Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1908, Síða 64

Skírnir - 01.12.1908, Síða 64
352 Islenzk heimspeki. sumt það sem nefnt er kerlingabtekur—hefir að geyma ýmis- legt af læknavísdómi horfinna kynslóða. Einnig mun það ekki fjarri sanni, að hið trúaða hugarfar sé að sumu leyti ekki fjærskylt hugarfari heimspekingsins. Trúin er aðal- lega runnin frá óttanum, en heimspekin frá undruninni. En í þessum hættulega heimi eru ótti og undrun, furða, náskyldar tilfinningar. Geigblandin undrun hlýtur að vakna hjá hverjum manni, sem hugleiðir hvílíkum ráð- gátum og hættum sjálfs hans líf býr yfir og öll tilveran; en trúmaðurinn, að minsta kosti í eldri merkingu þess orðs, hyggur að þegar sé svarað þeim spurningum sem hann varða mestu, þar sem heimspekingurinn er á öðru máli og leitar úrlausnar. Víkjum aftur að heimspeking vorum á barnsaldri. Hann gjörist nú svo trúaður, að þégar hann er eitthvað lasinn, liggur við að hann langi til að deyja. En heim- spekingseðlið verður of ríkt, og einn þáttur þess er að efast, leita að sönnunum eða líkindum. An þess að Brynj- úlfur lesi eða heyri nokkuð í þá átt, kvikna hjá honum efasemdir um trúna. Hann verður órólegur og hugsjúkur, og leitar loks til móður sinnar í vandræðum sínum. Móðir hans, sem hefir vérið góð kona, og eins og flestar gáfaðra manna mæður, sjálf gáfuð vel, leggur honum ýms heil- ræði, og það ekki sízt, að hugsa sem minst um þessi efni. Og betra ráð gat hún varla gefið honum, eftir sínu viti. Því það mun vera bezta ráðið til að vera alt af rétttrú- aður, að hugsa ekki um trúna, og ef til vill er það með- fram þess vegna sem ýmsir miklir framkvæmdamenn eru og hafa jafnframt verið trúmenn; þeir hafa aldrei hugsað um annað en framkvæmdir. Efagjarn hugur mun einnig vera siður líklegur til framkvæmda. En þó mundu án efunarmannanna fáar villur leiðréttar og lítið um fram- farir. Nú fór Brynjúlfur líka að stálpast og vinna, og studdi það að því að bæla niður efasemdir hans. Því líkamleg áreynsla er góð til að kæfa niður hugsanir, eins og hins vegar mikil hugleiðingasemi virðist geia menn frábitna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.