Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 51 komast í allra fremstu röð hér á landi, en ágreiningur á golfmóti varð til þess að hann lagði kylfuna frá sér í miðju móti fyrir fullt og allt. Tónlist lá og vel fyrir honum. Hann bæði samdi lög og texta og spilaði dável á gítar og þess má geta að hann samdi texta m.a. við fyrstu útgáfu laga með söng Bjark- ar Guðmundsdóttur. Af og til á síðustu árum mætti hann á öldungamót í frjálsum íþróttum og sýndi þá gamla takta. Lék hann þá við hvern sinn fingur í glaðra vina hópi. Björgvin var mikill IR-ingur sem og öll hans fjölskylda og hún hefur m.a. lagt félaginu tU fjölmennt keppnislið í áratugi. Eg kveð þenna góða vin minn með kærri þökk fyrir samveruna og góð kynni og bið honum Guðsblessunar. Eftirlifandi bömum hans, systk- inum og öðrum ættingjum sendi ég innUegar samúðarkveðjur. Genginn er góður drengur sem flýgur nú frjáls Guðs um geim. Jón Þ. Ólafsson. í dag er kvaddur kær vinur minn og fyrrum nemandi, Björgvin Hólm. Alfyrstu kynni mín af honum voru þegar hann var kornungur drengur, sem jafnan var kominn árla dags niður að höfn í Reykjavík að selja blöð. Ekki var spurt um veður né vosbúð, þó skjólflíkur og hlífðarfót væru ekki slík sem nú. Eigi var heldur nokkuð annað látið hamla. Blöð skyldi selja og blöð voru seld tU hjálpar fjölmennu heimilishaldinu. Þá þegar á örungum aldri voru dugnaðurinn, festan, stórhugurinn og harðfylgið borðliggjandi. Það sem þyrfti að gerast skyldi fram- kvæmt. I þessum hljómbæ urðu fyrstu kynni okkar - þetta var Björgvin. Alltaf vissi ég af og fylgd- ist með honum. Gagngjör kynni okkar urðu þó seinna, er hann kom sem nemandi í framhaldsnám tU Hlíðardalsskóla, í unglingapróf og landspróf eins og það nefhdist þá. Þai’ deildum við geði þrjú samfeUd skólaár í heimavist, þar sem við gengum veg náinna samskipta í kennslu, námi, skyldu- vinnu, skemmtikvöldvökum, leiklist, trúariðkunum, bænagjörð, íþróttum, tónlist, skáldskap, heimspekilegu há- flugi, stærðfræðUegum víddum, sem voru hans annar heimm’, og grand- skoðun, þar sem opinn, umbúðalaus hugur beggja og óvægin gagnrýni réðu jafnan ferðinni, allt gi-undvaUað á gagnkvæmri viðurkenningu, mannelsku og virðingu fyrir Guði og mönnum. Það gilti einu, hvar borið var niður, Björgvin var meira en með á nótunum. Sönnuðust mér þá vel eiginleikarnir, sem drepið er á hér að ofan, og ég þóttist greina með ungum drengnum. Gegnum þessi margþættu viðfangsefni urðu kynni okkar og vinfengi mjög náin. Já, stærðfræðilegar víddir voru með sanni hans annar heimur, því allt þurfti og átti að vera hægt að reikna út. Hann bjó til sínar eigin formúlur og útreikningskerfí. Raunar var hann vísindalega hyggjandi og kryfjandi ungmenni. Hann var góður skólaþegn, já- kvæður, fús og hjálplegur í sam- starfi, átakatraustur og drífandi í öllu sem framkæma þurfti, og þar var mikið unnið. Afburðanámsmað- ur var hann og lauk landsprófi með einni alhæstu landsprófseinkunn, sem til þess tíma hafði sést. Þá var hann og ágætagóður frjálsíþrótta- maður, náði langt á því sviði, og keppti m.a. á Olympíuleikunum í Róm 1960 - slíkt þarf ekki frekari ummæla við. Kæru systkini Björgvins öll, börn, barnabörn og ástvinir allir. Við hjónin sendum ykkur innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur og styrki á þessum sáru tímamótum. Hér er góður drengur genginn. Blessuð sé minning hans. Vinir ykkar, Sólveig og Jón Hjörleifur Jónsson. EIRÍKA ELFA AÐALS TEINSDÓTTIR + Eiríka Elfa Að- alsteinsdóttir fæddist í Hermes á Eskifirði hinn 11. mars 1948. Hún Iést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað hinn 26. febrú- ar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Eskifjarð- arkirkju 6. mars. Að fá að kynnast Elfu voru forréttindi og kynni mín af henni eru mér ómetanleg. Hún átti engan sinn líkan á þessari jörðu. í kring- um hana ríkti ávallt gleði og stutt var í hláturinn hjá þessari yndislegu konu enda ein sú skemmtilegasta manneskja sem ég hef kynnst. Ég gleymi því ekki þegar hún og ég vorum einu kvenmennirnir á heimil- inu á Bakkastíg. Lauga, sem hugs- aði alltaf svo vel um Elfu, var í Þýskalandi og ég varð náttúrlega að standa mig og sjá um að síða, fal- lega hárið hennar væri alltaf vel snyrt. En ég hafði greinilega ekki staðið mig nógu vel vegna þess að í einu hádeginu þegar ég var úti á Esso að borða hringdi síminn og ég var kölluð upp. Elfa var í símanum og spurði hvar ég væri eiginlega og spurði jafnframt hvort hún ætti að vera alveg eins og reytt hæna allan daginn. Þá þurfti mín kona að kom- ast út og varð náttúrlega að vera vel tilhöfð. A þessum sama tíma ætlaði ég að búa til uppstúf handa Elfu, AJla og mér_ til þess að hafa með saltkjötinu. Ég þóttist vera fullfær um þetta en Elfa var fljót að sjá í gegnum „húsmóðurhæfileika" mína og gægðist ofan í pottinn og sagði: „Oj, Magga mín, á þetta að vera svona brúnt?“ Uppstúfið var auðvit- að allt viðbrennt. Eins og hún passaði upp á alla þá sem henni þótti vænt um bæði í orði og á borði þá var hún ein- staklega passasöm á dótið sitt. Eitt sinn samþykkti hún að lána kolagrilhð sitt til úti- legu. Þegar lagt var af stað sagði hún: „Ef þjófur kemur og stelur grillinu mínu þá getið þið bara sagt honum að ég kaupi mér nýtt.“ Þetta finnst mér sýna hve góð og einlæg hún var alltaf. Þær voru ófáar göngurnar og bíltúrarnir sem við tvær fórum á Eskifirði. Þá stoppaði hver Eskfirðingur og heilsaði þess- ari glaðlegu manneskju sem bræddi hvert hjarta. Heima fyrir hlustaði Elfa mikið á tónlist enda einstak- lega lagvís auk þess sem hún vann ýmsa handavinnu með sínum litlu, mjúku höndum. Otrúlegustu hluti skapaði hún af nákvæmni og mikilli natni. Ekki má gleyma kettinum hennar, sem hún var alltaf svo blíð og góð við þótt hann væri ekki sá vinveittasti. Ég hef reyndar aldrei þekkt manneskju sem kallaði kött- inn sinn tveimur nöfnum eins og Elfa. Kötturinn hafði meira að segja tvö kyn, eina stundina hét hann Malli en hina Sara. Endalaust er hægt að segja fal- legar og skemmtilegar sögur af Elfu. Minningarnar um hana eru ei- lífar í huga mér. Hún mótaðist og lifði innan um hlýja og gjafmilda fjölskyldu þar sem ávallt er stutt í húmorinn. Ég veit að nú verndar hún þá sem eru henni kærastir eins og hún alltaf gerði. Elsku Alli, Lauga og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur í þessum mikla söknuði og ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Margrét Stefánsdóttir. KAROLINA KRISTIN BJÖRNSDÓTTIR + Karólína Kristín Björnsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 22. nóvember 1919. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 29. mars síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 8. apríl. Friðurinn, róin og kærleikurinn sem ein- kenndi hana ömmu okkar gerði heimsóknir okkar tíðar á Hverfisgötuna. Alltaf voram við velkomin og alltaf tók hún okkur opnum örmum, hjá henni var gott að vera. Við systkinin bjuggum í nágrenni við hana þegar við vorum yngri og oft komum við þá við hjá henni og fengum þá alltaf eitthvað gott í svanginn því að alltaf átti hún nóg til og gladdist mjög yfir því að geta gefið okkur eitthvað gott að borða. Stundum fórum við í vinn- una til hennar í Rafveituna og eig- um þaðan góðar minningar því að hún amma var alltaf svo glaðlynd og átti alltaf til einhverja brandara eða skemmtilegar sögur að segja manni. Komur okkar þangað voru það tíðar að við þekktum sam- starfsfólk hennar með nafni. Alltaf var kátt á hjalla hjá ömmu. Ef hún var ekki að segja okkur skemmtilegar sögur eða syngja fyr- ir okkur lánaði hún okkur bók og við nutum þess að liggja uppi í sófa og lesa í því þægilega umhverfi sem einkenndi húsið hennar ömmu. Einnig eru okkur minnisstæðar þær stundir sem við áttum að leik í garðinum hjá ömmu eða í gjótunni. Okkur langar til þess að þakka fyrir þær samverustundir sem við áttum með þér, amma, því kær- leiksríkari og yndis- legri manneskju er erfitt að finna og gafst þú okkur margar ógleymanlegar minn- ingar. Elsku amma. Horfin ert þú úr þessum heimi en hverfur aldrei úr okkar hjarta. Axel, Lárus og Henný. ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR THORS, sem lést 11. þ.m. verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju föstudaginn 16. april kl. 13.30. Svanhildur J. Thors, Lára Thors, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Iðunn Thors, Jakob Hagedorn Olsen, Jóna Thors, Örn Thors, Svanhildur Thors, James M. Fletcher og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður Ferjuvogi 15, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 12. apríl síðastliðinn. Lilja Lárusdóttir, Theódór Pálsson, Hannes Lárusson, Sólveig Sigurbjörnsdóttir, Birna Lárusdóttir, Inga Þóra Lárusdóttir, Björn Kr. Björnsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRGVIN HÓLM, lést laugardaginn 3. apríl. • Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. apríl kl. 15.00. Guðbjörg Hólm, Ragnar Sigurðsson, Helena Hólm, Stefán Rögnvaldsson, Björgvin Þór Hólm, Isabel Lilja Pétursdóttir, Einar Óðinn Hólm, Linda Dögg Hólm, Bjartmar Sigurðsson og barnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, HÁKON F. JOHANSEN klæðskeri, lést á Landspjtalanum mánudaginn 12. apríl. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 16. apríl kl. 13.30. Sonja Johansen, Þorsteinn Viggósson, Þóra Johansen, Kees van Gelder, barnabörn og barnabarnabörn. + GÍSLI EIRÍKSSON, Eyrarvík, Glæsibæjarhreppi, verður jarðsunginn frá Möðruvöllum í Hörgár- dal fimmtudaginn 15. apríl kl. 14.00. Jarðsett verður í kirkjugarðinum að Glæsibæ. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Hjálpræðisherinn. Börn hins iátna. + Móðir okkar, SÓLVEIG INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR, lést í Kaupmannahöfn laugardaginn 27. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Börn hinnar látnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.