Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 97
ÞÓRÐUR TÓMASSON
KJALAÐIR SKÓR
Heitið kjalaöir slcór hef ég ekki séð á prentuðum bókum, en svo
sagði Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi mér að nefnst hefðu húð-
arskór með saumi langsum undir ilinni. Þetta hafði Guðmundur
eftir sögn móður sinnar, Rannveigar Sigfúsdóttur frá Skjögrastöð-
um. Ýmsir fróðir menn sanna sögu Guðmundar. Ragnhildur Guð-
brandsdóttir frá Hraunbóli á Brunasandi (f. 1878) sagði mér frá
skóm, sem hefðu verið þannig gerðir á gavpandanum. Hafliði Guð-
mundsson frá Búð í Þykkvabæ (f. 1886) kannast vel við þetta og
segir að verkið við að gera skó með þessum hætti hafi verið nefnt
að kjala skó. Gripið var til þessa ráðs til að gjörnýta gamla skó. 1
fátækt fyrri tíðar var naumt um skóleður og fáu fleygt meðan það
hékk saman. Hlífir hangandi tetur, segir gamall málsháttur. Gat-
slitnir skór eða skór komnir að því að gatslitna voru með óslitnu yfir-
leðri og hvað var þá annað en snúa þeim við og nota yfirleðrið sem
botn eða ganganda. Heimildamönnum mínum ber saman um að nýtt
skóop hafi verið skorið eða klippt fram eftir ganganda gamla skósins,
jafnframt var sprett af vörpum og ef þörf krafði hælsaum og tá-
saum. Gamla skóopið var síðan saumað saman með tryggum skó-
saumi og ný vörp gerð, þar sem áður var gangandi eða botn. Nýr
skór var orðinn til úr gömlum og nefndur kjalaður skór.
Orðabók Háskólans leitaði eftir fróðleik um kjalaða skó árið 1965
og urðu nokkrir til þess að senda inn svör. Greinarbesta lýsingin barst
frá fróðleiksmanninum Hjalta Jónssyni í Hólum í Hornafirði í bréfi
14. des. 1965. Fer hún hér á eftir:
„Aö kjala skó: Um það þykist ég geta frætt þig (þ.e. Jón Aðal-
stein Jónsson), því ég hef sjálfur gengið á lcjöluöum skóm. Það voru
aðeins skór úr þykku leðri, sem þótti borga sig að kjala. Helst úr
lirygglengju af fullorðnu nauti. Þegar þeir voru orðnir gatgengnir
bæði aftan og framan (á tám og hælum), var vörpunum sprett.
Þannig að varpþvengirnir voru dregnir úr. Saumarnir, tásaumar og
hælsaumar, máttu halda sér, en skórinn var ristur eftir miðri il milli