Skírnir - 01.01.1908, Blaðsíða 25
Múðurmálið.
25'
ef móðurmálið fer í órækt, ef það visnar á vörum þjóð-
arinnar, þá á það engrar viðreisnar von — lítið til Fær-
eyja og Noregs.
Eg hefi nú lýst tillögu minni; nú sel eg félaginu mál-
ið i hendur; eg veit að það er þá í góðum höndum; hvað
sem í móti blæs, er eg þess fulltrúa, að þetta félag muni
aldrei gleyma því, að hér er um að ræða inerkasta mál
þjóðarinnar, hennar móðurmál.
G. BJÖRNS80N.
Stúdentafólagið fól nefnd manna að íhuga þessa tillögu. Eftir'
rækilega íhugun og umræður á mörgum fundum samþyktu stú-
dentar á fundi þriðjudaginn 10. marz, að fela 6 mónnum að koma
á fót sjálfstæðu félagi til verndar móðurmálinu ; en þeir sex menm
eru enn ókosnir. Stefnuskrá hins n/ja félags skyldi vera lík því,
sem um hafði verið talað í fyrstu, en fólagatala ótakmörkuð, þó
svo, að jafnan væri innan félagsins 18 manna flokkur, starfandi
manna, og skyldi þeir einir skipa n/ian mann í annaðhvort autt
sæti j' þeim flokk, en annaðhvoit sæti skyldi skipa svo, að aðal-
fundur fólagsins nefndi til 3 menn og tæki starfsflokkurinn einn-
þeirra. Hér er ekki rúm til að gera nánari grein fyrir þessu fé-
lagsáformi.
18. marz 1908.
G B.