Morgunblaðið - 29.11.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 61
BRÉF TIL BLAÐSINS
I
i
I
l
i
Kaupum í krafti
Frá Flosa Guðmundssyni:
MÖRGUM er enn í fersku minni
ólund sú er greip um sig meðal
kirkjunnar manna er í ljós kom
áhugaleysi íslendinga á að fagna
þúsund ára afmæli þess sorgar-
atburðar er Noregskonungi tókst
með gíslatöku að þvinga forfeðurna
til að afnema tiúírelsi. Nú hefur
kirkjufeðrunum hugkvæmst það
snjallræði að fá Mammon með í liðið.
Kaupmenn sem auglýsa kristilega
eiga von á verðlaunum. En hvað er
kristilegt við jólin? Ekkert. Alls ekk-
ert.
Kristnir menn héldu ekki upp á
jólin fyrstu tvær eða þrjár aldirnar.
Nágrannar þeirra heiðingjarnir
gerðu það hinsvegai-. Um allan heim
heldur fólk upp á endurfæðingu sól-
arinnar á jólum. Á þriðju öld eftir
Krist var ákveðið að taka upp kristin
jól, af þeirri einföldu meginástæðu
að heiðingjarnir kærðu sig ekki um
að taka upp jólalausa trú. Þá kom sér
vel sagan um vitringana og gjafimar
þeirra. (Þessi saga er reyndar furðu-
lega lík sögunni af fæðingu Krishna
á Indlandi tólf hundruð árum fyrr.)
Valið á afmælisdegi fyrir Frelsar-
ann var ekki tilviljun. Það var líka á
þriðju öld. 25. desember er afmælis-
dagur flestra sólguða þar á meðal
Mithra sem ásamt Kristi var í fram-
boði sem ríkisguð Rómarveldis. Um
þetta leyti fann einnig hórkarlinn og
kirkjufaðirinn Ágústínus upp erfða-
syndina. Eg verð að viðurkenna að
ég kem ekki auga á hvaða þörf var á
því.
Tímabilið sem fór í hönd er kallað:
Hinar myrku miðaldir. Það er vegna
þess að kirkjan bannaði alla hugsun;
háskólar voru lagðir niður og fólk
var brennt á báli fyrir að vita eitt-
hvað sem stóð ekki í Biblíunni. Svo
eru menn sakaðir um ólund og annað
verra ef þeir fagna ekki þúsund ára
afmæli þessa ófagnaðar á íslandi.
Hafa skal það sem sannara reynist
stendur í góðri bók. Eftir því sem
þekking mannanna á umhverfmu
eykst verður ljósai-a að Biblían er
Endurbætt
stefnuskrá
Frá Kristleifi Þorsyeinssyni:
8. OKTÓBER síðastliðinn sendi ég í
bréfi til blaðsins drög að stefnuski-á
fyrir nýjan stjómmálaflokk sem heit-
•r Lýðræðisflokkui-inn. Stefna hans í
stuttu máli er sú, að böm, öiyrkjar og
eldra fólk verði talið fullgildir þegnar
þjóðfélagsins og eigendur ríkisins.
Ég hef gert smábreytingar á
stefnuski’ánni sem felast m.a. í því að
sérstök áhersla verði lögð á aðstoð við
böm og unglinga í leit að hæfileikum
þeirra og þeim verði síðan í framtíð-
inni beint að atvinnu, sem þau geti
unnið við af gleði og áhuga. Einnig að
bæta konum á einhvern hátt fyrir það
sem þær verða að þola vegna viðhalds
niannkynsins. Svo bætti ég við í sam-
bandi við útrýmingu eiturlyfjanotk-
unar að byrjað verði á því að útrýma
undirstöðunni, en það em hin leyfðu
eiturlyf alkóhól, nikótín og koffein.
Að lokum vil ég segja þetta. Ef
þjóðin yrði svo lánsöm að þessi flokk-
ur næði völdum þá verður hamingja
hennar fengin með vinnugleði og
miklum afköstum. Þá verður ekki
lengur baiist um peningana, allir fá
þá að jöfnu og eftir þörfum. Keppt
verður að auknum árangri í vinnu
með auknum afköstum og bættu
skipulagi. Þeir, sem rakað hafa að sér
peningum með vafasömum aðferðum,
verða fegnir að skila þeim aftur og
koma til heiðarlegrar vinnu. Þar
munu þeir finna hamingjuna.
Ef einhver hefur áhuga, get ég sent
honum drög að stefnuskránni. Sími
minn er 557 7620.
KRISTLEIFUR
ÞORSTEINSSON
frá Húsafelli.
„Tíöld“ og
samræmt tímatal
Frá Carli J. Eiríkssyni:
I MBL. 18. nóv. er grein um orðið
>.teinöld“ þar sem segir að þegar
ártalið hafi breyst úr 1999 í 2000
hafi verið liðin 2000 ár „frá holdgun
frelsarans að samræmdu tímatali
kristinna manna“. Það er rangt.
Þegar árið 2001 hefst, eru liðin
2000 ár frá fæðingu (ekki holdgun)
Krists skv. Gregorianska tímatal-
|nu. Á sama hátt eru tíu dagar liðn-
ir af nýju ári þegar 11. janúar hefst.
Menntakerfið brást. Ranghug-
•nyndir manna um tímatalið eru
ótrúlega lífseigar og sýna hvernig
menntakerfið hefur brugðist. Rugl-
ið birtist aftur og aftur í fjölmiðl-
um. Kristur var aðeins eins árs
þegar annað árið (árið 2. e.Kr.)
hófst. Tveim árum áður hófst árið 1
f. Kr.
Mér þykja orðin „þúsöld“ og
„teinöld" vandræðaleg. Orðið „tein-
æringur" sem vitnað er til er
enskusletta frá töluorðinu „ten“.
„Tíæringur" hefði verið betra.
Tíu aldir mætti nefna „tíöld“ sbr.
orðin „tíkall“, „tífaldur", „tíund“,
„tíhyrningur“, „tístrendingur“,
„tíundi hluti“ o.fl.
CARL J. EIRÍKSSON
Skólagerði 42, Kóp.
usgögk\ !
Meiriháttar tilboð
- einnig útlitsgölluð húsgögn
á tombóluverði
Minningarkort Styrktarfélags 11
krabbameinssjúkra barna f |
www.skb.is/framlog/minningarkort.html sími 588 7555
Krists
Urræði við sogæða-
bjúg í Heilsu-
stofnun NLFÍ
engan veginn áreiðanleg heimild um
þau málefni sem hún fjallar um. Stór
hluti af því sem í henni stendur er
einfaldlega bull. Þegar mótmælend-
ur þýddu Biblíuna á þjóðtungur og
leyfðu hverjum sem var að lesa hana,
kom svo í Ijós að túlkun kaþólsku
kirkjunnar var engan veginn sú eina
mögulega. Núna nota kristnir söfn-
uðir Biblíuna eins og kjörbúð kenn-
inganna til að klastra saman sinni út-
gáfu af sannleikanum. I rauninni
ætti Þjóðkirkan heldur að kenna sig
við Pál postula, því að ef þá greinir á
Pál og Jesú, og það hendir oft, þá
tekur kirkjan venjulega afstöðu með
Páli.
Reyndar vita flestir sem telja sig
kristna lítið um hvað stendur í Bibl-
íunni. Þeim stendur raunar algjör-
lega á sama. Mikið framboð er nú á
öði-um trúarbrögum og mörgum
hentar að taka freistandi tilboðum
þeirra. Mikill hluti þjóðarinnar trúir
til dæmis á endurfæðingu en ekki á
eilift líf í Kristi, sem bendir til þess
að þeir séu Búddatrúar en ekki
kristnir. Það er enda lítið tilhlökkun-
arefni að lenda í himnaríki með
kirkjufeðrunum.
Nú fara í hönd jól, sem þjóðin mun
að venju fagna að heiðnum sið. Þá
verða gjafir gefnar, vambir kýldar
og margur bikar tæmdur. Þá ættu
kirkjunnar menn að kyngja þeim
bitra kaleik að tími ríkisrekinna
hindurvitna er liðinn. Það er full-
komin tímaskekkja að ríkið sé með
fjölda manna á launum við að fleipra
um hindurvitni og útbreiða rangai-
upplýsingar um umheiminn. Miklu
nær væri að þeir sem áhuga hafi á
slíku standi straum af því sjálfir.
FLOSIGUÐMUNDSSON
Stóragerði 11, Reykjavík.
Frá Sigurði B. Jónssyni:
MÁNUDAGINN 4. nóvember sl.
svaraði Magnús Jóhannsson, læknir,
spurningu lesanda blaðsins um sog:
æðabjúg og meðferð við honum. í
svari Magnúsar kemur fram að með-
ferðarúiræði séu ekki upp á marga
fiska og árangur þeirra úrræða, sem
reynd eru, sé oftast lélegur. í grein-
inni nefnir hann ýmis úrræði, sem
geta komið að gagni, en nefnir ekki
sogæðanudd. Marjolein Roodbergen,
sjúkraþjálfari, gerir góða grein fyrir
sogæðameðferð í Morgunblaðinu 17.
nóvember sl., en hér er nokkru við að
bæta.
Við komu í Heilsustofnun NLFÍ
rekja dvalargestir sjúkrasögu sína
við lækni, sem vísar þeim í meðferð
samkvæmt ástandi hvers og eins.
Auk sérmeðferðar eru einnig stund-
aðar almennar hópæfingar, sem
flestir geta tekið þátt í, svo sem
gönguferðir, vatnsleikfimi, bakæf-
ingar, línudans og slökun. Einnig er
boðið upp á fræðslu- og umræðu-
fundi.
I Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerði hefur meðferð við sogæðabjúg
verið stunduð um árabil.
Sjúkranuddarar á stofnuninni eru
allir löggildir og a.m.k tveir þeirra
hafa lokið fjögurra vikna námskeiði
(180 klst.) í sogæðameðferð hjá við-
urkenndum aðilum í Þýskalandi
(m.a. í Földi og Asdonk skólum).
Fjöldi fólks, sem þarf á endurhæf-
ingu, styrkingu og hvíld að halda,
kemur í Heilsustofnun NLFÍ ár
hvert. í þessum hópi er oft fólk sem
er með sogæðabjúg, sem orsakast
m.a. af skurðaðgerðum og/eða geisla-
meðferð við krabbameini. Aðal-
áhersla er lögð á sogæðanudd og æf-
ingar við hæfi. Viðkomandi fær líka
leiðbeiningar um það hvemig á að
haga sér til vamar því að bjúgur.
myndist aftur. Þverfaglegur hópur
vinnur saman að meðferð sem við á
hverju sinni. í hópnum er læknir,
sjúkranuddari, sjúkraþjálfari, hjúki'-
unarfræðingur og íþróttakennari.
Þar er tekið á öllum þáttum meðferð-
ar, bæði líkamlegum og andlegum.
Sogæðanudd er mjög tímafrekt og
getur því reynst fólki kostnaðarsamt,
en ríkið greiðir ekki niður meðferð
hjá sjúkranuddurum (löggiltum). All:
ir sem dveljast í Heilsustofnun NLFÍ
bera hluta kostnaðar af meðferð,
gistingu og fæði, en ríkið ber stærsta
hlutann.
Sjúkranudd og heilsuböð hafaver-
ið stunduð í Heilsustofnun NLFÍ frá
því að starfsemi hófst þar árið 1955^-^
Á Nudd- og baðdeild er auk þess boð-
ið upp á leirböð, vatnsnudd, sogæða-
nudd, víxlböð og stuttbylgjur. Að
undanfömu hefur nálastungumeð-
ferð einnig verið í boði. Bað- og nudd-
menning stendur á gömlum merg í
Heilsustofnun NLFI og fjöldi dvalar-
gesta getur vitnað um góð áhrif
þeirrar menningar.
SIGURÐUR B. JÓNSSON,
sjúkranuddari HNLFÍ.