Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 8
10
Fréttir frá íslandi.
stjóri Magnússon skipaður undirkennari yið stýrimannaskólann. Hinn
21. nóv. var Guðmundi héraðslækni Guðmundssyni í Stykkishólmi fal-
ið að gegna lœknisstörfum í Flateyjarhéraði um stundarsakir, ásamt
sínu eigin embætti.
í milliþinganefnd í fátækramálum voru þessir skipaðir 2. jan: Páll
Briem amtmaður, Jón Magnússon landritari og Guðjón alþm. Guðlaugs-
son á Ljúfustöðum.
Aukaþingið kaus 25. ág., samkvæmt 17. gr. hlutabankalaganna, þá
Sigurð Briem póstmeistara, Lárus H. Bjarnason sýslumann og Sigfús
Eymundsson bóksala til þess að sitja í fulltrúaráði hlutafélagsbankans.
Á sama fundi voru og þeir Árni Thorsteinsson landfógeti og Hannes
Þorsteinsson ritstjóri kosnir til þess að mæta á aðalfundi bankans fyr-
ir landsjóðs hönd.
Hinn 30. janúar voru þeir Hallgrimur biskup Sveinsson og Július
Havsteen amtmaður, sæmdir kommandörkrossi dannebrogsorðunnar a£
2. stigi. Hinn 12. febrúar fékk Ilr. phil. Þorvaldur Thoroddsen pró-
fessorsnafnbót. Biddarakrossi dannebrogsorðunnar voru sæmdir: Bene-
dikt Gröndal, magister; Þórliallur Bjarnarson lektor; Björn M. Olsen
rektor og Jón A. Hjaltalín skólastjóri á Möðruvöllum. Dannebrogs-
menn urðu: Ólafur Halldórsson, skrifstofustjóri i íslenzka ráðaneytinu
r. af dbr.; Jón lireppstjóri Jónsson í Bygðarholti í Skaftafellssýslu;
Ólafur Ólafsson, bæjarfulltrúi í Reykjavík og Páll hreppstjóri Ólafsson
á Akri í Húnavatnssýslu. Þá var og þeim J. Havsteen amtmanni og
Pálma Pálssyni kennara við lærða skóiann, leyft að bera heiðursmerki
þau, er Erakkastjórn hafði sæmt þá.
Hagur landsmanna.
Ybturinn var frá nýjári kaldur og í harðasta lagi, einkum á Xorð-
ur-og Austurlandi. Á þorra lagði Eyjafjörð út að Höfða. Hafís sást
úr Eljótum á nýjársdag, en snemma í febrúar rak hann inn á Eyjafjörð,
og um 7. febr. kom hafís að Yestfjörðum. Þá komogísinn að Austur-
landinu. Póstskipið ,.Yesta“, sem í marz átti að fara til Austfjarða og
norður um land frá Kaupmannahöfn, komst ekki eigi lengra en á Hér-
aðsflóa sakir íssins, og varð að snúa þar við og halda til Reykjavíkur.
Þaðan fór liún aftur 19. marz, og ætlaði vestur og norður um land,
en varð þá að snúa aftur við Látraröst og halda til Reykjavikur, 26.
marz fór hún aftur frá Reykjavik og komst þá til ísafjarðar, og hefði