Morgunblaðið - 09.02.1999, Page 60
80 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Bollur
fyrr og nú
Kristín Gestsdóttir leitaði að bollum í
fyrstu matreiðslubók sem kom út á
Islandi árið 1800 og fann þessa ef
einhver hefur áhuga á að prófa:
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ert þú
einmana?
EFTIR að ég komst í hóp
fráskilinna og tók að
venja komur mínar á öld-
urhúsin, þar sem lengi
hefui- þótt líklegast að
finna sér félaga í svipaðri
stöðu, gerði ég mér grein
fyrir því hversu umfangs-
mikið og alvarlegt vanda-
mál einhleypra og fráskil-
inna er orðið. Eg hef víða
farið og leitað hófanna t.d.
á Kaffi Reykjavík,
Kringlukránni og Hótel
Sögu í höfuðborginni,
Fjörukránni í Hafnarfirði
eða Ránni í Keflavík svo
fáeinir staðir séu nefndir.
Það vill einkenna alla
þessa staði að gestirnir
sækja þá ekki heim í
neinu magni fyrr en nokk-
uð er liðið á nýjan dag.
Fram undir lok dansleiks-
ins klukkan þrjú, fjölgar
svo drukknu og villuráf-
andi fólkinu í leit að fé-
laga fyrir nóttina, að það
er með hreinum ólíkind-
um. Örvænting karla og
kvenna lýsir sér í auknum
áfengiskaupum, þegar
reynt er til þrautar að efla
kjarkinn til að nálgast
einhvern álitlegan maka.
Hin yfirgengilega
feimni fólks og óttinn við
höfnun er ástæða þess að
fólk leitar í æ ríkari mæli
aukins kjarks hjá Bakkusi
þegar það er í makaleit,
jafnvel þótt vitað sé að
mórallinn sæki að manni
næstu daga og valdi því
að hann eða hún áræðir
ekki að endurnýja kynnin
við nætui'félagann, því
feimnin og óttinn við
höfnun eru svo rík í okk-
ur. Það verður síðan ekki
fyrr en eftir dúk og disk,
er bæði verða aftur í
óeðlilegu ástandi, undir
áhrifum, að kynnin verða
ef til vill endurnýjuð aðra
nótt.
Það slær mann i hvert
sinn er stúlkur, sem á
ytra borði virðast geisla
af sjálfstrausti, rjúka
beint á barinn eftir inn-
komu og panta tvo til þrjá
snafsa af ódrýgðu áfengi.
Þessu skeUa þær í sig á
„nótæmi" með tUheyrandi
grettum og fettum.
Astæðan er vitaskuld sú
að þær eru að finna sér
kjarkinn til að geta gefið
einhverjum áhtlegum
undir fótinn sem kynni
jafnvel að vera sú ást sem
við öll erum að leita eftir.
Ef þær aðeins vissu, þess-
ar elskur, að samskonar
tilfinningar bærast í okk-
um körlunum, því að
manneskjan er félagsvera
og vill í lengstu lög forð-
ast einmanaleikann. Við
viljum öll hafa félaga okk-
ur við hlið tU að deUa bæði
gleði okkar og sorgum.
Okkur er mikdll vandi á
höndum, bræður og syst-
ur. Hvað getum við gert,
áður en feimni hvors
kynsins við annað flejdir
samfélaginu sem við erum
svo stolt af til andskotans
með manni og mús?
Fólk þorir vart að ræða
saman um sínar innstu tU-
finningar, sé viðmæland-
inn af andstæðu kyni, en
kvisast hefur að í sauma-
klúbbum sé allt látið
flakka. Saumaklúbbslaus-
ir karlarnir sífellt í met-
ingi hver við annan loka
tilfinningarnar hinsvegar
djúpt í hugarfylgsnum
sínum, þar sem þær ná að
brenglast og afskræmast.
Afleiðingin lýsir sér oft í
ofuráfengisdrykkju eða
öðrum öfuguggahætti.
Undirritaður auglýsir
hér og nú efth' hugmynd-
um að lausnum sem vh'ka
fyrir okkm- feimna, hlé-
dræga fólkið sem er í
makaleit.
Ólafur Þór Eiríksson.
Tapað/fundið
GSM-sími af gerðinni
Ericson tapaðist á Iðn-
skólaballi á veitingahús-
inu Inferno í nóvember sl.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
553 0711.
móti einum pela af ósúr-
um rjóma, er tekin ein
sleif af smjöri. Þetta
sjóði saman í litlum potti, og
þegar það vel sýður, hrærir
maður vel í
pottinum
með hægri
hendi, með
lítilli byrki-
þvöru (sem
er með bjúg-
um örmum, af
hvörjum börkurinn sé af-fleg-
inn svo ekki hafi smekk af
byrkinu), en melur með hinni
svo mikið hveitimjöl niður í
pottinn, sem vellingur þessi
getur tekið við, uns hann í miðj-
unni er orðinn eins og grautar-
klumpur, og losnar bæði frá
botninum og utan við, og er þá
hætt. Nú er deiginu hvolft í tré-
skál, 4 egg tilætluð með hvítu
og blómum, eða í þeirra stað
lítið af brodd-mjólk, þá til
er, en eitt látið í senn,
og í hvert sinn hrært
vel og jafnt í deigið,
og loksins, ef til er svo
mikið af steyttu
Múskat-blómi sem halda
má milli þriggja fingra,
ásamt nokkrum þvegnum
kórennum, sem eins og eggin
hrærast vel í deigið með þvör-
unni, eður og tré-sleif. Svo er
sleifinni dýft vel niður í súpuna
sjóðheita, og í flýtir síðan tekið
með henni svo mikið deig úr
skálinni, sem ætlað er í eina
bollu (hver þeirra að stærð, sem
svari 2ur eða 3ur munnbitum),
en ofan af deiginu í sleifinni er
strokið slétt við barminn
á skálinni. Síðan eT
sleifinni með deiginu í,
haldið svo lengi á
grúfu niðri í súpinni,
þangað til bollan
dettur sjálf úr henni;
þannig eru allar boL
urnar myndaðar, og sleu-
inni í hvert sinn dýft vel í súp-
una, fyrr enn bolluefni nýtt sé í
hana tekið, því annars vill deig-
ið loða við.“
Athygli vekur að þessar boll-
ur eru soðnar í kjötsúpu sem
engum dytti í hug nú, en engir
bakarofnar voru til á Islandi ár-
ið 1800 þegar þessi matreiðslu-
bók kom út. Bolludeigið líkist
mikið nútíma vatnsdeigsbollu-
deigi þótt notaður sé rjómi í
stað vatns. Eg prófaði að baka
þessar bollur í bakarofni, þær
voru mjög
bragðgóðar
en lyftu sér
ekki vel. I
vatnsdeigs-
bollum er það
gufa vatnsins í
deiginu sem lyftir
bollunum en í þessum er rjómi í
stað vatns. A titilsíðu fyrr-
nefndrar matreiðslubókar
stendur að bókin sé „fyrir
heldri manna hús-freyjur“. Þær
notuðu rjóma en við hinar not-
um bara vatn.
Bolludagsbollur
_____________um 35 st.___________
_________100 q smjörlíki_________
___________2'A dl vatn___________
___________150 q hveiti__________
_______3 stór eða 4 lítil eqq____
l-IVí peli rjómi________
_______qóð sulta________
50-100 q hjúpsúkkulaði
1. Hitið bakarofn í
200°C, blástursofn í
190°C.
2. Bræðið saman
smjörlíki og vatn í litlum
potti. Setjið allt hveitið út í í
einu og hrærið saman. Þetta
verður þéttur klumpur. Kælið.
3. Setjið deigklumpinn í
hrærivélarskál og hrærið eitt
egg í einu út í og hrærið vel á
milli. 4. Setjið deigið á bökunar-
pappír með teskeið eða setjið í
sprautupoka með víðum stút.
Hafið gott bil á milli.
5. Setjið í miðjan ofninn og
bakið í 20 mínútur. Opnið
ekki ofninn fyrstu 10 mín-
útumar, þá geta bollumar
fallið saman. Kælið boll-
urnar.
6. Setjið súkkulaðið í
únfalt lag á eldfastan disk
jða skál og setjið í 70°C
uakarofn, súkkulaðið bráðnar
á 7 mínútum. Smyrjið yfir boll-
urnar. Athugið, þetta er auð-
veldasta aðferð við að bræða
súkkulaði.
6. Skerið bollurnar í sundur,
þeytið rjómann og fyllið þær
með sultu og rjóma.
Athugið: Þeir sem vilja geta
sett búðing í bolluraar. Gott er
að setja rjóma saman við búð-
inginn.
Hafa ber í huga að ekki er
gott að setja fleiri egg í deigið
en tiltekið er í uppskrift.
SKAK
(Jmsjón Margcir
Pétursson
ÞEKKTASTI skákmað-
ur Hollendinga, Jan
Timman (2.645), var far-
sæll í hróksendatöflum
sínum á Hoogovens stór-
mótinu um
daginn. í
þessari
stöðu var
landi hans
Dmitri
Reinder-
70. Hb7! og Reinder-
mann varð að gefast
upp, því 70. - Hxc6 71.
Hh7 er mát!
mann
(2.540) að
enda við að
leika 69. -
Kh5-h4?? í
stöðu þar
sem úrslitin
vora engan
veginn ráð-
in.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
// 7/ann er a?5 picUa,-"
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI kemur víða við.
Hann á líka marga kunningja
og vini. Einn þeirra benti honum á
að á endurhæfingardeild Borgar-
spítalans við Grensás hefði orðið
ótrúleg breyting á aldri fólks sem
því miður þyrfti að dvelja þar.
Fyrir lögleiðingu bílbelta og þá
hvatningu sem var á sínum tíma
var alltof stór hluti þeirra sem þar
sátu í hjólastólum misilla farið fólk
á aldrinum 18 til 20 ára. Yndislegt
ungt fólk sem hafði orðið fyrir því
óláni að slasast illa í bílslysum, í
flestum tilfellum vegna þess að ör-
yggisbelti vora ekki notuð. Nú er
öldin önnur. Því miður þarf margt
fólk að njóta þeirrar frábæru að-
hlynningar sem þar er veitt, en
hlutfall ungs fólks og fórnarlamba
umferðarslysa er hverfandi miðað
við það sem áður var. Þökk sé bíl-
beltum. Víkverji þekkir mikilvægi
þeirra af eigin raun.
x x x x
IÞROTTIR eru mikilvægar fyrir
margar sakir. Það er hverju
barni gott að alast upp í anda
íþrótta og heilbrigðs lífernis, en
allt getur gengið út í öfgar. Vík-
verji þekkir dæmi um það að böm
séu í svo stífum æfingum að nánast
öll kvöld og allar helgar séu frá-
tekin í æfingar og leiki. Tíminn til
að vera með pabba, mömmu, afa
og ömmu og hinum systkinunum
er lítill. Það liggur við að allir í
fjölskyldunni þurfi að aðlaga líf
sitt út frá þeim gífurlega þrýstingi
sem á börnin er lagður. Þau skulu
ná árangri.
Það er ráðinn þjálfari, sem
verður að ná árangri, annars verð-
ur hann rekinn. Niðurstaðan verð-
ur sú að krakkar um tíu ára aldur-
inn eru ekki aðeins þreyttir og út-
keyrðir - námið situr jafnvel á
hakanum - heldur fjölskylda
þeirra líka, sem þarf ekki aðeins
að laga allt að þessari miklu kröfu,
heldur líka punga út með morð
fjár í æfingagjöld og íþróttabúnað.
Það má segja að íþróttir efli alla
dáð, en öllu má líka ofgera.
x x x x
ASGEIR Sverrisson skrifaði af-
ar góða viðhorfsgrein í Morg-
unblaðið í síðustu viku. Burtséð
frá frábæram stílbrögðum sem
minna á George Orwell og Hans
Christian Andersen hefur hann
mikilvægan boðskap að færa okk-
ur. Forsjárhyggja stjórnvalda
gengur einfaldlega út í öfgar. Það
gengur ekki að vera með stöðug
boð og bönn. Hver og einn verður
að ráða því hvort hann reykir,
safnar bumbu eða neytir einhvers
í vanhófi eða óhófi. Víkverji, sem
hér spjallar við lesendur Morgun-
blaðsins, reykir ekki. Hann er
þeirrar skoðunar að hver og einn
verði að ákveða hvort hann vill
reykja eða ekki, hvort hann nenn-
ir að fara út að hlaupa til að halda
aftur af láréttum vexti líkamans
eða í raun hvað sem er. Það er
réttur hverrar manneskju að mis-
nota líf sitt og líkama, það er rétt-
ur yfirvalda að benda hverjum og
einum á að hægt sé að fara betur
með sig. Að banna fólki með lög-
um að reykja er hrein og bein
heimska. Okkur sem ekki reykjum
þykir gott að vera laus við
ósómann, en að úthýsa góðu
starfsfólki fyrir það eitt að það
kýs að reykja er út í hött. A stór-
um vinnustöðum er það sjálfsagt
að banna reykingar í almenningi,
en það er jafnsjálfsagt að gefa
þeim sem vilja verða eins og gott
hangikjöt aðstöðu til þess að verða
það.