Verkamaðurinn - 26.01.1951, Page 4
Hafnarvarðarstaðan á Akureyri
er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. marz
næstkomandi.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu bæjarstjóra
fyrir 15. febrúar næstkomandi.
Akureyri, 15. janúar 1951.
Bæjarstjóri.
Sl ökkvi I iðsst jórastarf ið
á Akureyri
er laust til umsóknar frá næstu áramótum. Gert er
ráð fyrir að slökkviliðsstjóri hafi jafnframt á hendi
önnur störf í þágu bæjarins, er samrýmst geta starfi
slokkviliðsstjóra.
Ennfremur er ætlast til að væntanlegur slökkviliðs-
stjóri kynni sér stjórn slökkviliðs og björgunarstörf
í Reykjavík eða erlendis samkvæmt nánara sam-
komu lagi við bæjarstjórn, ef hann hefur ekki áður
aflað sér þekkingar á þeim málum.
Umsóknarfrestur sé til 15. febrúar næstkomandi.
Akureyri, 25. janúar 1951.
Bæjarstjóri.
Lánsútboð vegna
Laxárvirkjunar
Eins og auglýst hefur verið hér í
blaðinu, er hafin sala skuldabréfa
vegna Laxárvirkjunarinnar, en
ætlunin er að taka þannig innan-
ríkislán að upphæð 5 millj. króna.
Vextir af skuldabréfum þessum
verða 6% og eru 3ja ára vextir
greiddir fyrirfram eða um leið og
bréfin eru seld.
Er hér í alla staði um hagkvæm
skuldabréf að ræða og ættu allir
þeir bæjarbúar, sem þess eru
megnugir, að styrkja þetta mikla
hagsmunafyrirtæki — Laxárvirkj-
unina — með því að kaupa bréf
Skuldabréfin fást hjá öllum bönk-
um og einnig á skrifstofu Rafveit-
unnar.
Ungur maður
óskar eftir að kynnast
sttdkn á aldrinnm 35—40
ára, með hjúskap fyrir
augum. Má hafa með sér
barn. Tilboð sendist af
greiðslu blaðsins, merkt:
G. S.
Framhaldsstofnfundur
r r
Akureyrardeildar MIR - Menningartengsla Islands og
Ráðstjórnarríkjanna
verður að Hótel Norðurland n. k. sunnudag, 28.
þ. m. kl. 2 e. h. stundvíslega.
DAGSKRÁ:
1. Kvikmyndir (Moskva 800 ára (agfa-litmynd)
og fréttamyndir).
2. Stutt erindi (Eyjólfur Árnason).
3. Stjórnarkosning og umræður um starfsemi
félagsins.
Sýningin
Lenin í verkum rússneskra
myndlistarmanna
verður opnuð í Verkalýðshúsinu laugardaginn
27. þ. m. kl. 4 e. h. og verður opin til kl. 11,30 e. h:
Á sunnudaginn verður sýningin opin frá kl. 10
f. h. til kl. 11.30 e. h.
í sambandi við sýninguna verða kvikmyndasýn-
ingar í Verkalýðshúsinu bæði kvöldin kl. 9 e. h.
Á laugardagskvöldið verður sýnd
Orustan um Stalingrad
ög á sunnudagskvöldið
Sigurgangan
og ýmsar smámyndir.
Aðgangur að sýningunni kostar kr. 2.00 og að
kvikmyndasýningunum kr. 5.00.
Stjórn Akureyrardeildar MÍR.
Minningarorð
(Framhald af 3. síðu).
menninðar- og félagsmál til sín
taka, var hún ein og stofnendum
Húsmæðrafélags Akureyrar og
gjaldkeri þess frá byrjun, sæti átti
hún í skólanefnd Húsmæðraskóla
Akureyrar.
Vildi hún vinna að menntun og
rroska kvenna, enda sýndi það
sjálf í starfi sínu, að þær eru ekki
síður hæfar til starfs á hinum
ýmsu sviðum þjóðfélagsins, en
karlar. Glöggt auga hafði hún fyrir
göllum þess þjóðfélags, sem við
búum við og vildi af alhug rétta
hlut lítilmagnans.
Mátti hún ekkert aumt sjá og
hjélpaði með ráðum og dáð þeim,
sem leituðu ásjár hennar, hvort
heldur voru skyldir eða vanda
lausir.
Gift var Sigríður Gísla Sigur-
VERKAMADURININ
Framhalds-stofn-
fundur MÍR
á sunnudaginn
Framhaldsstofnfundur MÍR
verður næstk. sunnudag að Hótel
Norðurlandi og hefst kl. 2 e. h.
Fundurinn hefst með því að
sýndar verða kvikmyndir: Moskva
800 ára, sem tekin er í agfa-litum,
sem rússneskar kvikmyndir eru
orðnar frægar fyrir, og tvær frétta
myndir frá Ráðstjórnarríkjunum.
Að lokinni kvikmyndasýning-
unni flytur Eyjólfur Arnason stutt
erindi, en síðan verður kosin
stjórn félagsins og rætt um fram-
tíðarstarfsemi þess.
jónssyni bílstjóra, eiga þau hjón
tvö efnileg og mannvænleg böm,
sem hún unni mjög. Atti hún því
mikið verk óunnið og hefði að
sjálfsögðu kosið að lifa lengur á
meðal ástvina sinna og starfa að
hinum öðrum áhugamálum sínum.
En nú er hún horfin af hinu at-
hafnaríka starfssviði sínu á bezta
þroskaskeiði, aðeins 46 ára gömul.
Við vinir hennar og kunningjar
kveðjum hana og þökkum henni
samveruna og huggum okkur við,
að henni verði að trú sinni, að
æðra starf bíði hennar á öðrum
sviðum tilverunnar, þar sem kær-
leikur og friður ríki.
25. janúar 1951.
E. E.
# Haía skal ...
(Framhald af 1. síðu).
von. Hvernig gat það líka komið
fyrir hann, að í ekki stærri grein
en þetta, sem birtist í Alþýðu-
manninum, skyldi ekkert einasta
orð vera satt? Já, hvernig gat þetta
komið fyrir? Ekki skrökvar þú
viljandi, Bragi, er það? Eða eru
þér þessi ósköp óviðráðanleg?
Eitthvað hlýtur það að vera. Eg
veit að þú átt erfitt með að éta
þetta ofan í þig, þess vegna læt eg
fylgja hér með umsögn verka-
manns úr Ullarþvottastöðinni um
þetta mál, þér til hressingar.
„Þann 17. jan. 1951 kom for-
maður Iðju, Jón Ingimarsson,
til mín og Gunnars Arnasonar,
en við viimum í Ullarþvotta-
stöð Gefjunar, og óskaði eftir
því að við gengjum í Iðju, félag
verksmiðjufólks, rituðum við
nöf nokkar á inntökubeiðnir og
óskuðum við jafnframt að for-
maður Iðju sæi um það fyrir
okkar hönd að sjá um yfir-
færslu úr Verkamannafélagi
Akureyrarkaupstaðar í Iðju.
Akureyri, 23. janúar 1951.
Bernharð Jósefsson."
Að lokum skal það fram tekið,
að eg hafði engin afskipti um það,
hvort þessir menn neyttu atkvæð-
isréttar í kosningunum í Verka-
mannafélaginu eða ekki. Enda leit-
aðiaði kjörstjórnin engra upplýs-
inga hjá mér, annarra en þeirra, að
óskað var eftir að sjá lög Iðju, sem
var auðfengið.
Jón Ingimarsson.
Skorað er á fólk að fjölmenna
4 ÞAKKA HJAR l'ANLEGA heimsóknir, gjafir, skeyti
o£ annan vinarhug í tilefni af 50 dra afmœli mtnu 23.
janúar síðastliðinn. — Lifið heil.
PÁLMI JÓNSSON, Ægisgötu 23.
Bifreiðaskattur,
skoðunargjald og vátryggingariðgjald ökumanna
fyrir árið 1950, féll.u í gjalddaga 1. janúar síðastl.
Eigendur og umráðamenn bifreiða og bifhjóla
eru áminntir um að greiða gjöld þessi í skrifstofu
minni hið allra fyrsta.
Skrifstofu Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu 24. jan. 1951.