Morgunblaðið - 06.07.1999, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Börnin á leikskólanum Krakkakoti eru í náinni snertingu við náttúruna alla daga
BÖRNIN á Krakkakoti annast hænuungana af einstakri nærgætni.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
HJÖRDIS Óiafsdóttir kennir börnunum að umgangast dýrin.
gæðahandbókarinnar í
starfí leikskólans vera að
allir starfsmenn viti og séu
sammála um hvernig eigi að
standa að uppeldi, menntun
og umönnun barna. Þá sé
henni ætlað að tryggja að
allir starfsmenn viti og séu
sammála um hvemig sam-
starfí við foreldra skuli hátt-
að og að húsnæði og feik-
tæki séu ömgg fyrir börnin
á leikskólanum.
I handbókinni verða ná-
kvæmar verklýsingar, allt
sem gert er á Ieikskólanum
verður skráð og starfið
skoðað og metið út frá
þeim. Hjördís lýsir ánægju
sinni með þátt Jónínu Lár-
usdóttur, leikskólastjóra á
Fálkaborg, sem veitir ráð-
gjöf við samningu hand-
bókarinnar. Hún segir
starfsfólk Krakkaborgar
líka vera einstaklega gott,
það fylgist vel með og taki
virkan þátt í verkefninu.
Leikskólinn Krakkakot
hýsir rúmlega 100 börn eft-
ir að ný álma var tekin í
notkun í vor. Sérstök
áhersla er lögð á að um-
hverfi barna og starfs-
manna sé eins heimilislegt
og mögulegt er.
Þess var til að mynda
gætt þegar keypt voru
húsgögn í nýju álmuna og
flest gert til að börnunum
líði eins og heima hjá sér,
enda dvelja þau mörg hver
allan daginn á leikskólan-
um.
Hænsnahús
í garðinum
UNNIÐ er að gerð gæða-
handbókar fyrir leikskól-
ann Krakkakot í Bessa-
staðahreppi. Handbókinni
er ætlað að stuðla að
stöðugri endurmenntun
starfsfólks á leikskólanum
og endurskoðun starfsins
sem þar fer fram. Börnin á
Krakkakoti eru í náinni
snertingu við náttúruna, en
það telja leikskólastjórn-
endur á Álftanesi eiga rík-
an þátt í að auka gæði leik-
skólastarfsins.
Hjördís Ólafsdóttir, að-
stoðarleikskólastjóri, segir
mikla áherslu lagða á að
kynna börnunum á
Krakkakoti náttúruna og
það sem hún gefúr af sér.
Rækt er lögðf við að efla
siðgæðisviðhorf þeirra til
manna, dýra og plantna.
Hænsnabú á lóð leikskól-
ans þjónar því hlutverki að
kenna börnunum að um-
gangast og annast dýr. Þau
gefa hænsnunum mataraf-
ganga úr eldhúsinu og
hirða egg. Þannig öðlast
þau meðal annars ábyrgð-
artilfinningu og læra að
sýna dýrunum virðingu og
væntumþykju. Inni á leik-
skólanum eru svo froskur,
hamstrar og sjávardýrabúr
sem börnin sinna af áhuga.
Hjördís segir bömin oft
fara út í náttúmna, þau tína
blóm til að þurrka, en þess
er ávallt gætt að náttúran
bíði ekki skaða af. Fjara er í
næsta nágrenni við leikskól-
ann og þangað sækja börnin
dýr í sjávardýrabúrið. „Hér
er allt við bæjardymar,“
sagði Hjördís. Leikskólinn
fór í sveitaferð í vor og eina
dýrið sem bömin þekktu
ekki var aligæs.
Börnunum á Krakkaborg
er kennt að leggja rækt við
umhverfið. Þau hafa end-
urnýtt lífrænan úrgang og
pappír. „Við reynum að sá
litlu fræi sem kemur til
með að vaxa með þeim,“
sagði Hjördís.
Krakkakot starfar eftir
aðalnámskrá fyrir leik-
skóla, en starfsfólk hyggst
gera góðan leikskóla betri
með því að byggja upp sér-
staka gæðahandbók sem
verður mjög nákvæm
skólanámskrá. Starfsmenn
Ieikskólans eru í samstarfi
við Bessastaðahrepp um
gerð handbókarinnar sem
byggist á ISO-staðli. Sveit-
arfélagið veitti öllu starfs-
fólki leikskólans launa-
hækkun vegna vinnslu
handbókarinnar og aðilar
á vegum þess eiga sæti í
verkefnisstjórn.
Hjördís segir hlutverk
Unnið í sjálfboðavinnu að verndun Hraunanna við Straumsvfk en framtíð svæðisins óráðin
Vaxandi áliugi
á svæðinu
FRAMTÍÐ Hrauna við
Straumsvík er óráðin, en
samkvæmt aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 1995-2015 er
gert ráð fyrir að stór hluti
svæðisins verði notaður undir
hafnar- og iðnaðarsvæði.
Fyrir tveimur árum stofnaði
áhugafólk um verndun
Hrauna Umhverfis- og úti-
vistarfélag Hafnarfjarðar til
þess að velq'a athygli á þessu
einstaka svæði. Félagið hefur
tvisvar sinnum fengið styrk
úr Umhverfissjóði verslunar-
innar, svonefndum pokasjóði,
og segir Jónatan Garðarsson,
einn forsprakka félagsins, að
tekist hafi að vekja áhuga á
svæðinu og virðist hann fara
vaxandi. Magnús Gunnarsson
bæjarstjóri segir að engin
ákvörðun hafi verið tekin um
framtíð svæðisins.
Hraun kallast landsvæðið
vestan og sunnan Straums-
víkur, en víkin hefur myndast
milli Lambhagatanga að
austan og Hrauna að vestan.
Hraunið sem þekur svæðið er
5-7.000 ára gamalt hellu-
hraun sem átt hefur upptök
sín í Hrútagjárdyngju.
Rústir frá 12. öld?
Búskapur hefur verið
stundaður í Hraunum frá
fornu fari og hafa verið leidd-
ar líkur að því að rústir við
Óttarsstaði séu frá 12. öld. Á
svæðinu má sjá fjölda rústa,
tóftarbrot býla og gripahúsa,
HORFT inn eftir vesturljöru Straumsvíkur en á þessu svæði má sjá fjölda rústa og minja
um sjósókn og búskaparhætti fyrri túna.
minjar eru um útræði í fjör-
unni, þurrabúðh', fiskbyrgi,
vörslugarðar og fiskreitir eru
einnig sýnilegir. Helstu lög-
býli í Hraunum voru Stóri-
Lambhagi, Þorbjamarstaðir,
Straumur, Óttarsstaðir og
Lónakot. Þessum býlum
fylgdu síðan hjáleigur og
þurrabúðir, s.s. Gerði, Pét-
urskot, Litli-Lambhagi,
Þýskubúð, Jónsbúð, Kol-
beinskot, Óttarsstaðagerði og
Eyðikot.
I vetur fékk Umhverfis- og
útivistarfélagið Bjarna F.
Einarsson fornleifafræðing
til að grafa prufuholur í Jóns-
búð, sem er þurrabúð eða
hjáleiga utarlega við vestan-
verða Straumsvík. Bjami
hafði áður verið fenginn til að
leita að og staðsetja rústir á
svæðinu og segir í skýrslu
hans að minjar eins og rúst-
imar við Jónsbúð séu mikil-
vægur minnisvarði um
ákveðna búskaparhætti og að
minjar af slíku tagi sé ekki að
finna annars staðar á Stór-
Reylq'avíkursvæðinu. Yfir-
leitt má segja að rústir og
minjar á svæðinu séu óspillt-
ar af mannavöldum og svæðið
geymi í heild sinni allar þær
minjar sem búast megi við að
finna í og við þurrabúðir og
hjáleigur. Byggð tók að
leggjast af í upphafi þessarar
aldar og var horfin um miðja
Öldina.
Börn vöktuðu sjávarföllin
til að ná fersku vatni
Auk merkilegra sögulegra
heimilda er náttúrufar með
nokkuð sérstæðum hætti á
þessu svæði. I hrauninu má
finna fjölda ferskvatnstjama
sem koma og fara eftir sjáv-
arfóllum þegar sjórinn flæðir
Morgunblaðið/Þorkell
JÓNATAN Garðarsson
bendir á rústir sem
merktar hafa verið á
INN-upplýsingaskilti sem
sett hefur verið upp við
Straum. I baksýn má sjá
álverið í Straumsvík.
inn undir hraunið og streymir
síðan út aftur á fjöm. Vegna
þess að ferskvatnið, sem
flæðir stöðugt undan hraun-
inu, er eðlisléttara en salt-
vatnið flýtur það ofan á sjón-
um meðan flæðir að, en
blandast honum síðan þegar
flóðið nær hámarki.
Áður fyrr voru böm látin
vakta sjávarfóllin til þess að
ná fersku vatni úr tjörnum og
brunnum áður en sjórinn náði
að blandast ferskvatninu við
háflæði. í tjömum sem ekki
þorna alveg upp á fjöm hafa
nýlega uppgötvast dverg-
bleikjur sem verða um 12-14
cm og lifa á skilum ferskvatns
og sjávar.
Umhverfis- og útivistarfé-
lag Hafnarfjarðar var stofnað
fyrir rúmum tveimur árum
með það að markmiði að
vekja athygli og áhuga á
Hraunum og vinna félagar að
verkefninu í sjálfboðavinnu.
Félagið hefur tvisvar fengið
styrk frá Umhverfissjóði
verslunarinnar og hefur fé-
lagið gefið út bækling um
Hafnarfjördur
svæðið, sett upp upplýsinga-
skilti við Straum, stikað
gönguleiðir og ráðið fornleifa-
fræðing til að skrásetja svæð-
ið og er reiknað með að frek-
ari fornleifarannsóknir fari
fram á næstunni, að sögn
Jónatans Garðarssonar.
Varðandi spuminguna um
það hvort útivistarsvæði eigi
yfirleitt heima við hlið stór-
iðju og iðnaðar segir Jónatan
að þrátt fyrir tilvist álversins,
eða jafnvel vegna þess, sé
nauðsynlegt að varðveita það
sem eftir sé af óspilltri nátt-
úm við Straumsvík. Hann
segir einnig að kjörið sé að
nýta nábýlið við verksmiðj-
una til að skerpa línumar
milli gamla og nýja tímans og
að skólar geti nýtt þessar
andstæður við kennslu, en
heimsóknum nemenda á
svæðið hefur fjölgað undan-
farin misseri.
Farið með gát
í skipulagsmálum
Magnús Gunnarsson bæj-
arstjóri segir að ekkert hafi
verið ákveðið varðandi skipu-
lag á Hraunasvæðinu. Ljóst
sé að menn fari sér hægt við
að skipuleggja framtíð þess.
Hann kvaðst sannfærður um
að menn myndu staldra við
og velta hlutunum vel fyrir
sér og sérstaklega þeirri
staðreynd að ekki væri hægt
að taka til baka það sem gert
yrði.
Ljóst væri að mikil vakn-
ing ætti sér stað varðandi
varðveislu náttúra- og sögu-
legra minja og að engar hafn-
arframkvæmdir væra áætlað-
ar á næstu áram vestan
Straumsvíkur. í þeirri vinnu
sem framundan væri í skipu-
lagsmálum yrði stigið varlega
til jarðar, sérstaklega varð-
andi perlur eins og Hraunin
væru.