19. júní - 01.07.1922, Síða 5

19. júní - 01.07.1922, Síða 5
19. JÖNÍ Eins og eg sagði áður, fundu kon- urnar nóg verkefni. Þær sáu sjúka menn, hungraða, klæðlausa, munað- arlaus börn, fátækar ekkjur, uppgefn- ar og yfirgefnar mæður o. fl. Og þær hafa reynt og reyna enn að hjálpa eftir megni þeim, sem þær náðu til. En eftir því sem þeim hefir aukist þroski, hefir löngunin vaknað til að leggjast dýpra — láta ekki hjálpar- starfsemina vera að • eins Sizyphus- erfiði. IJær hafa viljað leitast við að grafa fyrir rætur bölsins, sem mann- kynið þjáir á svo marga lund. í því skyni hafa flestar hinna föstu nefnda I. C. W. verið settar á fót. T. d. inn- fiutnings- og útflutningsnefndin, heil- brigðisnefndin, fræðslu- eða uppeldis- málanefndin, siðferðisnefndin o. fl. Sum landasambönd hafa skipað nefndir með sama markmiði, og get- ur hver þeirra haft sjálfstæða sam- vinnu við tilsvarandi nefnd I. C. W. Eg vildi benda á hve miklu þýð- ingu starf þessara nefnda gæti haft, ekki sísl til þess, að vekja sjálfstæða utnhugsun, bæði á þeim sviðum, sem nefnd hafa verið og öðrum. Annar þátturinn í kvenna-hreyfing- unni hefir, sem kunnugt er, verið barátta þeirra fyrir réttindum sínum. Nú hefir sú barátta í flestum lönd- um gengið með sigur af hólmi, en systur- eða móðurhreyfingingin er skamt komin á leið; konur í öllum löndum standa þar í miðri fylkingu. Mcr koma hér í hug orð þeirrar konu, er mest hefir á stríðsárunum unnið fyrir þýzku börnin og þar með ef lil vill allra manna mest fyrir framtið í’ýzkalands, formanns Banda- 5 lags kvenna á Þýzkalandi, Dr. Ger- trud Baumer. Á aðalfundi Bandalags- ins í Köln síðastliðið haust farast henni þannig orð: »Vér megum ekki skoða pólitísk réttindi sem lokaþátt kvenna-hreifingarinnar, lítum heldur á þau sem byrjun. Þau eru aðeins mól til að fylla í því, er þeim er ætlað að innihalda. Konur nútímans mega ekki láta sér nægja að feta í fótspor karlmannanna, þvi síður ganga hugs- unarlauat inn í fylkingarnar; þær verða að læra að leita trausts hjá sjálfum sér og ná sjálfstæði í hugsun, sem eitt gerir manninn frjálsan«. Það er sú hugsun, er hér liggur til grundvallar, sem komið hefir konum til að láta sig uppeldismálin miklu varða. En til uppeldismála tel eg ekki eingöngu fræðslu barna og unglinga, heldur alt það, er lotið get- ur að andlegum og líkamlegum þroska barnsins og æskumannsins, t. d. bælt siðferði og húsakynni; meiri ábyrgð- artilfinning foreldranna gagnvart af- kvæminu, hreinni lotning fyrir líkam- legri og andlegri ákvörðun manns- ins. Eg þykist mæla rétt er eg segi, að þér konur, hafið ávalt fundið meir en nóg verkefni, og að við finnum allar sáran til þess hve litlu við fá- um afkastað, Það hlýtur því jafnan að vekja óskifta gleði, þegar einhver, látum það vera einstakt félag eða samband, hefir unnið það starf, er vér teljum réttmætt og til þrifa. Með því hefir ekkert verið tekið frá oss, heldur aukinn sómi kvenna og fé- lagshreyfingar þeirra yfirleitt. Það, að kunna að rnela að verðleikum,

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.