Morgunblaðið - 20.02.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fundir um
ár aldraðra
EYÞING, Samband sveitarfélaga í
Eyjaíirði og Þi n geyj arsýs 1 um,
ásamt verkalýðsfélögum og félögum
eldri borgara boða til tveggja funda
á Norðurlandi eystra til að kynna
áherslur Sameinuðu þjóðanna á ári
aldraðra og ræða stöðu aldraðra í
íslensku samfélagi. Fyrri fundurinn
verður á Hótel Húsavík næstkom-
andi miðvikudag, 24. febníar og sá
síðai-i í Glerárkirkju á Akureyri, en
báðir hefjast þeir kl. 14.
Samþykktir SÞ kynntar
A fundunum mun Jón Helgason,
fyrrverandi ráðherra og oddviti
framkvæmdastjórnar um ,Ár aldr-
aðra“, kynna samþykktir SÞ um
málefni aldraðra, Asgeir Jóhannes-
son, fyrrverandi forstjóri, fjallar
um efnahagsmál eldri borgara,
Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri bú-
setu- og öldrunardeildar Akureyr-
arbæjar og Sofíía Gísladóttir, fé-
lagsmálastjóri Félagsþjónustu
Þingeyinga, fjalla um símenntun og
hæfni aldraðra, um stöðu þeirra í
kjördæminu og framtíðarsýn sveit-
arfélaganna.
Stórhríð raskaði samgöngum á landi og í lofti á norðanverðu landinu
Tveir ökumenn voru
sóttir á Oxnadalsheiði
STÓRHRÍÐ geisaði um norðanvert landið í gær-
dag og hafði hún í för með sér mikla röskun sam-
gangna. Allir vegir að og frá Akureyri vora ófær-
ir og þá var einungis hægt að fljúga eina ferð
milii Akureyrar og Reykjavíkur í gærmorgun.
Ökumenn í tveimur jeppum sátu fastir á Öxna-
dalsheiði í gærdag og lögðu félagar úr Flug-
björgunarsveitinni á Akureyri og Hjálparsveit
skáta á Akureyri á heiðina síðdegis þeim til
bjargar. Kolvitlaust veður var á þessum slóðum
og miðaði förinni hægt af þeim sökum, en ekkert
amaði að ökumönnunum, sem höfðust við í bílum
sínum.
Svavar Tulinius í Hjálparsveit skáta var á
Öxnadalsheiði undir kvöld og sagði hann að vel
hefði gengið að komast upp á heiðina, en snjór
væri mjög mikill, þungt færi og brjálað veður
svo ekki sást handa skil. Þegar Morgunblaðið
ræddi við Svavar var annar björgunarsveitarbíll-
inn að aðstoða ökumann annars bílsins, en
Svavar og félagar vora rétt ókomnir að hinum.
Reyna átti að koma að minnsta kosti öðrum bíln-
um til byggða, en útlit fyrir að hinn yrði skilinn
eftir.
Mokstri hætt
Sökum stórhríðar var mokstri hætt á Öxna-
dalsheiði í gærmorgun og ekki var fyrirhugað að
hreinsa veginn fyrr en veður lægði. Ekki var
reynt að moka á Víkurskarði, enda mikill veð-
urofsi þar. Vegurinn til Dalvíkur var mokaður í
gærmorgun, en hann lokaðist fljótt aftur. Ófært
var milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og var þung-
fært innanbæjar. Björgunarsveitarmenn á Dal-
vík aðstoðuðu við að koma börnum af leik- og
grannskólum til síns heima og einnig að aka fólki
til og frá vinnu.
Bíll valt við Syðra-Gil í Eyjafjarðarsveit í gær-
dag, en ökumaður missti vald á bflnum með þeim
afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og valt.
Kvartaði hann um eymsl í hálsi og leitaði aðstoð-
ar á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Nokkuð vai' um umferðaróhöpp á Akureyri,
en að sögn varðstjóra var færð innanbæjar
þokkaleg en skyggni á köflum afar slæmt. Engin
slys urðu í þessum óhöppum en nokkurt eigna-
tjón.
Margir biðu flugs
Flugfélag íslands náði að fljúga eina ferð frá
Reykjavík til Akureyrar í gærmorgun, áður en
versta veðrið skall á. Ekki var hægt að fljúga til
Grímseyjar, ísafjarðar, Þórshafnar og Vopna-
fjarðar. Tæplega 500 manns biðu eftir flugi frá
Akureyri í gær. Hjá íslandsflugi fengust þær
upplýsingar að stórir hópar fólks hefðu dottið út
þar sem ekki var flogið í gær, en m.a. stóð til að
flytja stóran hóp starfsfólks Sólar-Víkings norð-
ur þar sem halda átti árshátíð fyrirtækisins, en
vegna veðurs komst fólkið hvergi.
Akureyrarprestakall
Sr. Birgir enn sóknarprestur
SÉRA Birgir Snæbjörnsson,
sóknarprestur í Akureyrar-
prestakalli, hefur óskað eftir því
við Morgunblaðið, að gefnu til-
efni, að koma á framfæri leiðrétt-
ingu á þeim útbreidda misskiln-
ingi að hann sé hættur prests-
skap. Sr. Birgir lét af störfum
prófasts í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi um síðustu áramót en í
kjölfar þess virðist sá misskiln-
ingur hafa farið af stað að hann
hafi látið af störfum. Hið rétta er
að sr. Birgir mun starfa sem
sóknarprestur til loka ágústmán-
aðar á þessu ári.
Akureyrarbær auglýsir
breytingu á deiliskipulagi við
Mýrarveg norðan Akurgerðis
hrf l|
rMrl!
Með vísan til greinar 6.2.3 í skipulagsreglugerð auglýsir Akur-
eyrarbær deiliskipulag íbúðarsvæðis og opins svæðis vestan
Mýrarvegar, norðan Akurgerðis. Lóðarhafi hefur látið vinna
deiliskipulagstillögu þar sem gert er ráð fyrir tveim 5 hæða fjöl-
býlishúsum með alls 30 íbúðum. Bílageymsla er neðanjarðar.
Tillagan var kynnt á almennum borgarafundi 3. febrúar sl. og var
síðan breytt lítillega til þess að koma til móts við sjónarmið sem
fram komu á fundinum.
Uppdráttur er sýnir skipulagstillöguna ásamt skýringarmyndum
og greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis á Skipulags-
deild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 6 vikur frá
birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til þriðjudagsins 6. apríl
1999, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og
gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00
þriðjudaginn 6. apríl 1999. Athugasemdum skal skila til Skipu-
lagsdeildar Akureyrarbæjar. Þeim sem telja sig verða fyrir bóta-
skyldu tjóni vegna skipulagsins er bent á að gera athugasemdir
innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir henni.
Skipulaasstióri Akurevrar
Morgunblaðið/Magnús Mikaelsson
BIRGIR Sigurjónsson, Hólmfríður Jóhannesdóttir og dóttir þeirra
Karen í Heilsuhöllinni í Hrísey.
BOÐIÐ er upp á fjölbreytta líkamsrækt í Heilsuhöllinni.
Til sölu er
Lónsá við Akureyri
Gistiheimili í fullum rekstri á eignarlandi standa tvö hús.
Steinhús á tveimur hæöum, stærð samtals 364,3 fm.
Timburhús á einni hæð, stærö samtals 125,9 fm.
Nánari upplýsingar eru veitt hjá
Hermann R. Jónsson, sölustjóri.
Heilsuhöllin
opnuð í
Hrísey
HEILSUHÖLLIN, ný líkams-
ræktarstöð, hefiir verið opnuð í
Hrísey en hún er til húsa í Hóla-
braut 20. Birgir Sigurjónsson
og íjölskylda hans eiga og reka
Heilsuhöllina og var húsið við
Hólabraut keypt á síðasta ári til
að setja hana upp. „Við byrjuð-
um að undirbúa þetta í fyrravor
og höfum verið að síðan,“ sagði
Birgir.
Aður hefur verið rekin sól-
baðsstofa í Hrísey en eyjar-
skeggjum hefur ekki staðið til
boða áður að sækja líkams-
rækt í eynni. Birgir sagði að
áhugi íbúa eyjarinnar væri
mikill, en ekki hefði fengist
mikil reynsla enn sem komið
er á reksturinn þar sem nýlega
er búið að opna stöðina. Þar er
hægt að stunda pallaleikfimi,
fara í tæki og stunda „body
pump“, en á því sviði er um að
ræða nokkurs konar útstöð frá
Vaxtarræktinni og hefur Sig-
urður Gestsson verið eigend-
um innan handar hvað það
varðar. Þá geta gestir farið í
sólarlampa, farið í gufu og böð
og jafnvel nudd. Kennari í
Heilsuhöllinni er Þórunn Páls-
dóttir.
Stöðin er opnuð kl. 16 á dag-
inn og er opin fram eftir kvöldi,
en Birgir sagði að afgreiðslu-
tími yrði þróaður í samræmi við
þarfír neytenda. Auk Hrísey-
inga kvaðst Birgir ætla að fólki
af fastalandinu gæti þótt spenn-
andi að sækja sér heilsurækt til
Hríseyjar.
Miðstjórnar-
fundi frestað
VEGNA veðurs hefur verið
ákveðið að fresta miðstjómar-
fundi og stjómmálaskóla Sam-
bands ungra framsóknar-
manna sem vera átti á Akur-
eyri í dag, laugardaginn 20.
febrúar. Fundurinn verður
þess í stað haldinn næsta
laugardag, 27. febrúar, á sama
stað og tíma og er dagskráin
óbreytt að öðra leyti. Frekari
upplýsingar era veittar á
skrifstofu Framsóknarflokks-
ins.