Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 75

Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 75
75 með Vesturlandinu og norður fyrir Horn og fer að brydda á þeim að mun fyrir Norðurlandi í júlímánuði, en til Austurlandsins komast þau ekki fyr en í september eða síðar og koma þá ætíð norðan um land, en ekki frá suðurströndinni til Austur- landsins. Aftur er jafnan mikið af veturgömlum þorskseiðum og eldri bæði við Austur- og Norðurlandið, sem haga þó misjafnlega göngum sínum þar, t. d. frá grunnsævi út á djúpið o. s. frv. Hér við bætast svo göngur fullorðna þorsksins, sem eru margvíslegar; en mest kveður þó að göngum hans á vorin á grunnmiðin úti fyrir suður- og suðvesturströndinni, þar sem ótölulegur grúi af honum safnast saman til að hrygna. Allar þessar fiskigöngur má kalla æxlunargöngur einu nafni. í^egar hrygningunni er lokið fer fullorðni þorskurinn aftur á flakk og hverfur nú að mestu af grunnmiðunum við Suður- og Suðvesturlandið. Leggur þá nokkuð af hon- um frá landi út á djúpið, en meginþorri hans virðist leita norður á bóginn, til Norð- vestur-, Norður- og Austurlandsins, þar sem sjórinn er kaldari og nóg er af fæðu handa honum á sumrin (t. d. loðna, sandsíli, síld o. fl.). Þessat' göngur má kalla framfærslugöngur, þar sem þær eingöngu virðast stefna á staði, þar sem nóg er af fæðu, en þar sem hrygning getur eigi átt sér stað En auk þessa eru og aðrar göngur, hin svonefndu fiskihlaup, er fiskurinn færir sig ýmist fjær eða nær strönd- inni, af grunnmiðum út á djúpið eða úr djúpi og á grunnmið o. s. frv., og er enn eigi hægt að skýra, hvernig á þeim stendur. fetta, sem hér hefir verið sagt, er aðeins til að gefa dálitla hugmynd um, hve mikið praktiskt gildi þessar rannsóknir hafa; því auðsætt er, að ef menn þekkja lifnaðarhætii og göngur fiskanna, þá geta menn með nokkurnveginn vissu vitað, hvar þeirra er að leita á hverjum tíma árs og hagað veiðum sínum eftir því. En annars verðum vér að vísa mönnum í bókina sjálfa, öllum þeim er dönsku skilja; en helzt ætti að þýða bókina á íslenzku eða gera útdrátt úr henni, svo allir sjómenn ættu kost á að kynnast efni hennar. — Bókinni fylgja io uppdrættir, sem sýna bæði dýpi, hrygningarstöðvar, fiskimið og margt fleira umhverfis landið, og er prýðilega frá öllu gengið. Einn af þessum uppdráttum er eftir fiskifræðing vorn Bjarna Sæ- mundsson og lýkur höf. bókarinnar hinu mesta lofsorði á rannsóknir hans og starf- semi alla. í^að á hanu líka eflaust skilið, en dr. Schmidt á sjálfur líka mikið lof skilið af vorri hálfu fyrir rannsóknir sínar og alla framgöngu og stjórn Dana þakkir fyrir fjárframlagið til þeirra. V G. UM HRÓLF KRAKA OG SKJÖLDUNGA HINA FYRRI (»Danmarks helte- digtning, forste del: Rolf krake og den ældre Skjoldungrække«, Kbh. 1903) hefur dr. Axel Olrik nýlega ritað mikla bók (352 bls. í 8 bl. br.). Ber hann saman með mestu nákvæmni frásögurnar í heild og hver einstök atriði í þeim eins og frá er sagt í fornenskum kvæðum, Vídsíði og Bjóúlfi, Bjarkamálum hinum fornu (»Hús- karlahvöt«) og hinni latn. þýðingu Saxa fróða af þeim, frásögnum hans og forn- kvæðum, sögu Sveins Akasonar og kronikunni um konungana í Hleiðru, Skjöldunga- sögu, Hrólfs sögu kraka, Bjarkarímum o. fl. Við þennan samanburð, sem gerður er með framúrskarandi skarpskygni og víðtækri þekkingu, kemur hin upprunalega meining málsins og mergurinn orðanna í ljós. Hver þáttur, hvert einstakt atriði er vegið á metaskálum hugsunarfræði og dómgreindar, handleikið og rætt á ýmsar lundir, unz gullbrot sögu sannra viðburða skína gegnum skriftir skálda og sót sögukarla. í*á kemur það í ljós, og er stutt yfir sögu farið, að um 450—550 (á þjóðflutingatímabilinu) urðu með Dönum, einkum innan hirðar, þeir viðburðir, er frásögurnar hafa myndast um. Smáríki Dana eru þá orðin sameinuð í eina ríkis- heild og Hleiðrargarður á Sjálandi aðsetur konunganna; sötnuðust þar að þeim

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.