Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 6
8
Fréttir frá íslandi.
skuli fyrirkomið. S. d. gefur og stjórnarráðið út. ýtariegar reglur um
tilhögun á prófi í gufuvélafrœði við stýrimannaskólann í Reykjavfk. —
Hinn 7. júni samþykkir ríkisarfinn í fjarvist konungs, lög um heimild til
að stofna hlutafélagsbanka á Islandi. 19. júní gefur hann út konungs-
bréf um setning alþingis og s. d. hoðskap konungs til þingsins. 8. júli
samþykkir konungur lög fyrir ísland um tilhögun á löggæzlu við fiski-
veiðar fyrir utan landhelgi í hafinu umhverfis Færeyjar og ísland.
25. sept. geiur konungur út opið bréf um njjar kosningar til alþingis
fyrir næstu 6 ár, er fara skuli fram á timabilinu frá 2.— 6. júní 1903.
25. sept. samþykkir konungur fjáraukalög fyrir árin 1902—03. 5. nó-
vember gefur ráðgjafinn út leyfisbréf til að stofna hlutafélagsbanka á
íslandi. 6 s. m. samþykkir konungur lög um varnir gegn því, að
næmir sjúkdómar berist til íslands; s. d. samþykkir hann og lög um
kjörgengi kvenna. Alls samþykti konungur 21 lög þetta ár. Loks má
geta þess, að lögunum um leynilegar kosningar til alþingis var synjað
staðfestingar i það sinn.
Landshöfðingi gefur út reglugerð fyrir útbú Landsbankans á
Akureyri, 17. marz. Hann gefur og 17. maí út reglugerð um notkun
pósta og reglugerð um meðferð á póstsendingum til eða frá stjórnar-
völdum og svcitar8tjórnum, svo og 24 maí reglugerð fyrir póstmenn.
1. ágúst staðfesti landshöfðingi endurskoðaða samþykt um stjórn bæj-
armálefna i Reykjavík. 22. okt. gefur hann út reglugerð um bólusotn-
ingar og bóluskoðanir.
Enn má geta þess, að irimerkjabreyting komst 4 þetta ár. Voru
þá tekin upp ný frímez-ki, mjög frábrugðin þeim gömlu, því að á nýju
frímerkjunum er mynd konungs. Er það í fyrsta skifti, sem mynd af
Kristjáni konungi 9. kemst á frímcrki. Þó voru gömlu frimerkin við-
höfð 1902—’03 jaínframt hinum nýju, og var prentað á þau: í GILDl
’02—’03. Er liklegt að þau frímerki komist i allhátt verð með tíman-
um. Annars mun það einróma álit manna, að gömlu frímerkin hafi
verið stórum fegurri en hin nýju.
Þess hefir eigi verið getið áður i fréttum frá íslandi, að samkvæmt
arfleiðsluskrá C. Liebe, gelieimekonferenzráðs, gáfu erfingjar lians ís-
landi 10000 kr., og skyldi vöxtnnum af því fé varið til einhvers þess,
er miðaði að framförum íslands, einkum í efnalegu tilliti. Birtist skipu-
lagsskrá fyrir sjóð þennan i Stjórnartiðindunum 1902, og er þar ákveðið,
að landshöfðingi skuli árlega greiða búnaðarfélagi íslands vextina, en því