Morgunblaðið - 06.07.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MINNINGAR
HJÖRDÍS KAREN
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Hjördís Karen
Guðmundsdóttir
fæddist á Borg í Ög-
urhreppi, N-Isa-
fjarðarsýslu, 11.
desember 1943.
Hún lést á Landspít-
alanum 29. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru
Snjólaug Magnea
Long Bjarnadóttir,
húsfreyja, f. 31.7.
1913, og Guðmund-
ur Magnús Magnús-
son, skipstjóri og
bóndi á Borg í Og-
urhreppi, f. 27.6. 1897, d. 23.11.
1969. Systkini Hjördísar eru: 1)
Magnús Kristinn, f. 24.8. 1934.
2) Bjarni Ragnar, f. 14.9. 1936,
d. 7.9. 1944. 3) Gyða Ólöf, f.
7.11. 1940. 4) Bjarni Ragnar, f.
16.7. 1945. 5) Ragnheiður, f.
22.11. 1946. 6) Sveinn Halldór,
f. 5.9. 1948. 7) Hildur Rebekka,
f. 23.10. 1952. Hálfsystir, sam-
feðra Hjördísi er Munda Krist-
björg, f. 27.9. 1926.
Hjördís Karen giftist 24. júlí
1965 Hauki Kjartanssyni bif-
vélavirkja, f. 20.8. 1941, d. 2.12.
1986. Foreldrar Hauks voru
hjónin Kjartan Filippusson bif-
vélavirki, f. 20.9. 1907, d. 8.8.
1973, og Ásta Ágústsdóttir hús-
freyja, f. 31.10. 1911, d. 1.12.
1976. Hjördis Karen og Haukur
eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1)
Matthildur Asta garðyrkjufræð-
ingur, f. 24.3. 1965,
maki Ingólfur Jó-
hannsson garð-
yrkjufræðingur, f.
Börn:
Karen Arna, Jó-
hann Axel og
Katrín Þöll. 2)
Gunnar Örn llug-
maður, f. 27.7.1966,
maki Lilja Dóra
Harðardóttir kenn-
ari, f. 30.9. 1969.
Börn: Haukur Örn
og Birna Borg. 3)
Ægir Valur húsa-
smíðanemi, f. 9.12.
1975. Hjördís Karen ólst upp á
Borg í Skötufirði fram að ung-
lingsárum og gekk í Héraðs-
skólann í Reykjanesi. Á ung-
lingsárum var hún í vist í Vatns-
fírði við Isafjarðardjúp og að
Haugum í Borgarfírði. Hún fór
í húsmæðraskóla að Varma-
landi í Borgarfírði. Eftir hús-
mæðraskóla fluttist hún til
Reykjavíkur og bjuggu þau
hjón lengst af í Breiðholtinu.
Arið 1979 fluttust þau í Mos-
fellsbæ. Þar vann Hjördís
Karen hjá Pósti og síma og síð-
ar Álafossi. Árið 1991 hóf hún
nám í nuddfræði og að því
loknu vann hún við sitt fag
ásamt vinnu á dvalarheimili
aldraðra í Mosfellsbæ.
Hjördís Karen verður jarð-
sungin frá Lágafellskirkju í dag
og hefst athöfnin kl. 13:30.
Hún Hjördís amma er dáin langt
um aldur fram. Eg vil þakka henni
fyrir allar þær stundir sem við átt-
um saman. Amma var alltaf svo góð
við mig og alveg einstaklega þolin-
móð. Eg veit að ég mun aldrei
gleyma fríinu sem við áttum saman
í Skötufírðinum síðastliðið sumar. Á
hverjum degi löbbuðum við upp í á
og veiddum silung. Við amma beitt-
um bæði maðki og sátum tímunum
saman á bakkanum og spjölluðum
saman. Amma sagði mér hvað hinir
og þessir staðir í ánni hétu og fjöllin
og fossamir í kring. Alltaf þegar við
komum í skúrinn hennar eftir veiði-
ferðimar bökuðum við saman ástar-
punga og færðum mömmu og
pabba. Það verður skrítið að fara
aftur í Skötufjörðinn og vita til þess
að amma á ekki eftir að koma þang-
að aftur í skúrinn sinn.
Elsku amma, þakka þér fyrir all-
ar samvemstundimar. Þú hefur
gefið mér svo margt, í hjarta mínu
mun ég alltaf geyma minninguna
um þig.
Haukur Orn.
„Þótt liggi héðan vegir þínir langt en ekki
skammt
og lönd þú kannir bak við Atlantshaf.
Þú verður alla daga þína Vestfirðingur samt
ef vaxin ertu hrjóstrum þessum af.“
Þetta vísubrot eftir Guðmund
Inga Kristjánsson kemur upp í hug-
ann þegar Hjördísar Karenai- er
minnst. Svo vestfirsk var hún, sterk
og stæðileg eins og vestfirsku fjöll-
in. Það gustaði af henni, alltaf frísk
og full af orku og hreysti, kraftmikil
og lífleg. Engin lognmolla, heldur
hressandi andblær, sem hafði lag á
að hrífa aðra með sér. Hún var upp-
rana sínum trú, átti athvarf í sinni
vestfirsku byggð, sem hún sótti í
með sínum nánustu. Þó hafði hún
eins og segir í ljóðinu kannað önnur
lönd og gert sér ferðir yfir Atlants-
hafið til að ganga fjöll í öðram lönd-
um.
Hún réðst til starfa hér í íbúðum
aldraðra í Mosfellsbæ árið 1994 og
vann hér æ síðan, en var þó búin að
vera frá vegna veikinda í nokkra
mánuði.
Vol og víl vora henni víðsfjarri,
svo engum datt í hug að hverju dró.
Ævinlega var hún hress í bragði
þegar hringt var í hana og enginn
vafi á að hún kæmi aftur til vinnu.
En það sannaðist hér eins og oft áð-
ur að vegir guðs era órannsakanleg-
ir fyrst Hjördís var burtkölluð svo
fljótt. Hún var í raun og vera í
blóma lífsins og lifði svo heilbrigðu
lífi, algjör reglumanneskja, mikil
útivistarkona, gekk á fjöll, stundaði
sund og hafði yndi af að dansa.
Við sem höfum starfað með henni
hér ájþessum áram söknum hennar
sárt. Ibúum hér í Hlaðhömram 2 er
einnig harmur í huga. Oll biðjum við
henni fararheilla og guðsblessunar,
nú þegar hún hefur kvatt þetta
jarðlíf.
Bömum hennar og öðrum ástvin-
um sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Núverandi og fyrrverandi
samstarfskonur Ibúðum
aldraðra Mosfellsbæ.
Látin er kær samstarfskona og
langar mig að minnast hennar með
fáeinum orðum.
Eg kynntist Hjördísi fyrir fimm
áram, er hún hóf störf hjá mér við
heimilisþjónustu í Mosfellsbæ. Sá ég
fljótlega að þama fór dugmikil, já-
kvæð og ekki síður einlæg kona, en
það var hún bæði gagnvart aðstoðar-
þegum sínum og samstarfsfólki.
Aldrei brást að hún mætti hress í
vinnu og fylgdi henni jafnan ferskur
andblær, er lífgaði upp allt í kringum
hana. Nú ert þú farin kæra vina, og
ég veit, að vel verður tekið á móti
þér.
Að eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri, en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Ég bið algóðan Guð að gefa böm-
um hennar og öðram aðstandendum
styrk á þessari sorgarstundu.
Guð blessi verk þín og minningu
alla.
Ásdís Hauksdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLADIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímamöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar aftnælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Flug og bfll
frá kr. 25.700 m/v hjón með
tvö börn 2-11 ára í viku.
Innifalið: Flug, bílalagubíll í B
flokki, ótakmarkaðuf akstur
tryggingar og ska
26.920,
Flogið 3-4 í viku frá 1 0/6 - 1 2/9
Flugsæti frá kr. 26.920
Mikið úrval
sumarhúsa í
, Þýskalandi,
Ítalíu og víðar
Frakkland
París
Helgartilboð
27.800,-
Flogið frá 2. júnf til_22. sept.
Helgartilboð til Parlsar I ágúst
Fararstjóri á staðnum
Flugsæti frá kr. 27.800
Munchen
fJLÍHIr
Flogið 2svar í viku frá 25/7 - 1 2/9
Flugsæti frá kr. 28.920
LTU er annað stærsta flugfélag
Þýskalands og er þekkt fyrir gæði og
góða þjónustu
|T(J Upplýsingar og bókanir hjá
I LTU á íslandi í síma 587 1919
Þyskgæöi og þjonusta
Gulf of Gaeta
Undur Ítalíu
•j m«oo,-
Hópférö um Ítalíu 6.-20. ágúst
Fararstjóri: Guðbjörn
Guðbjörnsson óperusöngvari
Verð kr. 109.900 á mann I 2ja
manna herbergi. Innifalið I verði:
Flug, flugvallarskattur, fslenskur
fararstjóri, ferðir til og frá hóteli,
þriggja stjörnu hótel með
morgunverði, skoðunarferðir, akstur
á ftall
illu o.fl. o.fl...
íbúðir og hótel á ströndinni
I Baia Domizia.
Verð frá kr. 69.900 á mann
I tvær vikur m/v hjón með 2
börn 2-16 ára. Innif.: Flug,
skattur, Ibúð með 2 svefnh.
akstur til og frá flugvelli.
Flugsæti
Gott úrval hótela og
sumarhúsa á ströndinni
og víðsvegar á italfu.
>
0)
u.
Ferðamiðstöð Austurlands • Ferðaskrifstofa
Stangarhyl 3a • 110 Reykjavík
Simar: 587 1919 og 567 8545 • Fax: 587 0036
Slate Slide
Kr. 6.990
Lava Sport Sandal
Kr. 6.990
\-r'
Opsidian Sandal
Kr. 7.990
Gravel Crusher
Kr. 8.900
Snake River Trainer
Kr. 7.990
Woodpath boot
Kr. 12.900
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚHVIST - BÓMULL
--Skeifúnni 19 - S. 568 1717-
Opið
mánud.-föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-16.