Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Húsasmiðir á Akureyri þrýsta á um hærri laun Slæm umgengni við ruslagám í Svarfaðardal kynnmgar- afsláttur af Triumph undirfatnaði í um Hrisalundi AGUST ARMANN hf UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 24 - REYKJAVÍK Morgunblaðið/Halldór Ingi AÐKOMAN var ekki glæsileg þeg- ar Ijósmyndarinn tók þessa mynd við gáminn. Ruslið var úti um allt og máttu bændumir sjálfir sjá um að tína það upp eftir sóðana. Tuborgdjass á heitum fimmtudegi DANSKIR djassleikarar, ásamt einum íslendingi, leika á fjórðu tón- leikum Tuborg-djass á heitum fimmtudegi í Deiglunni í kvöld. Þeir Morten Lundsby á kontrabassa og Stefan Pasborg á trommur koma frá Danmörku og með þeim leikur Haukur Gröndal á saxófón. Haukur hefur verið við nám í Kaupmannahöfn síðan haustið 1997. Tríóið byrjaði að leika saman um síðustu áramót og hefur leikið á fjölmörgum stöðum í Kaupmanna- höfn. Tríóið leikur eldri og nýrri djassperiur, ásamt frumsömdu efni. Þeir Morten Lundsby og Stefan Pasborg eru þó nokkuð þekktir í dönsku djasslífi. Lundsby hefur meðal annars spilað á staðnum „La Fontaine“. Pasborg hefur meðal annars spilað með þeim John Tchichai og Lars Möller. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og þess má geta að tríóið mun síðan einnig spila á Kaffi Krók, Sauðárkróki, og Hótel Reynihlíð. Rusl skilið eftir við læst- an gáminn NOKKRIR bændur í Svarfaðardal eru langþreyttir á umgengni við ruslagám er þeir tóku saman á leigu og staðsettu rétt fyrir ofan veginn nálægt bænum Hreiðarstöðum. Bændumir leigðu gáminn þegar hætt var að hafa ruslagáma á veg- um Gámaþjónustunnar í sveitarfé- laginu. Að sögn Sölva Hjaltasonar, bónda á Hreiðarstöðum, og eins þeirra er leigja gáminn hefur það gerst æ ofan í æ að vegfarendur skilja eftir rusl við gáminn og það þótt hann sé læstur. Síðan hefur það gerst að skepnur hafa komist í ruslið og dreift því út um allt og að- koman hefur því verið miður geðs- leg. „Þetta er ekki litlir haldapokar sem ferðalangar eru að skilja eftir sig heldur stórir svartir ruslapokar. Menn hafa einnig misjafnlega geng- ið frá þessu og stundum er ruslið fjúkandi út og suður,“ sagði Sölvi. Hann sagði einnig að þetta væri ekki bundið við sumarið eingöngu, hann hefði einnig fundið rusl í kringum gáminn á vetuma. Sölvi segist ekki vita hverjir hafa verið að verki en bendir á að enginn ruslagámur sé staðsettur í sumar- bústaðalandi framar í dalnum. „Mér finnst nú að sveitarfélagið þyrfti að hafa ruslagám þarna framfrá svo að fólkið geti losað sig við msl þar. Eins væri ágætt að ferðamenn sem leið eiga um dalinn hafi einhvers staðar aðgang að sorpílátum,“ sagði Sölvi. Langþreytt á ástandinu Hann segir að þau hafi ekki farið út í að merkja gáminn í upphafi, sagði að þau hefðu talið sjálfsagt að fólk áttaði sig á því að hann væri í einkaeign þar eð hann væri læstur. Einnig sagði hann greinilegt að sumir hefðu verið að pukrast við það að skiija eftir rasl, því oft væri það falið á bak við gáminn svo það sæist ekki frá veginum. Nú hafa þau sett upp skilti sem segir að gámurinn sé til einkanota en ekki fyrir almenning. „Við eram orðin langþreytt á ástandinu og vonum að fólk taki athugasemdir okkar til greina og hætti að skilja eftir rusl við gáminn, það er ekki umgengni sem er til fyrirmyndar," sagði Sölvi. BYGGINGAVERKTAKAR á Akureyri hafa vísað máli húsasmiða sem tilkynnt hafa að þeir muni ekki vinna yfirvinnu frá og með næstu mánaðamótum til Vinnuveitenda- sambands Islands. Húsasmiðir tóku þessa ákvörðun til að þrýsta á um hærri laun, en þeir hafa gert kröfu um að fá greiddar 1.000 krónur á tímann í dagvinnu til samræmis við það sem tíðkast á höfuðborgarsvæð- inu. Hrafnhildur Stefánsdóttir lög- fræðingur VSÍ sagði að í gildi væri kjarasamningur og ekki væri litið svo á að kjaradeila væri í gangi. „Sameiginleg uppsögn á yfírvinnu Stjórnandi þjdn- ustusviðs Akur- eyrarbæjar til að knýja á um kaupkröfur er klárlega ólögmæt aðgerð,“ sagði Hrafnhildur og benti á að forsvars- mönnum húsasmiðanna yrði gerð grein fyrir þeirri afstöðu. Hún sagði að húsasmiðir á Akur- eyri vitnuðu til greiddra launa í Reykjavík, en það færi eftir aðstæð- um hvers fyrirtækis fyrir sig hvern- ig samið væri við starfsmenn. Að- gerðir þær sem smiðir á Akureyri hefðu gripið til væra ekki rétta leið- in að markmiðinu. Smiðirnir sitja eftir Hún benti á að samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur jafngilti það verkfalli þegar menn sammæltust um að leggja niður vinnu sína að hluta til að ná ákveðnu tilteknu markmiði. Ólafur Svansson húsasmiður á Akureyri sagði smiði veralega óá- nægða með að vinna fyrir lægri laun en smiðir á höfuðborgarsvæð- inu. Hann sagðist vita til þess að margir væra að hugsa sér til hreyf- ings, væra á suðurleið ef ekki yrði breyting á kjöram þeirra nyrðra. Hann sagðist vita til þess að laun jámsmiða, rafvirkja og pípulagn- ingamanna á Akureyri hefðu hækk- að til samræmis við það sem gildir á höfuðborgarsvæðinu, en smiðimir sætu eftir. „Óánægjan er orðin veraleg og annað hvort leita menn suður á bóginn þar sem kjörin era betri eða sitja eftir og ég spái því að andinn á vinnustöðunum verði ekki sérlega góður á eftir,“ sagði Ólafur. Tvö fyrir- tæki meðal umsækj- enda TVÖ fyrirtæki era á meðal um- sækjenda um starf stjómanda á þjónustusviði hjá Akureyrarbæ. Umsóknarfrestur um starfið er nýlega ranninn út. í starfinu felst umsjón með tölvu- og upp- lýsingamálum. Fyrirtækin tvö era annars vegar Alit ehf. í Reykjavík og Tæknival á Akureyri. Aðrir um- sækjendur era Agla Þórann Sigurðardóttir, Akureyri, Bene- dikt H. Sigurgeirsson, Akureyri, Margeir Reynisson, Hafnarfirði, Einar Hólm Davíðsson, Akur- eyri, og Zlatans Mravinac, Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Vindur á Akureyri ÞAÐ var frekar kuldalegt um að hann feykti meðal annars um litast á Akureyri í gær og tals- koll sólhlif og fatastöndum í verður vindur með köflum, en göngugötunni. UTBOÐ Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd Bæjarsjóðs Akur- eyrar, óskar eftir tilboðum í byggingu skólpdælustöðvar við Laufásgötu á Akureyri. Tilboðið nær til uppsteypu og frágangs á um 50m2 niðurgrafinni byggingu á tveimur hæðum ásamt um 40m2 timburbyggingu þar ofan á. Verkið nær einnig til uppsetningar á dælum og lögnum inni í stöðinni og uppsetningu á varaaflsstöð og þrýstijöfnunar- kút í stjómhúsi. Einnig skal gera brunn og leggja 05OOST og 06OOST lagnir eins og útgröftur fyrir stöð gefur tilefni til. Uppsteypu, fokheldri yfirbyggingu og grófjöfnun skal lokið fyrir 20. desember 1999 og verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. maí 2000. Útboðsgögnin verða afhent á skrifstofu Tæknideildar Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, frá og með fimmtudeginum 22. júlí og kosta kr. 6.000. Tilboð skulu hafa borist skrifstofu Tæknideildar Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, Akureyri, eigi síðar en fimmtudaginn 19. ágúst 1999 kl. 11.00 fh., og verða þau þá opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bœiarverkfrœðineurinn á Akurevri Byggingítverktakar vísa málinu til VSI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.