Morgunblaðið - 02.08.2000, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
i
Matur og matgerð
TÓMATAR
Nú eru tómatar ódýrlr, segir Kristín
Gestsdóttir og ærín ástæða til að borða
mikið af þeim, enda eru þeir bæði A-
og C-vítamínauðugir.
MERKI þess að sumri sé
tekið að halla er að
krían er að mestu
horfín héðan af Garða-
holtinu niður að sjó, en þangað fer
hún þegar dimma tekur yfír land-
inu.
Ungamir eru orðnir fleygir, þó
ekki séu nema um 10 vikur síðan
krían kom í vor, en hún verpir ekki
fyrr en í lok maí. Brátt hverfur hún
með unga sína hina löngu ferð suð-
ur yfir hafið. Annar sumargestur,
sílamávurinn, ekki eins kærkom-
inn, hefur tekið völdin og gargar
nú af öllum kröftum: „Hér ræð ég.“
Tómatar lækkuðu um daginn
verulega í verði og nú er það
verðhrun sem ber nafn með rentu,
ekki eins og fyrr í sumar, þegar
verðhrun á tómötum var auglýst
og tómatamir kostuðu eftir sem
áður mörg hundmð krónur kílóið.
Tómatar eru upprunnir í And-
esfjallasvæðum Bólivíu og Perú.
Þar vaxa enn villtir örsmáir tómat-
ar, en indíánar kynbættu þá löngu
áður en hvíti maðurinn sté þar á
land. Þeir hétu tomatl á máli inn-
byggja, og er það nafn lítið breytt
notað víðast hvar.
ítaiir vom íyrstir Evrópubúa til
að borða tómata og borða mest af
þeim enn í dag.
Áið 1554 kölluðu ítalir tómata
gullepli, en Frakkar bættu um bet-
ur og kölluðu þá ástarepli. Tómat-
ar vora á þeim tíma ræktaðir tii
skrauts í Englandi, Spáni og Mið-
Evrópu. Það var svo ekki fyrr en
upp úr 1880 sem Mið- og Norður-
Evrópubúar fóm að borða tómata
svo nokkm nam. Og enn síðar Is-
lendingar af skiljanlegum ástæð-
um.
Áhugasamir íslenskir ræktunar-
menn ræktuðu tómata við jarðhita
allt frá árinu 1913. Árið 1930 höfðu
risið hér nokkur gróðurhús fyrir
tómata, sem seldir vora almenn-
ingi, en upp úr 1940 komst skriður
á tómatasöluna. íslendingar kom-
ust fljótt á bragðið, og þeir, sem
sjaldan eða aldrei borða grænmeti
nú, borða samt tómata. Að mínu
mati era tómatar ómissandi í mat-
argerð, þó ég sleppi oftast hinni
vinsælu tómatsósu í minni mat-
reiðslu.
Fylltir tómatar
6 frekar stórir tómatqr
Vi tsk. timian eða heldur meira
ferskt blóðberg
1 dl frosinn eða niðursoðinn maís
talsvert mikið ferskt spínat eða Vi dl
niðursoðið
___________1 dl kotasæla_________
_________nýmalaður pipar_________
1. Skerið þunna sneið ofan af
tómötunum stilkmegin, holið þá
síðan að innan, en gangið ekki
næm húðinni. Hvolfið þeim og lát-
ið renna úr þeim. Stráið timian inn
íþá.
2. Sjóðið maísinn í 4 mínútur, ef
hann er frosinn. Dósamaís þarf
ekki að sjóða. Síið maísinn og setjið
í skál. Þvoið spínatið, setjið í pott
og sjóðið í 4-5 mínútur í vatninu
sem situr á blöðunum. Hellið á
sigti, kælið örlítið en kreistið síðan
safann úr því, saxið og setjið með í
skálina. Setjið kotasæluna út í,
blandið saman og fyllið tómatana
með þessu. Malið pipar yfir.
3. Hitið bakaraofn í 200°C og
bakið í um 8 mínútur.
Athugið: Þetta má grilla, setja á
álbakka og hvolfa öðrum álbakka
eða álpappír yfír.
Þetta er gott með grilluðu kjöti
og hentar Mka sem forréttur.
Tómatbaka
30 Ritz-kexkökur
____________2egg_____________
1 dós Campbell's þykk tómatsúpa,
____________295g_____________
_______Vi dós sýrður rjómi___
4 meðalstórir tómatar
_________1 gænt súrt epli____
1 Vi dl mjólkurostur, sú tegund
________sem ykkur hentar_____
4 sneiöar beikon
1. Myljið kexkökurnar lauslega
og setjið á botninn á eldfóstu,
djúpu fati.
2. Þeytið eggin, setjið súpuna og
sýrða rjómann út í. Hellið yfír
kexkökumar.
3. Afhýðið eplið, takið úr því
kjamann, skerið í þunn rif og
stingið ofan í súpuna.
4. Skerið tómatana í sneiðar og
raðið yfir, rífíð ostinn og stráið yfir.
5. Klippið beikonið í litla bita og
stráið yfir.
6. Hitið bakaraofn í 190°C, blást-
ursofn í 180°C, setjið í miðjan ofn-
inn og bakið í 35-40 mínútur.
VELVAKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Umferð
og fordómar
MIKIÐ eru þau hræðileg
öll þessi umferðarslys. Nær
daglega sé ég í fréttum
sjónvarps klessukeyrða
bíla á vegum eða sem hafa
hafnað úti í móa. Rútur
lenda á hliðinni og fólk
meira og minna slasað. Það
setur að manni hroll og
maður spyr hver er næstur
og hvers vegna öll þessi
slys. Margir tala um of
hraðan akstur og eflaust á
það sinn stóra þátt í þessu,
en það er ekki bara úti á
vegum sem slysin verða.
Maður þakkar Guði fyrir að
sleppa lifandi og ómeiddur
hvem dag í umferðinni. Það
er orðið allt of mikið af bíl-
um. Götur og vegir bera
ekki allan þennan þunga,
en það þykir aumingja-
skapur að kjósa frekar að
fara með strætisvagni leið-
ar sinnar, heldur en að gera
út rándýran einkabíl. Karl-
rembur keyra hér um á
ofsahraða og þeir ætla sko
að sýna konum það, að þeir
ráði í umferðinni. Þeir
horfa storkandi á konurnar
í umferðinni um leið og þeir
taka af þeim réttinn.
Stressið er mikið og það er
varla komið gult ljós þegar
lagst er á flautuna fyrir aft-
an næsta bíl. Konur verða
þvi miður oftar fyrir slíku.
Ungir strákar stíga bensin-
ið í botn til þess að sýna að
þeir séu karlar í krapinu og
það er ekki von á góðu með-
an frekja, fordómar og til-
litsleysi ráða ferðinni í um-
ferðinni hér. Konur geta
verið glannar líka, en sjald-
séðara. Við þurfum að fara
að hugsa öðruvísi. Það
gengur ekki lengur að um-
ferðin sé eins og rússnesk
rúlletta. Það þyrfti að sýna
meira hversu hörmulegar
afleiðingar umfei-ðarslysa
geta verið.
Sigrún.
Fréttaflutningur
af slysum
ÉG hef aldrei getað fellt
mig við þegar einstaklingur
lætur lífíð í slysi eða voveif-
legum atburði, er ávallt
sagt í fréttum um slysið,
viðkomandi var ógiftur og
barnlaus. En hvað með for-
eldra sem eru á lífi? Þeir
eru ekki nefndir. Eru þeir
ekki í sárri sorg að missa
son eða dóttur? Þeir eru
sniðgengnir í fréttaflutn-
ingi. Ég vona að frétta-
menn sjái sóma sinn í því að
gleyma ekki foreldrum ef
þeir eru á h'fi. Þetta er að-
eins mannleg áskorun til
ykkar.
270825-4439.
Þakkir fyrir
Víkverja
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi lýsa
ánægju sinni með Víkverja
Morgunblaðsins fyrir
stuttu, þar sem hann skrif-
ar um tryggingamál. Hún
var afskaplega ánægð með
skrifin hans.
Um vöruverð
ÞAÐ virðist vera gegnum-
gangandi í nær öllum versl-
unum að verð á vöru endar
á 99 krónum. Á ég bágt með
að skilja þetta. Hvaða skýr-
ingu geta verslunareigend-
ur gefið á þessu? Getur
aldrei nein vara kostað 100
krónur eða 90 krónur?
Starfsfólk segir þetta sál-
rænt en halda verslunar-
eigendur að maður sé svo
vitlaus að maður kaupi
þetta frekar. Finnst mér
þetta frekar fráhrindandi
verð og eru margir sam-
mála mér um það. Hef ég
það á tilfinningunni að það
sé verið að plata viðskipta-
vininn. Ég skil heldur ekki
sumar hækkanir á vörum
og nefni sem dæmi verð á
ýsuflökum sem eru á kr.
899 í versiun í Garðabæ og
hefur nýlega hækkað úr
799 krónum. Hvernig
stendur á þvi að hækkunin
er akkúrat þannig að verðið
endar á 99 krónum?
Árni Gunnarsson,
Móaflöt, Garðabæ.
Tapad/fundið
Pro-Style hjól hvarf
frá Stóragerði
PRO-STYLE silfurlitað
hjól með grænum keðjulás
og sprungnu afturdekki,
hvarf frá Stóragerði 8,
fostudagskvöldið 28. júlí
eða aðfaranótt laugardags-
ins 29. júh' sl. Eigandi hjóls-
ins er tíu ára drengur og
saknar hann þess sárt. Ef
einhver getur gefið upplýs-
ingar um hjólið, er hann
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 553-
2307.
Myndavél
tapaðist
PENTAX espio 738G tap-
aðist annaðhvort á Egils-
stöðum eða í Atlavík laug-
ardaginn 22. júlí sl.
Finnandi vinsamlegast hafí
samband í síma 866-5592
eða 551-8535.
Lyklakippa
tapaðist
LYKLAKIPPA með hvít-
um hafnabolta tapaðist í
Fossvogsdal fyrir stuttu.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 564-1184 eða
555-1748.
Húslykill í óskilum
Húslykill fannst á bílaplan-
inu fyrir ofan Gróttu. Upp-
lýsingar í síma 561-1795.
Fjarstýring
að Benz tapaðist
SVÖRT fjarstýring að
Benz tapaðist á Nesvegi
mánudaginn 31. júlí sl.
Upplýsingar í síma 551-
6813 eða 896-3808.
Poki með
fatnaði tapaðist
STÓR Nanoq-bréfpoki tap-
aðist um kl. 16 mánudaginn
24. júlí sl„ líklega á bíla-
stæðinu við Hringbraut
119, Reykjavík. í pokanum
voru tveir nýir Adidas-
íþróttagallar, annar grænn
og blár barnagalli, hinn silf-
urhtaður og blár fullorðins-
galli. Nýr blár fullorðins
Adidas-anorakkur og grá
Max-flíspeysa. Pokans er
sárt saknað. Skilvís og heið-
arlegur finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 466-2676 eða
864-0876. Fundarlaun.
Myndavélataska
tapaðist
SVÖRT og blá myndavéla-
taska, frekar lítil, með einu
flassi innanborðs, tapaðist
fyrir um það bil mánuði.
Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 864-0511.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
TÓLF vikna kettlingur
fæst gefins á gott heimili
vegna ofnæmis. Upplýsing-
ar í síma 565-1169.
Læða týndist
í Garðabæ
ÞRILIT læða, smávaxin og
eyrnamerkt hvarf að heim-
an frá sér í Garðabæ sl.
fimmtudag. Hún var með
rauða ól með þremur bjöll-
um þegar hún hvarf en hún
gæti hafa misst hana af sér.
Þeir sem hafa orðið varir
við hana vinsamlega látið
vita í síma 565-6154 eða
567-3844.
Átta kettlingar
fást gefins
ÁTTA krúttlegir ketthngar
fást gefms á góð heimili.
Þeir eru þriggja mánaða og
kassavanir. Upplýsingar í
síma 698-6691.
Víkverii skrifar...
MIKIÐ er um að við íslendingar
ferðumst í útlöndum á bfla-
leigubflum. Við kaupum hagstæð
flugfargjöld til einhverrar borgar á
meginlandinu, leigjum bfl og þeysum
fram og til baka, þúsundir kflómetra
og látum okkur ekki muna um að
heimsækja nokkur lönd í slíkum túr.
Víkverji heyrði á dögunum af fólki
sem hugðist leigja bfl í útlandinu og
bregða sér bæjarleið. Það hefði ekki
verið undirbúið áður en farið var að
heiman enda kom þessi hugmynd
ekki upp fyrr en út var komið. Því
var haldið á afgreiðslu bflaleigu úti
þar og spurt um verð. Fljótlega kom
í Ijós að einn galli var á gjöf Njarðar,
nefnilega sá að bflstjóri verður að
vera orðinn 25 ára. Erlendar bfla-
leigur leigja með öðram orðum ekki
ungum ökumönnum bfla. Kom þetta
á óvart þar sem þetta unga fólk hafði
áður leigt bíl erlendis án vandkvæða.
Og vora nú orðin ári eldri! Ekki veit
Víkverji rökin fyrir þessari reglu
nema ef væri sú reynsla erlendis sem
komið hefur á daginn hérlendis að
ungir ökumenn eru oftar viðriðnir
árekstra en þeir eldri og ráðsett-
ari.
Við lauslega könnun kemur á dag-
inn að bflaleigur erlendis hafa mjög
misjafnar reglur að þessu leytinu. í
sumum löndum verður fólk að vera
orðið 25 ára en í öðram nægir að vera
21 árs. Þá hafa sumar bílaleigur þá
reglu að leigja ungum ökumönnum
einungis minnstu bflana. Verða
menn í því tilviki að vera orðnir að
minnsta kosti 25 ára og jafnvel þrít-
ugir til að fá að aka á BMW eða
Mercedes Benz bílum frá slíkum
leigum.
Þetta er hins vegar vitneskja sem
menn fæðast ekki með eða öðlast
með móðurmjólkinni og þess vegna
ætti hún að koma betur fram hjá
ferðasölum þegar menn era að und-
irbúa utanlandsferðir: Ætli menn
sér að nota þennan ferðamöguleika
er hann að þessu leyti takmarkaður.
Og þótt íslendingar séu snillingar í
því að fara kringum hlutina þá dugar
til dæmis ekki að skrá nógu gamlan
ökumann fyrir bflnum og íáta annan
aka; báðir verða sem sé að sýna skil-
ríki og staðfesta með því aldur sinn
og reynslu í þessum efnum. Og jafn-
vel þótt menn kunni að svindla eitt-
hvað í þessum efnum getur það verið
varasamt því ef eitthvað kemur fyrir
er hugsanlegt að tryggingar geti
gert kröfu á hendur hinum of unga
ökumanni.
*
UR því verið er að tala um akstur
finnst Víkverja ástæða til að
nefna það sem honum virðist vera
batnandi umgengni eða öllu heldur
akstur á fjallvegum og jeppaslóð-
um. Með auknum áminningum um
að aka ekki utan slíkra slóða hefur
tekist að draga úr skemmdum. En
þetta gerist ekki með áróðri einum
saman. Á Lakavegi eru til dæmis
viða möguleikar á því að bregðast
sér út fyrir rudda slóð og fara ýmsa
útúrdúra. Þar hefur Vegagerðin séð
við slíkum ökumönnum með því að
loka snyrtilega af þar sem slíkir
slóðar hafa myndast. Þar efra er
líka friðland og ferðamenn áminntir
um að ganga og aka vel um. En það
er líka ágætt aðhald að sjá þessar
girðingar þannig að menn séu ekki í
neinum vafa og séu ekki að leika sér
að því að fara í för sem einhvern
tíma hafa myndast.
Þetta má sem sagt sjá víða á fjall-
vegum og ætti að vera öllum ökum-
önnum áminning um að aka ekki ut-
an skipulagðra slóða, að fara ekki í
hvaða hjólför sem er þótt það kunni
að vera spennandi.