Morgunblaðið - 06.07.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 53
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Innbrot, slagsmál og um-
ferðarmálefni meðal verkefna
l.til 5. júlí 1999
LÖGREGLAN í Reykjavík sinnti
margvíslegum verkefnum um helg-
ina. Nokkur fjöldi árekstra varð um
helgina og í fjórtán tilvikum þurftu
ökumenn/farþegar að fara á slysa-
deild til skoðunar með mismunandi
alvarlega áverka.
Mikil ölvun og slagsmál voru í
miðbænum á föstudagskvöld. Voru
11 manns handteknir, en engin al-
varleg meiðsl hlutust þó af.
Þá var tilkynnt um 12 innbrot um
helgina og sex tilkynningar bárust
um rúðubrot.
Arekstrar þar sem eignatjón varð
voru 52. I tveimur tilvikum var öku-
maður grunaður um ölvun við akst-
ur. Um miðjan dag á föstudag varð
árekstur tveggja bifreiða á Bústaða-
vegi. Ökumaður og farþegi úr
annarri bifreiðinni voru íluttir á
slysadeild en meiðsli voru ekki talin
alvarleg. Báðir voru í bílbeltum. Síð-
degis sama dag varð harður árekst-
ur með þremur bifreiðum á Vestur-
landsvegi skammt vestan Grafar-
holts. Sjö aðilar sem í bifreiðunum
voru kenndu ýmissa eymsla og voru
fluttir á slysadeild. Allir voru í bíl-
beltum.
Nokkru eftir miðnætti aðfaranæt-
ur laugardags var tilkynnt um um-
ferðarslys á Vesturlandsvegi við af-
leggjarann að Reynisvatni. Þar
hafði bifreið oltið en farþegi náði að
komast út til að gera viðvart. Er
komið var á vettvang var ökumaður
meðvitundarlaus inni í bifreiðinni.
Hann rejmdist talsvert slasaður og
var fluttur á gjörgæsludeild. Far-
þeginn var fluttur á slysadeild til að-
hlynningai'. Hann mun hafa verið í
öryggisbelti en ekki er vitað hvort
svo var með ökumanninn.
Snemma á laugardagsmorgun var
bifreið ekið á Ijósastaur í austurbæn-
um, ökumaður er grunaður um ölvun
við akstur. Nokkru fyrir hádegi
sama dag varð harður árekstur í
Breiðholti. Ökumenn og farþegi voru
fluttir á slysadeild en ekki er vitað
um meiðsli. Annar ökumannanna er
grunaður um ölvun við akstur.
A sunnudag varð árekstur með
tveimur bifhjólum og bifreið á Suð-
m'landsvegi við Hafraveg. Árekstur-
inn varð með þeim hætti að ökumað-
ur bifreiðarinnar hugðist beygja
norður Hafravatnsveg, við það var
bifhjólunum ekið aftan á bifreiðina.
Fjórir voru fluttir á slysadeild með
sjúkrabifreið.
14 ökumenn grunaðir
um ölvun við akstur
Um helgina voru 14 ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur og 43
stöðvaðir vegna hraðaksturs. Um
kvöldmatarleytið á fostudag var bif-
reið ekið í burtu á miklum hraða eft-
ir að hafa ekki sinnt stöðvunar-
merkjum. Bifreiðin náðist ekki en
skráningarnúmer hennar er vitað.
Á laugardagskvöld sinnti bifreið
ekki stöðvunarmerkjum á Suður-
landsvegi eftir að hafa verið mæld á
132 km hraða. Eftir skamma eftirför
stöðvaði bifreiðin í malargryfjum í
Jósefsdal eftir að hafa verið beygt
þangað. í bifreiðinni voru þrír aðilar
sem fluttir voru á stöð. Ökumaður
er grunaður um ölvun við akstur.
7 ökumenn voru stöðvaðir eftir að
hafa ekið gegn rauðu umferðarljósi,
af þeim var einn ökumaður grunað-
ur um ölvun við akstur.
Fjöldaslagsmál á veitinga-
húsi i miðbænum
I Mosfellsbæ var piltur sleginn í
höfuðið með glerflösku, skömmu eft-
ir miðnætti aðfaranótt laugardags.
Hann skarst talsvert á höfði og var
fluttur á slysadeild.
Fimm menn voru handteknir um
miðnætti aðfaranótt sunnudags eftir
slagsmál í og við veitingahús í mið-
borginni. Upphafið var það að gler-
flösku var kastað í mann. Eftir það
var ótilgreindum fjölda flaskna
kastað í fólk inni á staðnum sem aft-
ur varð tilefni til fjöldaslagsmála.
Síðla sömu nótt var tilkynnt um
átök á milli karls og konu. Hann var
fluttur á slysadeild illa skorinn í
andliti, sennilega eftir spark kon-
unnar.
Þrír menn voru handteknir í mið-
borginni eftir að lögregla hafði
neyðst til að beita tvo þeirra tára-
gasúða. Var verið að handtaka einn
þeirra vegna óláta er hinir veittust
að lögi'eglumönnunum. Einn lög-
reglumaður slasaðist lítillega.
Innbrot í vinnuskúr
og sumarbústað
Snemma á föstudagsmorgun var
tilkynnt um innbrot í vinnuskúr í
austurbænum. Talsverðum verð-
mætum var stolið úr honum, þ.á.m.
spreybrúsum með appelsínugulum
lit. Brotist var inn í sumarhús við
Mosfellsbæ, nokkrum verðmætum
var stolið og lítilsháttar skemmdir
unnar.
Snemma aðfaranótt laugardags
var maður handtekinn skammt frá
Miklatúni eftir að hafa verið að
horfa inn um glugga á íbúð. Hann
hafði hlaupið í burtu er hann varð
mannaferða var í íbúðinni en var
handtekinn skömmu síðar eftir að
hafa reynt að komast inn um glugga
á annarri íbúð ekki langt frá.
Um hádegisbil fannst bifreið úti í
skurði í austurbænum. Hún hafði
verið tilkynnt stolin nokkrum
klukkustundum fyrr. Nokkru eftir
kvöldmatarleytið sama dag var mað-
ur handtekinn inni í íbúð skammt
frá Hlemmtorgi eftir að hafa brotist
inn í hana. Er komið var á vettvang
var hann að setja muni í poka. Mað-
urinn bar því við að vinur sinn byggi
í íbúðinni. Ekki þarf að orðlengja
það að hann var fluttur á stöð og í
fangageymslu.
Um miðbik aðfaranætur sunnu-
dags var tilkynnt um rán í mynd-
bandaleigu í austurbænum. Maður
hafði ógnað starfsstúlku með vasa-
hnífi. Hann hafði svo tekið nokkra
tugi þúsunda úr afgreiðslukassa og
hlaupið á brott. Góð lýsing var gefin
á manninum. Það var svo um þrem-
ur stundarfjórðungum síðar að til-
kynning barst þess efnis að maður
er svaraði til lýsingarinnar hefði
sést fara inn í veitingahús skammt
frá Hlemmtorgi. Þar var svo hinn
grunaði handtekinn stuttu síðar. Við
leit fannst á honum mest af því sem
saknað var.
Á laugardag brenndist barn á 10
til 15% líkamans eftir að sjóðandi
vatn helltist yfir það. Barnið var
flutt á slysadeild með 1 til 2 stigs
bruna.
Opinn fundur
um átök á fjar-
skiptamarkaði
UNGIR framsóknarmenn standa
fyrir opnum fundi um átök á fjar-
skiptamarkaði sem ber yfirskritina:
Samkeppni í hættu? Fundurinn
verður haldinn í dag, þriðjudaginn 6.
júlí, kl. 12.10 á Kaffi Reykjavík.
Framsögumenn eru Eyþór Arn-
alds, framkvæmdastjóri Islands-
síma, Þórarinn V. Þórarinsson, for-
stjóri Landssíma íslands og Þórólfur
Árnason, forstjóri Tals. Fundarstjóri
er Finnur Þór Birgisson, formaður
Félags ungra framsóknarmanna í
Reykjavík. Eftir stutt framsöguer-
indi verða umræður og fyrirspurnir
úr sal.
-----------------
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
RANGT var farið með nafn golffé-
laga Gissurar Ó. Erlingssonar í blað-
inu sl. sunnudag. Nafn meðspilarans
er Þráinn Valdimarsson. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á mis-
tökunum.
Alþjóðlegt sumar-
námskeið í íslensku
FJÖGURRA vikna alþjóðlegt
sumarnámskeið í íslensku hófst í
gær í Háskóla íslands. Heim-
spekideild og Stofnun Sigurðar
Nordals gangast fyrir námskeið-
inu en stofnunin annast skipu-
lagningu þess. Þetta er í ellefta
skiptið sem stofnunin sér um
undirbúning námskeiðsins og
forstöðumaður hennar stjórnar
því.
„Þátttakendur verða 54 að
þessu sinni. Þeir koma frá 17
löndum, flestir frá Þýskalandi,
Frakklandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum. Þeim verður
skipt í þrjá hópa í íslenskunám-
inu eftir kunnáttu en margir
hafa þegar lagt stund á íslensku
heima fyrir. Kennarar með
langa reynslu í að kenna útlend-
ingum íslensku annast kennsl-
una. Auk þess að nema íslensku
gefst þátttakendunum tækifæri
til að hlýða á fyrirlestra um
náttúru íslands, sögu þjóðarinn-
ar og menningu, heimsækja
stofnanir og söfn og skoða sig
um á söguslóðum á Vestur- og
Suðurlandi.
MikiII áhugi á íslenskunámi
Mikill áhugi er á að læra ís-
lensku víða um lönd, ekki síst í
Norður-Evrópu og Norður-Am-
eríku. Með ári hverju berast
fleiri umsóknir um hvers konar
íslenskunám fyrir útlendinga
hér á landi. Miklu fleiri stúdent-
ar sækja um alþjóðlegt sumar-
námskeið í íslensku en unnt er
að sinna. Nútímaíslenska er
einnig kennd á mörgum stöðum
erlendis. Minna má á að nú
starfa 14 íslenskulektorar í átta
Evrópulöndum með stuðningi
íslenskra stjórnvalda. Annast
Stofnun Sigurðar Nordals þjón-
ustu við þá,“ segir í fréttatil-
kynningu frá stofnuninni.
DEINS ÞESSA VIKU
FLOTTU. FRÖNSKU GARDÍNURNAR
30% AFSLÁTTUR - DÚKAR, DISKAMOTTUR
0G SERVÍETTUR 20-40% AFSLÁTTUR
NÝ SENDING
AF HANDKLÆÐUM
0G BADMOTTUM
Lín & léreft
BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 561 1717
Olíufrí loftpressa
Sérhannaaar
loftpressur
Henta vel fyrir tannlækna-
stofur og aðra sem viíja
olíufrítt loft.
Pessí tegund loftpressu er oiíu-
laus, með þurrkara og síu, og upp-
fyllir kröfur Heilbrigðíseftiriitsins.
Við bjóðum sérstaka þjónustu varðandí loftkerfi sem er fóigin
í eftirfarandi:
1. Útteki á núverandi loftkerfi.
2. Uppsetningu á nýrri pressu og frágangur á loftkeríinu.
3. Reglulegt eftírlit með pressunni og loftkerfinu eftír
nánara samkomulagi.
Er þetta ekki eitthvað sem þú heföir
þörf fyrir og gætir nýtt þér?
Hafðu samband oa leitaðu nánari upplýsinga hjá okkur
ísfma 568 6925
ÞAÐ LIGGUR í LOlFTINU
m III lli
s n ln P
Garðsenda 21,
108 Reykjavík.
Sími 568 6925.
LUXEMB0RG
Frá upphafi: Besta
leiðin til Evrópu
Luxair býður upp á beint flug til Lúxemborgar
með þægilegri og hraðskreiðri þotu.
Frá Lúxemborg liggja vegir til allra átta.
Keflavík — Lúxemborg
0.45 6.25 Q
Lúxemborg — Keflavík
Q 22.20 0.05+1
LUXAIR
THE WINGS OF CHANGE
www.luxair.lu
Nánari upplýsingar og bókanir
hjá öilum helstu ferðaskrifstofum.