Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 86
88
Helstu mannalát, slys o. fl.
landi 22. ág. — Waldersee greifi og marskálkur, þýskur, sá sem aðalfor-
ugtuna hafði yfir her stórveldanna í Kínastríðinu síðasta, 5. marz ’04.—
Theodór Mommsen, sagnfrœðingur frægur og rithöfundur, þýskur, 1. des.—
Hanna, stjórnmálamaður í Bandaríkjunum, 15. marz. — Makaroff, rúss-
neskur aðmíráll, fjell i sjóorustu vfð Japani 15. april ’04. — H. M.
Stanley, hinn heimsfrægi Afríkukönnuður, í apríl ’04. — Maurice
Joakai, ungverkst skáld, 6. mai ’04. — York Powoll, háskólakennari í Ox-
ford, 8. maí '04. — ísabella Spánardrottning í maí '04— Karl Snoilskv,
sænskt ljóðslcáld, andaðist sumarið 1903. — í Tianmörku eru þessi manna-
tát helst: Oktavíus Hansen málaflutningsmaður og þingmaður, C. F.
Bricka, ríkisskjalavörður, Magdalene Thoresen, skáldkona.
— í Monastír á Tyrklandi var rússneskur konsúll myrtur af tyrk-
neskum hermanni síðastl. sumar og var mikið úr því gert um hrið og
sýndu Rússar Tyrkjum þá framan í eitt af herskipum sinum, en Tyrkir
hegndu morðingjanum og bættu vígið; fjeli svo það mál niður.
Bobrikoff, landstjóri Rússa á Finnlandi, var skotinn til hana 18.
júni ’04 af finnskum manni, Schaumann, lögfræðingi og aðstoðarmanni
i einni stjórnardeildinni. Schaumann skaut sjálfan sig á eftir.
í Kina var merkur blaðamaður, Sjen-Tsjen, líflátinn á þann hátt,
að hann var laminn til hana með bambusreyr eftir boði keisaraekkjunn-
ar gömiu; var sakaður um uppreisnartilraunir.
— Ákafur eldsvoði varð i Baltimore i Bandaríkjunum 7. febr. '04.
Eldurinn fór yfir stórt svæði, allt að 140 ekrum. Skaðinn metinn svo
hundruðum millj. dollara skiftir.
— Bærinn Álasund i Noregi brann til ösku 23. jan. '04. íbúar
voru um lt),000. Skaðinn metinn um 20 millj. króna.
— 10. ág. kviknaði í vagni niðri i jarðgaungum i París, sem járn-
brautarlestir fara um. Gaungin fylltust af reyk, ljósin sloklcnuðu og
vagninu staðnæmdist á brautinni. En ný lest þusti inn í gaungin full
af fólki og rakst á hann. Margir biðu þar bana og köfnuðu sumir í
reyknum.
— Sumarið 1903 hrundi mikill hluti af borginni Melazgerd i Litlu-
asiu í landskjálfta og fórust um 200 manns.
— 7. júní sigldust tvö gufuskip á i Miðjarðarhafi, Ynsulaire og
Líban. Líban sökk og fórust þar yfir 100 manns.
— 27. júní varð járnbrautarslys á Spáni og fórust um 200 manns.
— Vatnavextir og flóð gerðu miklar skemdir í Bandaríkjunum vor-