Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Side 13

Eimreiðin - 01.09.1903, Side 13
173 verkefnið í hærri og betri stefnu, hina jákvæðu-rannsóknarstefnuna. En rannsóktr er ónóg til pósitívrar byggingar; vér verðum að sjá árangur, sem er verulegur, læra sannar vísindameðferðir, sjá og finna skýlausan arð og afkomu; fyrir því mun sjáari 20. ald- arinnar telja óhjákvæmilegt að leggja áherzluna á gildi lúns hlut- læga (objektíva). 2. Er hið illa jákvætt (pósitívt)? Eftir þessar inngangs-athugasemdir getum vér betur skilið hvernig á því stóð, að súbjektívisminn varð undirrót þeirrar setningar, að hið illa sé neikvæð hugmynd, en enginn já- kvæður gjörandi (faktor) í tilverunni. Og ef vér viljum finna nú- tíma-höfund, er einna skýrast tekur fram neikvæði hins illa, má benda á söguna »Brotin vopn« eftir Berthu von Suttner, ein- hvern helzta verjara allsherjar-friðarins. Hún veit, engu síður en Schopenhauer vissi það, að böl lífsins er jákvætt, með því að hún lýsir svo vel ógnum ófriðarins í öllum hans algleymingi. Samt sem áður hefir hún varið heilum kafla af bók sinni, þeim er hún kallar: »Máldagaskrá sálarinnar«, til sönnunar þeirri setning, að princíp hins illa sé sjónhverfitig ein. Hún segir: »Eg trúi eigi sjónhverfingum ilsku, böls og dauða, það eru skuggar eitiir, en ekkert í sjálfu sér. Myrkur er = vöntun ljóss. Pað eru neikvæðir hlutir, vantanir þess, sem verulega er til. Ljós er til, en eigi myrkur; líf er til, en dauði er eigi annað en að lífsfyrirburðurinn (fenómenið) hverfur. ... Vér játum að Ozmuzd og Ahriman, eða guð og djöfullinn, séu að m. k. hugsanlegar verur, en til éru aör- ir gagnstæðir hlutir, sem bersýnilega eru ekki annað en vöntun hins gagnstæða. Hugsum oss þögn, sem svo sé rík, að hún nið- urbæli hávaða! Myrkur hefir engin stig, en það hefir ljósið. Til er meira ljós og minna, en ýmislegar aðgreiningar á myrkri geta eigi annað þýtt en lítið ljós eða minna. Pannig er um lífið, það er stærð, en dauðinn er núll. Nolckuð og ekkert getur eigi átt í höggi saman. Ekkert er allsvana, ekkert, eins og sjálfstæð hug- mynd, er örverpi mannlegs breyskleika. Tveir verða að vera um hverja deilu. Sé ég í herberginu, er ég hér; fari ég burt, er ég hér eigi framar. Pað getur enginn ágreiningur orðið um mína hér nálægð og þar-nálægð í senn«. Petta er hin hugvitsamasta og Tullkomnasta afneitun á tilveru

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.