Landið - 13.12.1918, Síða 2
194
C A NDIÐ
Hver þarfnast vóla?
Sá fátæki til þess að bæta kjör sín.
Sá ríki til þess að græða meira.
Nokkrar birgðir hef eg nú fengið af ýmiskonar heimilis- og búnaðar-vélum og áhöldum o. fl., og
vænti viðbótar með næstu ferðum frá Ncw-York, og framvegis eftir þörfum, hindranalítið úr þessu, —
Hef til nú sem stendur nokkuð um fram pantaniraf: Saumayélnm — Steinolíu-gas-vélum — Glerstrokk-
um — Beinakvörnum (fyrir allsk. bein og fiskhausa). — Kornkvörnum — Bvottapressum (Rullum) oe
Gólfþvotta-vindum o. fl — En á von á með næstu ferðum: Prjónavélum — Pvottavélum — Pvotta-
vindum — Iijötkvörnum — Patent-strokkum — Skilvindum — Garðplógum o. fl, — er alt selst
sem næst með hálfvirði, miðað við verð á innl. vinnu og afurðum nú og fyrir stríðið til samanburðar.
Ennfremur útvega eg (eftir pöntunum) margskonar aðrar og stærri vélar, með verksmiðjuverði, að
viðbættu flutningsgjaldi, — svo sem: Dráttarvélar — Skurðgerðarvéiar — Vindmylnur (Mölunar-
mylnur) — Steinsteypumót (fyrir steina, pípur o. fl) — Hrærivélar með tilh. aflvélum — Trésmíða-
vélar — lofthitunarvélar o. fl. — Og allar þessar vélar, með öllum hlutum og tækjum þeim tilheyrandi,
er hver óskar; — og margt fleira. — Afgreiðsla öll fer fram með vandvirkni og svo greiðlega og
tafalaust, sem verða má, en eftir þeirri röð sem pantanir koma inn. Pantið því fremur í dag en á morgun.
Nánari upplýsingar sendar þeim, er þess óska.
Reykjavík io. des. 1918.
Stefán H. Jónsson.
Slmi. Ilólf. 31S.
enga skoðanafjötra halda sér, held-
ur gekk beint eftir stjörnu sann-
leikans. Og það er ekki ósennilegt,
að síðari tímar sjái og kannist við,
að hann hafi þar svalið sér hið
góða hlutskiftið*, bæði fyrir sjálfan
sig og aðra.
Mætti fslenzka kirkjan og þjóðin
njóta hans sem lengst — og um
fram alt öðlast eitthvað af frjáls-
lyndi hans, festu og einurð í bar-
áttu fyrir góðu málefni.
Sálrækt.
Brot úr ritdómi.
Frh. IV.
Fjórði kafli er um aðhugun.
Höf. bendir á mismun þess, að
heyra og að hlusta. Hið fyrra er
ósjálfræði, en hið síðara er starf,
aðhugun, Aðhugun er það, að
beita huganum að einhverju við
fangsefni og þá um leið aýhugun*)
alls annars. Um leið og maður
gerist einhverju aðhuga, verður
maður afhuga öðru, Allir vita,
hversu mikilvægt er að vera áhuga-
samur. Mikið böl stafar af því, að
menn neyða sig til starfa, sem þá
vantar áhuga á. En aðhugun lífg
ar áhugann. Ef maður hefur óþægi-
legt eða leiðinlegt starf með hönd
um, tjáir ekki að þvinga sjálfan sig
og þjösnast áfram, heldur verður
maður að reyna að verða leiðind-
unum afhuga, beita huganum öll-
um að starfinu, sem'þá mun reyn
ast að vekja svo hugsanir og til-
finningar, að áhuginn vaknar. Að-
hugun er líka áhrifamikil á minnið,
það tjáir heldur ekki að lesa eða
tala hugsunar og tilgangslaust. Það
er ráðlegt að ákveða, hverjum
hugsunarstefnum maður vill fylgja
og i hvaða tilgangi. Maður á að
lesa til þess að skoða 0g yfirvega,
hugsa efnið sjálfur. Sá, sem bezt
hugsar, les bezt. Að hugsa eitt-
hvert efni til hlítar, veitir sigur í
lífinu, og ættu menn fyrir því að
að æfa þá list. Það sem menn lesa,
ættu menn að rannsaka á allan
hátt, festa ekki orðin í minni, held-
ur hugsanirnar, unz alt efnið liggur
reiðubúið til þess að segjast. Gagn
legt er lfka að minnast reynslu
sinnar eða einhverrar yfirsjónar í
lífi sínu og kryfja hana til mergj-
ar (hvatir og afieiðingar), bera sam-
*) Sbr. attention, denial.
an við nútíðina og gera sér grein
fyrir, hvernig maður myndi breyta
nú. Sama er að segja um skáldrit,
menn ættu að brjóta þau til mergj-
ar á allar lundir með tilfinningu og
dómgreind, það eykur sanna þekk-
ingu og æfir menn í aðhugun Á
svipaðan hátt geta menn æft sig í
afhugun. Með hugsanaskiftum geta
menn rekíð brott óþægilegar og
óheillavænlegar hugsanir og á þann
hátt breytt skoðunarhætti sínum og
tilfinningum eða hafið sig þar upp
yfir.
í sambandi við þetta minnist
Möller á viljann. Viljinn er ekki
stritandi orka, heldur aðhugun,
Viljastyrkur er í því fólginn, að
verða fyllilega aðhuga því, sem
gera skal. Það er þess vegna ekki
í sjálfu sér áreynsla, „að þrýsta á
viljahnappinn". „Vilji" er ekki að-
eius skipun á framkvæmdar-augna-
blikinu; það, sem veitir viljanum
máttinn er undangengið tímsbil,
þegar maður beinir huganum að
starfinu og veitir þannig sjálfum
sér hvöt til að vilja, þegar þar að
kemur.
Og með einbeitingu hugans (kon-
centration) getur maður beitt öflum
sálarinnar til fulls að starfinu og
á þann hátt náð því sterkari tök-
um á því.
Menn ættu að temja sér sjáifs-
prófun, rannsaka sjálfa sig með
því að Iíta yfir hið liðna og leggja
grundvöll framtíðarinnar. Það verð
ur til þess að vekja framtakssemi
og leggur hugstjórninni traustan
grundvöll. Menn venjast þá við,
að sjá annarsvegar hina andlegu
strauma innra með sér og hins veg-
ar hinn stjórnandi hæfileika. Menn
eiga að ganga í dóm við sjálfan
sig á sama hátt og þeir myndu
gera við aðra. Möguleikarnir til
bóta birtast þá sjalfkrafa. Og þá
munu menn fara að stjórna sjálfum
sér.
Fimti kafli er stuttur og ræðir
aðallega um aðhneigð og ýráhneigð
(e. desire, aversion). Höf. segir
hneigð (Frá) yfirleitt tákna andlegt
orkustreymi í áttina til einhvers
hlutar eða markmiðs. Auk eðlis-
hneigða mannsins — sem einnig
er unt að hafa áhrif á — er unt
að glæða nýjar hneigðir. Aðhneigð
myndast með því að vekja lifandi
hugmynd um hlutinn, því að þá er
maður sér hann þannig í allri dýrð
sinni, vermir hann mann um hjarta-
ræturnar, eins og þá er vatnið
kemur fram í munninn á manni,
við það að sjá matinn. Slíka lifandi
hugmynd er unt að vekja um and-
legar nautnir, um mikilvægt starf
eða markmið eða mikil og góð
áhrif einhverrar breytni. Ef hug-
myndin stendur manni ljóslega fyrir
hugskotssjónum, þá munu hin and-
legu öfl beinast í þá átt Fast
markmið vekur kraftana. Hinsvegar
eru freistingarnar með þeirn hætti,
að menn láta hugann dvelja við
það, er ætti að forðast. í stað þess
ættu menn að láta hugann hvarfla
til þess víðsýnis, sem iiggur fyrir
utan fegurð augnabliksins, og
hneigðin, orkustreymið mun þá leita
þangað. Fráhneigð er sá kraftur,
sem beitir sér, þá er hugurinn
hneigist frá einhverju Þegar tveir
óskyldir menn mætast, hneigjast
þeir hvor frá öðrum. Það er eðlileg
fráhneigð. En menn mega gæta
sín að láta hana ekki verða að
óbeit eða hatri, svo sem mörgum
fer án ástæðu. En menn verða
einnig að stjórna aðhneigðum sín-
um, trúa þeim ekki ransóknarlaust,
heldur halda huga sínum opnum,
svo að þetta andlega skynfæri
hneigðanna skemmist ekki Og það
sem mikilvægast er, er ekki hvort
það vísar á nautn eða sársauka,
heldur hin dýpri þekking, sem
þessi tilfinning fyrir hlutunum veitir.
En mikilmenskan er innst í því
fólgin, að geta þolað sársauka,
hvenær sem nauðsyn krefur.
Frh.
Undarlegar að/arir.
A bæjarstjórnarfundi í fyrri viku
kom fyrir fundargerð gasnefndar
frá 3. des. 1918; hljóðaði fyrsti
liður hennar þannig:
»Borgarstjóri K. Z'msen skýrði
frá þvf, að brezki ræðismaðurinn
hér, Mr. Cable, hefði tilkynt sér,
að gasstöð Reykjavíkur gæti eigi
búist við að fá hér eftir kol frá
Englandi, nema skift yrði um gas-
stöðvarstjóra (núverandi gasstöðv-
arstjóri, hr. A. Borkenhagen, er
þýzkur ríkisborgari). Nefndin ósk-
aði að fá staðfestingu á þessu og
hringdi borgarstjóri ræðismanninn
upp í síma, og staðfesti hann þessa
tilkynningu.
Ut af þessu leggur nefndin til,
að tafarlaust verði gerðar ráðstaf-
anir til að útvega hingað annan
gasstöðvarstjóra*.
Borgarstjóri skýrði frá því, að
örsökin til þessarrar kröfu mundi
vera sú, að gasstöðvarstjórinn hefði
útvegað gasstöðinni tilboð á múr-
steini til gasstöðvarinnar, en það
tilboð kom gegnum danskt verzl-
unarhús (A. T. Möller & Có.) sem
síðar var sett á »svarta listann* af
Bretum, en múrsteinninn sjálfur var
frá sænskri verksmiðju. — Þegar
steinn þessi var kominn hingað,
þótti brezka konsúlnum hér leika
vafi á, hvort hann væri ekki þýzk-
ur (steinninn var sendur frá Khöfn
með leyfi brezka konsúlsins þar)
Þegar konsúllinn hér hafði látið
þennan grun sinn í Ijósi við borg-
arstjóra, rannsakaði hann (borgar-
stjóri) múrsteininn, og gekk úr
skugga um, að hann væri sœnskur
en ekki þýzkur.
Borgarstjóri endaði ræðu sína á
því, að hvetja bæjarstjórnina til
þess að ganga að hinu setta skil-
yrði. —
Næstur tók til máls Ólafur Frið-
riksson, sem lagði eindregið á móti
því, að þetta yrði samþykt.
Máiinu var síðan frestað til
fundarloka og þá rætt fyrir lokuð
um dyrum. Eftir hér um bil klukku-
stundar umræður var feld tillaga
frá Ólafi Friðrikssyni um að fresta
málinu og fara fram á það við
brezka ræðismanninn, að hann
fengi að vita orsökina til þess að
brottrekstur gasstöðvarstjórans væri
gert að skilyrði fyrir því, að gas-
stöðin fengi kol, Þessi tillaga var
feld, en síðan samþykt tillaga gas-
nefndar, sem prentuð er hér að
fratnan, og loks tillaga frá borgar-
stjóra um, að gasstöðvarstjóranum
sé sagt upp.
Mjög þykir ólfklegt, að brezka
stjórnin standi á bak við atferli
það, sem hér hefur verið framið.
— Nú, er Bretar og bandamenn
þeirra hafa unnlð fullan sigur, virð-
ist vera lítil ástæða til þess að of
sækja þýzka borgara út um allan
heim. Og ólfklegt er, að ekki hefði
verið hægt að fá Ieiðréttingu á
þessu hjá brezku stjórninni, ef þess
hefði verið leitað.
Og undarlegt er það, að 5 - fimm-
dögum eftir að ísland er viður-
kent fullvalda ríki, beygir bæjar*
stjórn Reykjavfkur sig þegar í stað
fyrir valdboði brezka ræðismanns-
ins, án þess að leita neinnar að-
stoðar til að koma í veg fyrir
þetta.
Þar á ofan fullyrða fróðir menn,
að þessi aðferð ræðismannsins —
að snúa sér ekki til utanríkisstjórn
arinnar íslenzku (og dönsku), eða
beint til stjórnarinnar hér, heldur
til borgarstjóra — sé þvert á móti
alþjóðavenjum.
Fermingarrœða (Frh.).
yður til andlega Iífsins og hann
vill framvegis fá að helga sálir
yðrar og líkami í öllu góðu. Styðj-
ið þá sjálf vel að því, að náðar-
verk hans megi yður að gagni
koma. Munið það, að þegar iðr-
unarangur vaknar í sálum yðrum,
þá er það kall heilags anda til yðar,
um að snúa á betri brautir; látið
því slfkar hugarhræringar aldrei
ógaumgæfðar. Því betur sem þér
gangið guðsgötuna, því farsælla
mun líf yðvart verða hér á jörðu
og því meiri sælan i eilífðinni.
Fagnið því nú vel, að guð vill taka
yður auma syndarana í náðarsam-
band við sig. Biðjið hann af heitu
hjarta, að hugur, tunga og hönd
megi allt honum helgast. Vinnið
svo glöð heitið í fullri vissu um
styrk frá guði; að gefa heitið er
sama sem að játa trú sfna á al-
góðan guð. Og þú heilagi faðir
á hæðum, sem einn megnar að
gefa oss sæluríkan sigur, blessa þú
Nú reynir á dug og djörfung ís-
lenzkra stjórnarvalda, að koma
máli þessu í viðunandi horf.
Minningarorð.
Hinn 6 nóv. síðastl. andaðist
húsfrú Stefanía A. V Guðmunds-
dóttir. Hún var fædd 28. marz
1873 á Torfastöðum f Vopnafirði.
Foreldrar hennar voru Guðmundur
Stefánsson hreppstjóri og Júlíana
fædd Schou. Hjá foreldrum sínum
var hún til 16 ára aldurs, en þá
fluttist hún til bróður síns, Stefáns
Guðmundssonar, er þá var verzl-
unarstjóri á Djúpavogi, og dvaldi
hún hjá honum þangað til árið
1898, að hún giftist verzlunarmanni
Pali H. Gíslasyni. Svo fluttust þau
hjón árið 1904 til Fáskrúðsfjarðar,
vegna þess að maður hennar tók
þar við forstöðu verz-.unar fyrir
Örum & Wulf. Þar bjuggu þau
hjón til 1911, en þá fluttust þau
til Reykjavíkur með því að þau
höfðu þá keypt sér þar sjálfstæða
verzlun. Þau hjón eignuðust 4 börn,
Stefán, Gísla, Guðmund og Krist-
ínu, sem öll eru á lífi.
Stefanía sáluga var ein áf bæjar-
ins merkustu konum. Hún hafði
notið góðs uppeldis, enda var hún
í eðli sfnu kærleiksrík, umgengnis-
góð og hreinlynd.
Þó heimili hennar væri gest-
nauðarheimili og að börn hennar
væru þetta mörg, hikaði hún t. d.
ekki við, með manni sínum, að
taka tvö ung fósturbörn til upp-
fósturs.
Heimili hennar var fyrirmyndar-
heimili, enda var hún heimilisrækin
og hafði altaf nóg að starfa bæði
fyrir heimilið og við að greiða fyrir
öðrum. Það er því eðlilegt, að
hennar sé sárt saknað af þeim,
sem höfðu náin kynni af henni.
B.
J ardeldabætur
Búnaðarfélags íslands og búnað-
arsambönd og Ræktunarfélag Norð-
urlands hafa sent öllum kaupmönn-
um og forstjórum kaupfélaga og
sláturfélaga áskorun um það að reyna
að efna til samskota til endurreisn-
ar bústofni þeirra bænda, sem verst
hafa orðið úti vegna Kötlugossins.
þessi ungmenni með öllum gæð-
um andans, í Jesú nafni. Amen,
Með hátíðlegri alvöru hafið þér
nú, ungu vinir, játað trú yðra með
þvf að heita guði hlýðni. Svo fram-
arlega sem þér kappkostið að halda
loforðið og standa við trúarjátning-
una, eigið þér velþóknun guðs, um
tíma og eilífð, vísa, en ef heitið er
rofið þá missist skírnarnáðin, en það
er hræðilegt; biðjið því guð að
varðveita yður frá að slíkt komi
fyrir. Að vísu getið þér með trú-
aðri iðrun öðlast ina helgu náð á
ný, því guð er miskunnsamur og
stendur við sín heit þótt vér höfum
rofið vor, ef vér aðeins könnumst
við synd vora og biðjum hann
fyrirgefningar. En alla tíð eigum
vér það óvfst, hvort oss tekst að
iðrast og undir guðs náð er það
vitanlega komið. Ástundið að halda
rækilega þenna sáttmála góðrar
samvizku, við guð, og minnist í