Þjóðólfur - 15.07.1910, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 15.07.1910, Blaðsíða 4
ÞJOÐOLFUR. 116 borgarstjóra jafnframt, nú er útséð þykir um, að leið sú, sem valin var síðastl. haust, muni leiða til nokkurs árangurs, að kæra hr. Brillouin fyrir lögregludómaran- um, samkv. heimild í i. gr. laga nr. 20, 2. okt. i8gi, til sekta eftir opnu bréfi 29. Maí 1839, 3. gr. E„ sbr. 32. gr. byggingar- samþyktar Rvíkur 7. Sept. 1903, og til niðurrifs á hesthúsi því eða vagnhúsi, er hr. Brillouin bygði f. á. á lóð sinni í óleyfi byggingarnefndar og bæarstjórnar". Gasið er nú komið í bæinn. Á Þriðjudaginn og síðan hefir í Góðtempl- arahúsinu verið sýnd Ijós, suða og hitun með gasi. Hljómh'iUar. Hr. Arthur Shat- tuck hélt fyrra hljómleik sinn í gærkveldi í Báruhúsinu. — Sýndi hann það, að hann er snillingur með afbrigðum og voru menn stórum hriínir af listfengi hans. Án efa sá langbesti og ánægjulegasti hljóm- leikur þetta, sem Reykvíkingar hafa átt tækifæri til að hlusta á. Nánar í næsta blaði. — Hr. Shattuck heldur afturhljóm- leik 1 Bárubúð annað kveld (laugardag). Ætti að vera óþarft að hvetja menn til að hlusta á snillinginn. Hr. Julius Foss heldur fyrri (eða fyrsta) hljómleik sinn 1 kvöld í dómkirkjunni. — Það verður án efa mikilfengleg og góð skemtun. Reykvíkingar! Notið tækifær- ið og heyrið góða músík, — hana má heyra í kvöld. Á1 f u r. Ferðamennirnir á „Oceana" sendu héðan 256 bréf og 2674 bréfspjöld. Hvað er að frétta? Ársfundur Búnaðarsam- bands Suðurlands var haldinn við Þjórsárbrú 8. þ. m. og næsta dag varþar smjörsýning. íþróttamót var haldið við Þjórs- árbrú 9. þ. m. Þar voru glímur og fengu þessir verðlaun : x. Haraldur Einarsson frá Vík í Mýrdal, 2. Ágúst Andrésson frá Hemlu í Landeyum og 3. Bjarni Bjarna- son frá Auðsholti í Ölfusi. — Grísk-róm- verska glímu sýndu þeir Haraldur og Sæ- mundur Friðriksson frá Stokksey'ri. — Einar skáld Hjörleifsson flutti ræðu um kveldið, og fleiri töluðu þar. Kæbtunarfél. Norðurlands hélt aðalfund á Breiðumýri 24. og 25. f. m. Stefán Stefánsson skólarneistari var endurkosinn forinaður félagsins. Þúsund ára hátíð héldu Svarf- dælir 26. f. m. á Böggversstaðasandi. Slys. 30. f. m- datt sjómaður að nafni Valdimar Friðriksson út af Tanga- bryggju á Akureyri og druknaði. Maður- inn hafði verið mjög drukkinn, segir „Norðurl.". Á Sunnudaginn var druknaði stúlka, Ingibjörg Sveinsdóttir í Dalsá í Blöndu- hlíð. Hún kom frá biskupsvíglunni á Hólum, og var í för með mörgumöðrum. Féll hesturinn er hún reið út af brú, er liggur yfir á þessa, og týndust hvoru- tveggja. — Einn förunauta hennar var rétt að segja druknaður við að reyna að bjarga henni. Skiptapi. Nú þykja komnar fullar sannanir fyrir því, að hákarlaskipið „Kær- stine", eign Gránufélagsins á Oddeyri, hafi farist 1 vor og er talið víst, að það hafi skeð í mikla veðrinu 7. Júní, þegar „Hektor" á Siglufirði var nærri farinn, en tveir menn af því skipi druknuðu. — Skipsbáturinn hefir fundist, þó eitthvað dálítið brotinn. Tólf menn voru á skipinu og voru þeir þessir: Jóhann Jónsson í Litla-Árskógi, formaður; Ólafur Jónsson í'Litla-Árskógi, Jóhann Jóhannesson í Litla-Árskógssandi. Jóhann Þorvaldsson í Arbakka, Stefán Hans- son í Hauganesi, stýrímaður, Sigurpáll Guð- mundsson í Hauganesi, Jón Skarphéðins- I son í Litla-Árskógssandi, Gunnlaugur Jó- hannsson í Litla-Árskógssandi, JakobJóns- son í Birnunesi, Sigurbjörn Gissursson á Hjalteyri, Arngrímur Jónsson, á Jarðbrú og Jón Friðriksson í Tjarnargarðshornf. („Norðurl."). Giillbrúókanp héldu Haganesbú- ar 30. Maí Magnúsi Árnasyni og Sigur- björgu Guðmundsdóttur í Utanverðunesi. Týntli flrengurinn. Eins og getið var um í síðasta blaði, týndist drengur úr Hafnarfirði 3. þ. m., Stefán Kolbeinsson að nafni. Var hann á leið austur í Holt, með bónda þaðan, og lágu þeir úti aðfaranótt 3. þ. m. hjá Fóerlu- vötnum. Um morguninn sendi bóndi drenginn að sækja hesta þeirra, en dreng- urinn kom eigi aftur, og hefir hann enn eigi fundist, þrátt fyrir rækilega og fjöl- menna leit, er gerð hefir verið. Sú flugufregn hefir gengið hér, að dreng-t urinn hafi fundist austur í Grafningi, en fyrir þeirri fregn er enginn fótur.— Áreið- anlega vissu fengum vér í morgun um það, frá sýslumanninum í Hafnarfirði, því þaðan hatði maður verið séndur austur til að vita hið sanna f málinu. 1910. IVýii* og skilvísir kaupendur ía ókeypis um leið og blaðið er borgað: 1. Roðney Stone, skáldsaga eftir hið fræga skáld Englendinga, C o n a n Doyle, 168 bls. í stóru broti og prentuð með smáu letri. 2. íslenskir sagnaþættir. 2. hefti, 80 bls. Par er í l*áttur af Árna Grimssyni, er sig nefndi síðar Einar Jónsson, eftir Gísla Konráðsson. Frá Bjarna presti i Möðrudal. Draugasaga. Um Hjaltastaðafjandann. Mjög merkileg og áður ókunn frá- saga um þennan merkilega anda eða fjanda. Rituð af samtíðarmanni sjónar- og heyrnarvotti. Frá Eiríki Styrbjarnarsyni og frá Metúsalem sterka i Möðrudal. Ennfremur verður bráð- lega fullprentað: íslenskir sagnaþxttir, 3. hefti. Par í verður meðal annars: Fáttur af Kristínu Pálsdóttur úr Borgarfiði vestra og Sagnir úr Austfjörðum. Concert helður organleikari Julius Foss ir í kvöld í Reykjavíkur dómkirkju, og hefst kl. 9. Adgöngumidar íást í aí- greidslu ísafoldar og bóka- yerslun Sigf. Eymundssonar og við iniigangiim, og kosta 1 kr. Sé keypt fyrir 1. og 2. eoncert í einu, kosta J>eir aðeins 1 kr. 50 au. fyrir bæði kvöldin. <JCljóml<2Ífiar Jlrthurs Shattuck verða endurteknir eftir almenmm óshnm I.augardagiim 16. júlí kl. 9 síðdegis í Bárubúð. Aðgöngumiðar kosta 2 kr. Tekið á móti pöntunum i bókaverslunum ísafoldar og Sigf. Eymundssonar. Holsapfels viðurkenda ág'æta, b o t n ni á 1 n i n g ,.BundsmöreÍse“ á fárnskip og á trjeskip o „jfational komposition“ 011 „Iravler komposition“, „Cobber !Komposition“ Afgreiðsla blaðsins er á JLaugaveg líl (austurendanum). Undirrltnð tekur að sér allskonar saum á kven- og barnafötum. Guðný Jörgensdáttir, ' Þíngholtsstræti 7. er altaf til við „<Jim6ur- ocj fíofaversfunina dZayRjavíR^. Ritstjóri og abyrgðarmaður: E*étar Zóplióníasson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.