Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 38

Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 38
útum vestur eða austurhlið búgarðsins, svo hæpið væri að bíða þar til að sjá hann. Mjer væri bezt að korna aptur í næstu viku. Skyldi hann þá gera allt sem í sínu valdi stæði til þess, að jeg næði fundi Bismarcks. Jeg þakkaði manninum fyrir góðvild hans og lofaði hann fyrir, að hann sagði mjer hreint og beint, að ekki væri tiltökumál að hitta Bis- marck þann dag. Skjallaði jeg hann dálítíð og sagði, að þeir Bismarck væru ætíð nefndir i sömu andránni og mundi svo verða um ókomnar aldir. Hann ljet vel yfir þessu, fylgdi mjer út um hliðið og var mjög málreifur. Skildum við með mestu virktum. Gekk jeg síðan um skóginn með Þjóðverjunum frá Kaliforníu og tókum vjer oss hressingn i veitingahúsi i grendinni. Heyrði jeg þar margar skrýtlur um Bismarck, því hann tekur hvern dóna tali, sem hann hittir i skóginum, og er þá opt gamansamur og meinfyndinn. Vinnuharður kvað hann vera og spar á fje, en vinnufólki hans þykir samt vænt um hann, þvi hann spjall- ar opt við það og er þá lítillátur. Pykir þeim sómi i þvi að þjóna honum. Um klukkan fimm kom jeg með förunautum mínum að vesturhliði hallarinnar. Stóð þar þá hópur af hvitklæddum stúlkubörnum og var að syngja þjóðsöngva. Pað var skóli og voru kennslukonurnar með. Allt i einu var lokum skotið frá og stúlknafansinum hleypt inn. Siðan voru járngrindur opnaðar, og var öllum vísað inn á grasflöt fyrir hallardyrum. Sat höfuðpaurinn þar sjálfur á stóli, sem stóð á palli, og skútti þekjan fram yfir hann. Yglibrýr hans voru ljettar, þvi söngurinn hafði bliðk- að karltetrið. Stúlkurnar námu staðar fyrir framan hann og stóðu kennslukonurn- ar fremstar með blómstur í höndunum. Ein yngismærin þuldi svo upp úr sjer lofkvæði, drápu um Bismarck. Stóð dálítið i henni, en annars var málrómur hennar snjallur. Begar hún lauk kvæðinu, stóð Bismarck upp, tók húfuna af höfðinu og kyssti hana. Kvæðið hafði fengið svo á hann, að tárin runnu ofan kinnarnar á honum, en er kvennfólkið sá það, fór það að hágráta. Tók hann nú klökkur við blómstrunum og spurði kennslukonurnar um hag þeirra, kennsluna o. s. frv. Siðan gaf hann þeim bendingu og kvöddu þær hann með hneigingum og beyg- ingum. Bismarck á tvo heljarstóra hunda. Beir voru að sleikja og flaðra upp um fólkið, svo Bismarck varð opt að hasta á þá. Hann er haltur i fæti og hefur hann þvi á fótskemli. Chrysander gerði mjer nú bend- ingu og jeg heilsaði upp á karlinn. Hann tók vingjarnlega í hendina á mjer og bauð mjer til sætis á stóli, við hliðina á sjer, rjett eins og jeg væri einhver stórhöfðingi. Hafði jeg nú gott færi á að skoða karl- sauðinn i krók og kring, meðan jeg talaði við hann, i fjórðung stund-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.