Morgunblaðið - 02.08.2000, Blaðsíða 52
.52 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Grettir
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Það er slæmt að byija ökuferilinn með fantaskap, svikum og prettum,
segir greinarhöfundur.
Ferdinand
Smáfólk
HERE'5 THE BOOK VOU'RE
5UPP0SEP TO REAP THI5
5UMMER ..IT‘5 CALLEP
‘‘TE550FTHE D'URBERVILLE5"
Hér er bókin sem þú átt að lega í sumar..
Hún heitir “Þura í Þaraþorpum”
Þura í hverju?
Þetta er góður titill..
ég verð að muna hann
Enn og aftur
um bilatryg'g1-
ingarnar
Frá Hákoni H. Kristjónssyni:
HÉR KEMUR bráðskemmtileg
saga úr umferðinni í Reykjavík. Ég
ók Sæbraut austur um daginn og var
á hægri akrein í akstursröð bíla.
Ekki var samfelld bílaröð á vinstri
akrein er saga þessi hefst, en hún
hefst eiginlega með því að stór jeppi
á vinstri akrein dregur mig uppi og
skellir hægra framhjóli utaní vinstra
afturbretti og vinstra afturhjól hjá
mér og þýtur síðan áfram fram úr
mér. Þegar hann var kominn fram
fyrir sá ég og konan mín, sem með
mér var, bílnúmerið eins greinilega
og þú lesandi góður sérð þessar lín-
ur. Númerið var strax skrifað niður
og ekki stoppaði jeppagæinn. Ég var
með símann í vasanum og hringdi
strax í lögregluna. Sagði frá hvað
gerðst hefði og bað þá að fara á móti
kauða. Já við reynum það, sagði lög-
reglumaðurinn. Við töluðum aðeins
meira saman og ég lýsti lit jeppans.
Já, það stemmir, sagði lögreglumað-
urinn og var auðsjáanlega búinn að
fá nafn og númer upp á skjáinn hjá
sér. Ekki var minnst á stút við stýr-
ið, en hefði strákurinn verið á hægri
akrein og ekið eins og hann gerði, þá
hefði jeppinn að öllum líkindum
hoppað upp á gangstétt, ef til vill
lent á næsta ljósastaur og jafnvel
kannske á manneskju á gangstétt-
inni. Ja hérna, svona verða slysin.
Ég grennslaðist ekkert fyrir um
gang málsins hjá lögreglunni fyrr en
skömmu áður en bíllinn átti að fara í
viðgerð. Ég hélt satt að segja að
málið væri í einhverjum venju-
bundnum farvegi hjá lögreglu. Ég
talaði við starfsmann tryggingarfé-
lags jeppans sem í þessu tilfelli er
Tryggingarmiðstöðin. Hann sagði
mér að ég fengi ekki bætur út á þá
lögregluskýrslu sem þeir hefðu und-
ir höndum og til að fá bætur þyrfti
ég að útvega frekari gögn. Þaðan hef
ég það, að tveim dögum eftir
„óhappið" er eigandinn spurður af
lögreglu. Ekki er þess getið að reynt
hafí verið að ná tO hans fyrr. Hann
sagðist ekki hafa verið á Sæbraut-
inni á umræddum tíma og ekki hafði
hann lánað jeppann. Ekki sést af
skýrslunni hvort hann var spurður
að því, hvar hann hefði verið og það-
an af síður í hvers félagsskap, enda
er slíkt hinn mesti fruntaskapur lög-
reglu og sést aðeins í amerískum
kvikmyndum af verstu gerð. I
skýrslunni segir, að á mínum bfl sé
hvítur og svartur litur á áverka-
staðnum og að á hjólbörðum jeppans
(ég skýt því hér inn til gamans að
þeir eru svartir) sé tegundarnafn
með hvítum stöfum. Síðan kemur
orðrétt: „Á hægra framhjólbarða
mátti sjá að málningin á stöfunum
var máð til yfir hjólbarðann á nokkr-
um stöðum. Skoðuðum við aðra hjól-
barða bifreiðarinnar og reyndist
þetta vera eini hjólbarðinn sem sjá
mátti að málningin hefði runnið til
á.“ Lögreglumennirnir geta þess í
skýrslu sinni að eigandinn hafí enga
skýringu gefíð á því „af hveiju máln-
ingin á hægri hjólbarða að framan
væri runnin til.“ Ekki er þess getið í
skýrslunni hvort mynd var tekin af
hjólinu eða málningarsýni.
Ég tek máli þessu létt og lít á það
sem hálfgerðan brandara enda er ég
tryggður í bak og fyrir hjá Sjóvá/
Almennum. Ég er hvorki einstæð
móðir né öryrki og hefi blessunar-
lega alltaf verið bjargálna svo
sjálfsábyrgðin sligar mig ekki fjár-
hagslega, en þú lesandi góður kannt
að verða að bera þinn hluta af þessu
tjóni eins og svo mörgum öðrum og
skyldi engan undra þótt iðgjöldin
séu há. Það er bara verst með strák-
inn sem byrjar sinn feril með fanta-
skap, svikum og prettum, því hvað
ungur nemur sér gamall temur.
HÁKON H. KRISTJÓNSSON,
Hverfisgötu 16/A, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Jk,