Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
hUhUt ULP
Tísku- og tónlistar-
viðburður ársins
í Bláa Lóninu
11. og 12. ágúst.
....á mbl.is
A mbl.is geturöu fengið aö vita allt um Futurice, lesið greinar
sent hafa birst í Mogganum um viðburðinn, séð kynningar-
myndband, hlustað <i tóndæmi með Björk, Gus Gus, Móu &
Tbe Vinalistics og Bang Gang ásamt þvi að taka þátt í
spennandi netleik.
(VH'ð þvi að svara léttum sþurningum geturðu haft hoppnina með
þér og endað á Futurlce i Blaa tónínu!
Vinningar
■ 30.000 kr. uth'kt i TOPSNOP
sképör fra X18
mið.ir ,i hituriít,'
gttisil.idiskar ninð Bjúrk, Gus úus,
ít.itui G.ifit; o<; MÓU
Dagskrú:
Fnsiudagur II. .ujúst
18:00 ICcikifííil
Hrth I c.jíHvit.'
íiskmvnimi • Ailur Hi.ituhilUuí U.J ti.n.i HólinCH'iiMÍA'liir
Tlr.Kt.in-niini ■ A Vvunn
Món S ihf VinyliUi, - . ■...' s -
tiskusyninu ■’ Tristan VVébbei
Tískvisvnitru I l'ritlvOf Lovr K.utn.i t túð.i .
öus Cuis imtrumental ..- /rv :U-' '"'
tlskusýning Jóreniy Si ott tnuC' trtim-..iindn túníist ftá Öjíirk
Herb i niiovvít?
XÍ8 patiý ú Astro
Miðaverð kr. 4.900,-
Laugardagur 12. águst
11:4S Kokteill
Steini og Sbtvi úr Quarashi
Ljósrnyndasýrting
Satnsýning sjó ísíonskra hónriuða
Bang Gancj *,, •
liskusýning frá noriuenu menningarbotgumim Helsinkí óg Bergen
inPSHOP Londóh veiu’ hórmttð fyrir TS-Reykjavík
DJ Habll
1 ok.ip.iitv í boði Absolul Vo.tk.i
Míðaverð kr. 3,900,
l innig er hægl að k.iujl.v mió.i liuO., ti.nj.inu n kt. 7.800.
MíOasala i TOPSHOI’
j TÖPSHOP mun tak.i þ.Ht i I ulurtce mcð þvi .ið M'tiai
upp tiskusýningu á Inóðil'.iotgi ð memiin.i.imAttþ'
j laugarrfaginn 19, águst k! I ' 00
R E V i( J A V Í K
t iv iv i iu e.A ii h r > ri «; EVROPU
Ani« 3»ioíi
Ntmlisk Kuluirioiid
' * . v!,
fíUA ?
Wí»
úJ\
L<fL
||MI
t fl aM:C
TOPSHOP XI8 e.skjmo
mbl.is
F U T l J R 1 C E Á
•x.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þessir duglegu strákar, Samúel Magnússon og Arnór Freyr Fjölnisson,
héldu hlutaveltu á dögunum og söfnuðu þannig 3.230 krónum sem þeir
hafa afhent Rauða krossinum á Akureyri.
Thailandsvina-
félagið og Heims-
klúbbur Ingólfs
Ný ferðatil-
boð kynnt
í kvöld
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Heimsklúbbi Ingólfs:
„Mikil aukning hefur orðið á
Taílandsferðum frá Islandi, síðan
Heimsklúbburinn - Prima kynnti
þar nýjar ferðaleiðir fyrir tveimur
árum, og lætur nærri að um 1.000
Islendingar ferðist nú árlega til
Taílands í ferðum þeirra.
Ný ferðatilboð verða kynnt á
fundi Thailandsvinafélagsins á
Hótel Sögu í kvöld, m.a ferðir á
staði, sem teljast til hinna eftir-
sóttustu í Taílandi, en hafa aldrei
boðist Islendingum fyrr.
Fulltrúi Taílands á kynningunni
verður Krisana Paithai, ferðamála-
fulltrúi frá Ayutthaya í Taílandi,
sem mun kynna landið og heima-
slóðir sínar. Með sérsamningum
fæst ennþá gisting fyrir um 1.000
kr. á góðum gististöðum, sem er
forsenda þess að geta haldið hinu
lága verði, sem vart á sér hlið-
stæðu: flug til Austurlanda með
einu þekktasta flugfélagi heimsins,
gisting í 2 vikur á góðum hótelum
á þremur úrvalsstöðum landsins og
fararstjórn fyrir tæpar 100 þús. kr.
á mann. Auk þess hjálpar hið lága
verðlag í landinu, svo að heildar-
kostnaður ferðar getur orðið miklu
lægri en í Evrópu.
A kynningu Heimsklúbbsins á
Hótel Sögu í kvöld gilda sérstök
afsláttartilbpð í eina ferð í hverri
af þremur ólíkum ferðaáætlunum
til Taílands í vetur, t.d. í fyrstu
ferðina 6. sept. með nýrri áætlun.
Kynningin hefst með kvöldverðar-
fundi Thailandsvinafélagsins í
Skála Hótel Sögu kl. 19 í kvöld.
Nýir félagar geta gengið þar í fé-
lagið og notið þeirra hlunninda,
sem bjóðast í nafni þess hér heima
og á ýmsum stöðum í Taílandi.“
Markaður
í Skagafírði
SÍÐASTI markaður sumarsins í
Lónkoti verður haldinn sunnudag-
inn 27. ágúst nk. Markaðurinn er
opinn fyrir gesti frá kl. 13 til 18 en
sölufólk hefur tímann frá kl. 10 til
14 til að koma sér fyrir. Sölufólk
getur leigt borð hjá Ferðaþjónust-
unni Lónkoti.
Hinsegin
dagar í
Reykjavík
FIMM félagasamtök samkyn-
hneigðra efna til hátíðahalda í
Reykjavík dagana 10.-12. ágúst að
hætti lesbía og homma um allan
heim, en það er venja þeirra að
halda hátíð að sumarlagi undir kjör-
orðunum „gleði - stolt - sýnileiki“.
Hátíðahöldin 12. ágúst hefjast
með litríkri skrúðgöngu gegnum
miðbæ Reykjavíkur og leggur
gangan upp frá Hlemmi kl. 15.
Haldið er eftir Laugavegi og niður á
Ingólfstorg en þar hefst útiskemmt-
un kl. 16. Á Ingólfstorgi munu
fjallkarlinn og fjallkonan ávarpa
gesti en síðan stíga skemmtikraftar
á svið: Andrea Gylfadóttir og Lög-
reglukórinn syngja saman, Drottn-
ingar dagsins taka létta sveiflu, svo
og Felix Bergsson, Páll Óskar og
hljómsveitin Ótukt auk fleiri
skemmtikrafta. Hátíðinni lýkur
með því að hljómsveitin Bellatrix
leikur fyrir gesti.
Að kvöldi laugardags er efnt til
hátíðadansleiks - Gay Pride Queer
Disco - á skemmtistaðnum Spot-
light við Hverfísgötu og hefst hann
kl. 23.
Margt fleira er gert til hátíða-
brigða þessa helgi. 10. ágúst opnar
Sigga Birna ljósmyndasýningu í
Regnbogasal Samtakanna ’78 á
Laugavegi 3, undir heitinu „Litir, líf
og stolt“ en þar sýnir hún ljósmynd-
ir frá Gay Pride í New York 1999
þegar minnst var 30 ára afmælis
Stonewall-uppreisnarinnar, sem
markar tímamót í sögu samkyn-
hneigðra. Að kvöldi föstudagsins 11.
ágúst sýnir leikarinn Virginio Lima
frá Bretlandi kabarett sinn, „The
Blond Angel“ - Ljóshærði engillinn
í Kaffileikhúsinu, Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3. Um tónlistina sjá Pet-
er Murphy og Einar Örn Einarsson.
Kabarettinn er aðeins sýndur einu
sinni og hefst sýningin kl. 21.
Sýnikennsla
í blóma-
skreytingum
RLAUS Wagener, fyrrverandi
heimsmeistari í blómaskreytingum
og útgefandi eins virtasta blóma-
skreytingablaðs í Þýskalandi, er
staddur hér á landi, segir í fréttatil-
kynningu frá Garðyrkjuskólanum.
Hann verður með sýnikennslu í
blómaskreytingum á Garðyrkju-
skóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi
sunnudaginn 13. ágúst nk. Þar
gefst fagfólki og öllum þeim sem
áhuga hafa kostur á að fylgjast með
Klaus að störfum. Nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Garðyrkju-
skólans.
Athugasemd vegna umfjöllunar
um málefni fatlaðra á Akureyri
BORIST hefur eftirfarandi greinar-
gerð frá PricewaterhouseCoopers
(PwC) í tilefni af umræðu í fjölmiðl-
um um mat á árangri reynslusveitar-
félagaverkefnisins um málefni fatl-
aðra á Akureyri.
,Árið 1995 var PwC falið að taka út
tilraunir og meta hvemig hafi til tek-
ist með verkefni sem sveitarfélög
tóku að sér samkvæmt lögum um
reynslusveitarfélög. Gerðar hafa ver-
ið skýrslur fyrir hvert ár þar sem
gerð er grein fyrir árangri verkefn-
anna með mismunandi áherslum.
Nú liggja fyrir drög að heildarmati
á árangri þessara verkefna og verða
þau tekin til umfjöllunar í verkefnis-
stjórn verkefnisins að loknu sumar-
leyfi og niðurstöður kynntar opinber-
lega.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur verið vitnað í niður-
stöður þessara skýrslna þar sem
fram hefur komið að tilraunir
reynslusveitarfélaganna hafi náð
markmiðum sínum um að auka sjálf-
stjórn þeirra, laga stjómsýsluna bet-
ur að staðbundnum aðstæðum, bæta
þjónustu við íbúa og nýta betur fjár-
muni hins opinbera.
Reynslusveitarfélagaverkefnið
hefur auk framangreindra atriða
skilað margvíslegri annarri reynslu
sem er verðmæt fyrir þá sem koma
að þessum málum og ef framhald
verður með hliðstæðar tilraunir í nýj-
um verkefnum.
Reynsla hefur fengist bæði hjá
ráðuneytum og sveitarfélögum sem
að þessu verkefni hafa komið hvað
varðar innri samskipti, skipulag og
verkefnisstjómun.
Mikil vinna hefur verið lögð í að
skilgreina og þróa árangursmæli-
kvarða fyrir þá þjónustuþætti sem
tilraunimar ná til. í því sambandi hef-
ur verið leitað til ráðuneyta og sveit-
arfélaga eftir samstöðu um mæli-
kvarða sem best era fallnir til þess að
ná utan um þá þætti er varða mark-
mið laganna. Lögð hefur verið
áhersla á að mæla m.a. viðhorf not-
enda, bæjarbúa almennt, almennra
starfsmanna, stjórnenda bæjarfélag-
anna og fulltrúa þeirra ráðuneyta
sem koma að reynslusveitarfélaga-
verkefninu. Óhætt er að fullyrða að
mikið hefur áunnist í þessum efnum í
tengslum við verkefnið.
Mikil þróun hefur átt sér stað í
markmiðsstjórnun og árangursmæl-
ingum um allan heim þar sem aukin
krafa er gerð um mælanleika árang-
urs þó svo að slíkt sé ekki ávallt auð-
velt vegna huglægra þátta sem mæla
þarf.
Upplýsingakerfi sveitarfélaga
hafa verið að eflast og auðveldar það
sundurliðanir og fjármálalegan sam-
anburð í framtíðinni.
Reynslusveitarfélagaverkefnið
mun skila góðu innleggi í umræðuna
um árangursstjórnun og árangurs-
mat sem nýtast mun þeim og öðrum
sveitarfélögum.
Tíðrætt hefur verið um kostnað og
kostnaðarauka vegna málefna fatl-
aðra á Akureyri. I drögum að heild-
armati er gerð grein fyrir þessum
þáttum og þeir bomir saman við þró-
un annarra sveitarfélaga. Verkefnis-
stjórnin á eftir að fjalla um drögin en
að því loknu verður gerð ítarleg grein
fyrir niðurstöðum verkefnisins."