Morgunblaðið - 11.11.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.11.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sýningum lýkur Menningarmiðstöðin Gerðubergi SÝNINGUNNI Petta vil ég sjá, verk er Friðrik Þór Friðriks- son hefur valið í Gerðubergi, lýk- ur nú á sunnudag. Listasafn ASÍ Samsýningu sjö listamanna, sem ber heitið Dulrafulli garður- inn, í Listasafni ASÍ,lýkur nú á sunnuadag. Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, kl. 14-16. Nýlistasafnið Sýningin Fjar-skyn í Nýlista- safninu, lýkur næsta sunnudag. Þar sýna sex listamenn: Anna Jú- lía Friðbjörnsdóttir, Cathrine Evelid, Helga G. Ósk- arsdóttir, Ingvill Gaarder, Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir og Stine Berger. Listamennirnir hlutu samnor- rænan styrk til fararinnar frá Sleipni og Nifca. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 nema mánudaga og er aðgangur er ókeypis. Sérverólun með illkitré & silkiblóm aIttwrivi hlr>m Heimabíó BeoVision Avant 28” eöa 32" breiðtjaldssjónvarp á rafknúnum snúningsfæti, meö innbyggöu fjölkerfa Nicam stereo myndbandstæki og öflugum hátölurum. BeoVision Avant er næst því sem þú kemst aö vera í bíói án þess að fara aö heiman. BeoVision Avant frá Bang & Olufsen: kr. 398.900 Málfrelsi BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráölaus sími. Hann sýnir þér hver er aö reyna aö ná f þig og þú ákveöur hvort þú svarar. Einnig geturðu tengt allt aö 5 önnur símtól viö sömu línuna og haft þfna eigin sfmstöö á heimilinu. Með BeoCom 6000 fær fjölskyldan eitthvaö til aö tala um. BeoCom 6000 frá Bang & Olufsen: kr. 31.500 Tónleikar f hvert sinn sem hönd þín nálgast BeoCenter 2300 opnast glerhuröirnar hljóölega og dauft Ijós kviknar. BeoCenter 2300 er fullkomiö hljómflutningstæki meö geislaspilara og FM/AM útvarpi. Þaö er alltaf notalegt aö nálgast BeoCenter 2300. BeoCenter 2300 frá Bang & Olufsen: kr. 108.500 Einleikari frá átta ára aldri Morgunblaðið/Sverrir Livia Sohn mundar Guadagnini-fiðluna sína á æfíngu í Háskóla- bioi. Austurlenskur uppruninn leynir sér ekki. Kornungur banda- rískur konsertfiðlari, Livia Sohn, mun leika Fiðlukonsert Khatsj- atúrjans á tónleikum Sinfóníuhlj ómsveitar —?-------------------- Islands í Háskólabíói í kvöld. Orri Páll Orm- arsson fór að finna stúlkuna en á efnisskrá tónleikanna er einnig Önnur sinfónía Rakhmanínovs. FLESTA hljóðfæraleikara dreymir um að leika einleik með sinfóníuhljómsveitum. Sumir ná því marki, aðrir ekki. Biðin eftir þessu stóra tækifæri getur verið Íöng og ströng en þolinmæði þrautir vinnur allar. Eða hvað? Ekki er einu sinni víst að gestur kvöldsins á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Islands, banda- ríski konsertfiðlarinn Livia Sohn, hafi verið búin að læra orðið, þol- inmæði, hvað þá að skilja merk- ingu þess, þegar hún steig fyrst á svið sem einleikari í heimalandi sínu - átta ára gömul. Livia tók fyrst upp fiðlu fimm ára að aldri en þvertekur fyrir að hafa verið snemma í því. „Það þykir ekkert sérstaklega snemmt að hefja tónlistamám fimm ára, að minnsta kosti ekki í Bandaríkj- unum. Það er dálítið ógnvekjandi ef maður hugsar út í það,“ segir þessi knáa og glaðlega stúlka, sem nú er rúmlega tvítug, og hlær. Framfarimar vom þó örar og Livia var, sem fyrr segir, aðeins átta ára þegar Wallingford-sin- fóníuhljómsveitin í heimaborg hennar, Connecticut, tefldi henni íyrst fram sem einleikara á tón- leikum. - Er þetta ekki alveg með ólík- indum? „Ekki spyrja mig að því," segir Livia og skellir aftur upp úr. „Þetta gekk að minnsta kosti ágætlega og ég fann mig strax vel í þessu hlutverki. Ætli þessir tón- leikar hafi ekki gefið tóninn fyrir framhaldið." Valið var einfalt Livia kveðst í fyrstu bara hafa stundað fiðlunám sér til yndis- auka. „Eg var bara barn og vissi vitaskuld ekkert hvað ég vildi. í kjölfar tónleikanna með Walling- ford-hljómsveitinni komu fleiri tækifæri og ég fór að gæla við þá hugmynd að leggja fiðluleik fyrir mig. Eftir að ég fór með sigur af hólmi í alþjóðlegri fiðlukeppni sem kennd er við Yehudi Menu- hin,tólf ára að aldri, varð ég síðan að gera upp hug minn. Valið var í raun einfalt!“ - Hefurðu aldrei séð eftir því vali? ,J>íei, - bara stundum," svarar fiðluleikarinn ungi og skellihlær. Hún kveðst raunar ekki hafa gert sér grein fyrir því á sínum tíma hvað hún væri að fara út í, álagið sé mun meira en hana hafi órað fyrir. En samt: „Ég hef yndi af því sem ég er að gera. Ég ann tónlistinni og það eru forréttindi að geta gert hana að starfi sínu. Það hvarflar því ekki að mér að kvarta.“ Livia hefur leikið einleik með fjölda stórra hljómsveita í heima- landi sínu og haldið einleikstón- leika nánast um gjörvöll Banda- ríkin en á síðastliðnum árum hefur hún komið fram sem ein- leikari hjá þekktum hljómsveitum víða í Evrópu, Asíu og Ástralíu. „Bandaríkin eru minn helsti starfsvettvangur. Ég held tón- leika erlendis svona tvisvar til þrisvar á ári. Nú er ég á íslandi og síðar í vetur legg ég leið mína til Búdapest og Kóreu. Á síðast- nefnda staðinn reyni ég að koma einu sinni á ári, í það minnsta, en móðir mín er fædd í Kóreu. Ég hef því sterkar taugar til lands- ins." - En þetta er í fyrsta sinn sem þú kemur til íslands? „Já, til íslands hef ég aldrei komið áður. Forsaga málsins er sú að ég kynntist Rico Saccani, aðalstjórnanda Sinfóníuhljóm- sveitar Islands, í Köln í fyrra, þar sem við komum fram á tónleikum saman. Hann bauð mér svo hing- að.“ Og fíðluleikaranum líst vel á hljómsveitina. „Ég hef reyndar bara æft einu sinni með hljóm- sveitinni en hún er greinilega í há- um gæðaflokki. Það er mikið af- rek að geta haldið úti svona góðri hljómsveit í þessu fámenni - nógu er það erfitt í öllu mannvalinu og samkeppninni í Bandaríkjunum. Ég hlakka til að spila með Sinfón- íuhljómsveit Islands!“ I Ijós kemur að gæði hljóm- sveitarinnar komu Liviu raunar ekki í opna skjöldu því hún hafði heyrt sitt af hverju, allt gott, um hana frá tveimur vinum sínum og fyrrver-andi samnemum í Juilli- ard-skólanum í New York - Is- lendingum. Livia starfar aðallega sem ein- leikari núorðið og sér varla fram úr verkefnum - „sem betur fer“. „ Þegar tími gefst til reyni ég líka að leika kammertónlist, helst með tríóinu mínu í New York, þar sem ég bý, en það er bara því mið- ur allt-of sjaldan, helst á sumrin“- Áttu þér einhver önnur áhuga- mál? Tíminn er kannski of naum- ur? „Já, það má eiginlega segja það. Ef ég er ekki að leika tónlist er ég að hlusta á hana. Ég hef reyndar gaman af því að lesa og til þess gefst stundum ágætur tími á ferðalögum sem fylgja starfinu. Síðan ræð ég helst allar krossgát- ur sem ég kemst. yfir - eða reyni að ráða!“ Þrátt fyrir langan feril sem ein- leikari hefur Livia verið við fiðlu- nám þar til fyrir rúmu ári að hún lauk burtfararprófi frá Juilliard. I New York hefur hún búið undan- farin fimm ár og líkar vel. „Það er frábært að vera listamaður í New York. Borgin iðar af lífi. Þar úir líka og grúir af góðum tónlistar- mönnum, þannig að í augnablik- inu get ég ekki hugsað mér betri stað til að búa á.“ Með verkið vestur um haf Aram Khatsjatúrjan er höfund- ur fiðlukonsertsins sem Livia mun leika fyrir Islendinga í kvöld. Þótt hann teljist til rússneskra tónskálda var hann fyrst og fremst Georgíumaður. Hann fæddist í Tíflis, höfuðborg Geor- gíu árið 1903 af fátæku foreldri. Strax í æsku sýndi hann mikinn áhuga á tónlist og heillaðist af tónlist alþýðunnar í Armeníu, Georgíu og Aserbaídsjan sem hann heyrði allt í kring um sig. Þrátt fyrir bágan fjárhag fjöl- skyldunnar braust hann til mennta á sviði tónlistar og lauk prófi þegar hann stóð á þrítugu. Sama ár kom fyrsta tónverkið frá honum, Danssvíta fyrir hljóm- sveit. Fiðlukonsertinn samdi Khatsjatúrjan árið 1940 og vakti hann strax mikla hrifningu. Tón- skáldið var þegar í stað sæmt Sta- lín-orðunni fyrir verkið. Khatsjatúrjan kom hingað til lands árið 1952 og_ stjómaði þá Sinfóníuhljómsveit íslands á tón- leikum í Þjóðleikhúsinu. Fiðlukonsert Khatsjatúrjans er eitt af þeim verkum sem Sinfón- ían leggur upp með í ferð sína til Vesturheims á næsta ári. Einleik- arijiá verður Judith Ingólfsson. Á tónleikunum í kvöld verður einnig flutt Sinfónía nr. 2 í e-moll eftir Sergej Rakhmanínov. Á árunum í kring um aldamótin var þetta rússneska tónskáld, píanóvirtúós og hljómsveitar- stjóri, einn af mest áberandi tón- listarmönnum í Evrópu. Sinfóníu nr. 2 samdi Rakhmanínov vetur- inn 1906-1907 og var hún frum- flutt í Pétursborg í janúar 1908 undir stjóm hans sjálfs og varð á skömmum tíma eitt af vinsælustu verkum tónskáldsins. Hljómsveitarstjóri kvöldsins er Rico Saccani en þess má geta að efnisskráin verður hljóðrituð með útgáfu geislaplötu í huga, bæði á tónleikunum í kvöld en eins á gen- eralprufu í dag og á skólatónleik- um á morgun, til að útgáfufyrir- tækið, Arsis, hafi úr nógu að moða. Að sögn Helgu Hauksdóttur, tónleikastjóra SI, hefur enn ekki verið ákveðið hvenær platan kem- ur út en vonast hún til að það verði fljótlega á nýja árinu. Aðrir tónleikar Sinfóníunnar verða hljóðritaðir með þessum hætti í apríl en þetta mun vera lið- ur í kynningu hljómsveitarinnar fyrir Bandaríkjaferðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.