Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 36

Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Guöbjörn Ein- arsson fæddist á Kárastöðum í Þing- vailasveit 2. nóvem- ber 1918. Hann lést á Vífilsstaðaspítala 17. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Einar Halldórsson, hreppstjóri, f. 18.11. 1883, d. 19.12. 1947, og kona hans Guð- rún Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 7.7. 1892, d. 25.2. 1955. Þau eignuðust ellefu böm. Systkini Guð- björns, sem em látin: Halldór, f. 1913, d. 1981; Sigurður, f. 1915, d. 1992; Jóhanna, f. 1916, d. 1978; Björgvin, f. 1921, d. 1985; Guð- björg, f. 1925, d. 1927; Geir, f. 1927, d. 1942. Eftir lifa: Elísabet, f. 1922; Guðbjörg, f. 1928; Hallfríð- ur, f. 1930; og Stefán Bragi, f. 1933; og fósturbróðir Árni Halldórsson, f. 1923. Guðbjörn ólst upp á Kárastöðum. Hann vann þar að bústörf- um frá barnsaldri. Hann fór í Bændaskól- ann á Hvanneyri og lauk þar búfræðiprófi 1941. Guðbjörn kvæntist 13.11. 1943 Elínu Steinþóru Helgadótt- ur frá Vopnafirði. Hún er dóttir Helga Frímanns Magnússon- ar bónda og Matthildar Vilhjálms- dóttur, konu hans. Guðbjörn og El- ín eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Gunnlaugur Geir, f. 16.12. 1943, hann á þrjár dætur og þrjú barna- böm. 2) Guðrún, f. 3.5.1945, maki Böðvar Guðmundsson, þau eiga fjögur böm, fímm barnabörn og eitt barnabarnabarn. 3) Erla f. 10.2.1947, maki Kristinn Víglunds- son, þau eiga þijár dætur og sjö barnabörn. 4) Einar f. 22.05.1951, hann á fímm börn og eitt barna- barn. 5) Helgi f. 14.7. 1953, maki Þóra Einarsdóttir, þau eiga tvö börn. 6) Kári, f. 28.2. 1956, í sam- búð með Önnu Maríu Langer, hann á þijú börn. Elín er nú til heimilis í Foldabæ í Reykjavík. Guðbjörn og Elín hófu búskap á Kárastöðum 1943 og bjuggu þar til ársins 1979. Guðbjöm var hrepp- stjóri Þingvallahrepps 1947-1979 og sat í sýslunefnd. Hann var í sóknarnefnd Þingvallasóknar 1942-1960 og formaður Búnaðar- félags Þingvallahrepps um árabil. Hann var og lengi grenjaskytta sveitarinnar. Þá var hann með- hjálpari í Þingvallakirkju um margra ára skeið. Á árinu 1979 fluttu hjónin til Reykjavíkur. Þar starfaði hann fyrsta árið hjá Stétt- arsambandi bænda og síðan í Osta- og smjörsölunni meðan heilsan leyfði. Útfór Guðbjörns fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. GUÐBJORN EINARSSON íslendingar og fjölmargt fólk ann- arra þjóða hefur séð Þingvelli og Þingvallasveit í sumar- og haust- skrúða. Margt er sem laðar að, sagan og fegurðin þó mest. Stórbrotin verk _ jalds og umbrota úr jarðardjúpum eiga sér engan líka. Blágresið, lita- skrúð annars blómgróðurs og trjáa, silfurtærar vatnsgjár, eða yndis- stundir á bökkum hins mikla vatns, þegar blíður andvari á sólardegi hreyfir vatnsborðið, þannig að það merlar allt í silfruðum geislum, heilla alla sem fá að sjá og njóta. Á slíkum dögum má þess einnig vænta að heyra hljómkviður himbrimans, kon- ungs fugla vatnsins, óma bakka á milli. Færri þekkja Þingvallasveit í vetr- ,4fe"skrúða, þegar snjóar og ísalög setja svip á sveitina, tunglið varpar gullnum bjarma á hnúka og hjam- breiður undir stjömubjörtum himni. Hið stórkostlega sköpunarverk er umlukið himingnæfum ijöllum á alla vegu. I þessari fögm en harðbýlu sveit hefur þróast mannlíf í þúsund ár. Lengst af hefur hún verið afskekkt. Fjallaauðnir taka við utan heima- Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri mblómaverkstæði I INNAfe | Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áratöng reynsla. Svemr Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 •Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ landa býla. Sveitin var mun fjöl- mennari fyrr á tíð, því mörg býli lögðust af við stofnun þjóðgarðs á Þingvöllum 1928. íbúar sveitarinnar lifðu löngum af því, sem landið og vatnið gaf og urðu að bjarga sér sjálf- ir með samgöngur, einkum að vetr- um. AUtaf komust menn það sem þurfti, því heimamenn bjuggu bæði yfir kjarki og ráðsnilld. Erfitt var og er um ræktun og öflun töðufengs, en vatnið gjöfult, sem tryggði fólki ný- meti. Silungur og murta voru auk þess notuð í vöruskiptum við ná- grannabyggðir. Ein af jörðum sveitarinnar er Kárastaðir. í jarðabók Áma Magn- ússonar og Páls Vídalíns frá 1711 er jörðinni ekki lýst sem neinni kosta- jörð, fremur en öðrum jörðum í sveit- inni, þar segir m.a.: „Túnið spillist af leiráburði, sem gil eitt áber. Engjar eru engar vissar, nema kropp í laut- um út um hagann hingað og þangað. Hér er hætt stórum mönnum og fén- aði fyrir gjám og klettaskorum þá snjó leggur yfir. Torfrista og stunga er hér og h'tt nýtandi. Þessi jörð mætir og stórfelldum skaða af hesta- beit alþingismanna og svo annarra lestamanna. Vatnsból þrýtur hér í mestu þurrkasumrum og er þá langt og erfítt vatns að orka.“ Um aldamótin 1900 fluttu hjónin Halldór Einarsson og Jóhanna Magnúsdóttir frá Skálabrekku í Þingvallasveit, að Kárastöðum. Son- ur þeirra, Einar og Guðrún Sigurðar- dóttir frá Hrauntúni í Þingvallasveit, kona hans, tóku síðar við búinu. Kárastaðir urðu á þessu tímabili öflugt býli, en mikil aðföng þurfti, því heimilið var fjölmennt. Böm Einars og Guðrúnar urðu 11. Af þeim kom- ust 9 til fullorðinsára. Árið 1925 var lokið við byggingu mikils íbúðarhúss á Kárastöðum, sem enn stendur og var á sínum tíma með reisulegustu húsum í sveit á ís- landi. í húsinu var aðstaða til að hýsa ferðamenn og aðra gesti, enda mun það m.a. hafa verið tilgangurinn með byggingu stórhýsisins. Kárastaðir urðu þannig eitt fyrsta ferðaþjónustubýli á íslandi og vænk- aðist hagur heimilisins á næstu ár- um, sem varð á margan hátt miðdep- ill sveitarinnar. Einar varð hreppstjóri í sveitinni og sýslunefndarmaður Árnessýslu, auk margra annarra trúnaðarstarfa. Margir áttu því erindi heim að Kára- stöðum og þar var oft „hlegið hátt og hent að mörgu gaman.“ Heimafólk í sveitinni sló oft upp balli í hinum rúmgóðu húsakynnum. Ekki skorti undirleik meðan Halldór Einarsson var enn í foreldrahúsum, en hann varð einn vinsælasti harmoníkuleik- arilandsins. í þessu umhverfi fæddist Guð- bjöm og fóstraðist. Ætt hans, um- fram það sem að framan greinir, má m.a. rekja til sr. Páls Þorlákssonar, prests á Þingvöllum, 1780-1818, bróður Jóns Þorlákssonar, prests og skálds á Bægisá. Hann ólst upp við öll venjuleg sveitastörf, fjárhirslu, veiði í Þingvallavatni, rjúpna- og refaveiði. Hann varð slyngur og ann- álaður veiðimaður og grenjaskytta. Um tvítugsaldur innritaðist hann í Bændaskólann á Hvanneyri og stundaði þar nám í tvo vetur. Þaðan útskrifaðist hann 1941 sem búfræð- ingur með hæstu einkunn sem gefin hafði verið við skólann, ágætiseink- unn 9,52. Hann reyndist jafnvígur á bóklegt og verklegt nám, fékk t.d. einkunnina 10 í búfræði, búfjárrækt, búreikningum og jarðrækt, en var einnig í efstu mörkum einkunnaskal- ans með 10 í verklegum fögum og fyrir dugnað við verkleg störf. En Guðbjöm jók ekki aðeins þekk- ingu sína á Hvanneyri, sem átti eftir að nýtast honum á svo margvíslegan hátt í lífi og starfi. Þar hitti hann El- ínu Helgadóttur frá Bjargi í Vopna- firði, sem var við störf á Hvanneyri og varð eiginkona hans árið 1943. Þau fylgdust eftir það að meðan líf entist báðum og gerðist Elín hús- móðir á Kárastöðum við hlið tengda- móður sinnar. Einar, faðir Guðbjöms, dó um ald- ur fram árið 1947 og tók þá Guðjöm fljótlega að sér stjórn og rekstur Kárastaðabúsins og hins mannmarga heimilis. Hann gaf sig ekki að ferða- mannaþjónustu, nema af greiðvikni við kunningja og vini, en leitaði þess í stað eftir að efla búrekstur. Sauðfjár- bú hans varð mjög afurðagott og hann leitaði allra tiltækra leiða til að stækka töðuvöll og auka þar með heyfeng, en þar var erfitt um vik, eins og framanskráð jarðarlýsing ber með sér. Hann byggði mikinn og góð- an húsakost yfir búfénað. Veiði í Þingvallavatni var sótt fast og þurfti oft harðneskju til, t.d. við murtuveiði á haustin. Hann lét byggja stóran bát með stýrishúsi, sem hann skírði í höfuð hollvættar sveitarinnar. Armaður hét báturinn og leitaði Guðbjöm á honum með nýtísku leitartækjum eftir afla á dýpra vatni, og lengra úti en áður hafði verið gert. Jafnframt byggði hann í nýju íbúðarhúsi starfsaðstöðu til þess að hreinsa afla og pakka sam- kvæmt ströngustu hreinlætiskröf- um. Hann lagði mikla vinnu og fjár- muni í þessi verkefni, sem að hluta mátti kalla rannsóknar- og þróunar- verkefni, en naut ekki fyrirgreiðslu, eins og nú mundi vera samkvæmt þeirri stefnu að stuðla að auknum at- vinnutækifærum og fjármunamynd- un í dreifbýli. Erfið markaðsöflun réði sennilega mestu um að viðfangs- efnið skilaði ekki því, sem Guðbjörn hafði vænst. Ekki er heiglum hent að stunda veiði í Þingvallavatni, en þó að mörg harmsagan og margur mannskaðinn hafi orðið á vatninu, hefur gæfan löngum fylgt bændunum, sem hafa sótt hluta af lífsafkomu sinni í vatnið. Þeir þekkja það og kunna að meta aðstæður. Þeir hafa sagt mér að við erfiðar aðstæður verði öldudalir svo djúpir að ekki sjái úr þeim til fjalla. Með tímanum hlóðust margvísleg trúnaðarstörf á Guðbjörn, bæði fyrir sveit hans og sýslu. Hann var um áratugi hreppstjóri, hreppsnefndar- maður, í sóknamefnd og meðhjálpari í Þingvallakirkju, fjallkóngur, sýslu- nefndarmaður og formaður búnaðar- félags sveitai- sinnar. Hann sat nokk- ur landsþing Landssambands hestamannafélaga fyrir félag sitt, Trausta. Guðbjörn var ágætur hesta- maður og voru löngum öflugir reið- hestar á búi hans. Á hinum miklu ferðum sínum gangandi eða á hestum um fjöll, firn- indi og heimaslóðir sveitar sinnar, varð hann þaulkunnugur hverri slóð, laut eða leiti, svo að hann þekkti sveit sína og fjöll til hlítar og vissi nafn á hverju kennileiti. En hann vissi svo miklu meira. Hann þekkti þá sögu sem tengdist hinum fjölmörgu sögu- sviðum Þingvalla. Á ferðum mínum með honum, gangandi og á hestbaki, um sveitina hans og fjöllin sem um- luktu hana, komst ég að hvað þekk- ing hans var djúpstæð um jarðsögu og náttúrufræði almennt. Hann kunni skil á öllu sem á vegi okkar varð. Jafnvel steinar áttu nöfn, hjall- ar og hólar. Það flaug ekki fugl, sem hann ekki þekkti og hann kunni til fullnustu skil á öllum gróðri sem við götu okkar greri. Yfirburðagreind Guðbjöns og. óbrigðult minni hefðu dugað honum vel sem náttúruvísindamanni og prófessor, hefðu honum gefist tæki- færi til náms á þeim vettvangi. „Hann nam náttúrunnar mál, hann nam tungur fjalla.“ Margar og ógleymanlegar minn- ingar um samverustundir með Guð- birni í hans heimabyggð leita á hug- ann á kveðjustund. Ein þeirra skal sögð hér. Við riðum á sumardegi til móts við ferðafólk á hestum, sem stefndi um fjöll í Þingvallasveit. Þegar við vor- um komnir á þær slóðir, sem vænta mátti að leiðir lægju saman, var skollin á niðaþoka, hnífskui-ðarþoka, sagði Guðbjöm. Við hóuðum og köll- uðum, en þögnin ein og kyrrðin svör- uðu. Við riðum fram og til baka slóða, sem við sáum móta fyrir, án árang- urs. Þá bað Guðbjörn um að við hefðum algjöra þögn. Að drykklangri stund liðinni sagði hann: „Nú voru menn hér í nánd á ferð.“ Ég spurði hvemig hann skynjaði það. „Fuglarnir segja mér það,“ var svarið. Var nú riðið hið snarasta þangað sem hann hafði heyrt mestan óróa sumarfuglanna. Þar kraup Guðbjöm niður og fann hófafór, sem hann taldi ný. Mér fannst hann huga að þeim líkt og ég hafði lesið um ungur í indíánasögum. Stefnan var nú ráðin og sporaslóðin rakin svo greitt sem aðstæður leyfðu. Þar kom að við riðum uppi þá sem við leituðum. Glöð riðum við síðan úr fjötram þokunnar niður í Þingvalla- sveit. Kárastaðir stóðu búskapartíð El- ínar og Guðbjöms um þjóðbraut þvera, jafnt og áður um aldir. Gesta- gangur var mikill alla þeirra búskap- artíð, jafnvel svo að með ólíkindum mátti telja. Allt árið, utan vetrarmán- uði, sem ófærð hindraði, streymdu að þeim rausnargarði ættmenni, vinir og kunningjar og aldrei munu dæmi þess að gestum hafi ekki verið vel tekið. Elín stjórnaði af röggsemi öllu innanhúss og átti alltaf góðan mat og kaffibrauð að bjóða gestum. Böm Elínar og Guðbjöms em 6, öll hið mesta mannkostafólk. Auk þeirra vora vinnuhjú á heimilinu, sem höfðu ráðið sig þar ótímabundið til vinnumennsku, en sátu flest ævi- langt. Lengsta vist vinnuhjúa átti Sigurður Sigurðsson frá Tannastöð- um, sem réðist til heimilisins í tíð Halldórs, afa Guðbjörns og vann heimilinu samfellt í 60 ár. Þau ár sem mest voru umsvif á Kárastöðum og böm húsbænda enn á heimaslóð, munu 12-15 manns hafa setið þar daglega að matar- og kaffiborðum, svo rekstur heimilisins hefur hvílt þungt á húsráðendum. I öllu dagfari var Guðbjöm háttvís og hógvær, umtalsfrómur og einstak- lega skemmtilegur viðmælandi, því hugur hans var vakandi um allt sem varðaði líf og hag manna í okkar landi eða hvar annars staðar sem var á hnettinum. Hann hafði gott skop- skyn, sagði skemmtilegar sögur, sem engan meiddu. Að ytri gerð var Guðbjörn vörpu- legur maður í hærra meðallagi, fal- lega limaður, fríður og vel á sig kom- inn. Vöðvastæltur var hann og vissu fáir afl hans meðan hann var upp á sitt besta. Að því kom að sjúkdómur sótti á Guðbjöm, sem margan bóndann hef- ur lagt að velli, lungnaveiki. Þegar svo var komið brugðu þau búi, Elín og Guðbjöm og fluttu til Reykjavík- ur. Þar starfaði Guðbjörn við góðan orðstír hjá Stéttarsambandi bænda og síðar Osta- og smjörsölunni, þar til hann lét af störfum fyrir aldurs- sakir. Auk þ_ess réri hann til fiskjar á trillu sinni, Armanni, frá Olafsvík tvö sumur. I veikindum sínum síðustu æviárin hefui' hann notið einstakrar umhyggju eiginkonu, meðan henni entist heilsa, barna sinna og systra og þó mörg síðustu árin væm honum mildð erfið heyrðist aldrei æðraorð. í dag stend ég á vegamótum og horfi á eftir hollvini um áratugaskeið, sem ég átti svo óendanlega margvís- leg samskipti við. Ekkert veit ég sem kemur í það tómarúm, en ei skal fella tár heldur þakka það sem var. Á þeim vegamótum færam við Pál- ína, eiginkona mín, tryggðatröllinu Guðbimi einlægar þakkir og biðjum þess að hann megi hvíla ljúft í faðmi fóstru okkar allra. Sveinbjöm Dagfínnsson. Tíminn líður, hægt eða hratt eftir aðstæðum. Frændur og vinfr kveðja einn af öðram. Með fáum orðum vildi ég minnast Guðbjörns Einarssonar og foreldra hans, hjónanna á Kára- stöðum í Þingvallasveit, þeirra Guð- rúnar Sigurðardóttur og Einars Halldórssonar móðurbróður míns og látinna bama þeirra. Ég kom fyrst að Kárastöðum á vordögum 1928 þá tæplega 17 ára og skyldi gerast þar sumarmaður við venjuleg bústörf þeirra tíma. Þá vora börnin 7 eða 8. Halldór elstur, tveim- ur áram yngrí en ég. Það er ekki að orðlengja það að ég varð strax einn af þessum bamahópi. Ég hafði misst móður mína 10 ára gamall og farið á milli fjögurra heimila á þessum 7 ár- um. Mér leið ekki illa á þessum heim- ilum en móðurlega hlýjuna fann ég hvergi. En hér var ég kominn inn í stóra fjölskyldu og Guðrún tók mér eins og einu bama sinna, hún varð bókstaflega móðir mín. Þetta varð dýrðlegt sumar með mikla vinnu mikinn gleðskap og leik. Um haustið fór ég í Flensborgar- skólann og Guðrún sá um ferðbúnað minn og það hefði engin móðir gert betur. Á þeim ámm hafði ég sjálfsagt ekki vit á að þakka henni sem skyldi, en síðar fann ég hve umhyggja henn- ar var mér mikils virði. Af Einari hafði ég ekki mikil kynni. Hann var góður húsbóndi en nokkuð eftir- gangssamur með vinnu, enda sjálfur óhemju duglegur. Öll mín skólaár í Flensborg og Kennaraskóla átti ég samastað á Kárastöðum, dvaldi þar m.a. alltaf á jólum, og ævinlega stakk Guðrún að mér notalegum böggli að skilnaði. Á þessum ámm átti ég einnig athvarf í Reykjavík á Skólavörðustíg 28 hjá Steinunni og Magnúsi Skaft- fjeld, móðurbróður. Þar vom einnig Kárastaðasystkin oft á ferð. Þessar tvær konur, Guðrún á Kárastöðum og Steinunn á Skólavörðustígnum vora mér eins og mömmur öll mín skólaár og reyndar miklu lengur. Haustið 1932 gerist ég kennari í Þingvallasveit með aðalbækistöð á Kárastöðum en þetta var fjarkennsla og dvalið á fleiri stöðum í sveitinni. Þá vom eldri frændsystkini mín af skólaaldri en þó urðu nokkur þeirra nemendur mínir þeirra á meðal Guð- björn, sem kvaddur er í dag, skemmtilegur og bráðgreindur ung- lingur eins og þau öll systkinin. Það var mikið lán fyrir mig, nýgræðing í kennslu, að fá svo skemmtilega og viðráðanlega nemendur mitt fyrsta kennsluár. Á þessum ámm var margt ung- menna í sveitinni og töluvert félags- líf. Við stofnuðum félagsskap og nefndum hann Örninn unga. Eitt sinn spurði Halldór í Hrauntúni mig, hvort örninn væri orðinn fleygur. Sennilega varð hann það aldrei, því að ævin varð ekki löng. En það var ýmislegt gert. Það var komið saman og spjallað, æfð glíma og Einar, sem tók þátt í konungsglímunni 1907 gat ýmislegt kennt okkur í þeim efnum. Þá var dansað bæði í heimahúsum og Konungshúsinu. Halldór sá um mús-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.