Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gosið að fjara út MJÖG hefur dregið úr eldsumbrot- um á Vatnajökli en jarðvísindamenn vilja þó ekki lýsa því yfir að gosi sé lokið. Flogið var yfir eldstöðvamar á sunnudag og virtist þá hafa dregið talsvert úr gosinu og varð hlé á því á meðan vísindamenn voi-u á flugi yfir. Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfi’æðingui’ sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að býsna rólegt væri á gosstöðvunum og gosið virtist vera að fjara út. Órói mældist við og við á jarðskjálftamæli á Grímsfjalli í gær en inni á milli stuttra hrina datt virkni á svæðinu alveg niður. Að sögn Hafþórs Jónssonar, aðal- fulltrúa hjá Almannavömum, hafa ekki borist fregnir af öskufalli í byggð síðustu daga. Enn er þó í gildi bann við ferðum nær Gríms- fjalli en 5 kílómetra. Það bann hefur ekki verið virt að öllu leyti og í flugi yfir eldgosið á sunnudag sást til þriggja jeppa skammt frá eldstöð- inni. I frétt frá Almannavömum segir að vísindamenn telji slíkt stór- hættulegt enda geti skyndileg sprenging þeytt glóandi gosefnum kílómetra leið. A myndinni til hægri er horft að eldstöðinni frá skála Jöklarann- sóknafélagsins á Grímsfjalli. Mynd- in var tekin á sunnudag. Nýfallinn snjór liggur yfir en í fótsporunum, sem liggja meðfram skálanum, sjást ummerki öskufalls. Morgunblaðið/Þorkell Lenti í alvarlegu umferðarslysi fyrir hálfum öðrum mánuði Var vart hug- að líf en hef- ur náð ótrú- legum bata Hellu. Morgunblaðið. HINN 12. nóvember sl. varð mjög alvarlegt umferðarslys milli Hveragerðis og Selfoss, þegar flutningabíll, fólksbifreið og jeppi lentu í hörðum árekst ri skammt frá Kot- strandarkirkju. Okumaður fólksbifreiðarinn- ar lést, ökumaður jeppans hlaut alvarlega áverka og var fluttur með þyrlu til Reykja- víkur, en ökumaður flutningabflsins slapp við alvarleg líkamsmeiðsli. Umferðin hefur tekið sinn toll á þessu ári og margir eiga um sárt að binda hennar vegna. Ljósi punkturinn í þessu slysi er hversu vel ökumanni jeppans hefur reitt af, en honum var vart hugað líf fyrst eftir atburðinn. Það var Óli Már Aronsson, oddviti Rang- árvallahrepps, sem ók jeppanum þennan ör- lagaríka dag, en hann var á leiðinni til höf- uðborgarinnar. Hann segir þetta allt hafa gerst mjög snöggt og skammur tími liðið frá því að liann skynjaði hvað væri að fara að gerast og þangað til hann rotaðist við högg- ið, er hann lenti á flutningabflnum. Hann segist síðan hafa komið til sjálfs sín aftur og verið með meðvitund þangað til farið var að klippa bflinn frá honum, en í millitíðinni hafði komið til hans læknir og gefíð honum deyfílyf. Hann man ekki eftir þyrlufluginu Morgunblaðið/Aðalheiður ÓLI Már Aronsson, oddviti og ferðamálafull- trúi á Hellu, hefur náð miklum bata eftir al- varlegt umferðarslys í nóvember. en rankaði aðeins við sér á Landspítalanum, en þar var hann lagður á gjörgæsludeild. Við rannsókn kom í ljós að hann hafði hlotið opið beinbrot á vinstri lærlegg, ökkli og hnéskel brotnuðu á hægra fæti og vinstri úlnliður. Þá blæddi inn á lungun, hjartað marðist og ósæð skaddaðist, auk þess sem þrjú rifbein og bringubeinið brotnuðu. Læknar hurfu frá því að gera á honum erf- iða hjartaaðgerð, en sár hans greru furðu fljótt þar sem honum var haldið sofandi í rúmar tvær vikur. Bænastund í Oddakirkju Eins og fyrr segir var Óli Már svæfður vegna þeirra miklu áverka sem hann hafði hlotið og hófst þá erfíður biðtími, þar sem líf hans og heilsa sveiflaðist til frá einum degi til annars. Nokkrum dögum eftir atburðinn komu vinir og fjölskylda hans saman til bænastundar í Oddakirkju, þar sem beðið var fyrir bata hans, en mikill samhugur meðal íbúa, vina og vandamanna var áberandi á þessum tíma, enda þekkja allir alla í litlu þoiyi eins og Hellu. Oli Már segist hafa orðið fyrir miklu áfalli þegar hann kom til sjálfs sín og gerði sér grein fyrir ástandinu, þeirri staðreynd að maður lést í slysinu og því álagi sem slysið olli fjölskyldu hans. „Eg vil í þessu sambandi koma á framfæri þökkum til hjúkrunarfólks á gjörgæslu- og bæklunardeild Landspítalans sem annaðist mig og fjölskyldu mína af mik- illi alúð og jafnframt til allra þeirra sem hafa aðstoðað okkur ojg sýnt samhug í þessum raunum," sagði Oli Már. Tími, þolinmæði og þjálfun Óli Már fékk að fara heim af spítalanum fyrir jól, en sár hans hafa gróið hratt og fínn- ur hann nú varla fyrir bijóstáverkanum, en beinbrotin eru lengur að gróa. „Ég fer um í hjólastól og get staulast um á hækjum og finn hægan bata á hverjum degi. Ég fer í endur- hæfíngu eftir áramót á Reykjalund og reikna með að geta farið að vinna fljótlega eftir það,“ segir Óli Már að lokum, sem hefur þó ekki setið auðum höndum, því hann var þegar farinn að vinna á fartölvu uppi í rúmi á Land- spítalanum. Banaslys á Snæfellsnesi Tólf ára drengur lést BANASLYS varð á Snæfells- nesi við afleggjarann að Skóg- amesi klukkan tæplega 13 á sunnudag. Mikil hálka var á veginum og er talið að ökumað- ur hafi misst stjórn á bílnum í beygju með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Tólf ára drengur, sem var á palli bílsins, lést, en aðrir far- þegar bflsins sluppu án alvar- legra meiðsla, meðal annars annar drengur sem var á bíl- pallinum. Sex voru í bílnum auk hins látna, og vora þeir fluttir á sjúkrahúsið í Stykkis- hólmi til skoðunar. Bíllinn var á leið frá Reykja- vík til Snæfellsness. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Mótmæli vegna mynd- arinnar Dómsdagur DAVÍÐ Sch. Thorsteinsson verk- efnisstjóri gerir alvarlegar athuga- semdir við sjónvarpsmynd Egils Eðvarðssonar, Dómsdag, seni fmmsýnd var annan í jólum- Hann segir í bréfi til Morgun- blaðsins, að í myndinni svívirði Egill minningu látinna heiðurs- hjóna, séra Ólafs Petersen og Astríðar Stephensen, presthjóna á Svalbarða í Þistilfírði. Sjónvarpsmyndin fjallar um svo- kallað Sólborgarmál og afskipti Einars Benediktssonar, skálds og sýslumanns, af því. Hingað til hef- ur því verið haldið fram að Sólborg hafi ráðið sér bana þegar átti að fara að yfirheyra hana um meint dulsmál. I sjónvarpsmyndinni er prestfráin látin byrla Sólborgu eit- ur og prestinum er lýst sem drykk- felldum flagara. Þetta telur Davíð Scheving fjan-i öllu sanni. Hann segir í bréfí sínu að vísan til skáld- skaparlögmála réttlæti ekki róg og níð um nokkuð fólk, hvað þá látið fólk, sem á þess ekki kost að bera hönd fyrir höfuð sér. Egill Eðvarðsson segir í athuga- semd, sem hann sendi Morgunblað- inu, að kvikmyndin Dómsdagur se skáldverk. Hún byggist að nokkru leyti á atburðum sem áttu sér stað á prestssetrinu Svalbarða í Þistil- firði, „en hugleiðingar persóna myndarinnar um að atburðir hafi þar gerst á annan veg en hingað til hefur verið haldið fram eru ein- göngu höfundar“. ■ Opið bréf/63 ■ Athugasemd/15 ■ „Hve iðrar margt líf..“/37 Blaöinu í dag fylgir auglýsingaplakat frá tímaritinu Myndbönd mánaöarins, „Myndbönd mánaðarins bjóða til spennandi veislu á næsta ári“. í dag ssieyn Wachter | Guðmundur j Allt um á • til : enska sigurbraut j Þýskalands j boltann B7 Í B1 :B2,B3,B4,B5 Fyigstu með nýjustu fréttum www.mbi.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.