Morgunblaðið - 06.07.1999, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ingvar
Keppti um sæti í landsliði
Bandaríkjanna í brids
Fjórir
fluttir á
slysadeild
FJÓRIR voru fluttir á slysa-
deild eftir árekstur tveggja bif-
hjóla og bifreiðar við Geitháls
um klukkan 16 á sunnudag.
Ökumaður fyrra hjólsins og
farþegi hans voru fluttir á
sjúkrahús og tveir menn úr bif-
reiðinni, en enginn þeirra
reyndist alvarlega slasaður.
Slysið varð með þeim hætti
að bifhjólunum var ekið hvoru
öðru aftan á bifreiðina, sem
hafði stöðvað til að beygja út af
við Hafravatnsafleggjara á Suð-
urlandsveginum.
Skemmdir urðu minniháttar
á bifreiðinni og sömuleiðis á
seinna bifhjólinu, en skemmdir
á fyrra hjólinu urðu meiri.
Miklar umferðartafír urðu á
Suðurlandsveginum á meðan
sjúkralið athafnaði sig á vett-
vangi ásamt lögreglu, en loka
þurfti veginum á meðan.
EKKI munaði miklu um helgina að
íslensk kona, Hjördís Eyþórsdóttir,
ynni sér rétt til að spila fyrir hönd
Bandaríkjanna á heims-
meistaramóti kvenna í brids
sem haldið verður á
Bermúda í janúar á næsta
ári. Hjördís og fimm banda-
rískar spilakonur spiluðu
úrslitaleik um landsliðssæt-
in en töpuðu honum.
Bandaríkin senda tvær
sveitir til keppninnar og fór
fram sérstök keppni um
sætin með þátttöku 23
sveita. Eftir undankeppni
var sveit Hjördísar ein af fjórum
sveitum sem spiluðu til úrslita um
sætin. Sveitin tapaði í undanúrslitum
fyrir sveit Rons Smiths, sem síðan
vann úrslitaleik við sveit Karen Alli-
son um rétt til að teljast A-sveit
Bandaríkjanna.
Sveitirnar tvær sem töpuðu und-
anúrslitaleikjunum kepptu á meðan
innbyrðis um rétt til að spila við
sveit Allison um hvor yrði B-sveit
Bandaríkjanna. Sveit Hjördísar
vann þann leik og spilaði því 96 spila
leik við sveit Allison.
Leikurinn var jafn framanaf en
eftir 64 spil höfðu Hjördís og félag-
ar hennar náð rúmlega 30 stiga for-
ustu. Næstu 16 spila lotu vann
sveit Allison hins vegar 82-
4 og gerði þar með út um
leikinn.
Sterkasta parið
Með Hjördísi spiluðu
Petra Hamman, Peggy
Sutherlin, Joan Jackson,
Robin Klar og Mildred
Breed. Þær Breed og Hjör-
dís voru almennt taldar
sterkasta parið í sveitinni en
þær spiluðu ekki lotuna ör-
lagaríku. Hjördís hefur búið í
Bandaríkjunum í fjögur ár og er
gjaldgeng til að spila í bandarísku
landsliði í brids. Til þess þarf ekki
ríkisborgararétt heldur er nægilegt
að hafa dvalið í landinu og ekki spil-
að fyrir hönd annarrar þjóðar í
ákveðinn tíma.
I A-liði Bandaríkjanna spila Jill
Meyers, Randi Montin, Tobi
Sokolow, Janice Molson, Renee
Mancuso og Shawn Quinn. B-liðið
skipa Lynn Deas, Beth Palmer, Sue
Picus, Lisa Berkowitz, Rosanne
Pollack og Connie Goldberg.
Hjördís
Eyþórsddttir
Veitt viðurkenn-
ing kvenskáta
STJÓRN heimssamtaka
kvenskáta WAGGGS
(World Association of Girl
Guides and Girl Scouts)
ákvað fyrir tveimur árum
að á þingi samtakanna yrðu
konur heiðraðar sem þykja
hafa skarað framúr og ver-
ið hvatning fyrir stúlkur og
ungar konur í heiminum.
Viðurkenning þessi hlaut
nafnið „Women of Out-
standing Acivement
Award“.
Evrópustjórn WAGGGS ákvað
að Vigdís Finnbogadóttir yrði fyrst
kvenna í Evrópu til þess að hljóta
þessa viðurkenningu. Vigdísi eru
veitt þessi verðlaun til viðurkenn-
ingar á stuðningi hennar við skáta-
hreyfínguna í nútíð og fortíð, til að
heiðra árangur hennar við
kynningu á réttindum
kvenna, til að heiðra fi-am-
lag hennar til fyrirtækja
og alþjóðastofnana sem
gert hafa átak til að auka
hlut kvenna í starfsemi
sinni, til viðurkenningar á
þekkingu hennar, leið-
togahæfileikum og áhrif-
um þeim sem hún hefur til
að hjálpa öðrum konum til
að ná sínum markmiðum í
lífinu og til að þakka framlag henn-
ar til bættrar stöðu kvenna í þjóð-
félaginu, eins og segir í rökstuðn-
ingi.
Viðurkenningin verður afhent á
30. Heimsþingi WAGGGS sem
haldið er í Dublin á Irlandi dagana
1.-9. júlí.
Vigdís
Finnbogadóttir
Séra Þdrhallur Heimisson
vill sameina félög og stofnanir
Hvetur til þjéðar-
átaks gegn fátækt
SÉRA Þórhallur Heimisson,
prestur í Hafnarfjarðarkirkju,
hvatti til þess í predikun sinni við
útvarpsmessu síðastliðinn sunnu-
dag að efnt yrði til þjóðarátaks
gegn fátækt. Tilefnið segir hann
vera það að í lok hvers mánaðar
komi til hans fólk og leiti aðstoðar
kirkjunnar vegna þess að það eigi
ekki fyrir mat.
„Þetta eru oft einstæðar mæð-
ur, öryrkjar, bara venjulegt fólk
sem á ekki fyrir mat fyrir sig og
sína og verður að leita hjálpar til
að fá matarúttekt,“ segir Þórhall-
ur og hefur hann í því skyni haft
milligöngu um aðstoð frá Hjálpar-
starfi kirkjunnar og Rauða krossi
Islands. „Ég ræddi um að við ætt-
um að efna til þjóðarátaks gegn
fátækt í tilefni af kristnitökuaf-
mælinu. Mikið fjármagn verður
sett í hátíðir um allt land, sem er
af hinu góða, en ég vildi líka
minna á að kristindómurinn berst
fyrir lítilmagnann og það væri
ágætt tilefni á hátíðinni að taka
nú höndum saman á breiðum
grundvelli til að þurrka út þessa
fátækt."
Séra Þórhallur segist ætla að
vinna að málinu áfram og kalla
saman í haust einstaklinga, félög,
ríki, sveitarfélög, stofnanir og
samtök til að bindast samtökum
um þjóðarátak sem þetta. „Ég hef
sjálfur ekki lausnina en ég held að
með sameinuðu átaki gætum við
fundið út hvernig á að stöðva þessa
hörmung um hver mánaðamót,“
segir Þórhallur og telur að ekki sé
um mjög stóran hóp að ræða, en
brýnt sé að finna varanlega lausn á
vanda þessa fólks.
Slökkviliðsstiórinn 1 Reykjavrk um mat brunamálastjóra á eldvörnum í skdlum
Ber að loka skdl-
unum standi hann
við skýrsluna
„ÞAÐ hefur komið skýrt fram hjá
okkur að við teljum þetta ekki raun-
hæft mat hjá Brunamálastofnun.
Það stendur hins vegar í lögunum að
ef slökkviliðsstjóri framfylgir ekki
þeim kröfum sem brunamálastjóri
telur að eigi að gera þá getur hann
tekið sér vald slökkviliðsstjóra. Ég
hef tilkynnt brunamálastjóra að ég
muni ekki fara eftir þessari skýrslu
og því tel ég að hann eigi að standa
við stóru orðin og loka þessum skól-
um eða draga skýrsluna til baka
ella,“ sagði Hrólfur Jónsson,
slökkviliðsstjóri í Reykjavík, um
skýrslu Brunamálastofnunar um
brunavarnir í skólum á höfuðborgar-
svæðinu.
Brunamálastofnun hefur látið
vinna skýrslu um eldvamir í grunn-
skólum þar sem komist er að þeirri
niðurstöðu að brunavörnum sé veru-
lega áfátt. Sagt er ítarlega frá
skýrslunni í laugardagsblaði Morg-
unblaðsins.
Samkvæmt lögum ber slökkviliðs-
stjóra skylda til að gera ráðstafanir
sem tryggja að bætt sé úr ágöllum á
eldvömum í húsnæði. Hann hefur
heimildir til að beita dagsektum,
framkvæma endurbætur á kostnað
eigenda og loka húsnæði. Síðan segir
í lögunum: „Nú telur Brunamála-
stofnun að brotin séu ákvæði laga
þessara eða reglugerða byggðra á
þeim og slökkviliðsstjóri geri ekki
fullnægjandi ráðstafanir til úrbóta
samkv. 26. gr. og skal þá Brunamála-
stofnun benda slökkviliðsstjóra á
misbrestina og hefur stofnunin síðan
rétt til að beita þeim heimildum sem
slökkviliðsstjóra era veittar í þeirri
grein ef ekki er úr bætt.“
Mismunandi mat
á eldra húsnæði
Hrólfur sagði að brunamálastjóri
hefði vitað það í rúmlega hálft ár að
slökkviliðsstjóri ætlaði ekki að taka
mið af athugasemdum hans t.d. varð-
andi Laugarnesskóla. Hann sagði að
það lægi fyrir að það væri ekki hægt
að gera breytingar á húsnæðinu svo
það uppfyllti ákvæði núgildandi
reglugerðar og því ekki um annað að
ræða en hætta að nota húsið ef fara
ætti að kröfum Brunamálastofnunar.
Hrólfur sagði að Foldaskóli hefði á
sínum tíma verið teiknaður miðað við
þá forsendu að það yrðu aldrei fleiri
en 15 nemendur í bekk, en í dag væri
algengast að yfir 20 væru í hverjum
bekk. Þetta þýddi að útgangar væru
strangt til tekið ekki í samræmi við
reglugerð. Hrólfur sagði að það væri
mat slökkviliðsins að þetta skapaði
ekki hættuástand, en Brunamála-
stofnun væri ekki samþykk því. Ef
gera ætti kröfu um að allt húsnæði
uppfyllti ákvæði núgildandi bruna-
reglugerðar yrði að loka skólum eins
og MR sem aldrei yrði hægt að gera
þannig úr garði að hann uppfyllti
ákvæði reglugerðar. Hann sagði um-
deilt hvort hægt væri að gera kröfu
um að allt eldra húsnæði uppfyllti
ákvæði nýjustu reglugerðar.
Gagnrýnir einkunnaskala
Brunamálastofnunar
Hrólfur sagði að ein megingagn-
rýni sín og Eldvarnaeftirlits
Reykjavíkur á skýrsluna væri að
einkunnagjöf Brunamálastofnunar
væri ónothæf. Samkvæmt henni
fengi skóli sem uppfyllti ákvæði
brunareglugerðar þá einkunn að
ástandið væri gott. Til að fá ágæt-
iseinkunn þyrfti skóli hins vegar að
hafa eitthvað umfram reglugerð.
„Ef það koma 1-2 athugasemdir
fær skóli einkunnina sæmilegt. Ef
athugasemdirnar eru þrjár fær skóli
þá einkunn að ástandið sé slæmt. At-
hugasemdirnar geta m.a. verið
fólgnar í því að það séu bilaðir felli-
þröskuldar eða það vanti eitt útiljós,
sem að mínu mati fellur undir eitt-
hvað sem kalla má eðlilegt viðhald.
Athugasemdirnar geta verið þess
efnis að þær hafi engin áhrif á öryggi
barnanna, en hugsanlega stuðlað að
meira eignatjóni ef eldur kemur
upp,“ sagði Hrólfur.
Hrólfur tók sem dæmi Melaskóla,
sem er verndað hús. Hann sagði að
þar væri 1,20 m há brennanleg
klæðning á veggjum, en slíkt væri
bannað samkvæmt branareglugerð.
Ekki hefði heldur verið krafist
branaviðvöranarkerfis í skólanum
samkvæmt þágildandi reglugerð.
Hrólfur sagði að það væri sitt mat að
það mætti slaka á kröfu um vegg-
klæðningu í skólanum þegar búið
væri að setja upp viðvörunarkerfi.
Hrólfur sagði að það væri búið að
verja tugum milljóna króna í endur-
bætur á grunnskólum Reykjavíkin--
borgar til að bæta branavamir í skól-
unum. Akveðið hefði verið áður en nú-
verandi brunavarnareglugerð tók
gildi að setja viðyöranai-kerfi í alla
skóla í Reykjavík. I viðhaldsáætlunum
byggingardeildar fælist að settar yrðu
í skólana B-30-hurðir sem uppfylltu
ákvæði gildandi reglugerðar. Menn
yrðu hins vegar að forgangsraða verk-
elhum og það hefði verið gert.
Lagt í mat stjórnvalds
Ágreiningur Branamálastofnunai-
og Eldvarnaeftirlitsins hefur komið
til skoðunar í umhverfisráðuneytinu.
Hrafn Hallgrímsson, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytinu, sagði að
ófullkomnar leiðbeiningar væra í
lögum og reglum um hvaða kröfur
ætti að gera um branavamir í eldra
húsnæði. Meginreglan væri sú að lög
giltu ekki aftur fyrir sig í tímann.
Þessi regla yrði hins vegar að víkja
að einhverju leyti þegar kæmi að ör-
yggismálum. Hér yrðu alltaf á ferð-
inni álitamál sem yrði að leggja í mat
viðkomandi stjórnvalds. Hrafn
minnti á að skólar væra viðkvæmir
vinnustaðir. í þessu máli væri að
sumu leyti eðlilegt að mat manna
væri mismunandi. Branamálastofn-
un þyrfti að horfa til landsins alls, en
Eldvarnaeftirlit viðkomandi sveitar-
félags bæri ábyrgðina á að húsnæðið
uppfyllti ákvæði reglugerðar.