Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 27

Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Samsöngssælgæti TOM.IST Salnrinn ÓPERUSAMSÖNGSTÓNLEIKAR Samsöngsatriði úr óperum eftir Moz- art, Verdi, Humperdinek, Delibes, Beethoven, Nicolai og Bizet. Hulda Björk Garðarsdóttir S, Tonje Haug- land S, Sigríður Aðalsteinsdóttir MS, Tomislav Muzek T, Sigurður Skag- fjörð Steingrímsson Bar. og Davíð Ólafsson B-Bar. Kurt Kopecky, pí- anó. Þriðjudaginn 6. apríl kl. 20.30. SAMSONGSATRIÐI - frá dúettum upp í sext-, jafnvel sept- og oktetta - eru algengari í óper- um en halda mætti, miðað við hvað þau virðast snautlega vanrækt bæði í söngnámi og tónleikalífinu. Það er algengara en tárum taki að heyra einskonar stríð allra gegn öllum á sviðinu í stað þess agaða og samstillta hópsöngs sem tónskáld- in ætlast til. Þar við bætist, að með ólíkum samsetningi radda má ná ótrúlegri Ijölbreytni, fyrir utan hvað leynast víða margar sam- söngsperlur í óperubókmenntum sem staðið hafa í skugga ein- söngsaríunnar. Það var því vel til fundið að halda samsöngstónleika í Salnum í Kópa- vogi á þriðjudagskvöldið var og leiða þar saman nokkur skærustu einsöngvaraefni landsins af yngstu kynslóð ásamt góðum gestum á svipuðu reki frá Noregi og Austur- ríki. Og ekki var að sökum að spyrja. Bæði var dagskráin sérlega vel valið safn gimsteina, sem ætti að falla hlustendum í geð langt út íyrir raðir óperuunnenda sem slíkra, auk þess sem söngurinn í heild gaf líf- legt sýnishom af getu ungra söngv- ara á uppleið. Öll voru þau stödd á þessu ómótstæðilega ferska fyrsta þrepi atvinnumennskunnar, þar sem hvatleiki og sönggleði oft meira en jafnar þann fágunarskort sem reynslan ein getur bætt. Ytt var úr vör með meistara Mozart. Ur Brúðkaupi Fígarós sungu Hulda Björk Garðarsdóttir og Sigríður Aðalsteinsdóttir dúett Súsönnu og Marcelínu, og hæfðu hvor annarri með afbrigðum vel, eins og einnig mátti heyra í tveim- ur öðrum dúettum þeirra síðar, þótt hér væru ögn ósamtaka á köfl- um. I dúett Súsönnu og greifynj- unnar sungu saman Hulda og hin norska Tonje Haugland, og var ekki laust við að Tonje hætti þar eins og stundum síðar til að neyta aflsmunai-, enda ugglaust freist- andi með jafnglæsilegu dimmglitr- andi hljóðfæri. í þeirra hóp bættist næst Sigurður Skagfjörð Stein- grímsson í terzett Súsönnu, greifynjunnar og greifans, og náð- ist þar nokkuð jafn samsöngur. Fyrsta „kassaatriði" kvöldsins kom næst á eftir í dúett Pamínu og Papagenós úr Töfraflautunni, þar sem Sigurður og Tonju sungu sam- an mjög fallega smellinn „Mann und Weib und Weib und Mann“. Hafði Sigurður þar vinninginn í þýzkum textaframburði, þó að röddin væri á móti svolítið lokuð. I terzett Pamínu, Tamínós og Sarastrós úr sömu óperu náðu Tonje, króatíski tenórinn Tomislav Muzek og Davíð Ólafsson allvel saman, þó að útlendingarnir gæfu stundum full hraustlega í. Dúett Huldu og Sigurðar í hlut- verkum Zerlínu og Dons Giovannis úr samnefndri Mozartóperu var dálítið mattur. Huldu skorti aðeins meiri mýkt og rödd Sigurðar verk- aði nokkuð hol, líkt og vegna hæsi, en samsöngur þeirra var að öðru leyti nokkuð vel samstilltur. Þar- næst sungu Hulda og Sigríður dúett Fiordiligiar og Dórabellu úr Cosi fan tutte, eins og fyrr sagði með vel samhæfðum röddum, er síðar náðu hvað beztum árangri í seiðandi dúett Malliku og Lakme úr samnefndri óperu eftir Delibes í einum af hápunktum kvöldsins. Síðast fyrir hlé sungu svo Sigurð- ur, Tomislav, Davíð, Hulda og Sig- ríður kvintett úr Cosi fan tutte af þokka, en þó ekki 100% samtaka. Beztu bitarnir voru eftir hlé. Tonje, Sigríður, Tomislav og Sig- urður sungu frægan kvartett Gildu, Maddalenu, hertogans og Rigolettós út samnefndri ópera Verdis með miklum glæsibrag, og mátti merkja, að hér væri króatíski tenórinn á heimavelli. Dúett Hans og Grétu úr óperu Humperdincks var kyrrlátur og snotur í meðför- um Sigríðar og Huldu, og ástar- dúett Violettu og Alfredos úr La Traviata (Verdi) var innlifaður og hrífandi. Hinn heróíski fóstbræðra- lagsdúett Dons Carlosar og Posa (Verdi) í túlkun Tomiseks og Sig- urðar glumdi af karlmennskuleg- um glæsibrag, en kanonkvartettinn úr Fidelio (Beethoven) í meðförum Huldu, Tonje, .Davíðs og Tomislavs hefði aftur á móti mátt vera aðeins hraðari og liðlegri. Ekki sízt átti það við um njörvaðan píanóundir- leikinn, en annars slapp Kurt Kopecky nokkuð vel frá viðamiklu hlutverki sínu þetta kvöld. Davíð brilleraði ekki óvænt með kómískum tilþrifum í drykkjuvísu Falstaffs úr Die lustige Weiber von Windsor (Nicolai) - einu ein- söngsaríu kvöldsins - og í bréfa- dúettnum úr sömu óperu fóru Tonje og Sigríður hreinlega á kost- um með eldfjörugum söng og gam- ansömu leikbrögðum sem vöktu mikla kátínu. Síðastur á dagskrá var hinn fjörugi smyglarakvintett úr Carmen Bizets, þar sem Hulda, Tonje, Sigríður, Davíð og Tomisek skiluðu líklega bezt heppnuðum hópsöng dagskrárinnar á þessu bráðskemmtilega óperukvöldi. Ríkarður Ö. Pálsson 27 verzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 Hundruð þúsunda Kosovobúa hafa hrakist á flótta vegna átakanna í Júgóslaviu að undanförnu. FóLkið þarf á brýnustu nauðsynjum á borö við mat, hreinlætisvörur og teppi að halda. Munið söfnunarreikning okkar í SPRON, 1151-26-12 (kt. 530269-2649) og gíróseðla i bönkum og sparisjóðum. Nánari upplýsingar í síma 570 4000 Rauði kross íslands MYNDIN er tekin á æfingu og á henni eru Óttar Guðmundsson, Rúnar Ólafsson og Þorbjörg Beck. Málverka- sýningu Tolla lýkur MÁLVE RKASÝNINGU Tolla lýkur í Listasetrinu Kirkju- hvoli, Akranesi, sunnudaginn 11. aprfl. Þar sýnir Tolli um 40 olíu- málverk, bæði stór verk og verk á stærð við eldspýtu- stokk. Listasetrið er opið daglega frá kl. 15-18. Hart í bak á Reyðarfirði LEIKFÉLAG Reyðarfjarðar frumsýnir laugardaginn 10. apr- íl leikrit Jökuls Jakobssonar Hart í bak í félagsheimilinu Fé- lagslundi. Leikmynd er eftir Óttar Guð- mundsson og Jón Júlíusson ann- ast leikstjórn. Með helstu hlut- verk fara Helgi Seljan, Þorbjörg Beck og Margrét B. Reynisdótt- ir. Formaður leikfélagsins er Jó- hann Sæberg Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.