Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 59

Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 59
219 aptur aðrir, sem eru staðráðnir i að þreytast ekki i viðleitni sinni við að gera mönnum þetta skiljanlegt. Og jeg trúi þvi, að þeir verði sigur- sælir — hjer eins og i öðrum löndum. Auðvitað mætti svo virðast, sem það sje ekki góðsviti, að þeir skjddu ekki einu sinni geta fengið því framgengt á þingi í sumar, að 5000 krónum yrði varið til þess, að fá járnbrautarfræðing til að kanna part af landinu. En eik fellur ekki við fyrsta högg, og lætur þó enginn skógarhöggsmaður hugfallast fyrir það. _ SKEMMTANIR, MENNTAFÝSN OG HUGSUNARHÁTTUR í RVIK. Með haustinu og skammdeginu fer samkvæmislif þessa bæjar að rakna úr rotinu. Ýmiskonar fjelög fara þá að gægjast upp úr surnar- hvíldinni, eins og grösin á vorin upp úr vetrardauðanum, með ræðu- höldum, lestri, söng og dansi; jafnvel ekki dæmalaust, að fyrirlestur sje boðaður; og sjónleikja er von innan skamms. Jeg hef átt kost á að vera á flestum þeim skemmtisamkomum, sem enn hafa verið á boðstólum, og það sem jeg hef einkum veitt eptirtekt er það, hve áheyrendur eru ólíkir hjer og í Winnipeg. Pögnin, kyrð- in á samkomum hjer er alveg eins og i kirkjunni — það er að segja, þegar ekki er verið að gipta þar. Jeg minnist þess sem sænsk kona sagði við mig fyrir mörgurn árum, eptir að hafa ferðazt hjer um land sumartima. Hún kvaðst aldrei hafa heyrt nokkurn Islending hlæja. Rað mætti víst vera eitthvað skritið, sem lesið væri fyrir almenningi hjer, til þess hátíðleikasvipurinn færi með öllu af fólkinu. Menn klappa, beg- ar hver um sig er búinn, svona hjer um bil hvernig sem frammistaðan hefur verið; en fari einhver f y r að láta í ljós einhverja velþóknunar- bending, þá þykir mönnum ekki örgrannt um, að hann hljóti að hafa fengið sjer heldur mikið i staupinu — og það hvað vel sem mönnum annars likar. Eað væri i einu orði mjög mörgum sinnum ánægjulegra að vera hjer á samkomum, ef menn væru ekki eins óþolandi hátiðlegir eins og þeir eru. Jeg gat þess, að ekki væri dæmalaust, að hjer væri boðað til fyrir- lestra. Pað mun mega svona hjer um bil fullyrða, að aldrei hafi nokk- ur óbreyttur alþýðumaður, sem kallað er, komið inn á slíka samkomu, ef hann hefur ekki komizt það ókeypis. Sumpart er það sjálfsagt fyrir fátæktar sakir. En jafnframt er það vist líka áreiðanlegt, að leitun mun vera á þeim manni i hópi reglulegra alþýðumanna hjer, sjóróðramanna, óbreyttra verkamanna, vinnukvenna o. s. frv., sem nokkurn tima hefur komið til hugar, að hann ætti nokkurt erindi á slíkar samkomur. Sú bending um menntunarástand fólksins hjer i bæ er skýrari en hvað hún er ánægjuleg. Enda eru sögurnar, sem sagðar eru því viðvíkjandi, frern- ur ískyggilegar. Mjög margir kjósendur bæjarins botna, að sögn, ekki minnstu vitund í allra einföldustu atriðunum i bæjarstjórnarfyrirkomulag- inu. Og af alþýðu manna hjer er svo að segja alls engin bók keypt nje lesin, nema barnaskólabækur. Pað skyldi þá vera helzt, að þvi er sagt er, eitthvað af allra-vitlausustu riddarasögum. Um fræðibækur er ekki að tala. Fólk lítur svo á, sem öllu fróðleiksnámi sje að sjálfsögðu lokið, þegar komið er út úr barnaskólunum og fermingin afstaðin. »Hið islenzka Stúdentafjelag« heitir fjelag eitt hjer í bænurn. Petta fjelag hefur nú nýlega samþykkt að leitast við að leggja sinn litla skerf til aukningar alþýðumenntunarinnar hjer, með þvi að bindast fyrir al-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.