Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1914, Page 46

Skírnir - 01.01.1914, Page 46
46 Hvað er dauðinn? í þeim tilgangi, að hann njóti óendanlegrar sælu, og þessi sæla er í því fólgín að öðlast þekking og vizku. Andinn getur ekki hrygst af öðru en því einu, að finna sér tak- mörk sett. En ef hann uppgötvar, að honum hafi verið takmörk sett hér í lífi, þegar hann er kominn út yfir tak- mörk tíma og rúms, þá uppgötvar hann um leið, að nú er ekkert framar til hindrunar þroska hans. Hugsanlegt væri, að andinn gæti fundið til hrygðar yfir bágindum eftirlátinna ástvina, en um leið mundi hann þó gera sér grein fyrir, hve skammvinn öll jarðnesk bágindi væru í samanburði við hina eilifu gleði, og yrði þá hrygð hans yfir þeim að engu. Auðvitað er oss með öllu ómögulegt að gera oss ljósa grein fyrir, hvernig alheimsvitundinni sé háttað, og getum vér því ekki heldur vitað með vissu, hvernig lífi voru verði varið eftir dauðann. En vér gætum þó reynt að venja oss á að skoða dauðann eins og tegund af lífi — lífi, sem vér enn eigi skiljum hvernig sé háttað. Ef oss tækist að venja oss á að skoða andlát vort sem fæðingu til annars lífs, þá mundi það verða örugg eftirvænting i stað ótta, er fylgdi hugsunum vorum, er þær hvarfla í áttina til grafarinnar. Og það er í alla staði rökrétt og í fylsta samræmi við alt það, er skynsemi vor getur frætt oss um, að telja sjálfum sér trú um, að gröfin sé engu ægilegri hvíldarstaður en vagga vor. Og það er meira að segja hinn bezti kostur lífsins, að það að lokum leiðir oss i dauðann. Því dauðinn er sá eini þjóðvegur, er liggur inn i það ókunna en dá- samlega -lífsins land, þar sem sorgir og þjáningar ekki framar geta átt sér stað, af því vér höfum losnað við líf- færi það, er þær allar stafa stafa frá, nefnil. líkamann. I landið þar sem hið lakasta, er gæti beðið vor, væri draumlaus eilífðar-svefn — eitt af því, er vér teljum hina mestu blessun hér á jarðríki. Höf. virðist, eins og áður er sagt, einstaklingsvitund vor svo ófullkomin og lítilfjörleg, að honum þykir senni- legast að vér missum hana, en öðlumst þó sælu á þann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.