Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÖLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Hollensku konurnar sem björguðust eru vel á sig komnar
Sjaldgæfír
þörungar í
Mývatni
Á BOTNI Mývatns lifa græn-
þörungar sem eru kallaðir
kúluskítur, -skítur vegna þess
að þeir koma stundum í sil-
unganet, kúlu- vegna lögunar
sinnar. Þessi lögun þörung-
anna, sem heita cladophora
aegagropila á fræðimáli, er
mjög sjaldgæf og finnst nú ein-
göngu á botni Mývatns og Ak-
an-vatnsins í Japan.
Japanski fræðimaðurinn
Isamu Wakana tók sér ferð á
hendur til íslands til að rann-
saka þörungana, en hann er
sérfræðingur um þá. Að sögn
Áma Einarssonar, forstöðu-
manns Náttúmrannsóknarstof-
unnar, era þörangarnir friðað-
ir í Japan og þykja mikil nátt-
úrugersemi. Ferðamenn
flykkjast einnig til rannsóknar-
stöðvarinnar við Akan-vatn til
að skoða þörungana, Um 500
þúsund manns gera sér ferð
þangað árlega til að skoða
kúluskft.
Árai segir þörungana hafa
verið rannsakaða þó nokkuð,
en fram á þessa öld fundust
þeir í fleiri vötnum hér á iandi.
Nú eru þeir alls staðar útdauð-
ir, nema í Mývatni, líklega
vegna mengunaráhrifa.
Ljósmynd/Junji Takahashi
ISAMU Wakana virðir fyrir
sér kúluskít.
Innan við
sólarhring á
sjúkrahúsi
^EFFIE Andreé Wilkens og Lidia
van Benkum voru sendar á
gæsludeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur til aðhlynningar. Þær
sluppu nyög vel og yfirgáfú
sjúkrahúsið síðdegis í gær, innan
við sólarhring eftir að slysið átti
sér stað.
Á innfelldu myndinni er sams-
konar vél og konurnar brotlentu
í gær. Hún er af gerðinnni
Gulfstream AA-5A.
ar við vorum rétt við ströndina sá
ég að það dygði ekki til að ná til
flugvallarins og tók þá ákvörðun að
brotlenda vélinni í sjónum. Ég vissi
að það var besti kosturinn því það
er svo grýtt á þessum slóðum."
Erfiðast að komast út
úr stýriklefanum
Flugvélin sporðreistist þegar hún
lenti á sjónum. Stýriklefinn var því
undir allri vélinni og fylltist hann
fljótlega af vatni. Þær Effie og Li-
dia höfðu því skamman tíma til að
koma sér út úr klefanum og segja
þær að þessi stund hafi verið sú erf-
iðasta í gærkvöldi.
„Við höfðum samt ekki tíma til að
vera hræddar, við þurftum að ein-
beita okkur að því að komast út úr
vélinni. Halda niðri í okkur andan-
um, því klefinn var fullur af vatni,
ná áttum, því það var alveg dimmt
inni í klefanum, finna dymar og
opna þær, sem var mjög erfitt,“
segir Effie sem telur að þær hafi
verið komnar út um tveimur mínút-
um eftir að vélin lenti.
Fljótlega þegar þær voru komnar
út úr vélinni skildu leiðir. „Mér létti
þegar ég sá að Lidia var óslösuð og
komin í björgunarvesti," segir Effie
sem komst í land af eigin rammleik
fjörutíu mínútum eftir lendinguna.
„Ég hitti fljótlega björgunarsveitar-
mann og sagði honum frá Lidiu.“
Henni var bjargað um borð í vélbát-
inn Gústa í Papey eftir tveggja
klukkustunda volk í sjónum og segir
hún að sér hafi verið orðið ansi kalt
þegar björgunin barst. „Ég sá ekki
bátinn nálgast og var ótrúlega fegin
þegar þeir kipptu mér um borð.“
Konumar vom báðar í flotgöllum,
sem bjargaði lífi þeirra. „Eg flýg
aldrei yfir höf án þess að vera í slík-
um galla," segir Éffie sem hefur átt
flugvélina í m'u ár. Hún liggur nú á
hafsbotni með öllum fijggum þeirra
vinkvenna sem vora á leið til íslands í
frí, en hér eiga þær vini. „Mestu máli
skiptir að við eram heilar á húfi,“
segja þær og bæta því við að þær hafi
ekki í hyggju að hætta við fríið á ís-
landi þrátt fyrir þessa byrjun.
Morgunblaðið/Jim Smart
„ÉG HUGSAÐI með mér að ég ætl-
aði ekki að deyja en varð skelkuð
vegna þess að mér gekk illa að setja
á mig björgunarvestið. Svo þegar
ég var komin út festust skóreimam-
ar mínar í flugvélinni sem var tekin
að sökkva, en mér tókst einhvem
veginn að losa mig,“ segir Lidia van
Benkum frá Hollandi, en hún og
Effie Andreé Wilkens voru hætt
komnar á föstudagskvöld þegar
flugvél þeirrar síðamefndu brot-
lenti suður af Stokksnesi við Horna-
fjörð. Þær sluppu ótrúlega vel og
einu merki slyssins eru marblettir
við auga.
Effie, sem hefur margoft komið
til Islands og talar ágæta íslensku,
segir að hún hafi strax gert sér
grein fyrir, þegar hún gat ekki lent
flugvélinni í Færeyjum vegna veð-
urs, að eitthvað gæti farið úrskeiðis.
„Það var ekki um marga valkosti að
ræða og spurning um skjótar
ákvarðanir. Ég hefði getað haldið
mig í loftinu fyrir ofan Færeyjar í
tvær klukkustundir en vissi að um
leið og ég hinkraði þar væri mögu-
leikinn að ná til Islands úr sögunni."
Besti kosturinn að
lenda í sjónum
Flugvélinni var því haldið áleiðis
til Homafjarðar, en Effie er kunnug
staðháttum þar. „Við vorum með
nóg eldsneyti til að fljúga frá
Skotlandi til Islands en notuðum að-
eins of mikið vegna veðursins. Þeg-
Höfðum ekki tíma
til að vera hræddar
Fjölgun í öllum málaflokkum umferðarlagabrota í Reykjavík
Kærur vegna hraðaksturs
tvöfölduðust milli ára
FJÖLDI umferðarlagabrota frá árinu 1996 til
1998 jókst úr 12.955 í 30.923 og jókst málafjöldi í
nær öllum málaflokkum er varða brot á umferð-
arlögum. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglunn-
ar í Reykjavík. Þar segir að ólíklegt sé að rekja
<; 'jínegi ástæðu aukningarinnar eingöngu til tíðari
brota ökumanna heldur hafi meiri áhersla verið
lögð á umferðareftirlit á síðasta ári.
I fyrra var fjöldi brota vegna ökuhraða 6.451,
árið 1997 3.348 og 3.941 árið 1996. Miklar sveiflur
era í fjölda hraðakstursbrota milli mánaða, sér-
staklega yfir sumarið. Mánuðina október til des-
ember er tíðni brota 8 til 10% á mánuði, hún
, sveiflast frá 2 til 12% í janúar til apríl en stökkin
1 verða mun meiri yfir sumarmánuðina. Þá er hlut-
fall brota frá um 6% og uppí 18%. Telur lögregl-
an veðurfar hafa þarna áhrif og mismikil áhersla
lögreglunnar á eftirlit með hraðakstri. Karlmenn
eru í miklum meirihluta þeirra sem kærðir era
fyrir hraðakstur. Þá vora 26 fyrirtæki eða stofn-
anir kærð vegna hraðaksturs starfsmanna á öku-
tæki fyrirtækis.
Málum vegna brota á reglum um notkun ör-
yggisbelta og annars öryggisbúnaðar fjölgaði um
46% eða úr 560 og 633 árin 1996 og 1997 í 1.367 í
fyrra.
Karlmenn í meirihluta
Umferðaróhöpp vora í fyrra 3.475 en kringum
2.800 bæði árin á undan. Tíðnin er mest síðari
hluta árs, 8,9% í október, 9,3% í nóvember og
rúm 10% í desember. Fæst óhöpp era í janúar,
apríl og júní, kringum 7%. Fram kemur í skýrslu
lögreglunnar að karlmenn eru í miklum meiri-
hluta þeirra sem kærðir eru fyrir umferðarlaga-
brot. Þeir voru 77% þeirra sem kærðir voru fyrir
of hraðan akstur og 79% þeirra sem kærðir voru
fyrir ölvunarakstur. Flestir þeirra sem kærðir
vora fyrir hraðakstur voru á aldrinum 18 og 19
ára og í ölvunaraksturshópnum vora flestir á
aldrinum 21 til 25 ára.
Innbrotum fækkaði enn í fyrra og vora þau um
20% færri en árið áður. Telur lögreglan megin-
skýringuna þá að minna sé um innbrot í bíla.
Kærðir vora 353 karlar vegna innbrota en 23
konur. í fyrra voru 660 manns kærðir fyrir lík-
amsárás eða líkamsmeiðingar og era karlar þar í
meirihluta.
Húsbruni í
Þorlákshöfn
ELDUR kviknaði í mannlausu
íbúðarhúsnæði í Þorlákshöfn
laust fyrir hádegi í gær, en hús-
ið skemmdist ekki mikið. Hús-
ráðendur vora ekki heima, en
talið er að kviknað hafi í út frá
þvottavél eða þurrkara. Ekki
urðu miklar skemmdir vegna
elds, en reyk- og vatnsskemmd-
ir urðu nokkrar.
Þreyta
Viðeyjarsund
KRISTINN Magnússon og
Fylkir Þ. Sævarsson ætla í dag
að synda frá Reykjavík til Við-
eyjar og til baka aftur. Kristinn
hefur áður synt hefðbundið Við-
eyjarsund, sem er frá Viðey til
Reykjavíkur. Sundkapparnir
stefna að því að leggja af stað
frá ferjubryggjunni í Sunda-
höfn kl. 16:30.