Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Side 43

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Side 43
KÍRKJA FRÁ SÍÐMIÐÖLDUM AÐ VARMÁ 47 víkur og telur það hafa fallið nálægt árinu 1485.10 Væri freistandi að álíta, að það sé þetta lag sem fundizt hafi að Varmá ef vitnisburð- ur fornleifanna mælti því ekki eindregið í gegn. Öskulagið hlýtur að vera yngra. Séu sagnfræðilegar heimildir um Kötlugos athugaðar með fornleifarnar að vegvísi kemst maður vart hjá því að álykta, að hið fundna öskulag muni stafa af Kötlugosi 1721. Fellur þá allt í ljúfa löð, fornleifar og ritaðar heimildir. Árið 1721 féll aska úr Kötlu í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, á sjó frá Útskálum í Garði suð- ur og ekki síður í Nesi á Seltjarnarnesi.17 Má því nærri geta að Mosfellssveitin hafi ekki orðið útundan. Sé þetta rétt tímasetning, sem greinarhöfundi virðist vafalaus, hefur smiðja verið reist á hinu rannsakaða svæði skömmu eftir árið 1721. Má nú draga saman höfuðárangur þessarar rannsóknar. Af bygg- ingatæknilegum ástæðum hafa hús verið byggð ofan í tóftir eldri húsa, sem þannig marka þeim stað. Elzta húsatóft sem fannst er undan lítilli kirkju úr kaþólsku og hefur verið gröftur að henni. Þar er líkast til vallgróin tóft 1721, en skömmu eftir það er reist smiðja á staðnum. Á nítjándu öld virðist hún vera fallinn og er þá litlum kofa fundinn staður á tóftinni. Af rituðum heimildum má skýra þessa mynd frekar, nálægt miðri f jórtándu öld er kirkjan komin á staðinn, hætt hefur verið messuhaldi þar á árunum 1554—84. Af fundnum hlutaleifum eru leirkersbrot meðal hins merkasta. Þau eru dönsk og líklegast frá byrjun átjándu aldar. Þau fundust í smiðjutóftinni og gefa tilefni til tímasetningar eldfjallaöskulags með hjálp ritaðra heimilda til ársins 1721. Má segja að með rannsókn þessari komi fram örlítið brot af Islandssögunni, mögnun kirkna og klaustra á síðmiðöldum og afhroð þeirra um siðaskipti fyrir konungsvaldinu. 1 smiðjunni ofan á kirkjutóftinni voru brot úr leir- kerum framleiddum í kóngsins Kaupinhafn. Ég vil þakka samstarfsmanni mínum við rannsóknina, Helga Jónssyni fornfræðastúdent. Ennfremur Þór Magnússyni þjóðminja- verði fyrir hina mikilvægu rannsóknaraðstöðu og aðstoð og uppörv- un við verkið. Gísla Gestssyni safnverði þakka ég fyrir ýmsa tækni- lega aðstoð. Síðast en ekki sízt þakka ég hinum mörgu Mosfellssveit- ungum, sem veittu rannsókninni brautargengi með margháttaðri fyrirgreiðslu og áhuga. 1(1 Sigurður Þórarinsson (1967) bls. 63. 17 Safn til sögu íslands IV bls. 225—226.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.