Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Byggðasafn Arnesinga Bæjarmyndir Matt- híasar Sigfússonar BYGGÐASAFN Ámesinga, Húsinu á Eyrarbakka, hefur verið opnað eftir hefðbundna vetrarlokun. I Tónleikar í Asbyrgi TJARNARKVARTETTINN heldur tónleika í Ásbjrgi, Húnaþingi vestra, í dag 8. apríl kl. 21. Á efnisskrá þeirra eru ís- lensk og erlend lög, þjóðlög, dægurlög og einnig lög úr leik- ritinu Systur í syndinni sem þau eru að leika í um þessar mundir. Kvartettinn skipa: Rósa Kristín Baldursdóttir, sópran, Kristjana Arngrimsdóttir, alt, Hjörleifur Hjartarson, tenór og Kristján Hjartarson, bassi. Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags V-Hún. borðstofú Hússins hefur verið opnuð sýning á málverkum eftir Matthías Sigfússon listmálara og lýkur henni 16. maí nk. Á sýningunni eru kynnt málverk eftir Matthías sem sýna sveitabæi á fyrri hluta þessarar aldar. Verkin sýna bæjargerðir í sveitum á þeim tíma þegar húsakynnin voru ýmist ný timburhús eða gamlir torfbæir. Á sýningunni eru til samanburðar ljósmyndir teknar í dag frá nánast sama sjónarhorni. Á þennan hátt miðlar sýningin ekki einungis fortíðinni í verkum Matthíasar heldur líka veruleikanum eins og hann er, segir í fréttatilkynningu. Matthías fæddist árið 1904. Hann var sjálfmenntaður að mestu fyrir utan veturna 1934 til 1936 þegar hann sat á námskeiðum hjá Jóhanni Briem og Tryggva Magnússyni. Var hann listmálari að aðalstarfi frá 1942 og tók þátt í mörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Matthfas lést árið 1984. - einhvern sem gengur í það strax og gerir það veí? Við bjóðum aðeins þekkt og vönduð merki og þjónustu sem þeim hæfir. WhirSpool, 8 efta 12 manna margar gerðir 3, 5 eða 7 þvottakerfi Frá 54.910 kr. staðgr. Whi Allar þessar vélar eru búnar afar fullkominni vatnsflæðivörn og þurrka með hita frá hitaelementum. Líttu inn og kynntu þér kosti hverrar fyrir sig - og kosti góorar þjónustu. 0 Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SlMI 569 1500 úrvalstæki, einstök þjónusta Eumenia 5 manna þvær á 20 mínútum Þessi er felld ofan í borð- þlötuna, alveg uþplögð í horn þar sem pláss nýtist ekki alltaf sem skyldi. Hæð/breidd/dýpt: 53/45,8/45,8 cm. £UMENIA\ 62.890 kr. staðgr. HLIF Ásgrímsdóttir: Án titils (9), olía á striga. BJÖRN Birnir: Málverk (16), akríl á striga. Logar/Flæði/Gagnsæi Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson KRISTÍN Geirsdóttir: Gagnsæ 22, olía á striga. MY]\PLIST Hafnarborg MÁLVERK HLÍF ÁSGRÍMSDÓTTIR BJÖRN BIRNIR KRISTÍN GEIRSDÓTTIR Opið alla daga frá kl. 12-18. Lokað þriðjudaga. Til 12. apríl. Aðgangur 300 krónur í allt húsið. ORÐA má það svo að um páskana sé málverkaveisla í Hafnarborg, menningarhúsi þeirra Gaflara, jafn- framt er nýlokið norrænu framtaki sem byggðist einnig á sígildum miðlunum. Undirstrikar að mál- verkið er sem fyrr í góðu gildi hvað sem öllum hrakspám líður og að það er jafnt iðkað af ungum sem öldnum í útlandinu og norður við Dumbshaf. Eitt er áberandi beri maður þessar sýningar saman, sem er hve Islend- ingarnir koma vel út fyrir traust vinnubrögð og ferskleika, engin þreytumerki hér. Veigurinn við þessar samsýningar er að skoðand- anum opnast sýn til ýmissa átta í norrænni listsköpun dagsins og það er tvímælalaust besta ráðið til að vekja áhuga leikmannsins, sem vík- ur undan allri einstefnu í þessum efnum, líkt og dæmin sanna. Al- menningur hefur afar takmarkaðan aðgang að úttekt á hinum ýmsu hliðum íslenzkrar og norrænnar samtímalistar sem er mikill dragbít- ur á heilbrigða skoðanamyndun, stóru Haustsýningarnar löngu liðin tíð, sömuleiðis sýningar Septem og Listmálarafélagsins. Hlutlægar uppstokkanir á gildum viðhorfum allra aldursflokka eins og víða sér stað í útlandinu virðast eitur í bein- um mikils hluta íslenzkra myndlist- annanna og safnstjóra, miðstýi-ing skal það vera. Myndlistarmenn eru vel að merkja misjafnlega iðnir við sýningahald, þótt þeir taki þátt í samsýningum til að sanna sig, en svo þegar þær engar eru eða lítt marktækar vilja þeir gleymast, skeður afar fljótt á þessum tíma hraða og tækniframfara. í litlu landi vill þetta verða afdrifaríkt og kallar á betra skipulag en sú umræða skal fara fram á öðrum vettvangi, en samt þótti mér tilefni til að fara að- eins inn á hann í tilefni af framtaki þremenninganna og sýningarinnar á undan. Hlíf Ásgrímsdóttir er nýgræðing- urinn í hópnum, útskrifaðist úr MHÍ 1991 og stundaði framhalds- nám við listakademíuna í Helsinki á árunum 1994-96. Hefur hún haldið tvær minni sýningar hér heima, í Stöðlakoti 1994 og Leifsstöð 1998, hins vegar verið til muna virkari á samsýningum og þeim flestum í út- löndum. Hh'f sýnir 9 stóra fleka sem eins og loga of gulum og rauðgulum lita- tónum, segir að ljósguli liturinn fylli sig unaðskennd og kjarki, appel- sínugulur litur framkalli aðrar kenndir, sé glóandi litur logans, lit- ur eldsins sem brennir. Að verkin fjalli um útgönguleiðir úr þröngu rými út á opið svæði, sé ævintýra- heimur sem breytist í flókið völund- arhús þar sem leita þarf leiða úr logandi göngum út á berangrið ... Það er mikið líf og nær óheftur kraftur sem kraumar undir niðri í þessum að því er virðist nær einslitu myndheildum og rétt er að svo virðist sem ókennilegur og fjar- rænn ævintýraheimur blasi við áhorfandanum . Hann ætti í öllu falli að eiga auðvelt með að láta sig dreyma frammi fyrir þessum ólg- andi formaiðum sem búa yflr reglu í frjálsri mótun og vissri dýpt, þrátt fyrir allan óróleikann, líkt eins og er hann horfir inn í eldsloga. Kannski magnar staðlað gerviijósið í salnum að vissu marki upp þetta formaspil, en þó er ekki gott að segja, því sí- kvikul dagsbirtan getur einnig og allt eins töfrað fram mörg sértæk brigði. Björn Birni ætti ekki að þurfa að kynna, þótt hann hafi alla tíð verið á hlédrægari kantinum um sýningar, farið með veggjum að segja má, en eftir langt starf að listakennslu í Reykjavík er hann nú búsettur í Gautaborg. Brá sér hingað vegna sýningarinnar, mun einnig hafa átt hugmyndina að henni og báðar eru konurnar fyrrverandi nemendur hans í málunardeild MHÍ. Björn er mjög samkvæmur sér á sýningunni, byggir myndir sínar á flæði forma og staðfestir styrk sinn og stöðu. Hallast þó frekar að fyrri viðhorfum og litríkari myndheildum, en að halda fram þeim kröftuga leik með einslitar formablakkir sem hann var byrjaður á og komu svo sterkt út í Norræna húsinu fyrir nokkrum ár- um. Björn gerir mjög rétt í því að leiða þessa tvo fyrrverandi nemend- ur sína fram í sviðsljósið og taka sjálfur þátt í gjörningnum, en kannski gerir hann það af full mik- illi hófsemi. Kristín Geirsdóttir hefur verið dugmikil og athafnasöm síðan hún hóf þátttöku á sýningarvettvangi í byrjun áratugarins, en hún útskrif- aðist úr MHI 1989. Hefur haldið 10 einkasýningar, en þær flestar litlar og tekið þátt í enn fleiri samsýning- um þar af nokkrum erlendis. Kristín vinnur út frá einföldum þríhyrndum formum þar sem gildi litarins vegur þungt og til þess að magna einfaldeikann og gera hinar einhæfu reglubundnu formanir loft- kenndari og munúðarfyllri eru þau gjarnan höfð gagnsæ. Það má gjarnan orða það svo að þau verði líkust fíngerðum glitvefnaði sem ljósið smýgur óhindrað í gegnum. Hér er um að ræða þann titring ljósbrigða, sem á fagmáli nefnist, vibration, og felur í sér ýmsar merkingar, framber öðru fremur sjónræna ertingu en opnar einnig myndflötin með skírskotun til ytri og innri byrðar myndflatarins eins og tilfellið er hjá listakonunni. Kristín nær afar íinum ljós- og litbrigðum með þessari aðferð og þessi leikur með birtuflæði, liti, gagnsæi og titring er hennar sterkasta hlið og kemur mest á óvart. það er einkum þegar lista- konan færist mikið í fang að henni tekst vel upp eins og í myndinni sem væntanlega fylgir þessum lín- um og þar sem hún leggur saman þríhyrningana þannig að fernings- formið verður merkjanlegt. Bragi Ásgeirsson i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.