Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Page 56

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Page 56
60 ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS léttur fótur fram á fullorðinsaldur. Á hverju ári tók hann mikið af bókum til útsölu frá Reykjavík og batt þær, áður en hann seldi þær. Band hans þótti bæði traust og snoturt, því hann var vand- virkur að því sem hverju öðru verki er hann gjörði og líkaði því illa öll hroðvirkni. Engum var hann verðlaunum sæmdur fyrir jarðabætur þær og at- orku, er hann sýndi í búskapnum Hann fór heldur aldrei fram á það en sagði jafnan, þegar um slíkt var rætt, að jörðin sjálf gæfi sér beztu og drjúgustu verðlaunin og annarra verðlauna þyrfti hann ekki við. Eins og nokkrar af vísum hans bera með sér, þótti hönum gott vín á efri árum sínum. Þó var hann frábrugðinn flestum öðrum, þeim er svo eru gjörðir, að því leyti, að varla mátti heita, að hann neytti þess á veturna, er hann var við vandastörf sín. I júlímánuði 1876 fór Guðmundur sál., eins og venja hans var, suður til Reykjavíkur til að sækja bókbandsefni sín og sölubækur. Var hann þá óhraustur. Tók hann þá sótt, er leiddi hann til bana. Var það lungnabólga (tak fyrir brjósti), sem brátt yfirþyrmdi hann svo, að hann ekki varð ferðafær. Samt sem áður vildi hann með engu móti annað en halda heimleiðis, þó Friðrik sonur hans, er þar bjó (þ. e. í Reykjavík), reyndi til að afráða hönum frá því. Komst hann þannig á sig kominn, meira af vilja en mætti, austur á Eyrarbakka að kvöldi hins 21. júlí og var þá svo yfir kominn af veikindunum, að hann treystist eigi lengra. Var hann þá búinn að fá þunga hryglu og mæði svo vart skildist hvað hann sagði. Læknir var þegar við hendina, en allar tilraunir voru árangurslausar. Daginn eftir (22. júlí) þyngdi hönum svo um kvöldið, að hann gat engu orði komið upp, þangað til rétt fyrir andlátið, að hryglan hvarf, og andardrátturinn varð eðlilega hreinn. Virtist hann þá ekki lengur hafa rænu, og til kl. 10,45 var hann liðinn. Eftir ósk ekkju hans var líkið flutt austur til heimilis hans og jarðsett að Odda 2. ágúst. Hélt sra. Isleifur Gíslason húskveðjuna en prófastur Ásmundur Jónsson líkræðuna. Var hann lagður sunn- an undir kirkjunni, næst fyrir framan legstað Skúla sál. læknis Thorarensens. Guðmundur sál. Pétursson var í minna meðallagi á vöxt en fremur gildur eftir hæð, ljósleitur í andliti og nokkuð toginleitur, dökkur á hár, með dökkjarpt skegg, sem hvorutveggja var orðið næstum hvítt af hærum hin síðustu árin. Augun voru blá og gáfuleg, nefið beint með litlum lið á miðju. Svipur hans var hreinn og þokkalegur, og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.