Eimreiðin - 01.09.1903, Blaðsíða 40
200
Salmónevs1 dirfði sig til að þruma móti þér, enda var það ekkt
ólíklegt af honum, stórbokkanum og fantinum, við jafn-rolulegan
og óreiðigjarnan Sevs. Var það ekki von? Pví þú sefur, viti
menn, eins og þú hefðir etið af svefnrót og hvorki heyrirðu til
þeirra, sem rangt sverja, né horfir á þá, sem rangt gera, heldur
ertu augndapur og sljóskygn við alt, sem fram fer, og heyrnar-
daufur eins og útlifað gamalmenni.
3. Pví meðan þú varst enn þá ungur og ákaflyndur og
fólskan mögnuð, þá gekstu skörulega fram móti ranglætismönn-
um og ribböldum og gafst þeim aldrei grið, heldur var þrumu-
fleinninn alt af á lofti, ægiskjöldurinn hristist, þruman drundi og
eldingaskotin gengu jafnt og þétt eins og örvadrífa í skotbardaga;
jörðin skalf eins og skekið sáld, snjónum kingdi niður og haglið-
dundi sem grjótflug og svo ég taki munninn duglega fullan við'
þig — þá var rigningin grenjandi og ofsaleg, hver dropi var
vatnsfall, svo að á Devkalíons dögum varð hinn minnilegasti
skiptapi rétt á svipstundu og sukku öll skip í kaf nema ein dálítil
örk; hún komst af með naumindum og kendi grunns á Lýkor-
evs2 og hafði hún að geyma lífkveikju mannlegs sæðis, til þess
að þar af skyldi æxlast enn verri kynslóð en sú fyrri.
4. Pess vegna færðu líka hjá þeim rétt mátuleg laun fyrir
kæruleysi þitt, því enginn færir þér framar fórnir eða kranza,
nema einhverjum skyldi verða það að vegi við olympisku leikana.
svona hinseiginn, og ekki af því honum þyki nein nauðsytt tii
bera, heldur einungis af því hann vill fylgja gamalli venju. Pess
verður ekki langt að bíða, að þeir fara með þig eins og annan
Kronos, þú mæringur guðanna! og steypa þér úr tigninni. Eg
fæ mér nú ekki til orða hvað oft þeir hafa ruplað musteri þitt; já,
þeir hafa enda lagt hendur á þig í Olympíu3 og þú sjálfur, háþrum-
arinn, varst ekki einu sintti svo hugaður, að þú þyrðir að vekja
hundana eða kalla á nágrannana, að þeir kærnu í skyndi til hjálpar
og gripu þjófana, meðan þeir vóru að taka saman þýftð til þess að
flýja burt með það. Nei, nei, þarna situr þú, ágæti Gíganta bani
1 Salmónevs Eólosarson (bróðir Sisýfosar) ofmetnaðist svo mjög, að hann
taldi sig jafnsnjallan Sevs; líkti eítir þrumugnýmim, með því að aka vagni sínum
eftir glymjandi koparbrú en eftir eldingunum með blysum. Fyrir þá óhæfu steypti
Sevs honum niður í Tartaros (Myrkheim).
2 Lýkorevs var forn borg sunnan tii í fjallinu Parnassos.
3 í Olympíu í Elis var Sevshof og í því hin fræga líkneskja hans eftir Fidías.