Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 24

Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 24
72 Ó Ð I N N Kvæntur 1898 Sigríði Sigurbjörnsdóttur, bróðurdóttir Kristmundar á Vígholtsstöðum. Þau hafa eignast 11 börn, er til fullorðins ára komust, en orðið fyrir þeirri sorg að missa 3 syni á 14 mánuðum. 2. Jón, fæddur 1874, er yngstur systkinanna. Kvænt- ur 1896 Þuríði Jónsdóttur, frændkonu sinni. Þau fluttu til Reykjavíkur 1919 og búa þar nú. Þau eiga 2 dætur uppkomnar: Guðríði og Guðrúnu. Enn er ótalin Astrós dóttir Jóns Markússonar og Sigríðar Bjarnadóttur, f. 1861. Hún ólst upp hjá móð- ur sinni að Geitastekk í Hörðudal þar til hún fluttist með Jóni bróður sínum til Vesturheims 1887. Þær mæðgur ólu upp söngkonuna Sigríði Hörðdal, sem er gift í Winnipeg píanóleikara Steingrími Hall. Ast- rós er á lífi í Winnipeg. Heimili þeirra Jóns og Guðríðar á Spákelsstöðum þótti vera fyrirmynd á margan hátt. Jón var vel greindur maður og búhöldur góður, hygginn og ráð- deildarsamur. Fór hann vel með allan búpening og átti ætíð nóg hey. Hann var 50 ára er hann giftist í, seinna sinn, en Guðríður 34 ára. Þótti brátt auðsjeð að hún var vel þeim vanda vaxin, er hún hafði tekið að sjer, því hún var flestum kostum búin, bæði sem eiginkona, stjúpa og móðir og bæði væn og skyn- söm, stilt og gætin, og alt vildi hún bæta og alstaðar koma fram til góðs. Var hún því virt og elskuð, ekki einungis á heimili sínu, heldur af nágrönnum, því allir vissu að hún átti ekki minstan þátf í því hvað ná- grennið var gott og friðsamt. Manni sínum, sem varð heilsulítill mjög seinni árin, var hún ástrík og um- hyggjusöm og var þeim mjög samhent um alla bú- stjórn og uppeldi barnanna, sem þau vildu vanda sem best. Móðir sína, sem varð fjörgömul, hafði hún hjá sjer og annaðist hana með mikilli ástúð og um- hyggjusemi. Systurnar hafa sagt mjer, að móðir þeirra kendi öllum börnunum að lesa, byrjaði að sýna þeim staf- ina, er þau komust á 6. árið, og sýndi þá oft á dag en aldrei nema lítið í einu, en henni tókst ætíð að gera þau fluglæs 7 ára. Samtímis fór hún að kenna þeim að taka lykkjuna, halda á nál, fljetta bandspotta, tæja ull og kemba litla stund í einu, en hún vandi þau á að halda sig að verkinu þessa litlu stund og innrætti þeim snemma þetta: »Vinn þú á meðan vinna ber, vík svo glaður að skemta þjer«. Hún vann mjög vel alla tóvinnu og kendi börnum sínum að vanda öll verk og þau lærðu öll að vefa og jeg man hvað þar voru fallegar salúnsofnar ábreiður yfir öllum rúm- um. Hver hlutur varð að vera á sínum stað og hvert verk að vera unkið á rjettum tíma. Faðir þeirra kendi þeim kristindóminn, spurði þau út úr og ljet þau lesa í Nýjatestamentinu. Hann reyndi á ýmsan hátt að glæða athygli þeirra, t. d. lofaði hann þeim oft til kirkju strax á barnsaldri, en er heim kom spurði hann þau ekki einungis um hvaða guð- spjall hefði verið lesið og hvað presturinn hefði sagt, heldur líka um alt mögulegt annað, sem þau hefðu sjeð og heyrt, og var það oft ýmislegt sem honum var fullkunnugt um, en í þeim einum tilgangi gert að vekja athygli og eftirtekt barnanna. Hann vildi vaka yfir siðferði þeirra og því ljet hann þau ætíð horfast í augu við sig er hann spurði þau um eitthvað það, sem honum þótti nokkurs um vert, og því hafa þau sagt frá, að þau væru þess alveg fullviss, að hann sæi strax á þeim, ef þau segðu ósatt eða leyndu hann einhvers. Móðir þeirra var manni sínum líka samhent í þessu og gætti þess vandlega að þau segðu ætíð satt, eins í smáu sem stóru, því sá mundi betur stand- ast freistingar, sem ekki kynni að ljúga. Þau Ijetu börn sín læra að skrifa og reikna, um annan lærdóm var þá ekki talað, og á kvöldvökunum voru lesnar sögur, helst Islendinga eða Noregskonunga o. m. fl. eða kveðnar rímur. Svo var á hverju vetrarkvöldi alla virka daga lesin hugvekja og sungnir sálmar, en á sunnudögum var Iesið í Vídalínspostillu allan ársins hring. Þannig innrættu þessir foreldrar börnum sfnum traust á guði og kendu þeim almenn vinnubrögð á- samt iðjusemi, trúmensku og sannleiksást. Þetta var aðalkjarninn í því veganesti, sem þau höfðu með sjer þá er þau lögðu út í lífið og vildi jeg nú óska, að það veganesti sem æskan nú ber frá garði mætti endast henni eins vel og Spákelsstaðasystkinunum entist sitt. Ritað í júlí 1935. Margrjet K. Jónsdóttir frá Hjarðarholti. Háskólafræðsla prófessors Ág. H. Bjarnason. Skýrir mengi mjög vel frá, metur drengi sanna; hefur lengi hrifið sá hugarstrengi manna. Fögur grundar hugtök hann, heillar lundu skýra. Hef þar fundið fróðleiksmann, fræðslu pundið dýra. Víða sfanda met þess manns, menning vandar sálin; skilur andinn hreini hans háfleyg vandamálin. Alfkona.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.