsk í Síberíu um liðna helgi hefur Alexander Lebed lagt drög að framboði í forsetakosningunum í Rússlandi árið 2000. Kjör hers- höfðingjans fyrrverandi markar því um leið upphaf kosningabaráttunnar sem verða mun söguleg og kann að marka þáttaskil standi Borís Jeltsín forseti við þá yfirlýsingu sína að hann hyggist ekki fara fram á ný. Eftir að hafa hlotið pólitískan „út- legðardóm“ fyrir einu og hálfu ári hefur staða Lebeds nú styrkst svo mjög að hann kann að eiga raunhæfa möguleika á að verða eftirmaður Jeltsíns innan Kremlarmúra. Hinni djúpu og sérkennilega þurru rödd Alexanders Lebeds hef- ur verið líkt við drunur í skrið- drekamótor eða malarbing og haft hefur verið á orði að sjaldan eða aldrei hafí þungvigtarmaður í stjórnmálum líkst svo mjög lífvörð- um sínum. Lebed býr hins vegar yf- ir sérstæðum persónutöfrum og þeim beitti hann óspart í kosninga- baráttunni í Krasnojarsk, gríðar- miklu sjálfsstjórnarhéraði í Síberíu, sem er hvorki meira né minna en fjórum sinnum stærra en Frakkland og ræður yfír miklum náttúru- auðlindum. Lebed brosti út að eyrum er sigur- inn lá fyrir um liðna helgi og keðjureykti rússneskar sígarettur sem hann stakk samkvæmt venju í munnstykkið góða, eitt af helstu „vörumerkjum“ hans. Lebed, sem varð 47 ára í aprílmánuði, hafði enda ástæðu til að gleðjast; hann hafði lagt allt undir í þessari kosningabaráttu og trú- lega hefði pólitískum ferli hans lokið hefði hann beðið ósigur. Þess í stað tryggði hann sér einstaklega áhrifamikla endurkomu og má segja að skjálfti hafi farið um stjórnmála- lífíð austur í Rússlandi á undanliðn- um dögum. Hið sama gerðist árið 1996 er Lebed varð óvænt í þriðja sæti í forsetakosningunum og þáði að launum embætti öryggisráðgjafa Jeltsíns fyrir stuðning sinn við for- setann í síðari umferðinni. „Útlegð- ardómurinn“ var kveðinn upp skömmu síðar, á haustmánuðum 1996, þegar Jeltsín rak hershöfðingj- ann fyrrverandi úr embætti og vændi hann um óhaminn metnað og ótilgreindan samblástur gegn for- seta ríkisins. Glæsilegur sigur Lebeds í Krasnojarsk kom nokkuð á óvart. Honum hafði að vísu gengið vel í fyrri umferð héraðsstjórakosning- anna en í þeirri síðari mætti hann Valeríj Zúbov, sitjandi héraðsstjóra, sem naut stuðnings Borís Jeltsíns forseta auk þess sem kommúnistar og þjóðernissinnar studdu hann, að vísu af mismunandi alvöru og þunga. Sigur Lebeds var því í raun sigur á meginstoðum valdakerfísins í Rúss- landi og vísir að tilkomu „þriðja aflsins“ í stjórnmálum þar. Lebed fékk rúmlega 57% at- kvæðanna í seinni umferðinni en Zú- bov rúm 38%. Kosningaþátttaka var um 64% en einungis um 3,4 milljónir manna búa í þessu geysivíðlenda héraði, Krasnojarsk. Átök við miðstjóraarvaldið? Lebed var heldur varfærinn í fyrstu yfirlýsingum sínum eftir sigur- inn, sagði m.a. að hann hygðist ekki leiða hugann að forsetakosningunum fyrr en honum hefði tekist að stór- bæta kjör manna í Krasnojarsk. Hann fór almennum orðum um nauð- syn þess að auka erlenda fjárfestingu í héraðinu auk þess sem hann vék lauslega að því að taka þryfti til end- urskoðunar skiptingu valdsins innan Rússneska sambandsríkisins. Með þessum orðum vísaði Lebed til þeirra deilna sem víða hafa blossað upp á milli héraðsstjóra og sveitarstjóma annars vegar og héraðsstjóra og mið- stjómarvaldsins í Moskvu hins vegar en segja má að þær hafí einkennst af kröfum um að aukin völd verði færð heim í hérað og til neðri stjómsýslu- stiga. Samningur frá því í fyrra er í gildi um tengsl Krasnojarsk-héraðs og miðstjómarinnar en Lebed lýsti því yfír á mánudag að sá sáttmáli væri nú „dauður“. Svo virðist sem valdastéttin í Moskvu hafí af því verulegar áhyggj- ur að Lebed hyggist blása til sóknar gegn miðstjómarvaldinu með því að krefjast aukinnar sjálfsstjórnar Krasnojarsk innan sambandsríkis- ins. Þótt íbúamir þar hafí á undanfómum áram mátt þola efnahagsþrengingar og lífskjaraskerðingu líkt og yfirgnæfandi meirihluti Rússa er ljóst að hérað þetta hefur alla burði til að verða geysilega sterk eining innan sam- bandsríkisins í efnahagslegu tilliti. Raunar fullyrða margir sem hafa til að bera sérþekkingu á svæði þessu að Krasnojarsk gæti auðveldlega haldið velli utan Rússneska sam- bandsríkisins. Til stuðnings þessu er við hæfi að nefna nokkrar tölur. Um 80% af nikk- el-framleiðslu Rússlands koma frá Krasnojarsk, hvað kóbalt varðar er hlutfallið 75% en 70% koparfram- leiðslunnar fer þar fram. í Krasnoj- arsk er að finna 40% timbmfram- leiðslunnar í Rússlandi, þar era 16% kolaforðans grafm úr jörðu og tíu pró- sent gullsins. Viðlíka náttúraauðlindir er ekki að finna víða í heimi hér. Hvers vegna Krasnojarsk? Fullvist má telja að Alexander Lebed hafi horft til náttúruauðlinda og sérstöðu Krasnojarsk er hann ákvað að freista þess að tryggja pólitíska endurkomu sína með fram- boði til héraðsstjóra. En fleira kem- ur til. Krasnojarsk hefur á síðustu árum verið smækkuð útgáfa af Rúss- landi í pólitísku tilliti. I þingkosning- unum 1995 fengu kommúnistar og þjóðernissinnar samtals 54% at- kvæðanna í héraðinu en á landsvísu var þetta hlutfall 53% . í fyrri um- ferð forsetakosninganna árið 1996 fékk Jeltsín 35% atkvæðanna, Gennadíj Zjúganov, leiðtogi kommúnista, 29% og Lebed 14%. Fylgi frambjóðendanna á landsvísu reyndist þá hið sama og má nefna að í tilfelli Lebeds reyndist munurinn aðeins vera eitt prósentustig. Krasnojarsk er því einnig mikilvægt hérað í pólitísku samhengi. Sterk staða þar gefur vísbendingar um styrk á landsvísu og eftir því er tekið í Moskvu. I þriðja lagi hefur vafalítið vegið þungf á metunum að Alexei, yngii bróðir Lebeds, er ríkisstjóri í nágrannalýðveldinu Jakasíu, þar sem er að fínna miklar olíulindir. Jakasía, sem er eitt 20 lýðvelda Rússlands, var þar til fyrir stuttu hluti af Krasnojarsk. í báðum þess- um héraðum era uppi háværar radd- ir um að sameinast beri á ný. Vera kann að þeir Lebed-bræður telji slíkt koma til álita ekki síst ef þeir álíta ráðlegt að krefjast meiri valda á kostnað miðstjórnarinnar. Loks er þess að geta að Lebed fær nú sæti í Sambandsráðinu en svo nefnist efri deild rússneska þingsins í Moskvu. Nýja embættinu fylgja því áhrif á landsvísu auk þess sem hers- höfðinginn fyrrverandi getur verið viss um að ekki mun skorta fjölmiðlamenn til að hlýða á boðskap hans þegar hann ákveður að hefja upp raust sína í höfuðborginni. Út- laginn í rússneskum stjórnmálum hefur þar með tryggt sér aðgang að fólkinu í landinu á nýjan leik. Þjóðhetja En sá Alexander Lebed sem nú kemur fram á sjónarsviðið er ekki sá sami og fyrst vakti á sér verulega at- hygli árið 1992. Þá var Lebed yfír- foringi 14. deildar landamæraliða Rauða hersins í Moldovu. Rúss- neskumælandi minnihlutinn þar átti þá í miklum deilum við yfirvöld í þessu fyrrum sovétlýðveldi, sem m.a. höfðu boðað að rúmenska yrði hér eftir hið opinbera tungumál lands- manna. Lebed neitaði að verða við skipunum um að hafa herlið sitt á brott, taldi þörf á liðsaflanum til að standa vörð um hagsmuni landa sinna í Moldovu og varð þjóðhetja fyrir bragðið. Var þá rifjað upp að ,jámkarl“ þessi hefði unnið mikil af- rek í Afganistan-stríðinu á níunda áratugnum þar sem hann gegndi einnig foringjastöðu í fallhlífarsveit- um Rauða hersins. Lebed varð því þekktur fyrir að vera maður hug- rakkur og ákveðinn sem hikaði ekki við að grípa til eigin úrræða teldi hann hagsmunum Rússa ógnað. Þetta reyndist marka upphaf fer- ils í stjórnmálum. Frægð Lebeds og hugvitsamleg þjóðemishyggja tryggði honum þingsæti án teljandi fyrirhafnar í kosningunum 1995. Lebed varð hins vegar heimsþekktur maður árið eftir er hann bauð sig fram í forsetakosningunum. Góður árangur kommúnista og þjóðernis- sinna í fyrri umferðinni varð þess valdandi að Borís Jeltsín sá sig neyddan til að taka Lebed inn í ríkis- stjórnina gegn stuðningi í seinni um- ferðinni. Þetta gekk eftfr og Jeltsín sigraði Tsjúganov, frambjóðenda kommúnista, öragglega. „Okkur vantar ekki hagfræðing“ Lebed hefur sýnilega dregið margvíslegan lærdóm af þessari vist sinni innan Kremlarmúra á þeim 18 mánuðum sem liðnir era frá því Jeltsín svipti hann embætti öryggis- ráðgjafa. Frambjóðandinn í Kar- snojarsk var ekki sami þjóðernis- sinninn og forðum fékk jörðina til að skjálfa með digurbarkalegum yfir- lýsingum sínum eða benti á að hann væri fæddur 20. apríl líkt og Napóle- on og Adolf Hitler. Hann kemur nú fram sem „hæfí stjórnandinn", mað- urinn sem getur unnið bug á skipu- lagsleysinu og upplausninni sem rík- ir. I kosningabaráttunni var ímynd hans sú að hann væri í raun bjarg- vættur íbúa Krasnojarsk, maður sem gæti fengið hjólin til að snúast á ný og maður sem ætíð myndi reyn- ast tilbúinn til að hlusta á umkvört- unarefni alþýðunnar enda væri hann sjálfur af óbreyttu almúgafólki kom- inn. „Við þurfum ekki á hagfræðingi að halda. Okkur vantar sérfræðing í neyðarráð-stöfunum. Eng- inn hefur getað nefnt mér nafn hagfræðings sem náð hefur árangri í þessu mikla landi okkar,“ sagði hann í einni kosning- aræðu sinni. Kosningabaráttan var einnig til marks um að frambjóðandinn hafði tileinkað sér aðrar og nútímalegri aðferðir. Einna mesta athygli vakti er franski kvikmyndaleikarinn Alan Delon kom fram á einum kosninga- funda Lebeds í Krasnojarsk-borg. Þeir Lebed munu hafa kynnst er þeir komu saman fram í sjónvarps- þætti í Frakklandi en franski hjartaknúsarinn mun enn vera vinsæll mjög í Rússlandi. Lebed bauð leikarann velkominn með því að syngja nokkrar línur úr rússnesku lagi, sem samið var fyrir einhverjum árum Alan Delon til heiðurs: ,jUan Delon talar frönsku, Alan Delon drekkur ekki Kölnarvatn, hann drekkur tvöfaldan „bourbon“. Vissu- lega sérkennilegur kveðskapur eins og reyndar þátttaka Delons í þessari kosningabaráttu hershöfðingjans fyi-rverandi. Rússnesk gildi Sjálfur var Lebed öllu þjóðlegri er hann þeyttist á milli kosningafunda í bflalest sem samanstóð eingöngu af rússneskum ökutækjum af Volga og Lada-gerð í stað þeirra vestrænu glæsibifreiða sem rússneska forrétt- indastéttin ekur nú. Við hlið fram- bjóðandans var jafnan eiginkona hans, Nina Aleksanrovna, sem horfði hugfangin á eiginmanninn flytja mál sitt en hafði sig annars ekkert í frammi. „Það er karlmaður- inn sem ákveður hvaða leið skuli halda. Hlutverk konunnar er að standa við hlið hans,“ sagði hún er hún var innt eftir því hvernig kosn- ingabarátta eiginmannsins legðist í hana. Skilaboðin voru augljós, hér var verið að höfða til hefðbundinna rússneskra gilda. Sigur Lebeds í Krasnojarsk hefur þegar valdið miklum titringi í Moskvu. Ljóst þykir að hann stend- ur nú vel að vígi hyggi hann á fram- boð í forsetakosningunum árið 2000 og er nefnt að hann þurfi tæpast að kvíða því að honum muni ganga erf- iðlega að safna þeim fjármunum sem nauðsynlegir era í því skyni. Ríkir kaupsýslumenn muni án nokkurs vafa telja það þjóna hagsmunum sín- um að styðja framboð Lebeds eins og raunar kom á daginn í Krasnojarsk þar hann naut stuðn- ings Boris Berezovsky, fjölmiðla- kóngs með meira og eins auðugasta manns Rússlands. „Fyrst þarf að veiða björninn“ Varfærni hefur fram til þessa ein- kennt viðbrögð stjórnvalda í Moskvu. Hins vegar er greinilegt að hið pólitíska landslag hefur breyst með sigi-i Lebeds og að stjórn- málaöfl í Rússlandi munu á næstu vikum leggja mat á stöðuna með tilliti til komandi for- setakosninga. Talsmaður Jeltsíns sagði á mánudag að forsetinn hefði enn ekki með öllu útilokað að hann myndi bjóða sig fram á ný en vera kann að hann geti knúið fram nýja túlkun á stjómarskránni sem geri honum kleift að vera í framboði í þriðja skiptið. Þjóðernissinninn Vladímír Zhír- inovskíj sagði í vikunni að hann teldi líklegast að þeir Lebed og Jeltsín myndu mætast í seinni umferð for- setakosninganna árið 2000. Athyglis- vert er að almenn sátt virðist ríkja um það í Rússlandi að Lebed hyggist nota héraðsstjórastarfið sem stökk- pall og að lokamarkmið hans sé for- setaembættið. Um þetta hefur Lebed hins vegar verið þögull: „Það er óráðlegt að selja haminn áður en björninn hefur verið veiddur.“ Rússneska valdakerfið lagt að velli Á nú vísan stuðning auðmanna t í I í f fc ! í I I l I \ t I I t i ( i l t f I 1 I I k L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.