Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Page 18

Eimreiðin - 01.01.1905, Page 18
i8 tvennu: að losa landssjóð við þau gjöld, sem nú ganga úr hon- til prestanna, en bæta þó jafnframt launakjör þeirra. Og eina ráðið til þess virðist vera: að fækka prestum að mun. Samkvæmt skýrslum um fólksfjölda á íslandi x. febr. 1801 vóru klerkar landsins þá 231, en nú eru þeir ekki nema 146 (að prestaskólakennurunum meðtöldum, sem ekki vóru til 1801). Petta hefur þá klerkum fækkað á 19. öldinni, án þess að sýnilegt sé, að þjóðfélagið hafi beðið verulegan hnekki við það. En það má óefað fækka þeim enn að miklum mun, steypa prestaköllun- um svo saman, að þau verði ekki nema 100, í staðinn fyrir 142, sem þau nú eru. Væri þá landssjóðstillaginu (nál. 28,000 kr.), sem nú gengur til launa og eftirlauna presta, slept, þá yrði eftir til launa handa þeim 142,000 kr., svo að laun 100 presta yrðu til jafnaðar 1420 kr., og má það ekki minna vera. Pó mundu þeir nú geta komist af með þessi laun, með því altaf má gera ráð fyrir nokkrum aukatekjum og arð af búskap víðast hvar, ef þeim væru trygð þau í peningum. En til þess verður einhver ráð að finna og má gera ráð fyrir, að kirkjumálanefndin, sem nú er að starfa að þessu, finni þau. En hætt er nú við að sumir kunni að álíta þessa fækkun prestanna of mikla. Prestaköllin yrðu of stór og örðug yfirferðar og gæti því trúarlífinu verið hætta búin. Vér getum ekki verið á þeirri skoðun, heldur ér oss næst að ætla, að óhætt væri að fækka prestunum enn meir og bæta að sama skapi laun þeirra. því í rauninni mættu þau varla minni vera en 1500 kr. til jafn- aðar, ef þeim væri gért að skyldu að sjá ekkjum sínum borgið á líkan hátt og aðrir embættismenn. En það álítum vér sjálfsagt, því það er óhæfilegt, hvernig nú er farið með prestsekkjurnar. Að því er fækkun presta snertir, viljum vér enn á ný biðja menn að líta til granna okkar Færeyinganna. Hjá þeim hafa að minsta kosti sumir prestarnir 7—8 kirkjum að þjóna, og ekki eru samgöngurnar greiðari hjá þeim en oss. Og þó mun trúarlífið á Færeyjum vera í fult eins góðu lagi eða reyndar betra, heldur en hjá oss með allan okkar prestafjölda. Auðvitað eiga þeir ekki kost á að hlýða á messugjörð á hverjum sunnudegi, en með því meiri alvörugefni og guðrækni taka þeir þátt í guðsþjónustunni, þegar þeir eiga hennar kost. Pað er því vísast að bæði fækkun prestanna og breytingin á launakjörum þeirra yrðu til þess, að glæða trúarlífið. Fækkunin mundi leiða til þess, að menn sæktu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.