Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsókna-
styrkir í
nafni sendi-
herrahjóna
Þrítugustu ólympíuleikarnir 1 eðlisfræði hafnir á ftalíu
Þrjú hundruð kepp-
endur frá 62 löndum
ÞRÍTUGUSTU ólympíuleikarnir í
eðlisfræði voru settir á mánudaginn
við hátíðlega athöfn í Verdi-óper-
unni í Padova á Italíu. Borgarstjóri
Padova ávarpaði gesti og fulltrúi
ítalska menntamálaráðuneytisins
flutti kveðju ráðherra. Formaður
framkvæmdanefndar leikanna, Pa-
olo Violini, setti ólympíuleikana
formlega, en þeir standa til 27. júlí
og verða hinir lengstu hingað til.
Þrjú hundruð unglingar koma að
þessu sinni frá sextíu og tveimur
löndum til að keppa í verklegri og
kennilegri eðlisfræði. Þrítugustu
ólympíuleikarnir eru því hinir
stærstu í sögunni, en 266 keppend-
ur komu frá fimmtíu og sex löndum
í fyrra þegar leikarnir voru haldnir
á Islandi.
Meðal keppenda nú eru sex stúlkur
og yngsti keppandinn er aðeins þrett-
Agnes M.
Sigurðar-
dóttir skip-
uð prófastur
SÉRA Agnes M. Sigurðardóttir,
sóknarprestur í Bolungai-vík, hefur
af biskupi íslands verið skipuð pró-
fastur Isafjarðarprófastsdæmis.
Tekur skipanin gildi 23. júlí næst-
komandi og gildir til fimm ára.
Embætti prófasts Isafjarðarpró-
fastsdæmis hefur séra Baldur Vil-
helmsson í Vatnsfirði gegnt til
fjölda ára en hann lætur nú af störf-
um fyrir aldurs sakir. Agnes M.
Sigurðardóttir hefur síðustu árin
verið sóknarprestur í Bolungarvík.
Áður var hún um nokkurra ára
skeið sóknarprestur í Hvanneyrar-
prestakalli.
Agnes er þriðja konan í hópi 16
prófasta landsins en hinar eru séra
Halldóra J. Þorvarðardóttir í Rang-
árvallaprófastsdæmi og séra Dalla
Þórðardóttir í Skagafjarðarpró-
fastsdæmi.
án ára, en þeir eistu eru tvítugir.
Keppnislið Islendinga er skipað
fimm drengjum; Jóel Karl Friðriks-
son, Páll Melsted og Haukur Þor-
geirsson eru nemendur við Mennta-
skólann í Reykjavík, Jens Hjörleifur
Bárðarson er frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi, og Ingólfur
Magnússon er frá Menntaskólanum
á Akureyri. Fararstjórar eru Viðar
Ágústsson, framkvæmdastjóri Hug-
fangs, og Halldór Páll Halldórsson,
deildarstjóri við Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Verklega hluta leikanna lauk í
gær, miðvikudag, eftir að keppendur
höfðu glímt í fimm klukkustundir við
að finna snúningsvægi í strekktum
stálvír og massamiðju í samsettum
pendli. Sumum íslensku keppendun-
um gekk vel að framkvæma tilraun-
ina, en enginn lauk henni. „Heima er
ég vanur að eyða heilum degi í að
gera skýrslu úr einnar klukkustund-
ar tilraun,“ sagði Ingólfur Magnús-
son. „Nú þurfti ég að skrifa skýrsl-
una um leið og ég framkvæmdi
miklu lengri tilraun og Ijúka öllu á
fimm klukkustundum. Það var ein-
faldlega of mikið, en þetta var samt
skemmtileg tilraun."
Keppendurnir eiga hvíldardag í
dag samkvæmt lögum ólympíuleik-
anna og ítölsku skipuleggjendurnir
bjóða þeim í sveitaferð til Castel-
franco, Possagno og Treviso. Fai-ar-
stjórarnir munu í dag fjalla um
kennilegu verkefnin og þýða þau í
nótt yfir á móðurmál keppenda. Á
morgun fá keppendur fimm klukku-
stundir til að leysa þrjú löng verk-
efni sem búast má við að verði álíka
þung og stúdentum á fyrsta ári í eðl-
isfræði í háskóla er boðið upp á.
í KVEÐJUHÓFI, sem Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra
hélt til heiðurs bandarísku sendi-
herrahjónunum um síðustu helgi,
tilkynnti Þorsteinn I. Sigfússon
prófessor, formaður samstarfs-
nefndar Háskóla Islands og Vest-
mannaeyja, að ákveðið hefði ver-
ið að stofna til rannsóknastyrks í
nafni sendiherrahjónanna.
Styrkurinn er ætlaður banda-
rískum háskólastúdentum og
fræðimönnum sem rannsaka vilja
samspil manns og sjávar með að-
stöðu í Rannsóknasetrinu í Vest-
mannaeyjum, og nefnist
„Ambassador and Mrs. Day Olin
Mount Fellowship". Stjórn styrk-
veitinga verður í samráði við
Fulbright-stofnunina.
Þorsteinn sagði að ákvörðunin
væri viðurkenning á óþreytandi
áhuga sendiherrahjónanna á efl-
ingu vísindasamskipta þjóðanna.
Áframhaldandi aukning umsdkna hjá Lánasjóði landbúnaðarins
Bendir til meiri fram-
kvæmda í sveitum
UMSÓKNIR til Lánasjóðs land-
búnaðarins og lánveitingar sjóðsins
hafa aukist mjög undanfarið hálft
annað ár miðað við næstu ár á und-
an, að sögn Guðmundar Stefánsson-
ar framkvæmdastjóra sjóðsins.
Hann segir þetta benda til aukinna
framkvæmda í sveitum landsins.
Allt árið í fyrra lánaði sjóðurinn
rúma 1,6 milljarða króna en hafði
um mitt árið veitt 330 lán upp á
rúmar 600 milljónir króna, en fyrstu
sex mánuði þessa árs er búið að
veita 281 lán upp á tæpar 600 millj-
ónir króna. Til samanburðar má
nefna að fyrstu sex mánuði ársins
1997 veitti sjóðurinn lán upp á rúm-
ar 400 milljónir króna.
Meira byggt af fjósum
og fjárhúsum
„Við erum að lána mun meira
núna heldur en var fyrir tveimur ár-
um og mörg ár þar á undan. Breyt-
ingin mikla varð í fyrra og það virð-
ist ekki marktækur munur á milli
1998 og 1999, þó svo að það geti
breyst, Við getum gert ráð fyrir að
lánveitingamar endurspegli ágæt-
lega framkvæmdir í sveitum. Við
lánum langmest til jarðakaupa og
síðan vélakaupa, sérstaklega drátt-
arvélakaupa, en við höfum einnig
lánað talsvert mikið til fjósbygg-
inga, bæði nýbygginga og endur-
bygginga. Fjósin eru greinilega
miklu stærri en verið hefur. Þá höf-
um við lánað til fjárhúsa, sem
þekktist varla fyrh' örfáum árum,
og einnig tO svinaræktar, hesthúsa
og reiðskemma, loðdýrabúa og
sömuleiðis til gróðurhúsa," segir
Guðmundur.
Fyrstu sex mánuði ársins 1998
voi'u lán til vélakaupa hæsti lána-
flokkur sjóðsins en í ár er mest lán-
að til jarðakaupa. Aukning á lán-
veitingum til fjósa nemur 13% milli
ára miðað við fyrstu sex mánuði.
„Við lánuðum um 70 milljónir
króna allt árið í fyrra til fjárhúsa,
þar af 7 milljónir fyrstu sex mánuði
ársins. Fyrri helming þessa árs höf-
um við lánað um 30 milljónir króna,
sem þýðir fjórföldun á lánveitingum
til fjárhúsa miðað við fyrstu sex
mánuði. Þarna er um greinilega
aukningu að ræða, en við erum hins
vegar í miðjum klíðum, þannig að
þetta getur breyst,“ segir Guð-
mundur.
Kynslóðaskipti í stétt bænda
Hann kveðst telja ýmsar skýring-
ar á aukinni lánsþörf bænda og
þannig megi benda á að menn hafí
um langt árabil haldið að sér hönd-
um hvað t.d. vélakaup og viðhald
varðar en nú sé svo komið að þeir
geti ekki lengur frestað endurnýj-
un. „En kannski er veigamest í
þessu sambandi að það eru að verða
ákveðin kynslóðaskipti í stéttinni og
það er greinilegt að það er að vaxa
upp kynslóð yngri bænda, einkum í
mjólkurframleiðslunni, sem byggir
stærri hús og hugsar á öðrum for-
sendum en gert hefur verið. Ég veit
t.d. til þess að bændur séu að velta
fyrir sér nýrri mjaltartækni og
notkun vélmenna í því sambandi.
Allar slíkar hugmyndir krefjast
þess að búin séu stór og að ráðist sé
í gríðarlega miklar fjárfestingar. Þá
eru þess dæmi að menn sameinist
um að byggja fjós. Allt bendir þetta
til að menn hafi trú á framtíðinni í
þessum efnum, en hún mun samt
sem áður birtast okkur með allt
öðrum hætti en við þekkjum," segir
Guðmundur.
Hann bendir jafníramt á að kröfur
í landbúnaði hafi verið hertar og því
þurfí bændur, sem hyggist halda
áfram, að grípa til aðgerða til að
bæta aðstöðu og húsa- og tækjakost.
Fjórir sóttu
um Akur-
eyrar-
prestakall
FJORIR umsækjendur eru um
embætti prests í Akureyrar-
prestakalli en séra Svavar A.
Jónsson, sem gegnt hefur því
embætti síðustu árin, hefur
verið skipaður sóknarprestur í
Akureyrarprestakalli frá 1.
september næstkomandi.
Umsækjendurnir eru: Ai-na
Yrr Sigurðardóttir guðfræð-
ingur, séra Jónína Elísabet
Þorsteinsdóttii', fræðslufulltrúi
kirkjunnai' á Norðurlandi, séra
Lilja Kristín Þorsteinsdóttir,
sóknarprestur á Raufarhöfn,
og séra Magnús Björn Bjöms-
son meðferðarfulltrúi.
Auk skipunar sr. Svavars
hefur kirkjumálaráðheiTa
skipað séra Sigurð Rúnar
Ragnarsson, sóknarprest í
Norðfjarðarprestakalli, frá 1.
júlí og séra Cecil Haraldsson,
sóknarprest í Seyðisfjarðar-
prestakalli, frá 1. september og
eru þeir báðii' skipaðir til fimm
ára.
Séra Ingimar að hætta
Auglýst hefur verið laust til
umsóknar embætti sóknar-
prests í Þórshafnarprestakalli
frá 1. október. Séra Ingimar
Ingimarsson lætur þá af störf-
um fyrir aldurs sakir. Einnig
embætti sóknarprests í Hvera-
gerðisprestakalli frá sama
tíma. Því hefur séra Jón Ragn-
arsson gegnt ft'á 1995 er hann
var kallaður til starfa en skylt
er að auglýsa prestaköli að
nýju að loknu köllunartímabili.
Umsóknarfrestur um þessi
embætti er tU 23. ágúst.
Kópavogur
Krossinn
með 50
milljóna
bæjarábyrgð
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur
samþykkt skuldbreytingu á
lánum áhvílandi á fasteign
trúfélagsins Krossins við Hlíð-
arsmára 10, vegna 50 milljón
króna bæjarábyrgðar. Að
sögn Sigurðar Geii'dals bæjar-
stjóra eru og/eða hafa öll
stærri trúfélög í bænum sem
sótt hafa um fengið bæjará-
byrgðir vegna framkvæmda.
„Það vilja allir söfnuðir fá
bæjarábyrgð ef þeir standa í
framkvæmdum," sagði Sig-
urður. „Kirkjurnar hafa feng-
ið bæjarábyrgð og við flokkum
söfnuðina ekki niður því þeir
hafa allir sama rétt sam-
kvæmt lögum. Við höfum
reynt að vera hlutlausir og
mismuna þeim ekki. Krossinn
var að byggja mikla byggingu
í dalnum og við vorum að
hjálpa þeim með skuldbreyt-
ingar. I dag eru hins vegar
engar bæjarábyrgðir á dag-
skrá enda ekki heimilt lengur
að fara í ábyrgð vegna þriðja
aðila. Við höfum lítið beitt
bæjarábyrgðum. Einungis til
íþróttahreyfingarinnar og
safnaðanna."
Sigurður tók fram að bæj-
arábyrgð hafi alltaf verið háð
því að veð í fasteigninni væri
fyrir hendi og þá miðað við
veð í félagsaðstöðu, þar sem
ekki er hægt að veðsetja
kirkjur. „Hjá Krossinum er
ekki nema lítill hluti kirkja
þannig að þeir höfðu veð á
móti,“ sagði hann.