Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 65

Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 65 I DAG BRIDS Umíijðn Guðmundur Páll Arnarson SPIL dagsins er frá fyrstu umferð Spingold-keppninn- ar í San Antonio, en þá er styrkleiki spilara æði mis- jafn, eins og gefur að skilja. Parið í NS var ekki líklegt til að lifa af margar umferð- ir: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ D74 V ÁKDG52 ♦ 984 + Á Vestur Austur * 962 +8 V 864 »103 ♦ G1073 ♦ ÁD6 + 954 +D1087632 Suður + ÁKG1053 V 98 ♦ K62 + KG Suður vakti í fyrstu hendi á einum spaða og eftir pass vesturs, datt norðri ekkert skárra í hug en að stökkva beint í fjögur grönd og spyja um ása. Suður taldi að þetta væri lykilspilaspurn- ing og sýndi tvö lykilspil með fímm hjörtum. En frá bæjardyrum norðurs voru ásarnir fjórir í stokknum, en ekki fimm, og hann skellti sér í sjö spaða! í AV voru reyndir spilar- ar, Bernie Miller og Lou Finkel. Miller var í austur og doblaði. Slemmudobl eru alltaf útspilsvísandi, en oft er á huldu á hvaða lit er vís- að! Eitt er víst - ekki er ætlast til að makker spili út í trompi. En er doblið byggt á eyðu eða óvæntum ás? Miller hugsaði sem svo: „Andstæðingarnir hafa spurt um ása, svo makker mun ekki reikna með að ég haldi á ás. Hann mun því reyna að gefa mér stungu og spila út í sínum lengsta lit. Væntanlega er lengsti litur makker ekki lauf, og ef norður er ekki alvitlaus, þá er hann með slagaupp- sprettu til hliðar við spað- ann, sem hlýtur að vera hjartað. Ergó: lengsti litur makkers er tígull.“ Nokkuð djúpt hugsað, en reyndist rétt, því Finkel kom út með tígul, sem hann bjóst við að makker myndi trompa. Arnaö heilla nn ÁRA afmæli. Næst- I vl komandi laugardag, 14. ágúst, verður sjötug Margrét Helgadóttir, Berjarima 2, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Kristmundur Haukur Jdns- son. Þau taka á móti vinum og vandamönnum í Raf- veituheimilinu í Elliðaárdal á morgun, fóstudaginn 13. ágúst, kl. 17-21. ÁRA afmæli. ÍJ vf Fimmtugur er í dag, fimmtudaginn 12. ágúst, Sveinn B. Isebarn, Vestur- bergi 96, Reykjavík. í til- efni dagsins taka hann og eiginkona hans, Ingibjörg L. Magnúsdóttir, á móti gestum á morgun, fostudag- inn 13. ágúst, í Flugvirkja- salnum, Borgartúni 22, frá kl. 20 til 23. Hlutavelta ÞESSIR duglegu strákar héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.500 til styrktar Rauða krossi íslands. Þeir heita Hauk- ur Hallsson, Kristján Oddsson og ívar Oddsson. ÞESSIR duglegu strákar söfnuðu með tombólu kr. 1.983 til styrktar Rauða krossi íslands. Þeir heita Valdi- mar Jónsson, Hannes Jdnsson, Hafsteinn Ólafsson og Arnar Freyr Ólafsson. Jónas Guðlaugsson (1887/1916) LJOÐABROT MIG LANGAR Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma, þegar leiftrar á árroðans bál, heyri ég raddir í eyrum mér óma, koma innst mér frá hjarta og sál: - Hér er kalt, hér er erfitt að anda, hér er allt það, sem hrærist, með bönd! Ó, mig langar til fjarlægra landa, ó, mig langar að árroðans strönd! Ég vil bálið, sem hitar og brennur, en ég bölva þér, nákaldi ís. Ég vil aflþunga elfu, sem rennur, ekki óhreina pollinn, sem frýs. Ég vil ástblómið rauða, sem angar, ekki arfa eða þurrkaðan vönd. Ó, svo langt héðan burtu mig langar, ó, mig langar að árroðans strönd! Brot úr Ijóðinu Mig langar STJÖRJVUSPA eftir Franecs Drake LJÓN Þú framkvæmir oft hlutina áður en þú hugsar þá til enda. Reyndu samt að sjá sem lengst. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Þeir eru margir sem vilja ræða málin við þig. Reyndu að velja þá úr sem þurfa raunverulega á hjálp þinni að halda. Naut (20. apríl - 20. maí) Það getur reynt á þig að halda heimilisfriðinn. Gættu þess að sækja mál þitt ekki of fast því þá getur allt farið úr böndum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) oA Þér hefur unnist vel og nú er svo komið að þú getur tekið til úrlausnar verkefni sem lengi hefur legið í iág- inni. Krabbi (21. júní - 22. júll) Passaðu þig á því að fá ekki vinnuna á heilann því þótt um lifibrauð þitt sé að ræða þurfa þínir nánustu líka á athygli þinni að halda. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) rW Þér finnast andstæðumar hrannast upp í kringum þig en málið er bara að gefa sér tíma tii þess að ieysa málin eitt af öðru. Meyja (23. ágúst - 22. september) 9+ Þér finnst erfitt að skipta tímanum á milli heimilis og vinnu en þarft engu að kvíða því þú hefur nóg þrek fyrir hvorutveggja. V°S m (23. sept. - 22. október) 4)' 4i Það er nauðsynlegt að kynna sér vel smáa letrið áður en skrifað er undir. Farðu þér hægt því tæki- færin hlaupa ekkert frá þér. Sporðdreki __ (23. okt. - 21. nóvember) “Wl Þú ert vinum þínum stað- festan sjálf og átt því að vera fús til að leiðbeina þeim þegar þeir leita til þín. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ííSr Nú er rétti tíminn til að taka til hendinni í geymsl- unni og kanna hvort ein- hverjir hafi áhuga á að hirða það sem þú hefur ekki not fyrir lengur. Steingeit (22. des. -19. janúar) aSH Þér sárna ummæli sem falla í samtali innan fjölskyldunn- ar. Láttu samt öfund ann- arra ekki draga þig niður heldur láttu sem ekkert sé. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) VAol Tækifærin bíða þín á næsta leiti. Gaumgæfðu alla mögu- leika og reyndu að forðast óþarfa áhættu. Vertu samt hvergi hræddur. Fiskar mt (19. febrúar - 20. mars) Gættu þess að halda þínum málstað fram en það er nauðsynlegt að þekkja sín takmörk og málamiðlun er nauðsynleg ef samstarf á að takast. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. nfíl^ - gömul ^úsgögn^ Til sölu {•immiuciag, {•ösíuHag og laugarciag ij, að SmiðsHöfða 13 frd kl. 08-16 mi Sími 898 1504 UTSALA Stuttar og síðar kápur áður nú Sumarúlpur og heilsársúlpur 15-900 5*900 Ullarjakkar 17.900 4*900 Opið á laugardögum £rá kl. 10—16 vThi^sid Mörkinni 6 Sími 588 5518 UTSALA A Ð E I N S í FÁEINA DAGA Lín&léreft BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 561 1717 Útsölulok í Kringlunni 20% afsláttur af öllum vörum Skemmtilegt pruttborð fimmtudag, fbstudag og laugardag vo Kringlunni 8-12 - Sími 5682221 -r 0% AFSLÁTTUR Crtuí) ’ri 7, s. 553 5522

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.