Morgunblaðið - 21.02.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. PEBRÚAR 1999 B
honum í svítu á Hótel Loftleiðum
alla nóttina eftir síðasta konsertinn
og fram á morgun. Hann pantaði
kampavín og lék á píanó. Hann sagði
okkur ýmislegt um sig og fjölskyldu
sína. Hann var ánægður með land og
þjóð og naut þess reglulega vel að
dvelja hér. Við fengum ótal heimboð
og gætum þess vegna bankað upp á
einhvem daginn. Þegar við fórum
með honum út á Keflavíkurflugvöll
leit hann inn hjá íslenskum markaði
og skoðaði þar pelsa og frakka.
Hann keypti síðan á alla fjölskyld-
una tíu til fímmtán pelsa. Hann
hringdi út og fékk upp gefin númer.
Gullkortin hans runnu fjórum, fimm
sinum í gegn og hann verslaði fyrir
hundmð þúsunda. Hann var með
hringa á hvorri hendi upp á tvö, þrjú
hundrað þúsund dollara.
Jerry Lee Lewis sat inn á her-
bergi og horfði á myndbönd meira
eða minna allan daginn og helst á
spennumyndir. Hann var á slæmu
tímabili hér. Konsertarnir vora þrír.
Fyrsti konsertinn var góður, annar
æðislega góður og sá þriðji góður
líka. Á fyrsta konsertinum lenti þeim
saman, Jerry og bassaleikaranum
Bobby Moore, sem spilaði meðal
annars með Elvis áður fyrr. Mér
skilst að Jerry hafi jafnvel rekið
hann úr bandinu. Daginn eftir, þegar
þeir vora komnir á sviðið, kynnti
Jerry hljómsveitina og sagði við
gesti úti í sal að hann hefði móðgað
góðan vin sinn kvöldið áður og hann
sæi mikið eftir því. Svo féUust þeir í
faðma. Framkvæmdastjóri Jerrys
var karl sem kunni ræður hershöfð-
ingjans Pattons utan að og fór með
eina ræðuna upphátt oft á dag. Þetta
var ræða sem Patton hafði flutt fyrir
sem rótarinn vinnur fyrir og má að
sumu leyti líkja við starf „butlers"
eða heimilisþjóns. Þú ert með þinn
mann, þína menn, og reddar hlutun-
um. Ef hann t.d. vantar sígarettu
ferðu ekki og sækir sígarettupakka
og lætur hjá honum heldur bíður sí-
garettan logandi í öskubakkanum
næst þegar hann ætlai- að fá sér
smók.
Þetta er þó töluvert öðru vísi nú
en íyrstu árin. Húsin breytast, kerf-
in breytast, kröfurnar eru öðra vísi.
I dag sér rótarinn um allt í sambandi
við bílinn, græjumar, að allt sé á sín-
um stað, að hægt sé að ganga að öllu
öraggu. Þetta er skemmtilegt starf
og hefur gefið mér mikið og ég get
vel hugsað mér að vinna við þetta til
ársins 2000 og kannski lengur. Það
er mikilvægt varðandi starfið að
vera skrefi á undan því sem er að
gerast, gera ráð fyrir óvæntum upp-
ákomum og vera viðbúinn hverju
sinni að bregðast rétt við aðstæð-
um.“
Með heimsfrægum
tónlistarmönnum
„Ég fór að starfa fyrir Listahátíð
1976 og einn gesta hennar árið 1978
var Benny Goodman. Ég átti þá
hljóðkerfi sem ég leigði Listahátíð
og var notað þar. Þetta var upphafið
að því að aðilar utan hljómsveita fóru
að eiga hljóðkerfi sem þeir leigðu
hljómsveitum og til tónleikahalds.
Seinna fór ég að taka á móti fólki
sem kom hingað á Listahátíð. Árið
1988 kom Leonard Cohen á hátíðina.
Þá var Hrafn Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar og tók á
móti gestum. Við fórum saman til
Keflavíkur. Rútan var notuð fyrir
hljómsveitina og aðstoðarmenn en
límósína fyiTr Cohen og Hrafn. Á
leið í bæinn kom upp sú hugmynd að
fara með liðið sem við kölluðum
áhöfnina í Bláa lónið. Cohen vildi
endilega slást í för og tók sér ferð
með rútunni, en ég fór með ká-
diljáknum í bæinn. Þegar við komum
að Hótel Sögu stóðu þar tuttugu,
þrjátíu blaðamenn og ljósmyndarar
og það varð uppi fótur og fit þegar
bílhurðin opnaðist og ég steig út og
sagði: No pietures, please! Cohen
átti auðvitað að stíga út úr bílnum en
ekki ég og þar átti að vera blaða-
mannafundur, en heiðursgesturinn
var þess í stað í Bláa lóninu.
Rod Stewart kom hingað til að sjá
skoska landsliðið í fótbolta leika á
Laugardagsvellinum. Hann krýndi
ungfrú ísland í Broadway. Rod var
geðugur náungi og lét ekki fara mik-
ið fyrir sér. Björgvin átti að syngja
nokkur lög í skemmtidagskrá
kvöldsins. Hann hafði beðið mig að
vera með míkrafóninn kláran bak-
sviðs ef færi gæfist á Rod og mér
leið eins og veiðimanni með færið í
hendinni að bíða eftir að sá stóri biti
á. Björgvin hafði ætlað að taka
nokkur Rod Stewart-lög til heiðurs
Rod, sem var heiðursgestur kvölds-
ins. Rod heyrði nafn sitt nefnt gekk
að sviðinu og settist á sviðsbrúnina.
Ég beið bak við tjaldið með míkra-
fóninn. Björgvin kallaði til hans: Hi,
come on Rod! og ég stökk fram með
míkrafóninn og rétti honum og hann
lét sig hafa það að koma upp á svið-
ið, tók hljóðnemann og þeir tóku
nokkur lög saman. Þetta var æðis-
legt kvöld.
Það var mikið að gerast 1986. Da-
ve Brubeck og hljómsveit hans komu
fram á á Listahátið í Broadway og
síðan Hollies og Shadows, Fats
Domino og Jerry Lee Lewis. Fats
Domino kom tvisvar. Með honum
komu hingað frændi hans, mágur og
lífvörður. Við Björgvin sátum hjá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
nýliða fyrir þeirra fyrstu stórárás
fyrr á árum. Það var sannarlega
gaman að kynnast þessu skrautlega
liði.
Tom Jones kom hingað 1 mars-
apríl 1990. Hann var með hóp
manna með sér, lífverði og aðstoð-
armenn, sem rannsökuðu húsið
gaumgæfilega fyrir komu hans og
meðan hann dvaldi hér voru þeir all-
ir með talstöðvar. Hópur fólks
reyndi að fá eiginhandaráritun og
beið fyrir utan búningsherbergi
hans og margir höfðu erindi sem
erfiði. Hann var með þetta fræga
atriði að fleygja kvenmannsnærbux-
um út í salinn.“
Þegar hér var komið sögu birtist í
sal á Brodway ungur maður, áhyggju-
fullur á svip, og var að leita að konu
sem þá var stödd í húsinu. Gústi var
með allt á hreinu og var snöggur að
gera manninum grein fyrir hvar við-
komandi konu væri að finna. Maður-
inn þakkaði fyi-ir sig brosti og sagði:
Ekki er að spyrja að honum Gústa.
Hann leysir hvers manns vanda! Mað-
urinn hvarf síðan á brott og flautaði
lagstúf, kunnan slagara frá gullaldai'-
áranum. Sólveig í miðasölunni átti er-
indi við Gústa. Hún var í vandræðum,
hafði ekki lykla að herbergi og spurði
Gústa hvort hann gæti ekki leyst úr
þeim vanda.
„Ekkert mál, ég redda því. Ég er
með lykla,“ sagði hann, spratt upp úr
sófanum og rétti henni lyklakippu.
Þannig er Gústi. Ávallt viðbúinn!
Enda heiðursrótari Islands númer
eitt.
Holl og bragdgód jurtakœfa
prjár {júffengar
bragðtegundir!
Fæst í flestum
matvöruverslunum
Dreifing: Heilsa ehf.
S:533 3232
HAND
CREAM
TANA Cosmetics Einkaumboð: S. Gunnbjörnsson ehf., s. 565 6317
Með því að nota TREND naglanæringuna
færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar
svo þær hvorki klofna né brotna.
TREND handáburðurinn ÍM
með Duo-liposomes. J
Ný tækni í framleiðslu
húðsnyrtivara, fallegri, ■
teygjanlegri, þéttari húð. / «15?.,
Sérstaklega græðandi. f
EINSTÖK GÆÐAVARA \
____li\E!SD
Fást í apótekum og snyrti- k
vöruverslunum um land allt.
_________| Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum
Ath. Andlitskremin frá Trend fást í tilboðspakkningum.
Leitið upplýsinga. Útsölustaðir: Ingólfsapótek, Kringlunni,
Rima Apótek, Grafarvogi.
Nýjung! Þýsk gæðavara
Ekta augnahára- og augnabrúnalit-
ur, er samanstendur af litakremi og
geli sem blandast saman, allt í ein-
um pakka. Mjög auðveldur í notk-
un, fæst í þremur litum og gefur
frábæran árangur.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone. Þessi (svarti) gamli góði með stóra
_______burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.__
Útsala
Rýmum fyrir
nýjum vörum
25-50% afsláttur
Ath: Ekkt mlnni gæði
heldur aðeins flisar sem ekki koma aftur.
lafnvel til i magni.
Fyrstur kemur, fyrstur fær
Einstakt tældfæri til að gera góð kaup.
Afgangar i litlu magni (í gámi) frá kr. 700 fm.
GaU^ar
& góð« verit
- -
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844