Morgunblaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
KIDE-skúlptúr komið fyrir í Elliðaárdal
Jákvætt ljós
frá Finnlandi
Frá Helsinki er hingað kominn skúlptúr
einn mikill, sem settur hefur verið niður í
Elliðaárdal. KIDE er skúlptúrinn kallaður
og er einn níundi hluti af stóru listaverki
sem sameinast í Helsinki á gamlárskvöld.
Margrét Sveinbjörnsdóttir hitti einn
þriggja upphafsmanna verksins, fínnska
arkitektinn Kari Leppánen, á bökkum
Elliðaánna í rigningunni í gær og fékk
að heyra sitthvað um KIDE.
Morgunblaðið/Kristinn
Kari Leppanen aðstoðar krana-
mann við að taka gler-, hljóð-
og ljósskúlptúrinn KIDE úr
gámnum sem hann var fluttur í
með skipi hingað til lands, með
viðkomu í Bergen þar sem ann-
ar KIDE var settur á land.
KIDE kominn á sinn stað á bökkum Elliðaánna, steinsnar frá gamla
Rafveituhúsinu, en Reykjavík menningarborg og Orkuveita Reykja-
víkur standa í sameiningu að komu KIDE hingað til lands.
Á UNDANFÖRNUM dögum og
vikum hefur verið unnið að því að
koma átta jafnstórum glerskúlptúr-
um fyrir í Bergen, Brussel, Kraká,
Prag, Avignon, Santiago de
Compostela og Bologna - og nú síð-
ast í Reykjavík. Nú er bara eftir að
koma þeim síðasta á sinn stað í mið-
borg Helsinki, en allar eiga þessar
níu borgir það sameiginlegt að verða
menningarborgir Evrópu árið 2000.
Skúlptúramir verða afhjúpaðir því
sem næst samtímis í borgunum níu
að kvöldi miðvikudagsins 22. septem-
ber og í Elliðaárdalnum verður það
borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, sem afhjúp-
ar KIDE. Pann dag eru nákvæmlega
100 dagar þar til menningarborgar-
árið 2000 rennur upp og þá munu 100
börn syngja í Elliðaárdal.
Það eru rúm þrjú ár síðan farið
var að vinna að KIDE en hugmynd-
in hafði þó verið í gerjun lengur, að
sögn Kari Leppánen. KIDE er
sköpunarverk þriggja manna, hans
sjálfs, hollenska arkitektsins Peter
Ch. Butter, sem hefur búið í Finn-
landi í fjögur ár, og slóvenska sjón-
ræna hönnuðarins Dusan Jovanovic,
sem hefur verið í Finnlandi síðustu
fimmtán árin eða svo. „Við eigum
það allir sameiginlegt að eiga
finnskar eiginkonur,“ segir
Leppánen brosandi og bætir við að
tilviljanir hafi ráðið því að leiðir
þeirra þriggja hafi legið saman. Að
verkinu öllu koma hátt í fimmtíu
manns auk hönnuðanna; rafvirkjar,
ljósamenn, símamenn, bygginga-
tæknifræðingar og flutningamenn,
svo einhverjir séu nefndir. Því þó að
KIDE sé til að sjá frekar einfaldur
kassi úr gleri liggur heilmikil tækni-
og hugmyndavinna að baki honum.
KIDE er finnska orðið yfir kristal
en „kassinn“ er gerður úr þremur
lögum af sérstaklega hertu öryggis-
gleri. Lagið í miðjunni hefur verið
brotið í agnársmáa kristalla, sem
endurkasta birtunni sem fellur á þá
og breytist í sífellu. Þegar skyggja
tekur á kvöldin er kassinn upplýstur
með ljóskösturum sem eru í botni
hans og hægt er að hafa áhrif á birt-
una með því að snerta yfirborðið.
Einnig má heyra hljóð úr KIDE og
má því segja að hann sé allt í senn;
gler-, hljóð- og ljósskúlptúr.
Þó að KIDE-skúlptúramir séu
allir eins að lögun hafa þeir ólíka liti
og hljóð eftir því hvar þeir eru stað-
settir. I norrænu menningarborgun-
um þremur eru þeir í bláum litum, í
hinum miðevrópsku eru litirnir og
ljósin ögn hlýrri, græn, gul og appel-
sínugul, og þegar sunnar dregur
fara litimir út í rautt og fjólublátt.
Með undrun í augum
Skúlptúrarnir munu standa hver í
sinni menningarborginni í um tvo
mánuði og draga í sig lit, hljóð og
andrúm hverrar borgar áður en þeir
verða aftur fiuttir til Helsinki. Þar
verður þeim svo stillt upp hlið við
hlið, svo úr verður einn risavaxinn
KIDE, átján metrar að lengd. Fyrst
um sinn heldur hver eining sínum
eigin lit, svo úr verður heilt litróf en
á gamlárskvöld renna litimir saman
í einn hvítan geisla. Hinn stóri, sam-
einaði KIDE verður opnaður og fólk
getur gengið með góðar óskir í
gegnum geislandi ljósgöngin - um
leið og það gengur inn í árið 2000.
Ekki er nóg með að íbúar hverrar
borgar geti virt fyrir sér KIDE í
sinni borg, heldur munu þeir h'ka
geta fylgst með KIDE í hinum
borgunum átta, þá tvo mánuði sem
þeir verða þar. Komið hefur verið
upp sérstökum klefa með sjón-
varpsskjá framan við hvem KIDE
sem gerir mönnum kleift að sjá
KIDE og nánasta umhverfi hans í
hverri borg.
Kari Leppánen hefur verið á ferð
og flugi milli menningarborganna að
undanfömu að koma hverjum KIDE
fyrir sig á réttan stað. Hann segist
hafa notið þess að fylgjast með við-
brögðum almennings. „Fólk verður
undrandi, maður sér það í augunum
á því. Núna er allt í tilbúnum pökk-
um, maturinn sem við borðum og
allt, en þetta er eitthvað sem fær
fólk til að staldra við og hugsa,
undrast. Þetta skapar andstæðvu og
víkkar skilninginn. KIDE er já-
kvætt ljós sem við sendum frá Finn-
landi - hvað væri líf án ljóss?“ segir
hann.
fH*rgttnIrtafrifc
BÓKASALA í ágúst
R6ð Tltill/ Hðfundur/ Ulgefandi
1 Uppvöxtur iitla trés / Forrest Carter / Mál og menning
2 Amazing iceland - Ýmis tungumál / Sigurgeir Sigurjónsson / Forlagið
3 Where nature Shines-Ýmis tungumál / Texti Ari Trausti Guðmundsson. Myndir
Sigurgeir Sigurjónsson / Forlagið
4 íslandsklukkan / Halldór Kiljan Laxness / Vaka-Helgatell
5 Ensk-íslensk / íslensk-ensk orðabók / Ritstj. Sævar Hilbertsson / Orðabókaútgáfan
6 Land / Páll Stefánsson / lceland review
7 Frönsk-íslensk / íslensk-frönsk orðabók / Þór Stefánsson / Orðabókaútgáfan
8 Dönsk-íslensk / íslensk-dönsk orðabók / Ritstj. Sigurlín sveinbjamardóttir
og Svanhildur Edda Þórðardóttir / Orðabókaútgáfan
9 Sjálfstætt fólk / Halldór Kiljan Laxness / Vaka-Helgafell
10 íslenska vegahandbókin / Steindór Steindórsson frá Hlöðum / íslenska bókaútgáfan
Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK
1 Uppvöxtur litla trés / Forrest Carter / Mál og menning
2 íslandsklukkan / Halldór Kiljan Laxness / Vaka-Helgafell
3 Sjálfstætt fólk / Halldór Kiljan Laxness / Vaka-Helgafell
4 Svanurinn / Guðbergur Bergsson / Forlagið
5 Falsarinn / Björn Th. Bjömsson / Mál og menning
6 Parísarhjól / Sigurður Pálsson / Forlagið
7 Andsælis á auðnuhjólinu / Helgi Ingólfsson / Mál og menning
8 SalkaValka/ Halldór Kiljan Laxness / Vaka-Helgafell
9 Engin spor / Viktor Arnar Ingólfsson / Mál og menning
10 Tímaþjófurinn / Steinunn Sigurðardóttir/ Mál og menning
ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÖÐ
1 úr landsuðri og fleiri kvæði / Jón Helgason / Mál og menning
2 Nýja söngbókin - 2 / Unnið af „Söngfuglanefndinni” / Klettaútgáfan
3 Perlur Úr Ijóðum íslenskra kvenna / Silja Aðalsteinsdóttir valdi Ijóðin / Hörpuútgáfan
4 Gullregn Úr ástarljóðum íslenskra kvenna / Gylfi Gröndal tók saman efni / Forlagið
5 Kvæði og kviðlinga-úrval / Hjálmar Jónsson frá Bólu / Bókafélagið
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 Manndómur / Andrés Indriðason / Mál og menning
2 Veröld Soffíu / Jostein Gaarder / Mál og menning
3 Stafakarlamir / Bergljót Arnalds / Virago
4 Bangsímon hittir Kaninku / Walt Disney / Vaka-Helgafell
5-6 íslensku dýrin / Halldór Pétursson / Setberg
5-6 Snúður og Snælda / Pierre Probst / Setberg
7 Kíara og KÓVÚ verða vinir / Walt Disney / Vaka-Helgafell
8 FLÍkk kemur til bjargar / Walt Disney / Vaka-Helgafell
9 Stúfur / Harald 0glund / Björk
10 Stubbur/BengtNielsen/Björk
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Amazing Iceland-Ýmis tungumál / Sigurgeir Siguijónsson / Forlagið
2 Where nature Shines-Ýmis tungumál / Texti Ari Trausti Guðmundsson. Myndir
Sigurgeir Sigurjónsson / Fortagið
3 Ensk-íslensk / íslensk-ensk orðabók / Ritstj. Sævar Hilbertsson / Orðabókaútgáfan
4 Land / Páll Stefánsson / lceland Review
5 Frönsk-íslensk / íslensk-frönsk orðabók / Þór Stefánsson / Orðabókaútgáfan
6 Dönsk-íslensk / íslensk-dönsk orðabók / Ritstj. Sigurlín Sveinbjarnardóttir og
Svanhildur Edda Þórðardóttir / Orðabókaútgáfan
7 íslenska vegahandbókin / Steindór Steindórsson frá Hlöðum / Islenska bókaútgáfan
8-9 Dönsk-íslensk skólaorðabók / Hrefna Amalds / Mál og menning
8-9 Panorama-ísland / Páll Stefánsson / lceland Review
10 Islenska steinabókin / Kristján Sæmundsson / Mál og menning
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Eymundsson, Kringlunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Hallarmúla
Penninn, Kringlunni
Penninn, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókval, Akureyri, KÁ, Selfossi
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka í ágúst 1999 Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag (slenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með Þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabiii. né kennslubækur.
Fyrirlestrar um kaþólskuna
BÆKUR
Kirkjusaga
KAÞÓLSKA KIRKJAN FRÁ 14.
ÖLD TIL OKKAR DAGA
eflir Jóhannes Gijsen, í þýðingu
Þorkcls Ernis Ólasonar. Utgefandi:
Kaþólska kirkjan. 138 blaðsíður.
KAÞÓLSKA kirkjan gefur jafnt og
þétt út bækur um ýmis málefni tengd
trú og lífi kirkjunnar. Bókin sem hér
er til umfjöllunar er að stofni til fyrir-
lestrar sem haldnir voru í Landakoti
veturinn 1997-1998. Þar er þróun
margra helstu kenninga kaþólsku
kirkjunnar á tímabilinu, sem bókin
nær yfir, rakin og grein gerð fyrir
glímu kirkjunnar við tíðaranda og yf-
irvöld hverju sinni. Bókin skiptist í
sjö kafla, fimm um ákveðin tímabil í
kirkjusögunni og tvo annars vegar
um kirkjuþingið í Trent og hins vegar
um síðara Vatíkanþingið og áhrif
þess. Höfundur hefur mikla þekkingu
á kirkjusögu, vestrænni heimspeki og
hugmyndasögu. Hann nær að draga
upp í skýrum dráttum helstu strauma
sem leikið hafa um kirkjuna og mikil-
vægustu málefni sem tekist hefyr
verið á um innan hennar og í sam-
skiptum hennar við yfinröld og hugs-
uði Evrópuþjóða. Bókin er upp-
lýsandi fyrir alla sem hafa áhuga á
kirkjusögu og þfóun kenninga kirkj-
unnar. Löng heimildaskrá í bókarlok
eykur gildi hennar, þó að heimildir
séu flestar á þýsku. Ef benda má á
eitthvað sem betur hefði mátt fara
ber helst að nefna að þýðing bókar-
innar úr þýsku er því miður stirð og
hið erlenda tungumál skín víða í
gegnum málfarið. Það er sorglegt
fyrir höfundinn þegar hugtök eins og
„sola scriptura" og „sola fides“ eru
vitlaust þýdd (bls. 31 og 32). En efni
bókarinnar er gott.
KAÞÓLSKA KIRKJANÁ
ÍSLANDI Á MÓTUM
ÁRÞÚSUNDA
Fyrirlestrar haldnir í Viðey 20. sept-
ember 1997. Höfundar: Aidan
Nichols O.P., Gunnar F. Guðmunds-
son og Hjaiti Þorkelsson. Útgefandi:
Kaþólska kirkjan á íslandi. 72 bls.
Þessi bók hefur að geyma þrjá fyr-
irlestra sem haldnir voru í Viðey á
ráðstefnu á vegum kaþólsku leik-
mannafélaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði fyrir meðlimi kaþólsku
kirkjunnar á Islandi.
Fyrsti fyrirlesturinn er eftir Aidan
Nichols O.P., prófessor í guðfræði í
Cambridge á Englandi, og ber yfir-
skriftina Hugleiðing um kristna trú á
mörkum árþúsunda. Hann er hug-
leiðing um það hvernig kaþólskir
menn geti búið sig undir komandi
aldamót samkvæmt beiðni páfa um
að menn noti árin 1997-1999 til að
búa sig undir að brátt séu 2.000 ár
liðin frá fæðingu Jesú Krists.
Annar fyrirlesturinn, Trúboð og
starfshættir kaþólsku kirkjunnar á
20. öld, eftir Gunnar F. Guðmunds-
son, er gott sögulegt ágrip af því
hvernig kaþólska kirkjan náði fót-
festu hér á landi að nýju í lok síðustu
aldar og byrjun þessarar eftir að
hafa liðið að mestu undir lok við sið-
breytinguna. Gerð er grein fyrir
helstu starfsaðferðum kirkjunnar og
forsendum þeirra.
Þriðji og síðasti fyrirlesturinn,
Kaþólska kirkjan á íslandi, horft til
næstu aldar er greinargerð samin á
grundvelli samræðna kaþólska bisk-
upsins í Reykjavík og presta hans og
fjallar um það hvemig kaþólskir
menn geti tekist á við komandi öld á
grundvelli hefðar kirkjunnar og boð-
skapar hennar. Þar er dregin upp
eins konar framtíðarsýn í átta liðum.
í niðurlagi fyrirlestrarins segir: ,Á
komandi öld verður sú krafa gerð til
kaþólsku kirkjunnar að hún eflist
frekar og kynni sig betur en áður.
Það verður hún að gera í fullri tryggð
við heilaga erfikenningu sína, með
opnum huga gagnvart nútímafólki,
svo að hún geti lagt sitt af mörkum til
að styrkja kristilegt líf þjóðarinnar"
(bls. 71). Báðar bækurnar sem hér
hefur verið fjallað um eru gott fram-
lag til aukinnar þekkingar og skiln-
ings á kenningu og lífi kaþólsku
kirkjunnar. Þær gagnast einkum
kaþólskum mönnum.
Kjartan Jónsson